Vísir - 15.06.1964, Blaðsíða 6

Vísir - 15.06.1964, Blaðsíða 6
6 V1S IR . Laugardagur 13. júni 1964. Utgefandi: Blaðaútgáfan VTSIR Ritstjóri: Gunnar G Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen Björgvin Guðmundsson Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 krónur á mánuði. I lausasölu 5 kr eint. - Sfmi II660 (5 línur) Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f. Stóryrkja er leiðin Einn merkasti búnaðarvísindamaður landsins, dr. Sturla Friðriksson, flutti nýlega erindi á Hellu, sem hann nefndi „Stofnum til stóryrkju“. Það er alkunna, að einna helzt stendur það íslenzkum landbúnaði fyr- ir þrifum í dag, hve sumar jarðir eru litlar og illbýlar og veldur það lélegri fjárhagsafkomu stéttarinnar. Dr. j Sturla benti á framtíðarveg í þessum efnum. Hann sýndi fram á, að á samfelldum ræktunarsvæðum má stofna til stóryrkju og beita stórvirkum vélum á hag- rænan hátt. Bændum er í lófa lagið að beita bústofni sínum, geldneytum og sauðfé á ræktað land, en með því má skapa milljónaaukningu í búfjárstofni lands- manna. Kornyrkja og hraðþurrkun heys með vélum eru líka miklir framtíðarmöguleikar íslenzkra bænda. Þekking á þessum búskaparháttum er hér enn á byrj- unarstigi og miklu meira fé þarf að verja til rannsókna á þessu sviði. En til þess þarf að breyta hinum þröng- sýna framsóknarhugsunarhætti sem of víða ríkir enn í sveitunum, taka upp nýja stefnu og fara nýjar leiðir til bættra lífskjara. Vísindin varða leiðina og styrkja trúna á landið. Stúdentarnir og framtíðin í dag brautskráist stærsti stúdentahópurinn frá Menntaskólanum í Reykjavík, 211 talsins. Og glaðir stúdentar ganga út um dyr annarra menntaskóla lands- ins síðasta sinni, með hvítar húfur á kollunum. í bjart- sýni þessa unga fólks, menntun þess og starfsvilja felst framtíðarfjársjóður íslenzku þjóðarinnar. Það á eftir að gera landið enn betra og byggilegra með störf- um sínum, hvatningu og hugmyndum. Á þessum tíma- mótum færi vel á því, að hinir ungu stúdentar gerðu sér ljóst, að starfskrafta þeirra er ekki sízt þörf á sviði vísinda og tækni. Þar erum við íslendingar enn eftir- bátar annarra þjóða. Þótt húmanistiskar greinar séu í fullu gildi þá kallar nútíminn á tækni og vísinda- menn meir en nokkru sinni fyrr. Framfarir á þeim sviðum eru undirstaða þess að þjóðinni farnist vel í framtíðinni. Þar bíða heillandi heimar þess að þeir verði kannaðir og þar lyftir mannvitið grettistökum. Það er hamingjuósk Vísis til hinna ungu stúdenta, að þeir megi sem flestir leggja á þann brattann. Hlutleysið og stúlkan JTríð og fönguleg stúlka lýsir því í fyrradag yfir í Þjóðviljanum, að hún muni fara í gönguferð um Suð- umesin til þess að lýsa andúð sinni á „öllu hernaðar- brölti yfir höfuð“. Unga stúlkan ætti að velta því fyrir sér, hvers vegna ekkert land veraldar hefir lýst yfir ævarandi hlutleysi frá stríðslokum. [TSTJÓRI: JÓN BIRGIR PÉTURSSOI IfcsttnSaiwntmi 1111111® Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, vígir nýja vöilinn og sendir Erni Hallsteinssyni úr FH boltann. Bak við þá stendur Magnús Pétursson aiþjóðlegur dómari, sem dæmdi þennan