Vísir - 01.10.1965, Blaðsíða 1
VISIR
DAGSVERK EFTIR VIÐ
SUR T5E YJA RHIÍSIÐ
Tveir eldsvoSar
SAMÞYKKTU
„Það er ekki nema dagsverk
eftir, þá er húsið tilbúið“ sagði
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Rannsóknarráðs ríkisins
í morgun er Vísir spurði hann
um byggingaframkvæmdir í
Surtsey.
Undanfarið hefur verið unnið
við bvgginguna í Surtsey, nema
f gær, því að í sterkri austanátt
er ekki hægt að vinna vegna
mikils öskufalls frá nýja gosinu.
Þorbjöm Broddason hefur
staðið fyrir byggingafram-
kvæmdum, en með honum hafa
unnið smiðir úr Vestmannaeyj-
um svo og sjálfboðaliðar. Var
Þorbjöm ráðinn til að dveljast í
eynni nú í sumar við athuganir,
en úr því gat ekki orðið þar sem
byggingaframkvæmdirnar töfð-
ust mjög. Var ástæða þess sú að
er nýja gosið hófst þaktist fyrir
Framhald á bls. 6.
Ákaflega mikil hrifning ríkti <<S>-
á hljómleikum Sinfóníuhljóm- [
sveitarinnar í gær og var það al,
mannamál þar, að sjaldan1
hefðu hljómieikar hennár tek- J
izt betur en nú. Þetta máttu i
kallast Beethoven-hijómleikar.1
Hér á myndinni sem tekin var]
á hljómleikunum sjást þeir i
tveir menn sem mest var þökk1
uð þessi kvöidstund, píanóleik ]
arinn Askenasi og hljómsveitar i
stjórinn Bohdan Wodisczko.
Myndin var tekin er verið var ]
að flytja áttunda píanókonsert i
Beethovens. Á eftir stjómaði \ i
Wodisczko einni vinsælustu sin;
fóníu Beethovens þeirri þriðju <
sem köiluð hefur verið Hetju- ]
sinfónían.
Prentarafélagið hélt fund í
gær um fimm leytið í Iðnó.
Var hann fjölsóttur, rúmlega
200 manns á honum. Til um-
ræðu voru samningar þeir sem
náðst höfðu um nóttina milli
Prentarafélagsins og Félags
prentsm'iðjueigenda. Pétur Stef-
ánsson, formaður félagsins,
gerði grein fyrir samningunum
og á eftir honum töluðu nokkr
ir aðrir félagsmenn. — Að því
búnu voru samningarnir sam-
iðnaðarbankinn opnar á Akureyri
Sigurður Ringsted bankastjóri
Á næstunni opnar Iðnaðarbanki
íslands útibú á Akureyri. Verður
það annað útibú bankans utan
Reykjavíkur, en fyrsta útibúið var
stofnað í Hafnarfirði.
Otibússtjórinn á Akureyri verð-
ur einn af kunnustu bankamönn-
um staðarins, Sigurður Ringsted.
Hefur Sigurður starfað í 19 ár við
Landsbankann á Akureyri og er
þar aðalgjaldkeri.
Hið nýja útibú Iðnaðarbankans á
Akureyri mun verða til húsa að
Geislagötu 6, í hinu nýja og glæsi-
lega Sjálfstæðishúsi Akureyrar.
Fær bankinn þar ágætt húsrými
á neðstu hæð og er nú unnið að
því af kappi að innrétta það. Verð-
ur verkinu væntanlega lokið um
mánaðamótin, og getur þá útibúið
tekið til starfa. Við útibú Iðnaðar
bankans nyrðra munu í fyrstu
starfa þrír menn ,en vonir forráða-
manna standa til þess að skjótt
þurfi að fjölga starfsliðinu.
þykktir mótatkvæðalaust. Á
sama tíma var fundur haldinn í
Félagi prentsmiðjueigenda, og
var samningurinn einnig sam-
þykktur þar. Þar af leiðandi
kemur nú ekki til verkfalls
prentara í ár.
Samningarnir voru 1 aðalatrið
um á þessa leið: Kauphækkun
verður fyrir starfsmenn á fyrsta
ári 6%, á öðru og þriðja ári
9.7% og auk þess tilfærslur á
milli aldursflokka. Þá voru veitt
nokkur fríðindi m. a. það að
unnið verður hálfa laugardaga
eða fram til kl. 12 á hádegi í
október, nóvember og desember
og þýðir það að vinnuvikan
verður 43 stundir til jafnaðar.
Veikindadagar verða 14 í stað
12 áður.
Þá var einnig ákveðið að laun
prentnema skuli hækka, þannig
að þau verða á fyrsta ári 45%
af launum prentara, á öðru ári
55%, á þriðja ári 65% og fjórða
ári 75% af fuílum launum prent
ara .
Tveir eldsvoðar urðu í Reykjavík
í gær og nótt og talsvert bruna-
tjón í báðum tilfellunum.
Klukkan rúmlega 5 síðdegis í
gær var slökkviliðið kvatt að Út-
skálum við Suðurlandsbraut. Þar
brann fjárhús og hlaða, ásamt því
heyi sem í hlöðunni var. Unnu
slökkviliðsmenn í allt gærkvöld og
alla nótt að ryðja heyinu meira eða
minna brunnu út úr hlöðunni, því
BLAÐfÐ í DAG
Bls. 3 Sendiherrar Banda
rikjanna á íslandi.
- 7 S. þ. og U Thant
Föstudagsgrein.
— 8 Iieimsókn í Kópa-
vogshælið.
- 9 Viðtal við Penfield
ambassador.
alltaf var eldur að gjósa upp í því j
að nýju. Það var ekki fyrr en kl. 7
í morgun að slökkviliðsmenn komu
til baka af brunastað.
Bæði fjárhúsið og hlaðan voru
járnklædd timburhús og mun ekki
hafa verið sérstaklega til bygging-
anna vandað, enda gamlar orðnar j
og úr sér gengnar. Skammt frá var
hesthús og hey og tókst að verja
það. Um eldsupptök er ekki kunn-
ugt. Eigandi hlöðunnar skýrði lög-
reglunni frá að heyið hefði verið
látið inn í hlöðuna fyrir 2 mán. Þá
Framh. á bls. 6.
Eldgos / sjó út af Reykjanesi
í MORGUN um tíu-leytið varð
þess vart, að nýtt eldgos væri
byrjað neðansjávar út af Reykja
nesi. Voru það flugmenn af Loft-
leiðavél, sem urðu þessa fyrst
varir. Flugstjóri hennar 'var
Smári Karlsson. Þeir skýrðu frá
því, að þar á nokkru svæði væri
sjórinn með einkennilegum ljós-
grænum litbrigðum og væri eins
og þar væri að brjóta á. Þá sáu
þeir ösku og vikur á sjónum.
Skömmu síðar fór flugvél
frá vamarliðinu og flaug yfir
svæðið og einnig vél Flugmála-
stjóra og urðu þeir sömu fyrir-
bæranna varir. Þeir voru þó ekki
lentir aftur þegar blaðið fór í
pressuna.
Svæði þetta er talið um 45
mílur suðvestur af Keflavíkur-
flugvelli, en það er alllangt suð-
vestur af Eldey og virðist þetta
vera á hinu sama eldgosasvæði,
þar sem eyja kom upp á fyrri
tímum.
PRENTARAR