Dagur - 10.11.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 10.11.1999, Blaðsíða 5
T FRÉTTIR í. MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBEK 1999 - S Nýjar hrærmgar í kj ordæmamaliiiu Einar K. Guðfiimsson alþingismaðm' segir kjordæmamálíð vera galopið hvaé ianda- mæri kjördæmanna varðar. Kristján MöH- er alþingismaður seg- ir Skagfirðinga ræða um að þeir teljist með Norðausturkjördæmi. Eins og kom fram í Degi í gær, er Kristinn H. Gunnarsson, for- maður þingflokks Framsóknar- flokksins, með róttækar hug- myndir uppi varðandi kjördæma- skipanina, sem afgreidd verður á þessu kjörtfmabili. Kristinn er ekki einn um að vera óánægður með þá niðurstöðu sem fékkst á síðasta þingi varðandi málið. Fleiri hugmyndir eru komnar á loft. Til að mynda um að Skaga- fjörður fylgi með Norðaustur- kjördæminu. Þá segir Einar K. Guðfinnsson alþingismaður að kjördæmamálinu sé hvergi lokið, það sé galopið. Þegar Alþingi samþykkti á síð- asta þingi að breyta kjördæma- skipan voru samþykkt sérstök kjördæmalög. Þau gera kleift að hreyta landamærum kjördæma án þess að það teljist breyting á stjórnarskrá og þurfi að sam- þykkjast á tveimur þingum. Þetta gerir mögulegt að breyta landa- mærum kjördæma eftir fólks- fjölda hveiju sinni en miðað er við að fólksfjöldi sé sem jafnast- ur í kjördæmunum. Einar K. Guðfinnsson var for- maður nefndar, sem lagði til til- lögur í byggðamálum í tengslum við breytingar á kjördæmaskip- an. Hann var inntur álits á hug- mynd Kristins H. Gunnarssonar um citt stórt landsbyggðarkjör- dæmi frá Snæfellsnesi vestur og austur um allt til Austurlands mcð Akureyri sem miðstöð. Kristján L. Möller. Málið opið „Ég hef ekki hugsað þetta mál til enda eins og Kristinn hcfur reif- að málið við mig. Hugmynd hans er að mínum dómi síst lakari inn í þetta púkk allt sama en hvað annað. Ég held að menn séu í raun í vanda. Kjördæmabreyt- ingin var að mínu mati misráðin og ég held að það séu mörg ljón á veginum sem menn þurfa að sigrast á áður en þeir eru komn- ir á leiðarenda. Þess vegna tel ég að það sé opin öll umræða um kjördæmaskipanina. Það er rangt sem fram hefur komið að þingmenn hafi ekki óbundnar hendur í að endurskipuleggja kjördæmin. Stjórnskipunarlög breyttust í meðförum Alþingis á síðasta þingi þannig að opnað var á að hafa kjördæmin sjö í stað sex, eins og um var rætt í frumvarpinu. Það gefur til kynna að löggjafinn hafi gefið færi á því að endurskipuleggja kjördæma- skipanina á annan veg en talað var um á síðasta þingi,“ segir Einar Kristinn. Hann bendir á að skipuð hafi verið nefnd til að lara yfir þessi mál með fulltrúum stjórnmála- flokkanna á Alþingi. Hann sagð- ist telja að nefndin muni skoða málin frá grunni með opnum huga. Skín við sólu... Kristján MöIIer alþingismaður kannast ekki við að Siglfirðingar vilji hætta við að tengjast Norð- austurkjördæminu en það hefur heyrst. Eftir að samgönguráð- herra sagði að gangagerð yfir til Ólafsfjarðar væri ekki á næsta leiti hafi Siglfirðingum snúist hugur. „Ég var á Sauðárkróki fyrir skömnui og þá nelndu margir menn við mig þá hugmynd að Skagatjörður myndi tengjast Norðausturkjördæmi en ekki Norðvesturkjördæmi eins og gert var ráð fyrir varðandi kjördæma- skipanina á síðasta þingi,“ sagði Kristján Möller. - S.OÓR Forráðamenn SL og Ferðaskrif- stofu stúdenta kynna samninginn. - mynd: hilmar þúr Stúdenta- ferðir til SL Samvinnuferðir-Landsýn munu taka við rekstri Ferðaskrifstofu stúdenta af Félagsstofnun stúd- enta frá og með 15. nóvember nk. Samhliða samningi um yfir- töku á rekstri gerðu Félagsstofn- un stúdenta, Samvinnuferðir Landsýn og Stúdentaráð Há- skóla lslands með sér samstarfs- samning í gær um ferðir fyrir stúdenta. Samvinnuferðir-Landsýn eru nú með um 31% markaðshlut- deild af ferðalögum og var aukn- ing veltu á fyrstu 6 mánuðum ársins 10% frá sama tíma í fyrra. Starfsmenn Samvinnuferða- Landsýnar eru um 100 talsins en á Ferðaskrifstofu stúdenta starfa 10 manns. Félagsstofnun stúdenta hóf rekstur á Ferðaskrifstofu stúd- enta árið 1980. Forráðamenn SL ætla að halda þeim mark- miðum uppi að gera náms- mönnum og öðru ungu fólki kleift að ferðast með eins hag- kvæmum hætti og unnt er. Lögð verður áhersla á ódýr fargjöld og verða allt að 5.300 sæti á sér- kjörum í boði á