Vísir - 19.08.1964, Blaðsíða 6

Vísir - 19.08.1964, Blaðsíða 6
V í S I R . Miövikudagur 19. ágúst 1964. íþrótfir i—i Framhald af bls. 2. Evrópukeppninni? Vissulega. Sú þátttaka ætti einmitt a8 ve.'a fyrsta skrefið í áttina upp á við, leiðin til nýrri átaka. Það er engin skömm að því að tapa fyrir góðum liðum, og enginn þarf að bera kinnroða fyrir slæmum úrslitum ef heiðariega er barizt. Hvenær hefði Albert Guð- mundsson orðið jafn frábær knattspyrnumaður og raun varð á, ef hann hefði ekki starf- að og leikið með og gegn því bezta sem völ var á? Hvenær geta ísl. knattspyrnumenn orðið góðir ef þeir eiga að húka hér uppi á íslandi í einangrun og áhugamennsku? Island er nú orðið eina iand- ið i Evrópu a.m.k., þar sem íþróttir eru eingöngu stundaðar af áhugamennsku. Meðan svo er, stöðnum við ekki aöeins, heldur drögumst langt aftur úr öðrum þjóðum. Munurinn á af- rekum ísl. íþróttamanna og þess bezta í heiminum verður sífellt meiri og me'iri. Það ætti leikur- inn ( fyrrakvöld að sanna okkur. Spurningin er þvi sú, hvort við gerum okkur ánægða með það ástand. Er atvinnumennska tímabær og framkvæmanleg á íslandi? Þá spurningu ættu íþrótta- unnendur að hugleiða. Ellert Schram. Minning — Framh. af bls. 7 hugfólgið til þess, og hann lók lítinn þátt í félagslífi bæjarins. Á héimili sínu undi hann bezt, oft með gamla, fágæta bók í hönd úr safni sínu, og hann var höfðingi heim að sækja, hverjum manni reifari, Þar bjuggu kona hans, Maja Ba!d- vinsdóttir, og Maja, dóttir nans, honum gott heimili, sem haun naut, ekki sízt í veikindum síðustu ára, er sjúkdómar höfðu svipt hann kennsluþreki. Lengi munum við norðan- menn geyma minningu Sigurð- ar L. Páissonar. Hann var ekki einungis hinn ágætasti fræðari, heldur líka óvenju yfirdreps- laus og hugheill maður. Gunnar G. Schram. Heimsókn — Framh at bls 16 Fimmtudaginn 20. ágúst verður flogið til Kuopio og komið þangað um kl. 10 f.h. Bær þessi, sem er um 300 km. norðaustúr frá Hpís- ingfors, er nýtizku iðnaðarborg og jafnframt eru þar einhver mestu vatnasvæði Finnlands. Verður bær- inn skoðaður, þar á meðal verka- mannabústaðir, en því næst býður bæjarstjórnin til hádegisverðar. Að honum loknum verður farið í um 2 klukkustunda vatnaferð. Ráð- gerð er móttaka hjá „landshöfð- ingja“ en að henni lokinni verð ur flogið aftur til Helsingfors. Föstudaginn 21 ágúst verður fyrrihluta dagsins varið í ne'm- sókn á sveitabæ í nágrenni Helsing fors, en eftir það býður Helsing- forsborg til hádegisverðar. Um kvöldið halda utanríkisráðherra- hjónin kvöldverðarboð og lýknr þar með hinni opinberu heimsókn í Finnlandi. I fylgd með utanríkisráðherra- hjónunum verða Árni Tryggvason ambassador fslands i Finnlandi og kona hans, Sigrún ögmundsdóttir. Spíritus Framhald af bls. 16. aðfaranótt s.l. laugardags, 15 þ. m. kom hörð frostnótt á Norðurlandi austanverðu og olli þar sýnilega miklu tjóni á kart- öflugrösum, einkum I Þingeyj- arsýslum og éinnig sums staðar við vestanverðan Eyjafjörð. Ef þessu heldur áfram, kulda- tíð og frostnóttum, er erfitt að spá um kartöfluuppskeruna 1 haust, sagði Jóhann Jónasson. Samt eru líkurnar í heild a’i- góðar, þótt sólskin hefði mátt vera öllu meira hér sunnan- lands. Og á ýmsum helztu kart- öflusvæðunum hefur ekki frétzt um neina frostskaða eins og í Þykkvabænum, Hornafirðinum og viðar. Visir spurði Jóhann hvað gert yrði við umfram fram- leiðslu á kartöflum ef spá hans rættist um að uppskeran í haust entist meir en til manneldis. Jóhann svaraði því til að þrenn- ir möguléikar væru fyrir hendi, þó enginn þeirra góður því ekki væri unnt að greiða fyrir kart- öflurnar það verð, sem bændur ættu að fá. Fyrsti kosturinn er sá, að nota kartöflurnar sem húsdýra- fóður. Það hefur einstöku sinn- um áður verið gert, en annað hvort er að bændur verða að selja þær með miklum afföllum, eða þá að fóðrið verður óvenju