Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Blaðsíða 4
4 - Föstudagur 3. janúar 1997 Jbtgur-'ðHmttm 1 Menntamálaráðuneytið Skagafjöróur Laust embætti Embætti forstöðumanns Listasafns íslands er laust til umsóknar. Samkvæmt 4. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn ís- lands, eru gerðar þær hæfniskröfur tii forstöðumanns að hann hafi sérfræðilega menntun og staðgóða þekk- ingu á myndlist og rekstri listasafna. Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. mars 1997 að telja. Um laun og starfskjör fer eftir ákvörðun kjara- nefndar, sbr. lög 120/1992, um Kjaradóm og kjara- nefnd, með síðari breytingum. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1997. Menntamálaráðuneytið, 30. desember 1996. NATTURUVERNDARRAÐ Viðauki I Hagsmunaaöilar, félagasamtök og stofnanir með sæti á Náttúruverndarþingi 1997 Alþýðusamband l’slands • Arkitektafélag fslands • Bandalag íslenskra farfugla • Bandalag ís- lenskra skáta • Bændasamtök fslands • CAFF skrifstofan á fslandi • Ferðafélag íslands Ferðafélagið Útivist • Ferðaklúbburinn 4x4 • Ferðamálaráð • Ferðaþjónusta bænda • Félag áhugafólks um hálendi Austurlands • Félag eigenda sumardvalarsvæða • Félag íslenskra landslagsarkitekta • Félag íslenskra náttúrufræðinga • Félag landfræðinga • Félag leiðsögu- manna • Fjallið (Hagsmunafélag jarð- og landfræðinema) • Framtíðarstofnun • Flugmálastjórn Fuglaverndarfélag íslands • Geislavarnir ríkisins • Hellarannsóknarfélag íslands • Hafrannsókn- arstofnunin • Haxi (hagsmunafélag líffræðinema) • Háskóli fslands • Hið íslenska náttúrufræði- félag • Hollustuvernd ríkisins • Jarðfræðafélag íslands • Jöklarannsóknafélag íslands Kennarasamband Islands • Kvenfélagasamband Islands • Landgræösla ríkisins • Landlæknis- embættið • Landmælingar íslands • Landssamband hestamannafélaga • Landssamband ís- lenskra vélsleðamanna • Landssamband stangveiðifélaga • Landssamband veiðifélaga Landssamtökin Líf og land • Landsvirkjun • Landvarðafélag íslands • LandverndLíffræðifélag íslands • Líffræðistofnun Háskólans • Náttúruvernd ríkisins • Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands • Náttúruverndarsamtök Austurlands • Náttúruverndarsamtök Suðurlands • Náttúruvernd- arsamtök Vesturlands • Orkustofnun • Náttúrufræðistofa Kópavogs • Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn • Rafmagnsveitur ríkisins • Rannsóknaráð fslands • Rannsóknastofnun landbúnað- arins • Raunvfsindastofnun Háskólans • Samband dýraverndarfélaga íslands • Samband ís- lenskra sveitarfélaga • Samlíf (Samtök líffræðikennara) • Samtök um náttúruvernd á Norður- landi • Samtök um umhverfismál og náttúruvernd • Siðfræðistofnun Háskólans • Siglingastofn- un (slands • Sjálfboðalíðasamtök um náttúruvernd • Skipulag ríkisins • Skotveiðífélag Islands Skógrækt ríkisins • Skógræktarfélag íslands • Surtseyjadélagið • Ungmennafélag Islands Vegagerðin • Veiðimálastofnun • Veiðistjóraembættið • Veðurstofan • Verkfræðingafélag ís- lands • Verkfræðistofnun Háskólans • Vestfirsk náttúruverndarsamtök • Vinnueftirlit ríkisins Vinnuveitendasamband íslands • Vísindafélag fslendinga • Yfirdýralæknisembættið • Þjóð- minjasafn • Æðarræktarfélag íslands • Æskulýðssamband (slands Náttúruverndarráð bendir þeim sem telja sig eiga seturétt á Náttúruvernd- arþingi en er ekki getið í ofangreindum reglum að hafa samband við skrif- stofu Náttúruverndar ríkisins, Hlemmi 3, pósthólf 5324, 125 Reykjavík, fyr- ir upphaf Náttúruverndarþings. Náttúruverndarráð. 