leik. 2. DEILD Fjölmenni var á grasvelli Akur- eyringa á laugardaginn, þegar lið þeirra lék sinn fyrsta opinbera leik I sumar þar nyrðra. Áhorfendur létu ekki rigningu og leiðinlegt veður aftra sér og fengu líka að sjá m'kinn yfirburðasigur yfir iiði tsfirðinga. Ekki gekk Akureyringum vel að skora fyrsta markið, sem kom ekki fyrr en eftir 32 mínútur, þeg ar Valsteinn h. útherji, einn bezti maður liðsins skoraði. Fimm min. siðar skoraði Kári Árnason 2:0 og þannig var staðan I hálfleik. 1 seinni hálfleik skoraði Skúli Ág- ústsson 3:0 á 10 mfn., en eftir það var eins og ísafjarðarvörnin stæði ráðþrota frammi fyrir Steingrími Björnssyni, hinum marksækna mið herja Akureyringa, — og fimm sinnum fór hann upp á sjálfdæmi gegnum vörnina og skoraði á 25 mínútumi! Leiknum lauk með 8:0, sigri Ak- ureyrar, en á sfðustu mínútum áttu lsfirðingar tvfvegis færi á að skora mark, en tókst ekki. Jón Stefánsson var ekki með í þessum leik vegna meiðsla og Bjöm Helgason var heldur ekki með liði ísafjarðar. Akureyringar virðast ætla rakleitt í 1. deild og verður ekki séð að annað félag f 2. deild geti heft þá för. ★ Fyrsti leikurinn hjá Breiðabliki á heiniavelli fór fram á laugardag- inn í úrhellisrigningu og roki. Knattspyrnuvöllurinn við Kópa- vogsbraut og Vallargerði var form- lega tekinn I notkun og flutti bæj- arstjórinn Hjálmar Ólafsson stutta ræðu og sendi knöttinn til Hafn- firðinganna, sem hófu Ieikinn. Hafnfirðingar skoruðu fyrsta markið, sem var hálfgert klúður- mark, þvf boltinn rúllaði eftir mark Ifnunni og varnarmanni Kópavogs- liðsins tókst ekki að hreinsa frá markinu fyrr en boitinn hafði farið inn fyrir lfnuna. Breiðablik átti talsvert meira í leiknum en FH, en ekki tókst að skora mark fyrr en seint í sfðari hálfleik. Daði Jónsson, h. útherji sendi fallega sendingu inn á miðj- una, en þar tók 'Jón Ingi Ragnars- son, fljótur og hættulegur fram- STUTTA samtalid Innan skamms hefst 'j'-'ðatíma- bilið f sælurfk' skíðamanna vorra og þeirra sem vilja eyða sumarfríi sfnu f sólskini, hita og góðum snjó í Kerlingarfjóllum, en sá staður er sífellt að verða vinsælli og eft- irsóttari. „Við höldum eftir nokkra daga upp f fjöll, til að búa okkur I herji, við boltanum og skoraði á- gætt mark. Talsverður fjöldi áhorfenda kom til að horfa á heimaliðið, en að- staða er afar léleg fyrir áhorfend- ur og virðist það næsta verkefnið að bæta aðstöðu þeirra. undir að taka á móti gestum", sagði Valdimar Örnólfsson f stuttu viðtali, í gærkvöldi, „en 6. júlf fer svo fyrsti hópurinn og alls verða 3 námskeið í júlí og jafnmörg í ágúst". — Og hvernig er aðsóknin? „Við þurfum ekki að kvarta und- an því og ég held að færri komist en vilja í sumar, enda held ég að varla sé hægt að fá betri hvíld í sumarfrfinu en í kyrrðinni þar efra og við höfum kappkostað að halda verðinu á namskeiðunum niðri eftir megni“. — Ég hef heyrt að til standi að Framh. á bls. 3. Þama er fransk: OL-me;starinn í svigi, Bonlieu, í keppni. E. t v. kemur hann hingað í sumar og keppir í Kerlingarfjöllum. Kemur Bonlieu til keppni / Kerlingarfjöllum?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.