Vísir - 01.04.1968, Blaðsíða 1
VISIR
58. árg. - Mánudagur 1. apríl 1968. - 73. tbl.
Flugvél hrapaði á
Reykjavíkurflugvelli
Tveir menn voru i vélinni og sluppu þeir ómeiddir
Flugslys varð í gærdag laust fyr-
ir klukkan fimm, er tveggja hreyfla
flugvél, af tékkneskri gerð, hlekkt-
ist á í flugtaki af Reykjavíkurflug-
velli. í vélinni voru tveir menn
og sluppu þeir ómeiddir, en vélin
er allmikið skemmd, en líklega við
gerðarhæf.
Nánari tildrög aö slysinu eru þau,
að annar eigandi vélarinnar, Einar
Sigurðsson, flugstjóri hjá Loftleið-
um, var að kenna blindflug og
heitir nemandinn Kolbeinn Sigurðs-
son, sá hinn sami og gekk ofan af
Esju á dögunum, eftir að flugvél,
sem hann var farþegi í hafði lent
á fjallinu. Skömmu eftir að tékkn-
eska flugvélin hafði losnað frá flug-
brautinni í flugtakinu, varð bilun
m-y io. síða.
■ ■ ...................................................................................... •............................
| Johnson forseti — ein þeirra mynda, sem birtar hafa verið í seinni tíð, sýna, að áhyggjur
n og þreyta eru farnar að setja svip sinn á hann.
JOHNSON ekki í kjöri / haust
Tilkynnti bandarísku þjóðinni ákvörðun sína í ávarpi í nótt
■ Lyndon B. Johnson
Bandaríkjaforseti til-
kynnti í útvarps- og sjón
varpsræðu þeirri, sem
hann flutti í nótt er leið,
að hann mundi ekki leita
endurkjörs í forseta-
kosningunum á hausti
komanda, né verða í
framboöi, þótt hann yrði
til þess hlutverks valinn.
Yfirlýsing forsetans í
þessu efni hefir haft þau
áhrif, að bandaríska þjóð
in er furðu lostin, enda
ekki annað vitað en að
forsetinn myndi flytja
Vietnam og hernaðar-
stefnu Bandaríkjanna
þar.
Það hafði hann sjálfur tjáð
fréttamönnum á fundi með þeim
í fyrradag. Hann kvaðst mundu
ræða aukin útgjöld Bandaríkja-
manna vegna styrjaldarinnar og
liðsauka, en um þetta hefðu
verið birtar mjög ýktar fréttir,
og ekki vildi hann segja neitt
um sprengjuárásir á Norður-
Víetnam — um þetta hefði hann
ekkert að tilkynna nú. Eftir
fundinn var það álit fréttaritara,
að Johnson myndi boða, að
Bandaríkin vildu reyna meðal-
veg til þess að fá endi bundinn
á styrjöldina ,og leggja meiri á-
herzlu á aukið framlag Suður-
Víetnams.
F.n það, sem forsetinn bauð
upp á var þetta, til þess að
unnt væri að semja „heiðar-
legan frið“:
■ Að takmarka sprengjuárás-
ir á Norður-Víetnam við skot-
mörk skammt norðan af vopn-
lausu spildunni, bandarískum
herstöðum þar nyrðra.
B Að liðsauki yrði miðaöur við
það, að bandaríska liðið, sem
fyrir væri hefði nægilegt varnar
og stuðningslið.
■ Aö fjárframlög til styrjaldar
innar yrði ekki aukið nema um
2,5 milljarða.
(Þess er að geta að fregnir
hafa verið á kreiki um 10-20
milljaröa framlag og aö liösauki
yrði sendur svo hundruöum
þúsunda skipti til Víetnam, og
vék forsetinn aö þessu, er hann
ræddi við fréttamenn).
Forsetinn beindi því í ræðu
sinni í nótt til Bretlands og
Sovétríkjanna ,að þau beittu sér
fyrir, að ráðstefna yrði haldin
um frið, en þessi lönd fóru sam
eiginlega með forsetastönf á
Genfarráðstefnunni.
Johnson skoraði á Ho Chi
Minh og stjórn hans aö koma
til móts við Bandaríkin.
Hann tók það fram, að Banda
ríkin leituðu heiðarlegs friðar
— það væru sterk Bandaríki
sem hefðu örugga trú á sjálf sig,
sem það gerðu og jafnframt
nægilega sterk og örugg til að
taka á sig hverjar þær byrðar,
sem bera yrði, inna af höndum
hverja nauðsynlega fórn á kom
andi tíma.
Hann bað menn um að láta
skoðanir, hverjar sem þær væru
ekki hafa þau áhrif, aö leiddi til
sundrungar, heldur vinni menn
allir sem einn að þjóðareiningu.
Humphrey varaforseti var í
Mexico City, er Johnson til-
kynnti ákvöröun sína, og kom
hún honum óvænt, og George
Christian blaöafulltrúi í Hvíta
húsinu kvað forsetann hafa
haft þetta til íhugunar f meira
en ár.
í NTB-frétt segir, að sumir
andstæðinga Johnsons telji hér
vera um herbragð að ræða —
tilgangur hans sé að fá flokk-
inn til að sameinast um sig og
biðja hann um að endurskoða
ákvöröunina, en stjórnmála-
fréttaritarar telji, að Johnson
hafi verið full einlægni í hug.
