Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 7

Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 7
V í SIR . Föstudagúr 3. júlí 1364. —a—■motbctíBgwaagawnia^gáa iBanDaQBarsssQzsaaDuaasaaa^asDaananaaaaDaaDan SPJALL VIÐ KARL STRAND GEÐLÆKNI EcanGES^CECEDECGCEaccDEcnancJDaannnncnnnann >f TVTær allir íslendingar, sem hafa Iagt leið sína til Lon- don á undanförnum árum, kann- ast við Karl Strand lækni. Hann hefur greitt götu 1 fjölmargra landa í stórborginni, og að heimsækja lækninn og fjöl- skyldu hans í 22 Victoria Grove í South Kensington er eins og að vera horfinn inn í ram- íslenzkan heim, þar sem talað er með hörðum áherzlum og ís- lenzkur matur er á borðum. Karl Strand er á ferð hér heima um þessar mundir, og þegar Vísir spurði, að hann væri að vinna að bók, sem er eins konar framhald af bók hans, Hugur einn það veit (kom út 1960), fór blaðið á stúf- ana og nam að spjalla við lækninn, þótt hann væri önnum kafinn við ritstörf suður í Hafnarfirði. Hann vildi lítið tala um bók- ina og fór að dæmi margra, sem eru að skapa alvörubók- menntir, að kynna verkið sem minnst fyrirfram. Þess má geta, að Karl Strand er„ sérstaklega ritfær, eins og sjá má á bók hans og Lundúnapistlunum í Morgunblaðinu, : „Fjallar bókin um sérgrein yðar, geðfræði?“ „Efnið snýst um sturlanir — þetta er garnalt íslerjzkt orð, notað yfir geðveiki". „Á þetta skylt við hugsýki?" „Hugsýki nota ég um tauga- veiklun; það er dregið af gamla orðinu hugsjúkur.“ „Er sefasýki og hugsýki eitt og sama hugtakið?" „Sefasýki er hysteria, sem er ein 'tegund hugsýki". TVranni skildist á Karli, að " þessi nýja bók hans fjalli um ýmsar tegundir geðsjúk- dóma. „Ég skrifa hana með það fyrir augum, að hver hugsandi maður geti skilið hana — hún er ekki vísindalega framsett, þótt hún fjalli .um fræðileg efni. Það hefur verið vand- kvæðum bundið að setja þessa bók saman, því að erfitt er að skilgreina þetta efni með ís- lenzkum hugtökum". „Hvað vakir fyrir yður með því að sémja þók um geðveiki handa skynsömum almenn- ingi.?“ Karl læknir sagði, að fátt væri þa.ð til, sem fólki stæði meiri stuggur af en geðveiki, og viðhorf margra til geðsjúk- dóma væri mótað af vissri van- þekkingu. í fjölskyldum, þar sem hún gerði vart við sig, væri málið viðkvæmt, „en það er með sturlanir sem aðra sjúk- dóma, t.d. lömunarveiki, að hægt er að fá lækningu við þeim eða mikla bót. Sjúklingur, sem fær algera lömun, getur náð bata, eða svo miklum bata, að hann verði fær um að taka þátt í lífinu, jafnvel þótt hann þurfi að ganga við hækju. Eins er það með sjúkling, sem verð- ur sturlun að bráð; honum er hægt að hjálpa með sállækn- ingu, starfslækningum, raflækn- ingum og lyfjagjöf, og oft svo mikið, að hann getur orðið al- veg eða að miklu Ieyti þátt- takandi í llfinu". Karl lagði á það sérstaka á- Karl Strand Iæknir STURLANIR ÆTTUÍKKI AÐ VERA FEIMNISt herzlu, að fólki hrysi hugur við geðsjúkdómum (svipað og þeir væru feimnismál), meðal annars af því, hvað það veit lítið iim lækningamöguleika á þeim. Cpurður hvort sturlanir (eða ^ geðsjúkdómar) væru ætt- gengar, svaraði hann: „Það er vafalítið, að í sumum tegundum sturlana er um ein- hvers konar ættgengi að ræða sem orsakaþátt. Yfirleitt er þó ekki hægt að sanna, að þetta ættgengi fylgi ákveðið neinum erfðalögmálum.“ Hann bætti því svo við, að uppeldi og umhverfi léki mikið hlutverk í andlegri heilbrigði. Ætla mætti að sami persónuleiki gæti veikzt af sturlun eða slopp ið allt eftir því, hver aðbúð hans var, einkum í frum- bernsku, og hve margvlslegt á- Iag hann yrði að bera I lífi sínu. „En hvað segið þér um geð- villu (psychopathic state) — er hún geðsjúkdómur eða hug- sýki?