Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 16
ISIJR Eðvarð Sigurðsson sjúkur Föstudagur 18. júní 1965 Eðvarð Sigurðsson, alþingismað- ur og formaður Dagsbrúnar var fluttur á sjúkrahús þann 16. júní. Hafði hann veikzt nóttina áður af kransæðastíflu. Eftir upplýsingum sem Vísir aflaði sér í morgun eru veikindi Jians ekki talin lífshættu- leg en hann mun verða að taka sér algjöra hvíld alllangan tíma, a.m.k. í einn mánuð. Eðvarð hefur sem kunnugt er stýrt samningaviðræð- um af hálfu Dagsbrúnar undan- farnar vikur. Varaformaður félags- ins er Guðmundur J. Guðmunds- son og tekur hann nú við þeim störfum Eðvarðs. Sigurbjörn Bjarnason tók þessa mynd af nýstúdentunum í Lystigarð inum á Akureyri. Nýstúdentar útskrifaðir á Akureyri Sóðviðri á þióðhátíðinni ó Akureyri í gær Einstök veðurblíða var á þjóð hátíðardaginn á Akureyri og sem fyrr settu hvítu kollamir, nýstúdentamir, svip sinn á hátíðahöldin. Hátíðin hófst með leik lúðra- sveitar á Ráðhústorginu, en síðan var gengið til fþróttaleikvangsins þar sem Magnús Jónsson fjármála ráðherra, og Sigurður H. Guð- mundsson, nýstúdent, fluttu ræður Þar fór síðan fram fimleikasýning og íþróttakeppni auk knattspymu kappleiks milli blaðamanna og leik ara. Sýning á húsdýrum, þar á Skégafoss kom tilReykjavíkur í gær Skógafoss, hið nýja skip Eim- skipafélags íslands lagðist flögg- um prýtt á ytri höfnina í gperdag. Skógarfoss er 3870 tonn dw. og annað af tveimur skipum, sem Eimskip samdi um smíði á 1963 hjá Alborg Værft í Danmörku. Allt er skipið mjög vandað og smiðað eftir ströngustu reglum Lloyds. Á- höfnin er 26 manns, skipstjóri á letðinni heim var Jónas Böðvars son, sem fylgdist einnig með smíði skipsins, en skipstjóri verður Magnús Þorsteinsson. Eimskipafélag íslands samdi um smíði Skógafoss í ágúst 1963 og var kjölur þess lagður 1. okt. 1964 Allur styrkleikj skipsins er miðað- ur við, að nota megi það hvort heldur sem opið eða lokað hlífðar- þilfarsskip og er það styrkt til sigl inga í ís samkvæmt finnskum ís- siglingareglum. Sömuleiðis er Framh. á bls. 6. meðal geit með kiðling o. fl. vakti mikla ánægju barnanna, en dýrin voru höfð í búrum. Að loknum skemmtiatriðum var leikið fyrir dansi á Ráðhústorgi og dansað til klukkan 3 eða 4 um nóttina. Hátíðin fór sérlega vel fram og tæplega hægt að segja að vín hafi sézt á nokkrum manni. Nýstúdentar með sína hvítu kolla setja mikinn svip á hátíða höld Akureyringa 17. júní ár hvejrt. Að þessu sinni voru 92 stúdentar brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri og sleit skólameistari, Þórarinn Björnsson, skólanum með ræðu í Akureyrarkirkju, hið fyrsta sinn sem það er gert utan gamla skólahússins. Þrír efstu stúdentarnir voru Jóhann Vigfússon, Inspector scholae 9.33, Rögnvaldur Gísla- son, 9,30, og Jón Kr. Arason með 9,06. Voru þeir allir úr stærðfræði deild. í rtiáladeild urðu efst Auð- ur Birgisdóttir með 8.84, Óiafur Framh. á bls. 6. Fjölmörg slys í Reykjavik og grennd í fyrradag Jónas Böðvarsson skipstjóri og Skógafoss í baksýn. Dagurinn í gær var slysa- og óhappalaus í Reykjavík og grennd áð því er bezt var vitað, en miðvikudagurinn var þeim mun meiri slysadagur og má segja að hvert slysið hafi orðið á eftir öðru í Reykjavík og ná- grenni. Fyrsta óhappið, án þess þó að slys hlytist af, varð uppi í Hörgshlíð rétt eftir hádegið á miðvikudaginn. Þar hafði öku- maður bifreiðar keyrt harka- lega á rafmagnsstaur, brot- ið staurinn og stórskemmt bifreiðina. Hjá honum sjálfum hefur samvizkan ekki verið í sem beztu lagi, því hann tók til fótanna og var horfinn af vett- vangi þegar lögreglupa bar að. Á miðvikudagskvoldið eftir kvöldmat hafði Reykjavíkurlög- reglan afskipti af fjórum um- ferðarslysum, sumum næsta miklum. Það fyrsta varð kí. 9.20 á Frakkastíg hjá húsi nr. 12. Bif- reið hafði verið lagt þar inn af húsasundi og stóð hún í halla, en autt svæði fyrir neðan. Bif- reiðin hafði verið skilin eftir ó- læst. Rétt eftir kl. 9 um kvöld- ið hafði 11 ára drengur farið inn í bifreiðina og byrjað að fikta við stjórntækin, m. a. losað um handhemilinn og tekið hana úr gír. En þegar bíllinn tók að renna greip drenginn mikil hræðsla, svo hann fleygði sér út úr bifreiðinni og klemmd- ist við það upp við vegg. Lög- Framh. á bls. 6 Vínhus þjóðhátíðardagur Samkvæmt upplýsingum frá götu- lögreglunni i Reykjavik í morgun fóru 17. júní hátíðahöldin fram með miklum menningarbrag og minni ölvun en nokkru sinni áður á þessum degi. Lögreglan kvaðst hafa tekið samtals 36 menn úr umferð í gær og nótt vegna ölvunar á almanna- færi, en það er sízt meira en verið hefur undanfama sólarhringa, hvað þá ef miðað er við hinn mikla mannfjöMasem var á stjái í bænum í gær og nótt, eða þá 17. júní há- tíðarhöldin undanfarin ár. í heild er varla unnt að segja, að ölvaður maður hafi sézt á al- mannafæri við hátíðahöldin í gær, sögðu þeir sem þeim hnútum voru kunnugastir og bezt fylgdust með hátíðahöldunum. Lögreglan sagði að þetta væri að þakka fyrirmælum Magnúsar Jónssonar fjármálaráð- herra um lokun áfengisútsalanna s.l. miðvikudag. Telur hún að sú ákvörðun hafði öðru fremur stutt að þeim menningarblæ, sem á há- tíðahöldunum var, og dregið stór- lega úr ölvun. Lögreglumenn telja sig þó hafa heyrt ýmsar óánægjuraddir meðal almennings í gær út af fyrirmæl- um ráðherrans og ýmsir hafi reynt að leita á náðir leynivínsalanna, þ. e. leigubílstjóranna til að fá áfengi keypt. Vínsalarnir reyndu líka ,að hafa sig nokkuð í frammi en lög- reglan greip þá til gagnráðstafana og hélt þeim í skefjum. Sumarferð Varðar verður 11. júlí Hin árlega sumarferð Varðarfélagsins verður að þessu sinni farin sunnudaginn 11. júlí. Farið verður í Þjórsárdal og ekið um fegurstu sveitir nærlendis. Skoðaðar verða undirbúningsframkvæmdir við hina væntanlegu Búrfellsvirkjun. — Ferðin verður nánar auglýst síðar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.