Forsetinn sagði sjálfur í ræðu
sinna, að hann mundi engin á-
hrif reyna að hafa á kosninga-
baráttuna fyrir forsetakosning-
arnar, sem framundan eru og
hann gaf ekkert í skyn um,
hvern hann mundi styðja.
Forsetinn vék að því í ræö-
unni, að hann heföi veriö þing-
maður. varaforseti og forseti i
samtals 37 ár.
Á það er bent, að Humphrey
hefði verið varaforseti frá 1964
og trúlega fylgt Johnson — og
mundi líklegur til þess að fylgja
stefnu Johnsons áfram.
Mikilvægi forkosninga
aldrei meira.
Það eru enn sem komið er fá-
ar fréttir fyrir hendi um hve'r
áhrif ákvörðun Johnsons hefúr
innan vébanda demókrata, en
einkum mun það íhugunarefni
hvort Johnson muni síðar styðja
einhvern ákveðinn mann, og þá
er rætt um hvort ákvörðunin
verði til að styrkja McCarthy
eða Robert Kennedy í forseta-
baráttunni. En það er ákaflega
mikilvæg bending, að öllum
líkindum sem næstu forkosn-
ingar láta i té.
Undirtektir í Hanoi?
Franska stjprnin reynir nú að
kynna sér hverjar undirtektir
ræðan fær í Hanor — einkan-
lega það, sem hann bauð upp á
að hætta sprengjuárásum á
»-»• 10. síða.
Læknar og yfirmenn á
fiskiskipum tekjuhæstir
Meðaltekjur hækkuðu um 16.5°/o frá 7965
Frostið 20-30 stig í nótt
— siglingaleiðir að lokast
Ein kaldasta aprilnótt i marga áratugi — Hafisinn þéttist stöðugt
— Spáð áframhaldandi norðanátt
„Þetta er ein kaldasta apríl-
nótt í marga áratugi“, sagði Páll
Bergþórsson veðurfræðingur f
viðtali við Vísi í morgun. „Haf-
ísinn þéttist stöðugt og virðist
hafa lokað siglingaleiðinni við
Melrakkasléttu í nótt. Frostið
komst í 28 stig á Hveravöllum
26 á Grímsstöðum og 20 — 25
stig víða annars staðar á land-
inu. 16 stiga frost mældist hér
í Reykjavík í nótt.“
Isfregnir hafa borizt frá allflest-
um stöðum fyrir norðan um helg-
ina, og segir í þeim að ísinn sé
stöðugt að þéttast og víða sér
hvergi í auðan sjó svo langt sem
augað eygir. Samfelldur þéttur is
er við Skoruvík.
Frá Raufarhöfn barst ísfregn í
gær sem segir að samfelldur ís sé
frá Leirhöfn að Melrakkanesi, en
þó eru nokkrar auðar rennur með-
fram landi hjá Raufarhöfn og Núps-
kötlu. Á Tjörnesi er samfelld ís-
rönd og allar líkur til að sigiinga-
leiðin fyrir Melrakkasléttu sé ófær
Frá Grímsey sér varla í auðan sjó
til norðurs og þéttist ísinn stöðugt.
ísspöng er á Skjáifanda og jakar á‘
fjörum. ís hefur borizt inn að Sauð
árkróki og talsvert ísrek er á Húna-
flóa. Ingólfsfjörður og Ófeigsfjörð-
ur eru fullir af fs. Samfelld ís
breiða er úti fyrir Hornbjargsvita
og hefur ísinn borizt allt vestur á
Strandir. Þá er ísspöng fvrir mynni
Patreksfjarðar.
Samkvæmt upplýsingum Páls
er ekkert útlit fyrir að breyti um
vindátt sem stendur, spáð er áfram-
haldandi noröanátt
Árið 1966 voru meðaltekjur
yfirmanna á fiskiskipum kr. 424
þús., meðaltekjur lækna og tann
Iækna og tannlækna 583 þús.
og meðaltekjur sérfræðinga (þó
ekki sérfr., sem eru í opinberri
þjónustu) kr. 385 þúsund kr.
Hér er átt við meðalbrúttótekj-
ur kvæntra karla 25 — 66 ára á
árinu 1966.
Þessar fróðlegu upplýsingar um
meðaltekjur manna af hinum ýmsu
stéttum er að finna í nýútkomnum
Hagtíðindum. Einnig kemur fram
að meðaltekjur þaö ár höfðu hækk
að um 16.5 af hundraði frá fyrra
ári. IJér fer á eftir listi yfir meöal
tekjur nokkurra þjóðfélagsstétta,
en tekjur fyrri ára fara á eftir í
svigum.
Yfirmenn á fiskiskipum: 424 þús.
(392 þús. ár. ’65). Aðrir af áhöfn
'iskiskipa 317 þús. (290 þús. ár
’65). Allir bifreiðastjórar, bæði sjálf
stæöir og aðrir 264 þús. (231 þús.
ár. ’65). Læknar og tannlæknar
583 þús. (442 þús. ár. ’65) Starfs-
lið sjúkrahúsa, elliheimila og hlið-
stæðra stofnana 277 þús. (228 þús.
ár. ’65). Kennarar og skólastjórar
331 þús. (276 þús. ár. ’65). Starfs-
menn ríkis, ríkisstofnana o.fl. stofn
ana, ót. a. („opinberir starfsmenn”)
329 þús. (275 þús. ár. ’65). Starfs-
menn sveitarfélaga og stofnana
þeirra, ót.a. („opinberir starfs-
menn“) 316 þús. (256 þús. ár. ’65).