Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 1
Þeirhafa sama tónlist- arsmekk og eiga sömu áhuga- mál Og eiga saman mótor- hjól, Gunnarog GesturEinar hjóla á Kawasaki. „Aldur er afstæður í mótorhjólamenn- ingu og það er enginn of gamall til þess að eignast hjól,“ segir Gunnar Sverris- son, ljósmyndari Fróða á Akureyri. Nú í sumar lét hann gamlan draum rætast og keypti sér mótorhjól, en það gerði hann í félagi við tengdaföður sinn, Gest Einar Jónasson, útvarpsmann á Akureyri. Gamall draumur Gests var einnig að eignast hjól. „Alla stráka dreymir um að eignast mótorhjól, mig dreymdi um skellinöðru þegar ég var strákur en hætti síðan við að kaupa hana þegar ég mátti. En draumurinn bjó alltaf í brjóstinu," segir Gestur. Skenuntilegt hippamórorhjól Um tuttugu ár skilja þá Gunnar og Gest að í aldri. Gunnar er tæplega þrítugur og Gestur verður fimmtugur að ári. „Við erum góðir vinir. Við höfum sama tón- listarsmekkinn og þar er ég að tala um lög einsog ég spila gjarnan í þættinum Með grátt í vöngum og eigum einnig sameiginleg áhugamál, einsog mótor- hjól,“ segir Gestur. Þeir félagar fóru á Iiðnu vori saman í mótorhjólapróf hjá Kristni Erni Jónssyni, ökukennara á Ak- ureyri, sem er æskuvinur Gests, og segir Gestur að á námskeiðinu hafi hann ekki einasta lært á mótorhjól, heldur hafi hann einnig lært umferðarreglurnar uppá nýtt. Og sé fyrir vikið Iíklega betri bílstjóri en hann var. Mótorhjólið sem þeir Gunnar og Gest- ur keyptu sér er af gerðinni Kawasaki Gunnar Sverrisson og Gestur Einar Jónsson, tengdafaðir hans, við mótothjólið góða. Þeir fé- iagar eiga margt sameiginlegt, svo sem brennandi áhuga á mótorhjólum. „Aldur afstæður í mótorhjólamenningu, “ segir Gunnar. mynd: sbs 454 og er með 450 rúmsentimetra mót- or. „Þetta er skemmtilegt hippamórtor- hjól, með háu stýri og maður situr beinn í baki á því. Þetta finnast mér miklu skemmtilegri hjól en keppnishjólin, sem maður situr boginn á og er alltaf að reyna að þenja sem hraðast. Þetta er hæfilega kraftmikið hjól, en hver veit nema að við fáum okkur seinna Harley Davidsson," segir Gunnar. Frelsið er mikið „Mér finnst afar gaman að fara út að hjóla," bætir Gunnar við, „enda eru að- stæður til þess góðar hér fyrir norðan. Skemmtilegast þótti mér hinsvegar að hjóla þegar ég var með unnusju minni, Höllu Báru, í Tosca-héruðum Italíu nú í sumar. Þar leigðum við okkur hjól og fór- um víða um, á stuttbuxunum í þrjátiu stiga hita. Við þessar aðstæður skilur maður svo vel hvað þetta er stórkostleg- ur ferðamáti og frelsið mikið." Gestur tekur undir orð Gunnars um frelsið. „Eg er sjálfur einkaflugmaður og mér finnst þetta að sumu leyti ekki ósvipað. A mótorhjólinu getur maður farið út fyrir alfaraleiðir og eins á flug- vélinni. Maður hjólar eða flýgur þangað sem maður ætlar sér.“ Kærkomtnn sumarauki Blíðviðri hefur verið ríkjandi á Norður- landi að undanförnu og það er mótor- hjólamönnum sem og öðrum afar kær- komið. Gunnar og Gestur hafa notað þetta tækifæri og hafa víða hjólað, með- al annars um götur Akureyrarbæjar og suður um Eyjafjarðarsveit. „Það er ljúft að geta leikið sér á mótorhjólinu nú seinnipartinn í október. En síðan kemur vetur, hjólið fer inn í skúr og verður ekki tekið út aftur fyrr en í maí næsta vor. Eg er strax farinn að hlakka til þess,“ segir Gunnar Sverrisson. -SBS. FO-4500 • Prentar á A4 pappír • Laserprentun ■ 1 mb í minni (ca 50 síöur) • 50 blaða frumritamatari • 650 blaða pappírsgeymsla F-1500M • Faxtaeki, sími, símsvari, Windows prentari, skanni, tölvufax.og Ijósriti (einu tæki • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Hitafilmu prentun • Prentar á A4 pappír • 20 blaða frumritamatari • 300 blaða pappírsbakki «£MLL! ■ FO-2600 • Innbyggður sími • Prentar á A4 pappír • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Laserprentun • 512 kb minni • 20 blaða frumritamatari • 100 blaða pappírsbakki FO-1460 • Innbyggður sími • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Hitafilmu prentun • Prentar á A4 pappír • 20 blaða frumritamatari • 200 blaöa pappirsbakki Betri faxtæki eru vandfundin! BRÆÐURNIR Lógmúla 8 • Sími 533 2800 Umboismenn u m land a 111 m bblu iluri iðrl óis int)útövmi>'>? >■: u mbbrl fióvtl ninn<! .<«) -Ji> uniT .mur/iihuðiil « ior! mw 6u nn»H .nquvbiii id qv (AmoA cg'jlblís'íii fj iijJotl

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.