“ „Geðvilla telst hvorki sturl- un eða hugsýki, heldur er hún sálrænt fyrirbæri, sem er eins konar huglæg bæklun, þar sem ábyrgðarleysi. takmörkuð skap- stjórn og vanhæfni að læra af reynslu eru megineinkenni. Af þessum geðrænu sökum skapast víðtæk félagsleg vandamál." |7ins og áður sagði hefur 1 Karl Strand verið starf- andi læknir við stóran geðsjúk dómaspítala, West Park Hospit- al í Surrey, rétt sunnan við London. Áður hafði hann unnið á National Hospital Queen Squ- are og ennfremur tekið kandí- datsárið við St. Bartholomeus Hospital (sem er almennur spít- ali). Um skeið vann hann á her- spítala i Oxford (að rannsókn- um með heilarita). Hann stund- aði nám á British Postgradu- ate Medical School Hammer- smith (almennar lyflækningar og taugasjúkdóma), en sérgrein sína, geðfræði, stundaði hann við Mawdsley Hospital (Insti- tute of Psychiatry í London). RÚLLUKRAGA-PEYSUR í miklu úrvali. Nýkomið fjölda margir litir. Verð aðeins 250 og 300 krónur. Veril. Dinícl Laugaveg 66, sími 11616 Lax- og silungsveiöi Nokkrir stangaveiðidagar til leigu í Hvítá í Borgarfirði. Nýtt og skemmtilegt veiðihús á staðnum. Allar nánari upplýsingar í síma 22630. Karl taldi, að lækningum geð- sjúkdóma hefði fleygt mikið fram í Bretlandi sem víðar um heim á undanförnum árum, t.d. væri miðað að því að skapa á spítölunum andrúmsloft, sem væri sem eðlilegast, og lagt væri mikið upp úr félagslegum aðgerðum, sem beindust að þvi að gera sjúklingana starfhæfa í lífinu. Auk annarra lækninga- aðferða væri beitt sállækningu, raflækningu og starfslækning- um, sem væru veigamikið at- riði. Af spjallinu við Karl var unnt að draga þá ályktun, að upp- runa sturlana væri þrátt fyrir allt ennþá erfitt að rekja. Menn standa ennþá gáttaðir á undr- um sálarlífsins, þótt ‘orsakir megi finna til sturlana og geð- rænnar veilu hjá mörgum, t.d. vefrænar orsakir (í ellisjúkdóm- um), toxisk áhrif hjá stund- argeggjuðum (af völdum áfengis eða eiturs eða sótthita), auk þeirrar þekkingar, sem geðlækn- ar hafa nú á umhverfisorsökum sturlana, og hann lagði áherzlu á, að væri mikilvæg. — stgr. Með verulegri lækkun mjólk ur og Iaunaskattinum til I- búðabygginga sýnir ríkisstjórn in hug sinn í verki Með þess- um aðgerðum er hún að vinna að því að veita launþegum raunhæfar kjarabætur. sem hvorki auka verðbólguna í landinu né verða stundarfyrir- brigði. Gundvöllur þessara kjarabóta, sem báðar voru til- kynntar í fyrradag, er sam- komulagið milli verklýðshreyf ingarinnar og vinnuveitenda. Er ekki að efa að launþegar munu kunna vel að meta þess ar aðgerðir. © Ný braut Launaskattinn greiða at- vinnurekendur og aðrir vinnu- veitendur. Samtals mun hann nema allt að 80 millj. króna á ári, en hann er 1% af út- borguðum launum. Vissuíega er þetta há upphæð og nokk- ur baggi á atvinnurekendur. En á það ber að Iíta, að fyrir vikið helzt vinnufriður vaént- anlega í landinu í heilt ár, eins og samningarnir við Dags brún gefa til kynna. Vissulega er það nokkurs virði. Hér hef ir verið farið inn á nýja braut í kaup og kjaramálum laun- þega í landinu, undir forystu forsætisráðherra. Öll teikn bertda til þess áð sú braut muni reynast mjög farsæl og skynsamleg, enda voru flestir orðnir þreyttir á hinum lang- vinnu og harðvítugu deilum milli verklýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda á undanförn um árum Ennþá er ósamið við mörg verklýðsfélög. Gera verður þó ráð fyrir því að samningar við þau muni ekki ganga erfiðlega. Dagsbrún hefir gefið fordæm ið og rammasamningur ríkis- stjórnarinnar er þar mikilvæg- ur grundvöllur til að byggja á. 0 Skrif Tímans Fróðlegt er að lesa verk- lýðsskrif Tímans þessa dag- ana. Blaðið hefir hvorki gleymt þvi né fyrirgefið að hvorki verklýðshreyfingin né ríkisstjórnin Ieitaði ráða hjá Framsóknarflokknum við lausn vandans. 1 leiðara Tím- ans í gær segir að „verka- menn geti að sjálfsögðu ekki unað við það“ að launin séu ekki stórhækkuð sem allra fyrst. Það muni verða aðal- krafa þeirra „að daglaununum verði komið í viðunandi horf“. Það er eins og menn sem þannig skrifa hafi verið í sum arleyfi norður á Sprengisandi og ekkert fylgzt með í stjórn- málum síðustu vikuna. Um það náðist einmitt fullt sam- komulag við verklýðshreyfing- tma að halda grunníaununum óbreyltum en auka kjarabætur í öðrum myndum. Þess vegna er broslegt og brjóstumkennan legt að lesa verklýðsbaráttu- skrif Tímans, svo fjarstæð eru þau og tilefnislaus. Að minnsta kosti ættu Tímamenn að Iesa Þjóðviljann áður en þeir skrifa næst um aðalkröfur verka- manna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.