9. Náttúruverndarþing verður haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar 1997 að Hótel Loftleiðum. Hlutverk þingsins er að fjalla um náttúruvernd og kjósa fulltrúa í Náttúruverndarráð. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 93/1996 um náttúruvernd hefur Náttúru- verndarráð samið eftirfarandi reglur um Náttúruverndarþing. 1 ■ gr. I samræmi við ákvæði laga nr. 93/1996 um náttúruvernd verður Náttúru- verndarþing haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar 1997 að Hótel Loft- leiðum, Reykjavík. Hlutverk þess er að fjalla um náttúruvernd og kjósa full- trúa í Náttúruverndarráð. 2. gr. A Náttúruverndarþingi eiga sæti: A. Með fullum réttindum: 1. Náttúruverndarráð. 2. Fulltrúi frá hverju setri Náttúrufræðistofnunar l'slands. 3. Fulltrúi frá hverri náttúrustofu. 4. Fulltrúi kjörinn af hverri náttúruverndarnefnd. 5. Einn fulltrúi fyrir hvern eftirfarandi hagsmunaaðila, félagasamtaka og stofn- ana: (sjá viðauka 1). B. Með málfrelsi og tillögurétt. 1. Einn fulltrúi fyrir hvert ráðuneyti. 2. Einn fulltrúi fyrir hvern þingflokk á Alþingi. 3. Forstjóri Náttúruverndar rfkisins, forstjóri Náttúrufræðistofnunar íslands, þjóð- garðsverðir. 3. gr. Náttúruverndarráð undirbýr Náttúruverndarþing og leggur fyrir það skýrslu um störf sín. Formaður ráðsins setur þingið og stýrir þvl uns það hefur kosið sér forseta. Þingið setur sér þingsköp. Seta á náttúruverndarþingi er ólaunuð, en hlutaðeigandi aðilar greiða kostnað fulltrúa. Annar nauðsynlegur kostnaður af þinghaldinu greiðist úr ríkissjóði samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra. 4. gr. Náttúruverndarráð er skipað níu mönnum. Umhverfisráðherra skipar sex þeirra í upphafi náttúruverndarþings, fimm að fengnum tillögum Náttúru- fræðistofnunar íslands, Háskóla íslands, Bændasamtaka íslands, Ferða- málaráðs og skipulagsstjóra ríkisins og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður ráðsins. Þrjá þeirra kýs Náttúruverndarþing. Varamenn eru skipaðir og kosnir með sama hætti. 5. gr. Reglur þessar eru settar með vísan til laga nr. 93/1996 um náttúruvernd og öðlast þegar gildi. Reykjavík, 30. desember 1996, Náttúruverndarráð, Arnþór Garðarsson - Kristján Geirsson. F R E T T I R Heimalöndin kort- lögð á 147 jörðum Þróun, fræðsla og leið- beiningar um vörslu, meðferð, ræktun og landnotkun í víðasta skilningi ásamt aukinni þekkingu á sögulegum, menningarlegum og nátturulegum landgæð- um er markmið nýs samstarfssamnings. Um áramót hófst samn- ingsbundið samstarf Hólaskóla, Landgræðslu ríkisins, Skógræktar ríkisins og Búnaðarsambands Skagflrðinga um þróun, fræðslu og leiðbein- ingar til bænda, vísindamanna og annarra hagsmunaaðila og áhugafólks á sviði landgræðslu, skógræktar og fjölþættrar land- notkunar. Vegna þessa verður ráðinn sérstakur starfsmaður með aðsetur í Hólaskóla sem leggur honum til starfsaðstöðu ásamt hálfum launum á móti 25% frá Landgræðslunni, en Skógræktin og Búnaðarsam- bandið skipta með sér þeim 25% sem þá vantar. Hluti samstarfsverkefnisins er kortlagning heimalanda 147 jarða í Skagafirði. Sú vinna er raunar þegar hafin og áætlað að henni ljúki 1998. Þróun í gerð landnýtingarkorta er með- Hólar í Hjaltadal. Þar verður miðstöð hinnar nýju fræðslu- og leiðbeiningarþjónustu. al helstu verkefna sem tengjast almennri landnotkun, ásamt gerð nýtingarkorta fyrir ár og vötn og