dýrt. Sá er annar kosturinn að flytja kartöflur til annarra landa, þar sem helzt er þörf fyrir þær. I því sambandi má geta þess, að meðal nágranna- þjóða okkar svo sem Dana og Hollendinga, sem myndu verða helztu keppinautar okkar um markaðinn, eru líkur fyrlr ó venju góðri uppskeru f ár. Þessa keppinauta okkar yrðum ■ við að undirbjóða til að komast ■ inn á markaðinn, því iítt þekktir á því sviði. Við þetta bætist mikill og dýr flutnings- kostnaður með skipum, svo að bændur myndu engan veginn verða ánægðir með árangurinn. Þriðji möguleikinn er sá, að nota kartöflur til iðnaðar. Þar kemur tvennt til greina. Annað það, að búa til mjöl úr kart- öflunum og hitt að framleiða úr þeim spíritus. Síðarnefndi möguléikinn virðist miklu hag- kvæmari, einfaldlega af þeirri ástæðu ,að markaður fyrir kart- öflumél er mjög lélegur og lít.ill hér á landi, en af spíritus fá menn aldrei nóg. Þar þarf naurn ast að óttast umfram fram- leiðslu. Þetta hefur orðið til þess að leitað hefur verið upplýsinga erlendis frá um möguleika tií að reisa spíritusverksmiðju hér á landi. Hefur verið leitað bæði til Póllands og Noregs þessara erinda, en málið er á algeru, frumstigi enn sem komið ei Samt er vitað að vélar til slikr- ar framleiðslu myndu kosta nokkrar milljónir króna, auk verksmiðjubyggingarinnar sjáltr ar. Það sem telja verður þó allra örðugast í þessu sam- bandi er rekstrargrundvöllurinn sjálfur. Hann er ekki mikili fyrir hendi á meðan landsmenn rækta ekki nema 10. hvert ár kartöflur umfram eigin matar- neyzlu. Og þess vegna er það þótt verið sé að athuga mögu- leika á byggingu spíritusverk- smiðju, Iangur vegur frá ar hægt sé að spá nokkru um byggingu hennar eða framtið Sfjórnnrfundur —■ Framh at hls ln sjá, dr. Rajah B. Manikam frá Ind landi, dr. Stefano Moshi frá Afríku, Tröllafoss siglir úr Reykja- víkurhöfn / síðasta sim — Já, ef tU vill verður þetta 1 sfðasta skiptið, sem Trölla- foss slglir út úr Reykjavikur- höfn, sagði Ragnar Ágústsson skipstjóri á Tröllafossi, þegar við hittum hann uppi á stjórn- palli skömmu áður en Trölla- foss lét úr höfn f gær. — Skoð- unarmaðurinn lauk við að skoða skipið kl. 10.30 í morgun og eftir 48 stundir fær Eimskip að vita, hvort úr kaupunum verður, bætti Ragnar við. Um eittleytið i gærdag sendi Tröllafoss frá sér þrjú löng flaut. Rétt á eftir voru land- festar leystar og Tröllafois lagði frá Ægisgarði og sigidi út úr Reykjavíkurhöfn. — ef til vill f síðasta sinn. Skipstjóri í þessari ferð er Ragnar Ágú.its son, sem undanfarið hefur ver- ið 1. stýrimaður, en Guðvarður Sigurðsson skipstjóri á Trölla- fossi fór f frí eftir að skipið kom úr síðustu ferð. Venjulega er 32 manna áhöfri á skipinu, en henni hefur verið fækkað niður í 21 mann. Trölla foss siglir tómur héðan til Ark- angelsk í Rússlandi, en þar tek- ur skipið timburfarm og flytur til Leith. Blaðamaður Vfsis hitti Ragn ar að máli uppi á stjórnpalli skömmu áður en Tröliafoss iét úr höfn. — Ég held að enginn yerði svikinn á því að kaupa þetta skip, sagði Ragnar og bætti síðan við: — Þessu skipi hefur verið haldið mjög vel við, eins og öðrum skipum félags- ins og núna er það nýkomið úr 16 ára klössun m.a. málað frá masturstoppi niður í kjöl, 48 klukkustundum eftir að skoðunarmaðurinn lauk við að skoða skipið verður skipafélag ið, sem hefur í athugun að kaupa það, að gefa ákveðið svar. Verður það þvf ljóst að fyrir kl. hálf ellefu í fyrramálið hvort Tröllafoss verður seldur suður-kóreönsku skipafélagi og muni sigla undir Líberíufána. Þegar Vísir hafði samband við skrifstofustjóra Eimskipa- félagsins í morgun hafði ekki borizt skeyti varðandi kaupin. og einnig koma stjórnarnefndar- menn frá Suður-Ameríku og Indó- nesíu. Ýmsar erlendar fréttastofur og blöð munu senda hingað fu;l- trúa sína í sambandi við þetta þing. Fimmtudaginn þriðja september verður haldin almenn samkoma í Þjóðleikhúsinu á vegum Lútherska heimssambandsins. Þar flytja bisk- up íslands og forseti heimssam- bandsins ávörp, en ræður flytja dr. Rajah B. Manikam, biskup f.'