Vísir - 13.04.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 13.04.1965, Blaðsíða 1
M/s Langá í Reykjavikurhöfn í morgun. I morgun sigldi inn á Reykja- víkurhöfn, nýtt fslenzkt sklp, M. s. Hafskips h.f. Heimahöfn skips ins er Neskaupstaöur. Ms. Lang á er fjóröa skip félagsins og eins og þau fyrri byggt f V-Þýzka- landi. Skipstjóri er Steinar Kristjánsson. Selá, fyrsta skip Hafskips kom til landsins 31. desember 1959. — Skipstjórinn lét hið bezta af hinu nýja skipi og sagði m.a. við blaðamann Vísis í morgun: Langá virðist vera gott sjóskip, og gekk ferðin heim í alla staði vel. Skipið er 2230 tonn Deadweight að stærð og aðalvél þess 1500 hestöfl af Deutz-gerð. Ganghraðinn á heimleið reyndist vera tæpar 13 sjómílur. Vistarverur skipsins eru allar Framh. á bls. 7. Steinar Kristjánsson skipstjóri og Sigurður Njálsson frkvstj. Hafskip. ÖLVAÐUR UNGLINGUR OLLI STÓRSKEMMDUM í ÖKUFERÐ Mesta mildi var, að ekki hlauzt stórslys af ökuferð fjögurra drukk- inna ungmenna í nótt um götur Reykjavíkur. Höföu piltar nokkrir verið í Þórskaffi og drukkið þar 75 prósent Vodka úr hellli flösku og fóru um hálf-eitt út f bíl. sem þar var og lá eigandinn í bilnum for- drukkinn og veikur. Tóku þeir iykia úr vasa hans, að því er hann telur, og lögðu af stað í ökuferð. Var engum •umferðarreglum eða ijósum hlýtt og vakti ferðalag þeirra að vonum ótta þeirra, sem voru á ferli í bænum. Fór maður einn rakleiðis á lögreglustöðina og kærði fyrir varðstjóra, sem þegar sendi af stað menn sína til að leita uppi bílinn. Fréttist nú af honum vestur á Frarnh. á bls. 7. ISLENZKUR MADUR HEFUR GER- BREYTT FISKVEIÐUM Á CEYLON íslenzkur maður, að nafni Ein- ar Kvaran, hefur dvalizt undan- farin 12 ár austur á eynni Ceyl- on í Indlandshafi og starfað þar að þvf að kenna fiskimönnum notkun vélbáta og nýtfzkulegra veiðarfæra. Nú þegar hann snýr heim frá þessu starfi getur hann litið yfir mikinn árangur. Bylt- ing hefur orðið f fiskveiðum landsins og gerbreyting á tækj- um og kjörum fiskimannanna. Á Ceylon búa 12 milljónir manna og þurfa þeir 300 þús- und tonn af fiski á ári til neyzlu. Kringum eyjuna eru mjög auð- ug og góð fiskimið. Þrátt fyrir það hafa fiskimennirnir þar að- eins aflað hluta af þeim fiski sem þarf. Þegar landið varð sjálf stætt var ársafli aðeins um 24 þúsund tonn og þurfti að flytja inn mikið fiskmagn. Aflinn á s.l. ári varð 100 þúsund tonn og BLAÐ' Bls.2 Mafian ræður f Las Vegas — 3 Mesta uppboð sem haldlð hefur verið á ísl. frímerkjum. — 9 Stóriðja við Búrfell — alúminverksmiðja • 10 Talað við Boga Sig- urðsson hefði þó orðið talsvert miklu meiri, ef sú ógæfa hefði ekki borið að höndum að feikilegur hvirfilbylur olli stórfelldu tjóni á fiskiflotanum. En nú er þessi þróun komin af stað og sjá Ceylon-búar fram á það, að innan skamms verði þeir orðnir sjálfum sér nógir. Þeir stefna að því að koma árs- aflanum upp í 500 þúsund tonn og þá myndu þeir geta fiutt út talsvert magn. Einar lýsir yfir mikilli ánægju með það hve áhugi fiskimann- anna austur frá hefur lifnað. Fyrir 15 árum var ekki til þar einn einasti bátur, sem var vél- knúinn en í landinu voru um 20 þúsund litlir árabátar. Nú hefur árabátunum fækkað en í staðinn eru komnir um 800 bát- ar með innanborðsvélar og 1500 bátar með utanborðsmótorum. *---------------------------- Sjálfur hefur Einar þjálfað um 650 fiskimenn í meðferð véla og veiðarfæra. Ný kvikmyndasaga Nú er lokið framhaldssögunni Sonur Karólínu. Strax eftir pásk ana hefst hér f blaðinu ný fram- haldssaga. f þetta sinn er það kvikmyndasaga, sem miklar vin- sældir hefur hlotið erlendis. Nefnist hún „Bleiki pardus- inn“ eftir demanti einum, sem frásögnin snýst um að verulegu leyti — en hann er eign austur- lenzkrar prinsessu í útlegð og beita alþjóðlegir eðalsteinaræn- ingjar öllum brögðum til þess að stela þessum ómetanlega dýr- grip frá henni. Saga þessi, sem er í senn hin æsilegasta og þó 1 léttum tón, byggist á samnefndri kvikmynd með Claudie Cardinale Peter Sellers, David Niven, Robert Wagner og Capucine — hverja stjörnuna annarri skærari — i aðalhlutverkum, og birtast myndir úr henni í sögunni smám saman. Claudia Cardinale í hlutverki sínu í kvikmyndinni. Frumv. um skuttu ogútsvörlögð frum Persónufrádráttur hækkur csllt uð 3C% í gær voru lögð fram á AI- þingi tvö ctjómarfrumvörp. Fjallar annað þeirra um tekju- og eignaskatt, en hitt um tekju stofna sveitarfélaga. Samkvæmt þessum fmmvörpum hækkar persónufrádráttur verulega eða um 30% við framtal til útsvars og um 23% við álagninu til tekjuskatts. Hækkar persónufrá dráttur í fyrra tilfellinu úr 25 þús. kr. í 32.5 þús. fyrir ein- stakling og úr 35 þús. i 45.5 þús fyrir hjón í seinna tilfellinu hækkar fjölskyldufrádráttur um 15 þús. fyrir einstakling og um 21 þús. fyrir hjón. , I athugasei.idum með frum- varpinu um tekjustofna sveitar- félaga segir, að með frumvarpi því, sem hér liggi fyrir, er lagt tii, að persónufrádráttur verði hækkaður um 30% eða úr kr. 25.000.00 hjá einstaklingum í kr. 32.500.00, úr kr. 35.000.00 hjá hjónum í kr. 45.500.00 og fyrir hvert barn úr kr. 5.000.00 í kr. 6.500.00 Ennfremur er lagt til, að út- svarsstiganum vqrði breytt hjá einstaklingum og hjónum þann >g: 1. í stað tveggja tekjuútsvars- þrepa 20% og 30% komi þrjú þrep, 10%, 20% og 30%. 2. I sta~ þess, að nú em lögð 20% á fyrstu kr. 40.000.00 óg 30% á það sem umfram er, verði nú lögð 10% á fyrstu kr. 20.000.00 og 20% á næstu kr. 40.000.00 og 30% á það sem þar er umfram. 1 greinargerð með frumvarp- inu um tekju og eignaskatt seg- ir: Á sl. hausti fól fjármálaráð- Framh. á bls. 7.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.