Alþýðublaðið - 04.06.1966, Blaðsíða 11
jsRitstjóri Örn Eidsson
KENNSLUSTUND FYRIR iSLANDSMEISTARANA
KNATTSPYRNU • DUNDEE UTD VANN KR 4:0
TEKST KR að sigra Skotana í
kvöld? Þannig var spurt í gær-
morgun. Svari'ö kom í gærkvöldi
og hljóðaði upp á 4 skozlc mörk
gegn engu íslenzku. Mátti það ejt-
ir atvikum og skozkum tækijærum
teljast vel sloppið.
Fyrri hálfleikurinn endaði með
einu marki Skotanna, sem þeir
skoruðu rétt fyrir leikhlé. Var það
miðherjinn Dössing, sem gerði það,
eftir all þófkennda baráttu á víta-
teigi. í þessum hluta leiksins börð-
ust KR-ingar all vel á köflum, m.
a. átti Einar ísfeld tvívegis nokk-
uð góð færi, komst inn fyrir vörn-
ina og mistókst skotið og skallaði
yfir skömmu síðar úr laglegri send
ingu Harðar Markan. Auk þessa
reyndi Ellert Schram langskot
fyrir utan vítateig, sem smó rétt
yfir slá.
Leikur Dundee í þessum hálfleik
var hvergi nærri eins skemmti-
HAUKAR - ÍBS 3:3
Þrír leikir í II. deild
verba leiknir í dag
í FYRRAKVÖLD hófst keppnin
í II. deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu í Sandgerði. Þar léku
Haukar og íþróttabandalag Suður
nesja. Leiknum lauk með jafn-
tefli 3 gegn 3 og voru öll mörkin
Skoruð í fyrri hálfleik.
Þrír leikir fara fram í dag, fyrst
leika FH og Breiðablik í Hafnar-
firði, en leikurinn hefst kl. 16.
Dómari verður Hilmar Ólafsson.
Á sama tíma leika Víkingur og
Vestmannaeyingar , en dómari er
Valur Benediktsson. Loks leika K
S og ísfirðingar á Siglufirði, en
sá leikur hefst kl. 20,30. Dómari
vei’ður Björn Karlsson.
Vaibjörn Þorláksson og Jón Þ. Ólafsson.
legur og gegn Fram. Sendingar
mistókust, sömuleiðis skot á mark.
í síðari hálfleiknum náðu Dun-
dee-menn sér heldur betur á strik.
Var þá hvorki á þeim hik né fálm.
Og þrátt fyrir það, að KR liðið
dróg sig æ meira og meira í varn-
arstöðu, þannig að meginhluti þess
yfirleitt, að undanteknum einum
eða tveimur mönnum fékk
það ekki firt mark sitt, því
að boltinn lenti þrívegis í netinu.
Leikni og hraðar skiptingar skozku
sóknarmannanna sáu fyrir því.
Er 5 mín. voru af leik kom 1.
markið frá miðherjanum úr send
ingu vinstri innherjans, og 10 mín.
síðar fékk hægri innherjinn Gill-
esbie loftsendingu innan vítateigs-
ins, tók boltann niður með brjóst-
inu og skaut er boltinn féll nið-
ur og skoraði glæsilega. Um 15
mín. síðar bætir Mitchell, vinstri
innherji 3. markinu við, með snún-
ingsskoti, óvæntu og lítt verjandi,
Fleiri urðu mörkin ekki, en
minnsta kosti þrjú tækifæri áttu
Skotarnir, sem mistókust herfilega.
Heimir stóð nú aftur í KR-
markinu og varði oft mjög vel og
barg vissulega hvað eftir annað
frá aðvífandi hættu. Var hann einn
öruggasti varnarmaður liðs síns.
Dómari: Grétar Norðfjörð —■ EB.
Glímukeppni með
nýju
Sveitagiíma KR fer fram að
Hálogalandi á morgun og hefst kl.
20. Alls taka fimm sveitir þátt í
keppninni, en allir beztu glímu-
menn höfuðborgarinnar ei’u með-
al þátttakenda.
ÚRVALIÐ
Síðasti leikur Dundee Utd. hér
að þessu sinni fer fram á Laug-
ai’dalsveUinum á mánudag og hefst
kl. 20,30. Þá leikur skozka liðið við
úrvalslið landsliðsnefndar.
Liðið var valið í gær og er skip-
að sem hér segir:
Markvörður: Kjartan Sigtryggs
son, ÍBK, bakverðir: Árni Njálsson
Val, fyrirliði, og Jóhannes Atlason,
Fram, framverðir: Magnús Torfa-
son, ÍBK, Ársæll Kjartansson, KR
og Magnús Jónatansson, ÍBA. .
