Vísir - 21.07.1965, Blaðsíða 2
2
V í S IR . Miðvikudagur 21. júlí 1&S5.
FH EKKIÁRENNILEGT
IÚTIHANDKNA TTLEIK
Unnu Hnukn með 41:9
Guðmundur Jónsson að kljást
við boltann.
Handknattleikslið FH í 1. deild
virðist ekki í mikilli hættu á Hand
knattleiksmóti íslands, sem hófst
í fyrrakvöld á Hörðuvöllum í Hafn
arfirði. Einna helzt gætu Valsmenn
gert strik í reikninginn, en samt
er vart hægt að gera ráð fyrir því.
FH vann Hauka, keppinautana
í Firðinum með miklu „bursti“ í
fyrsta leik mótsins með 41:9, en í
hálfleik var staðan 21:3. Að vísu
vantaði í lið Haukanna tvær skær-
ustu stjörnur liðsins, Þórð Sigurðs
son og Viðar Símonarson. Skæð-
ustu skyttur FH voru þeir Geir
Hallsteinsson og Páll Eiríksson,
sem skoruðu rúman helming mark
anna. Lið FH er greinilega í góðri^
æfingu og hefur lftið eða ekkert
verið slakað á æfingum eftir inn-
anhúss „vertíðina“ í vetur.
Ármann vann Þrótt með 29:17 í
næsta leik á eftir og Valsmenn
áttu afar auðvelt með ÍR-inga,
unnu 31:7. Valsmenn eru sterkir,
hafa lið með frískum leikmönnum
og góðum skyttum.
í kvöld heldur mótið áfram og
þá leika Haukar og Þróttur og
strax á eftir Ármann og ÍR. Hefst
fyrri leikurinn kl. 20 og er leikið
á Hörðuvöllum.
BÆJARSTJÓRNIN VANN 5:4
Þeir hafa
skorað
mörkin
1. DEILD
Sjaldan hefur annað eins sam
spil sést hjá einni bæjarstjórn
eins og í gærkvöldi. Þetta gerð
ist ekki í plussklæddum fundar
sal, heldur á mjúkum grasvelli
f Smárahvammi í Kópavogi, þar
sem bæjarstjórn Kópavogs vann
frækilegan sigur yfir liði Breiða
bllks.
Leikur liðanna vakti óhemju
fögnuð hjá f jölmörgum áhorfend
um. Mörk bæjarstjórnarinnar
voru vitanlega öll skoruð af
„stjórnarliðum”. Herbert Guð-
mundsson skoraði tvö, Axel
Jónsson, alþingismaður eitt og
Hörður Ingólfsson eitt, en úr-
slitamarkið skoruðu Breiða
bliksmcnn sjálfir, en leiknum
lauk 5:4.
Bezti maður vallarins í gær
var bæjarstjórinn Hjálmar Ólafs
son. Það var greinilegt að
Hjálmar hefur staðið í markinu
áður, en hann var Ieikmaður
hjá Val lengi vel og þótti mjög
vel liðtækur á yngri árum og er
raunar enn.
Þetta er hið frækna bæjarstjórnarlið í Kópavogi. í fremri röð frá vinstri eru Axel Benediktsson, Hjálm
ar Ólafsson, bæjarstjóri, Ólafur Jensson, Axel Jóns son og Ólafur Jónsson. Aftari röð frá vinstri: Her-
bert Guðmundsson, Bjarni Bragi Jónsson, Kristinn G. Wíum, Sigurður Grétar Guðmundsson, Sigurður
Þorkelsson, Sigurður Helgas., Guttormur Sigurbjörn sson og Hörður Ingólfsson.
Breiðablik mætti hálfum
öðrum tímu ofseint til leiks
— og skapaði mikla erfiðleika á ísafirði
ísafirði, 17.7 ’65
Isfirzka liðið í 2. deild og áhorf-
endur, sem voru óvenju margir,
þar sem glfurlegur ferðamanna-
straumur var á ísafirði um síðustu
helgi, mættu inn á velli til að
horfa á leik Breiðabliks og Í.B.l.
f mjög góðu veðri, en sólarlausu.
Fólk fór að verða órólegt þegar
leikur hófst ekki 15 mín. eftir til-
settan tíma. Þá fór það að kvisast
að Breiðabliksmenn væru ekki
Leikdagar ókveðnir
Ákveðnir hafa verið leikdagar
hjá Rosenborg og KR í Evrópu-
keppni bikarliða. í Reykjavík verð
ur leikið 24. ágúst en i Þránd-
heimi 25. september.