næsta ári fyrir stúdenta við HÍ. - BJB „Varöskip“ stoðvað aí varðskípsinonniun Það fræga skip Þór, sem nú heitir Thor. Varðskipsmenn stöðvuðu ferð þessa gamla varðskips út af ísafjarðardjúpi í gær. Varðskipsmenn stöðvuðu í gær siglingu þess gamla varðskips Þórs, sem nú heitir Thor, sem var á siglingu frá Húsavík og suður til Halnarfjarðar. Thor scm er í cigu Sjóferða Arnars, hefur verið breytt í veitinga- og gististað og rekið sem slíkt. Skip- ið var á siglingu út af lsafjarðar- djúpi í gærdag þegar varðskips- menn stöðvuðu siglingu þess. Við athugun kom í Ijós að haf- færnisskírteini skipsins var ekki gilt og um borð voru ekki þau skipsskjöl sem áskilið er að þar séu. Þá var aðeins einn af fimm mönnum í áhöfn með á sér áskil- in skilríki um réttindi sín. Landhelgisgæslan vísaði jiví skipinu tafarlaust inn til Isa- fjarðar, þar sem það lónaði á Skutulsfirði þegar síðast fréttist. Málið er nú komið til kasta Sigl- ingastofnunar og Sýslumannsins á Húsavík, samkvæmt upplýsing- um frá stjórnstöð Landhelgis- gæslu. Fyrirætlanir eru uppi um að um borð í Thor í Hafnarfjarðar- höfn verði sambærileg starfsemi og veriö hefur nyrðra. Thor var lengi varðskip Landhelgisgæsl- unnar, en síðar komst það í eigu Slysavarnaskóla sjómanna og hét Sæbjörg. Sjóferðir Arnars eign- uðust skipið á síðasta ári. - SBS Aukaframlög aukin Samþykkt var á fundi borgarráðs í gær að bæta 70 milljónum við sömu upphæð sem þegar hafði verið samþykkt til leikskóla borg- arinnar sem auka rekstrarfé. Þá var samþykkt að fela leikskóla- ráði borgarinnar að endurskoða hlutdeild foreldra í rekstrar- kostnaði leikskólanna á næsta ári, sem hefur verið að dragast saman síðustu tvö ár, og tillaga að fjárhagsáætlun Lcikskóla Reykjavíkur fyrir næsta ár verði endurskoöuö með tilliti til þessa. I bókun sem fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins lögðu fram í borg- arráði segir að úrræðaleysi hafi einkennt viðbrögð R-listans í leik- skólamálum og í þeirn sé ríkjandi vandræðaástand. Kosningaloforð listans hafi ekki staðist og vænt- ingar kjósenda brugðist. Einu úr- ræði R-Iistans hafi veriö hækkun leikskólagjalda forcldra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Iét bóka að grcini- legt væri á bókun sjálfstæðis- manna að þeir væru efnislega sammála tillögunni þó þeir rcyndu eins og endranær að firra sig ábyrgð á aðkallandi verkefn- um. Það hafi kornið í hlut R-Iist- ans að takast á við hinn mikla vanda leikskólanna, sem varð til vegna úrræðaskorts í valdatíð sjálfstæðismanna. -SBS Ekki stærsta hagsmimamál veiðimanna „Það er búið að afgreiða þetta frumvarp úr ríkis- stjórn og það er í meðförum þingsins,“ segir Einar Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður umhverfisráð- herra, spurður um viðbrögð við orðum Sigmars B. Haukssonar, formanns Skotvís, í blaðinu í gær. Þar átelur Sigmar vinnubrögð ráðuneytisins við smíð á frumvarpi til breytinga á lögum um vernd, friðun og veiðar á Hlltum fuglum og villtum spendýrum og segir veiðimenn eldd sátta við þá hækkun sem lagt er til að verði á veiðikortagjaldi, sem að hluta á að renna til rannsókna á rjúpnastofninum. „Mér finnst þetta ekki vera stærsta hagsmunamál veiðimanna," segir Ein- ar um þessa hækkun. Hann segist ekki vita í hvaða heiðurssamkomu- lag Sigmar sé að vísa varðandi veiðikortagjaldið. - H1 SamtíningUT keyptur í HÞ Landsbankinn hefur keypt 6,63% hlut i' Hraðfrystistöð Þórshafnar. Hluturinn er að nafnvirði 24,3 milljónir króna og samkvæmt gengi hlutabréfa í Hraðfrystistöð Þórshafnar er markaðsvirði bréfanna lið- lega 51 milljón króna. Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafn- ar, segir að Landsbankinn hafi verið að kaupa samtíning á hluta- bréfamarkaðnum. Forsvarsmönnum Hraðfrystistöðvarinnar sé ekki kunnugt um að neinn einn eigandi hafi verið að selja svo stóran hlut í fyrirtækinu. - GG Tveggja stafa tala Hitastig náði tíu gráðum á mæl- inum á Ráðhústorgi á Akureyri í gær. Slíkt sætir nokkrum tíðind- um á þessum tíma árs - og ekki er útlit lý'rir annað en þessi veðr- átta haldist áfram enn um sinn, þegar Veðurstofan spáir suðlæg- um áttum og sæla vindum þýð- um næstu daga. Einar Svein- björnsson, að- stoðarmaður umhverfisráð- herra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.