Framherjar: Reynir Jónsson, Val,
Eyleifur *Hafsteinsson, KR, Hex>-
mann Gunnarsson, Val, Guðjón
Guðmundsson, ÍA og Guðmundu*
Haraldsson, KR.
V.
Valbjörn sigraði í 4
greinum á E ÓP. mótinu
Ján Þ. Ólafsson: 2,00m.
EÓP-mótið í frjálsum íþróttum,
sem háð var á Melavellinum í
fyrrakvöld, tókst allvel. Árangur
var þokkalegur í nokkrum grein-
um, en herzlumun vantar til þess
aö hægt sé að tala um góð afrek.
Valbjörn Þorláksson var maður
mótsins, hann keppti í sex grein-
um auk boðhlaups og sigraði í
fjórum þeirra. í spjótkasti náði
Valbjörn sinu bezta afreki og kast
aði 63,91 m., en met Jóels Sig-
urðssonar frá 1949 er 66,99 m. —
Þetta er fjórði bezti árangur ís-
lendings í spjótkasti, í öðru og
þriðja sæti eru Ingvar Hallsteins-
son og Kristján Stefánsson. Aug-
ljóst er, að Valbjörn hefur sjaldan
eða aldrei verið í eins góðri æf-
ingu og nú. Telja verður það samt
frekar hæpið að keppa í sjö grein-
um á einni kvöldstund, Valbjörn
á að láta sér nægja fimm grein-
ar á móti.
Jón Þ. Ólafsson vann bezta af-
rek mótsins, stökk glæsilega yfir
2 metra, en mistókst við 2,05 m.
að þessu simii.
Keppnin í 400 m. hlaupi var
spennandi, en þar sigraði Þórai’-
inn Ragnarsson Kristján Mikaels-
son. Sá síðarnefndi er íslands-
meistari í greininni. Tímarnir
51,5 og 52 sek. eru sæmilegir, en
brautir voru þungar.
Guðmundur Hermannsson nálg-
ast 16 metrana, en hann varpaði
lengst 15,74 m. og átti góða kast-
seríu. Ei-lendur Valdimarsson
vai’paði nú í fyrsta sinn yfir 14
metra, eða 14,23. Hann bætti
fyri-i árangur sinn um x-úmlega
hálfan metra. Erlendur er aðeins
18 ára gamall og mjög efnilegur.
Keppnin í sleggjukasti var
jöfn milli methafans Þói’ðar B.
Sigurðssonar og Jóns H. Magnús-
sonar. Þórður kastaði 49 m„ en
Jón 48,87 m. Þorsteinn Alfreðs-
son var öruggur sigurvegari í
kringlukasti, en árangurinn hefur
oft verið betri í þeirri grein.
Halldór Guðbjörnsson sigraði
öi’ugglega í 1500 m. hlaupi, eh
Þói’ður Guðmundsson var skammt
undan.
Helztu úrslit:
Sleggjukast:
Þórður B. Sig. KR 49,00
Jón H. Magnússon, ÍR 48,87
Óskar Sigurpálsson, Á. 38,03
100 m. h.laup:
Valbjörn Þorláksson, KR 11,4
Þóraririn Ragriarsson, KR 12,0
Einar Hjaltason, Á 12,}
Trausti Sveinbjörnss., FH 12,2
Hástökk:
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2,00
Sigurður Lárusson, Á 1,70
Donald Jóhannesson, Ubk. 1,55
Spjótkast:
Valbjörn Þorláksson, KR 63,91
Páll Eiríksson, KR 57,35
Björgvin Hólm, ÍR 56,38
Róbert Þorláksson, KR 47,25
Kúluvarp:
Guðm. Herm. KR 15,74
Erl. Valdimarsson, ÍR 14,23
Hallgrímur Jónsson, ÍBV 13,48
Valbjörn Þorláksson, KR 13,01
L angstökk:
Donald Jóhannesson, Ubk 6,48
Úlfar Teitsson, KR 6,41
Skafti Þorgrímsson, ÍR 6,39
Valbjörn Þorláksson, KR 5,94
400 m. hlaup:
Þórarinn Ragnarsson, KR 51,5
Kristján Mikaelsson, Á. 52,0
Halldór Guðbjörnsson, KR 54,2
Trausti Sveinbjörnss., FH 55,7
Þórður Guðm. UBK 55,7
Framhald á 10. siðu,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. júní 1966 H