Dagur - 09.05.1998, Blaðsíða 9

Dagur - 09.05.1998, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 - 25 Þorleifsson biskup á Hólum, Jón Þorláksson sýslumaður í Múla- sýslu og Lárus Gottrup á Þing- eyrum. Þeir þóttu ansi harðir í horn að taka og bændur kvört- uðu mikið undan þeim,“ segir Guðrún. „Það eru leiguliðar sem kvarta, margir þokkalega stæðir, og það eru enn betur stæðir menn sem skrifa fyrir þá. Arni tekur málstað smælingjanna, er heiðarlegur í embættisrekstri og lætur vinskap ekki afvegaleiða sig. Þótt Jón Þorláksson sé vinur hans þá sendir hann honum harðorð bréf þar sem hann átel- ur hann fyrir meðferð á málum og segir hann ekki fara rétt að lögum. Hið sama á við samskipti hans við Björn, sem eins og Jón var honum innan handar við handritasöfnun, en í bréfi til hans segist Arni fyrst og fremst vera embættismaður konungs og honum beri að sinna því starfi þrátt fyrir þeirra vináttu." Galdrar á Ströndum Guðrún lítur á klukkuna, kveður blaðamann og hraðar sér inn á vinnusvæði sitt. Blaðamaður þykist nokkuð fróðari um fræði- mennskuna á safninu en áður en haldið er heim á leið bregður hún sér á kaffiteríuna. Þar situr Sigurður Gylfi á tali við Jón Jónsson sem er í MA námi í sagnfræði. Þegar Jón er spurður um erindi sitt í Þjóðarbókhlöð- una segist hann vera að vinna að „litla verkefninu sínu“ sem er undirbúningur fyrir sagnasýn- ingu um galdra og galdramenn sem verður á Ströndum á næsta ári. Síðustu vikur hefur Jón búið um sig á handritadeildinni en þar er að finna gamlar galdra- skruddur, uppskriftir af galdra- kverum, teikningar af galdra- stöfum og útskýringar á virkni þeirra og verkum. „Ég er að reyna að koma mynd á hug- myndafræði galdraheimsins og safna myndefni," segir Jón. En þetta er einungis litla verk- efnið, eins og Jón segir. Stóra verkefnið er MA ritgerð um förumennsku á Islandi, frá mið- öldum fram á 19. öld. „Þar eru átök, alvöru atburðir og óvenju- legt fólk,“ segir Jón. Ekki er þó allt upptalið af af- rekum Jóns því hann er í vinnu hjá Búnaðarsambandi Stranda- manna við samningu bókar sem ber heitir Strandir 1 og kemur út í sumar. Þar verður að finna æviskrár ábúenda Strandasýslu síðustu 50 árin og lýsingar á hverri jörð. Blaðamaður kveður sagnfræð- ingana og heldur heim á leið. Orð fyrrum Þjóðviljaritstjóra Árni Björnsson var að viða að sér heimi/dum um Wagner og íslendingasögur en Kjartan Ólafsson harðneitaði að gefa upp erindi sitt. Sigurður Gylfi Magnússon kannar dagbókarskrif mannsins sem varð að Ólafi Kárasyni. Guðrún Bjarnadóttir, kennari og bóndakona úr Húnavatnssýslu, er orðin æði fróð um klögumál sem bárustÁrna Magnússyni. koma upp í hugann og um stund virðist fáfengileiki blaðamanna- starfsins augljós í samanburði við fræðistörfin. En þau eru mörg verkin sem þarf að vinna og þvf gufa hugrenningarnar fljótlega upp. Það þarf að koma út blaði. Aðalgeir Kristjánsson er dagiegur gestur og iigguryfir bréfum og skjölum sem varpa ijósi á iif ísiendinga í Kaupmannahöfn á 19. öld. HJÁSKÓLIMM AAKUREYRI Lausar eru til umsóknar tvær stöður háskólakennara Háskólinn á Akureyri óskar eftir að ráða í tvær stöður háskóla- kennara (loketora eða dósenta) í stærðfræði / tölfræði / eðlisfræði. Starfsvettvangur verður aðallega í kennaradeild, rekstrardeild og sjávarútvegsdeild. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar, rannsóknir, kennslu- störf, stjórnunarstörf svo og námsferil sinn og önnur störf. Með umsóknum skulu send eintök af þeim vísindalegu ritum sem um- sækjendur vilja láta taka tillit til. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir eru að sinna og hver eru áform þeirra ef til ráðningar kemur. Ennfremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og heimilisföng minnst tveggja aðila sem leita má til um meðmæli. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara á Akur- eyri. Upplýsingar um starfið gefa forstöðumenn viðkomandi deilda eða rektor háskólans í síma 463 0900. Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri fyrir 1. júní nk. Rektor. HÁSKQLIMM AAKUREYRI Auglýsing um innritun nýnema Heilbrigðisdeild: Kennaradeild: Rekstrardeild: Sjávarútvegsdeild: Hjúkrunarfræði Iðjuþjálfun Grunnskólakennaranám Leikskólakennaranám Viðbótarnám til B.Ed. gráðu fyrir leikskólakennara Rekstrartræöl Iðnrekstrarfræði Framhaldsnám í gæðastjórnun Tölvu- og upplýsingatækni Ferðaþjónusta Sjávarútvegsfræði Matvælaframleiðsla Reglulegri innritun nýnema lýkur 1. júní nk. Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskírteinum. Ef prófum er ekki lokið skal senda skírteini um leið og þau liggja fyrir. Við innritun ber að greiða staðfestingargjald, kr. 6.000,- sem er óafturkræft fyrir þá nemendur sem veitt er skólavist. Bent er á að auðveldast er að leggja þessa upphæð inn á ávísanareikning Háskólans á Akureyri, í Landsbanka (slands, reikn- ingsnúmer 0162-26-610 og láta kvittun fyrir greiðslunni fylgja umsókn. Gjalddagi eftirstöðva skrásetningargjalds er 1. ágúst. Skilyrði fyrir innritun í háskólann er stúdentspróf eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. í framhaldsnám í gæðastjórnun gilda þó sérstök inntökuskilyrði um B.Sc. gráðu í rekstrarfræði eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. Á fyrsta ári í heilbrigðisdeild er gert ráð fyrir að fjöldatakmörkunum verði beitt. Ath: Nýtt námsframboð haustið 1998 Kennaradeild: Viðbótarnám til B.Ed. gráðu fyrir leikskólakennara. Rekstrardeiid: 90 eininga B.Sc. nám í ferðaþjónustu. 90 eininga B.Sc. nám í tölvu- og upplýsingatækni. (fjöldatakmarkanir, hámark 15 nemendur). Umsóknarfrestur um húsnæði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akur- eyri er til 20. júní 1998. Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu háskólans að Sólborg, 600 Akureyri, sími 463 0900, frá klukkan 8.00 til 16.00. Upplýsingar um húsnæði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri veitir Jónas Steingrímsson í síma 894 0787 og 463 0968. ____________________________________ Háskólinn á Akureyri. Askriftarsíminn er 8oo 7080

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.