Dagur - 17.02.1998, Blaðsíða 1
Fjármálaráðherra sak-
ar RíMsendurskoðim
mii að grafa uiidaii
viniiu ráöiinevtaiina.
Ráðherrar heimta
rannsókn á efnistök-
uin Ríkisendurskoð-
unar. Stjómarand-
staðan segir ráðherr-
ana hafa hmgðist.
FuIIkomið stríð er skollið á milli
ráðherra fjármála og dómsmáia
og svo Ríkisendurskoðunar
vegna ÞÞÞ-málsins. í utandag-
skrárumræðum á Alþingi í gær
náði stríðið hámarki er Friðrik
Sophusson sagði að æ ofan í æ
hefði Ríkisendurskoðun grafið
undan starfi ráðuneytanna. Bæði
Friðrik og Þorsteinn Pálsson
hafa farið fram á það við forseta
Alþingis að „óháðir Iögfræðing-
ar“ verði látnir skoða ÞÞÞ-málið
og athuga „vinnubrögð og efnis-
tök“ Ríkisendurskoðunar á því.
Lögbrot?
Margrét Frimannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins, hóf um-
ræðuna og krafðist hún svara frá
dómsmálaráðherra vegna um-
mæla í greinargerð Sigurðar
Gizurarsonar sýslumanns um að
ráðuneytið hefði brotið lög með
því að semja um greiðslu sekta á
skuldabréfum til allt að fimm
ára. Sagði Margrét að ráðherra
yrði að svara þessum ásökunum
um alvarlega spillingu í ráðu-
neyti dómsmála. Þorsteinn svar-
aði því til að „enginn starfsmað-
ur ráðuneytisins kannaðist við“
slíka samninga, en Sigurður tal-
aði um minnst fjögur tilvik. Mar-
grét vitnaði síðan í niðurstöður
Ragnars FI. Hall lögfræðings, að
grundvallarmistökin hefðu átt
sér stað þegar ekld var strax við
fyrra fjárnám knúið á um gjald-
þrotaskipti svo athuga mætti
með riftun á stórfelldum tilfærsl-
um Þórðar Þ. Þórðarsonar á
eignum. Sögðu Margrét og fleiri
í stjórnarandstöðunni að hvað
sem allri hártogun líði stæði eft-
ir að ráðherrarnir hefðu brugðist
í hagsmunagæslu fyrir ríkið.
Rannsókn á
Rlkisendnrskoðun?
Friðrik Sophusson sagði að það
væri „kominn tími til þess að
þingið hafi sérstaka nefnd sem
fari yfir skýrslur Ríkisendurskoð-
unar þannig að það komi ekki
fyrir æ ofan í æ að Ríkisendur-
skoðun grafi undan því starfi
sem unnið er í ráðuneytunum".
Þessari hörðu ásökun mótmæltu
þingmenn stjórnarandstöðunnar
og kröfuðust þess að Friðrik til-
tæki dæmi máli sínu til stuðn-
ings eða drægi orð sín til baka,
sem liann gerði hvorugt. Það
gerði Sigurður Þórðarson ríkis-
endurskoðandi ekki heldur fyrir
sína hönd í sjónvarpsviðtali í
gær. — FÞG
Sjö bembrotnir inn miðjan dag
Margar skíða- og snjó-
brettaferðir enduðu á
slysadeild í Reykja-
vík, hálka í bænum og
kolvitlaust veður
norðanlands um helg-
ina.
„Það hefur verið mikið að gera í
dag vegna hálkuslysa á götum og
gangbrautum. Það eru allavega
eitthvað á annan tuginn sem hafa
komið eftir að hafa dottið á svelli.
Ætli það séu ekld komin 6 eða 7
beinbrot það sem af er og það er
enn Iangt til kvölds," sagði Hrafn-
kell Oskarsson, læknir á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, þar
sem starfsfólk varð óþyrmilega
vart við afleiðingar þeirrar gler-
hálku sem var í Reykjavík í gær.
Um helgina sagði Hrafnkell
menn ekki svo mikið hafa verið að
detta innanbæjar. En þá kom hins
vegar töluvert af fólki af skíða-
svæðunum, tognað og brotið eftir
byltur á bæði snjóbrettum og
skíðum.
Vitlaust norðaulands
Norðlendingar sluppu áfallalítið
úr kolvitlausu veðri sem gerði um
helgina. Stapp varð á Oxnadals-
heiði og viðbúnaður innanbæjar á
Akureyri. (Sjá bls. 10). Hálkan í
höfuðborginni veldur því hins
vegar að „gamlir á svellinu" eru
óöruggir og senda borgaryfirvöld-
um tóninn, (sjáfrétt bls. 5). — HEI
Það var rólegt hjá kjörnefndinni í
stærstu kjördeiidinni, Borgarnesi, að-
eins um 200 af tæpiega 1.200 sem
voru á kjörskrá búnir að kjósa um
kiukkan fimm. í kjörnefndinni sitja þau
Guðrún Eggertsdóttir, Örn Simonarson
og Anna Steinsen. - mynd: ohr
Sameining
áMýram
Sameining var samþykkt í fjórum
sveitarfélögum í Mýrasýslu í
kosningum sem fram fóru um
helgina. Afgerandi niðurstaða
kom þeim sem að kosningunni
stóðu ánægjulega á óvart.
„Það er ánægjulegt hvað þetta
voru hreinar línur alls staðar, að
þetta er vilji fólksins og það
finnst mér hafa mikið að segja,"
segir Oli Jón Gunnarsson sem
var starfsmaður sameiningar-
nefndar sveitarfélaganna fjög-
urra þar sem sameiningin var
samþykkt.
Finun í tvö
Þegar þessi sveitarfélög hafa ver-
ið sameinuð verða því aðeins tvö
sveitarfélög í Mýrasýslu, nýja
sveitarfélagið og Hvítársíðu-
hreppur. Kosningaþátttaka var
lítil í Borgarbyggð. Þar voru
1.456 á kjörskrá en aðeins 486
kusu eða um 33%. Þar sögðu
412 já en 64 nei. Annars voru úr-
slit þannig að í Alftaneshreppi
sögðu 37 já en 24 nei, í Borgar-
hreppi sögðu 49 já en 16 nei og
í Þverárhh'ðarhreppi sagði 31 já
en 17 nei við sameiningu.
Oli Jón viðurkennir að úrslitin
hafi komið sér á óvart: „Eg átti
von á að það yrði mjög mjótt á
munum í Áíftaneshreppi og
Borgarhreppi. Þetta sýnir að
fólkið lét skynsemina ráða um-
fram tilfinningar.“
Afrain Borgarbyggð
Um framhald sameiningarinnar
segir Oli Jón að kosið verði til
sveitarstjórnar í sameinuðu
sveitarfélagi í maí en hann telur
að það muni heita Borgarbyggð.
„Ég reikna með að Borgarbyggð
verði ofan á, en það hefur ekki
verið tekin ákvörðun um það.
Það verður stjórnsýsluheitið, en
landfræðilega verður þetta áfram
óbreytt." — OHR
Gabri^Mf
(höggdeyfar)
Gi
varahlutir
Hamarshöfða 1-112 Reykjavík
Sími 567 6744-Fax 567 3703
Neysluvatnsdælur
SINDRI
■ -sterkur í verki