á Indlandi og dr. Sigurd Aske, út- varpsstjóri við útvarpsstöðina í Adess Abeba, Eþíópíu, sem Lútherska heimssambandið rekur, en hún nær til milljóna manna i Afriku og Asíu. Auk þess flytja innlendir listamenn tónlist á þess- ari samkomu I Þjóðleikhúsinu. Stjórnarfundi Lútherska heims- sambandsins verður slitið með guðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju stðdegis laugardaginn 5. septem- ber. Erlendir þátttakendur verða 54 að tölu að starfsmönnum sam- bandsins meðtöldum. Island á eng- an fulltrúa í stjórn Heimssambands ins en mun hafa um 20 áheyrnar- fulltrúa á stjórnarfundinum, þeirra meðal biskup og kirkjumálaráð- herra. Forsætísrh. Framh aí bls 1 að viðræður okkar snerust á neinn hátt um íslenzk mál, par er um engin sérstök vandamál að ræða og heimboðið til mfn var aðeins til sýna íslandi vm- semd og virðingu, úr því ég var á ferðalagi I Vesturáífu. Næst skýrði forsætisráðherra frá miðdegisverðarveizlunni með Dean Rusk utanríkisráð- herra. Þá veizlu sátu líka Bjórr. sonur hans og Thor Thors sendiherra. Einnig voru þar ýmsir helztu sérfræðingar Bandaríkjanna í Evrópumálum. Kvaðst forsætisráðherra hafa setið á tali við Dean Rusk í rúm ar hálftíma, og hefðu þær við ræður verið mjög upplýsandi um heimsmálin. Að því búnu ók Bjarni Bene- diktsson með fslenzka sendi- herranum að grafreitnum í Arl- ington. Þar tók hershöfðingi einn á móti honum og fór þar fram hernaðarieg athöfn með heiðursverði er forsætisráðherr ann lagði blómsveig á ieiði Kennedys forseta, var þetta fög ur og virðuleg athöfn. Mikdl fjöldi fólks var í garðinum við leiði hins látna forseta og þó ekki fleiri en tíðkast venjulega því að stöðugur straumur fólks er þangað, til að heiðra minn- ingu hins ástsæla forseta. Að lokum bað Vísir forsætis ráðherra að segja nokkur orð um það, hvernig ferðin hefoi gengið um Islendingabyggðirnar Hann svaraði: — Mér hefur hvarvetna veríð tekið mjög vel. Ég tel mig hafa lært mikið f þessari för. Ég hef séð margt, sem ég hafði ekki áður séð og sérstaklega hef ég sannfærzt um það hvílíka virðingu menn af fslenzK’im ættum hafa áunnið sér vestra. Það hefur og vakið nokkra at- hygli mína, hvað ég hef hitt ísl. menn víða og víðar en mað- ur ætlaði og hve fjölmennur sá hónur er vestanhafs, sem á ís- '“--kar ættir að rekja. Þetta - annars verið fremur erfið ferð. Maður hefur verið á sf- felldum ferðalögum og alltaf að hitta fleira fólk og maður verður hálf dasaður á þessu á endanum. Forsætisráðherra kvaðst mundu fara um borð í íslenzkt skip í New York sem siglir heimleiðis á fimmtudaginn. Siglufjörður — Framh af bls I um var hitinn við frostmark og slydda, en á Hveravöllum var frost og snjókoma. Sunnanlands er veður skárra og hitinn víðast 4—8 stig. Frá Siglufirði var Vísi simað : morgun að þar hafi byrjað að rigna I gærmorgun og samtímis tek:ð að snjóa til fjalla. Herti mjög á úrkomunni í nótt og í morgun vai þar vonzkuveður og fjöll hvít langt niður í hiíðar, Á Siglufjarðar- skarði var komin þæfingsófærð í gærkveldi, en þó ekki meiri en sí-g að kraftmiklir bílar komust leiðar sinnar. I morgun var útlitið him vegar iskyggilegra og vafasamt talið að Skarðið væri fært nokk- urri bifreið. Þó mun áætlunarbif reiðin hafa gert tilraun til að brjótast yfir það. Grátt var orðið niður í mið.iar hlíðar við Akureyri strax f gæ- morgun, en ekki var vitað hvori nokkuð hefur bætzt ofan á snjn- inn í nótt, bví slæmt skyggni va til fjalla i morgun. Á Akurevr' héfur rignt að heita má látlaust frá því í fyrrinótt og hitinn aðeiris 2tt3 stig. Kartöflugrös hafa víða látið á sjá í nágrenni Akureyrar og er ót - azt að ber hafi frosið. ... -.*St

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.