staðbundinna örnefna- korta. Sömuleiðis ráðgjöf til bænda og annarra hagsmuna- aðila um mat iandgæða og nýt- ingu þeirra og eftirlits með beitarálagi og ástandi haga, einkum á Norðurlandi vestra. Verkefni tengd landgræðslu fel- ast í umsjón með landgræðslu- framkvæmdum og ráðgjöf til bænda og annars áhugafólks á Nl. vestra, m.a. verkefninu „Bændur græða landið". Einnig aðstoð til bænda við gerð land- græðsluáætlana fyrir einstakar jarðir. Skógræktarverkefnin felast í kortagerð á skógræktarskilyrð- um, ásamt áætlanagerð og eft- irliti með nytjaskógrækt á bú- jörðum, skráningu á skógi og skógarminjum og almennri ráð- gjöf um skógrækt og gifdi henn- ar. Skipulagning, rannsóknir og tiiraunir varðandi landgræðslu, skógrækt og fjölþætta landnotk- un á vegum Hólaskóla er meðal verkefna sem tengjast fræðslu, ásamt kennslu, endurmenntun og námskeiðahaldi fyrir nem- endur skólans, jafnt sem bænd- ur og annað áhugafóik. Framangreind verkefni verða unnin í nánu samráði við ráðuneyti, búnaðarsambönd, sveitarfélög, stofnanir, félög, bændur og aðra einstaklinga. Hagstofan Um helmingur nýjn íbúanna í Kópavogí Nær helmingur allr- ar fólksfjölgunar í landinu er í Kópa- vogi, nær 900 manns, en fólks- fækkun varð í öllum landsbyggðarkjör- dæmunum. Ibúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um tæplega 2.700 milli ára en íbúum landsins aðeins um rúmiega 1.900, sem þýðir að fóiki búsettu utan höf- uðborgarsvæðisins fækkaði alls um nærri 800 manns. Fækkun varð í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum, þar sem íbúa- íjöldi stóð næstum í stað. Nærri heimingur allrar fólksfjölgunar í landinu milli 1995 og 1996 varð í Kópavogi, eða tæplega 900 manns. Reykvíkingum fjölgaði um rúmlega 1.200 og Ilafnfirðingum um 400 manns. Hlutdeild landsbyggðarinnar af öllum íbúum landsins hefur á einum ártug lækkað úr 45% niður í um 40%. Frá 1. desem- ber í fyrra hefur fólki m.a.s. fækkað í beinum tölum á flest- um þéttbýlisstöðum á lands- byggðinni. Akureyringum fjölg- aði að vísu um nærri 90 manns og lítils háttar fjölgun varð einnig í Bolungarvík, Súðavík, Dalvík, Húsavík, Egilsstöðum, Eskifirði, Hvolsvelli, Hellu og Selfossi. Hlutfallsleg fólksfækk- un varð aftur á móti mjög mikil í Hnífsdal (18%), Hofsósi (11%) og Grímsey (13%), en mjög víða á bilinu 3-7% milli ára. Hag- stofan áætlar, í bráðabirgðatöl- um, að um 4.300 börn fæðist á landinu í ár, álíka mörg og árið áður og um 2.400 fleiri heldur en kvöddu þetta líf (1.900) á ár- inu. Ef fæðingatíðni yrði hin sama til frambúðar yrðu ófædd- ar kynslóðir jafn ijölmennar og kynslóð foreldranna. Lfm 4.300 manns hafa flutt frá landinu á umliðnu ári, álíka margir og árið á undan. Til landsins fluttu hins vegar um 3.800 manns, eða um 900 fleiri en árið á undan og hafa raunar aðeins tvisvar áður svo margir flutt til landsins. Undanfarin ár hafa fleiri erlendir ríkisborgar- ar flutt til landsins en frá land- inu. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓREY ÁSMUNDSDÓTTIR, Háteigsvegi 9, lést aðfararnótt 31. desember. Sóiveig Steingrímsdóttir, Birgir Jensson. Svava Ásdís Steingrímsdóttir, Ágúst Már Sigurðsson. Guðrún Steingrímsdóttir, Sigurður Ásgeirsson. Edda Hrönn Steingrímsdóttir, Ásgeir H. Ingvarsson. Alda Steingrímsdóttir, Oddur Eiríksson. Kolbrún Lind Steingrímsdóttir, Jóhannes Eiríksson. Rósa Steingrímsdóttir. Guðmundur B. Jósepsson og barnabörn.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.