•mættir, þrátt fyrir það að flugvél-
in hafði lent hér kl. 13 um dag-
inn. Var þá tilkynnt að leikurinn
færi fram kl. 5. Fór fólk burt sár-
óánægt.
Kl. um 4,30 sást flugvél lenda og
fólk fór að streyma inn á völl aft-
ur um kl. 5 og enn var babb kom
ið í bátinn, því ekki hófst leikur og
klukkan að verða 5.30 fór fólk að
streyma í burt aftur, eftir að það
hafði heyrt, að nokkrir leikmenn
Breiðabliks og dómari væru komn-
ir f bæinn, en aðrir væru enn inn
á flugvelli og fengju ekki bíl í
bæinn.
Það má teljast furðuleg ráðstöf-
un hjá fararstjóra, að sjá ekki
flokki sínum fyrir farartæki alla
leið á ákvörðunarstað, og einkenni
legt að hafa ekki samráð við Is-
firðinga um þetta, því ekkert hefði
verið sjálfsagðara en að hjálpa upp
á sakirnar.
Áfram hélt tíminn að líðá og
ekki hófst leikurinn og klukkan
varð sex. En nú urðu miklir erfið-
leikar hjá forysturnönnum knatt-
spyrnumanna á ísafirði.
Hafði Vestfjarðarmót í 2. flokki
verið auglýst kl. 6 og Súgfirðing
ar og Bolvíkingar mættir til leiks
með ærnum tilkostnaði. Nú varð
að taka skjóta ákvörðun því öðr-
um hvorum leiknum varð að
fresta, og var stungið upp á að
fresta 2. deildar leiknum til kl. 4
á sunnudag, en þar sem það hefði
skapað Breiðabliksmönnum mikinn
kostnað þá sýndu Bolvíkingar og
Súgfirðingar þann drengskap að
bíða á meðan leikurinn fór fram
og leika síðan strax á eftir þót.t
þeir sköpuðu sér stórútgjöld með
því að láta bíla bfða eftir sér svo
lengi.
Síðan hófst leikurinn kl. rúml.
6, og voru þá farnar að þynnast á-
horfendaraðirnar.
Leik með
Matthews frest-
að um sinn
Eins og frá var skýrt fyrir
nokkru átti Stanley Matthewsl
að leika á Laugardalsvelli annað
kvöld, en nú hefur orðið að
'fresta þeim leik þar til í næsta
mánuði.
Stanley hefur mjög mikið að
gera um þessar mundir.
Höfðu fyrirsvarsmenn íþróttai
fréttamanna tal af Matthews á;
heimili hans og kvaðst hann
reiðubúinn til að koma hingaðl
hvaða dag sem væri í næsta;
mánuði.
Verður því vonandi af heim-i
sókn hans hingað, en sennilega;
mundi hann leika hér með'
gömlum stiörnum úr íslenzkum
liðum, t.d. Albert, Ríkharði,;
Þórði Þ., Donna, Sveini Teits-
syni, Guðjóni, Herði Felixsyni,!
Helga Dan og fleirum slíkum.;
Baldvin
Baldvin Baldvinsson KR 9
Ríkharður Jónsson, Akran. 4
Hreinn Elliðasson, Fram 4
Gunnar Felixson, KR 4
Eyleifur Hafsteinsson, Akran. 3
Rúnar Júlíusson, Keflavík 3
Skúli Ágústsson, Akureyri 3
Steingrímur Dagbj., Val 3
Bergsteinn.jyiagpússon Val 3
2. DEILD
Haukur
Axel Axelsson, Þrótti 8
Haukur Þorvaldsson, Þrótti 8
Jón I. Ragnarsson, Breiðabl. 8
Eiríkur Ilelgason, FH 7
Ingvi G. Skarph., Vestm. 6
Kristm. Kristm., ísafirði 5
Gunnar Gunnarsson, Víking 4
Grétar Kristjánsson, Breiðabl. 4
Sigmundur Pálmason, Vestm. 4
Erlingur Sigurlaugsson, Isaf. 4
Ragnar Jónsson, FH 4
I-Ialldór Guðbjarnarson, ísaf. 4.
ntmrnn-'i r~ rn~ iu i n iiiéiiii wmi i naiiiiii
Bnwfmi-'feiafcaa
V