Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Blaðsíða 3
|Dagur-®tmirat Fimmtudagur 3. október 1996 - 15 LÍFIÐ í LANDINU Heilsurækt Allýjar Aldísar 20 ára Allý Aldís Lárusdóttir rek- ur Heilsurækt í kjallar- anum heima hjá sér að Munkaþverárstræti 35 á Akur- eyri . Aldís er dönsk að upp- runa en kom til Akureyrar árið 1956 löngu áður en heilsurækt- arsprengjan skall á íslandi. Hún hafði verið í leikfimi frá unglingsaldri og fannst skrítið að llnna enga leikíimistaði fyrir fólk eftir að grunnskólanum sleppti. „Vinkona mín, Ingibjörg Sigfúsdóttir, og ég ákváðum löngu seinna þegar börnin okk- ar voru orðin stálpuð að gera eitthvað í þessu og fórum til Reykjavíkur og út til Danmerk- ur að læra nudd og að leiðbeina fólki í leikfimi. Síðan komum við heim ári síðar og opnuðum heilsurækt 15. september árið 1976 í Kaupangi." Þið voruð fyrstar að auglýsa líkamsræktarstað á Akureyri, hvernig voru viðbrögðin? „Þau voru alveg ótrúleg, ég hafði verið dálítið smeik því þetta hafði ekki tíðkast hérna og fólk var að segja við mig að þetta myndi ekki ganga. Við höfðum trú á þessu og héldum áfram og gekk bærilega. Tveim- ur árum síðar fóru stöðvarnar að spretta upp eins og gorkúlur á Akureyri og samkeppnin varð til þess að ég ílutti stöðina heim til mín. Þá var vinkona mín líka farin að sinna öðru svo það hentaði ágætlega að vera með þetta í kjallaranum. Ég kom mér upp aðstöðu og tók bílskúr- inn undir leikfimisalinn og síð- an ég flutti hef ég alltaf haft nóg að gera.“ Aðallega eldri konur Aldís segir að til sín komi aðal- lega konur á aldrinum 45 ára og upp úr, en karlarnir komi í nuddið. „Áður fyrr hafði ég ein- ungis einstaklingsleikflmi en nú er ég með hópa og þannig get ég lagt daginn betur niður fyrir mér. Ég var fyrst með stúlku til að aðstoða mig við leikfimi- kennsluna og sá sjálf aðallega um nuddið en síðan lærði ég æfingarnar og er með allt sjálf núna.“ Aldís vinnur fullan vinnudag og meira til mánu- daga, miðvikudaga og föstu- daga en tekur sér frí á milli. Vinnudagana er hún með morgunleikfimi, nuddar yfir daginn og er síðan með kvöld- leikfimi. „Síðan tek ég mér gott sumarfrí en er að byrja á fullu aftur núna.“ Hún segir að það sé stundum dáh'tið erfitt að vera með leik- fimina og aðallega nuddið en hún hlakki samt alltaf til að fara niður á morgnana og byrja leikfimitímana með konunum. „Við eigum ekki að djöflast" Hefur margt breyst á 20 ára leikfimitíð þinni? „Já mjög mikið, mér finnst of mikið hopp og lú núna, við eig- um ekki að djöflast heldur að vera mjúk og góð við líkamann. Hopp er slæmt fyrir innyflin og vöðvana svo maður tah nú ekki um hnén. Ég er með gamaldags leikfimi sem minnir kannski á morgunleikfimi Valdimars Örn- ólfssonar sem var í útvarpinu. Hann var með skemmtilegar hreyfingar við rólega og fína músík.“ í kjallaranum hjá Allý er lítill leikfimisalur, tveir ljósabekkir, gufubað, nuddbekkur og gigtar- lampar, öllu haganlega fyrir- komið í litlu plássi. Eitt tæki er sérstakt en það eru stígvélin svokölluðu. „Já, ég er með dá- lítið sérstakt tæki fyrir nuddið, það virkar eins og punktanudd, maður setur fótinn í sérstök stígvél og tæmir síðan allt loft úr þeim, þá koma fram blettir sem maður vinnur með. Þetta hefur reynst mörgum vel og t.d. þegar fólk misstígur sig getur það átt í erfiðleikum í hálft ár á eftir en ef það kemur til mín og fer í stígvélin er það orðið gott eftir nokkur skipti." Allý segir að eldra fólk geri ekki nærri nógu mikið af því að hreyfa sig og segir að í raun ætti það að vera skylda þegar fók hefur náð 60 ára aldri að fara í leikfimi. „Það er alveg frábært að hreyfa sig og ef læknarnir gerðu meira af því að hvetja fólk til þess myndi ríkið spara verulega og fólkinu myndi líða miklu betur.“ mgh Aidís leikfimisleiðbeinandi ásamt konum frá ÚA sem koma til hennar tvisvar í viku. Mynd. JHF Kjötiðnaðarmenn í fremstu röð Nei, við áttum ekki von á að ná þessum árangri. Kannski má orða þetta sem svo að við höfum ekki vitað hvað við vorum góðir,“ segir Björn Ingi Björnsson hjá Kjöt- vinnslunni Krás á Selfossi, sem náði góðum árangri í alþjóð- legri fagkeppni í kjötiðnaði sem haldin var í Ilerning í Dan- mörku á dögunum. Fjölmargir íslenskir kjötiðnaðarmenn tóku þátt í keppninni - og hefur ár- angur íslendinga aldrei verið betri, en þeir fengu verðlaun fyrir 57 vörur af þeim 58 sem þeir sendu inn. Það voru kjötiðnaðarmenn frá fyrirtækjum um allt land sem unnu til verðlauna í keppni þessari. Fern verðlaun fóru til Kjötiðju KÞ og jafnmörg til Krásar á Selfossi, þrenn til SS á Hvolsvelli, tvenn til Ilafnar hf. á Selfossi, ein til Reykjagarðs á Ilellu, ein til SS kjötvara í Hafn- arfirði og Eiríks Jensen á Akur- eyri. Landsmeistari íslands varð, sem áður segir, Björn Ingi Björnsson en einnig náði Krist- ján Arnarson hjá Kjötiðju KÞ á Kristján Arnarson og Gyða Evertsdóttir hjá Kjötiðju KÞ með þær fram- leiðsluvörur fyrirtækisins sem verðlaunaðar voru. -gkj. Guðmundur Geirmundsson og Björn Ingi Björnsson, landsmeistari ís- lands í kjötiðn, hjá Krás á Selfossi, með vörur þær sem þeir fengu verð- launfyrir. M,r& -hþ. Húsavík mjög góðum árangri. Þeir Björn voru í 3.-4. sæti í keppni þessari, sem þykir und- irstrika og sýna að á Islandi séu fagmenn í kjötiðnaði á heims- mælikvarða. Á hinni alþjóðlegu fagkeppni í Herning er keppt í sex vöru- flokkum; þ.e. hráum og soðnum kjötvörum, hrápylsum, soðnum pylsum, kæfum og pate, blóð- pylsum og sultum og sérvörum og nýjungum. Unnu fulltrúar ís- lands þarna til gull, silfur og bronsverðlauna og samanlagt unnu þeir til 57 verðlauna, sem áður segir. Á sýningunni í Herning var kynning á úrbeiningu og fram- setningu á lambakjöti. Tveir ungir kjötiðnaðarmenn, þau Sigfríður Halldórsdóttir hjá Býja bautabúrinu á Akureyri og Friðrik Þór Erlingsson hjá Meistaranum í Reykjavík, tóku þátt í þeim lið kepppninnar og náðu þau góðum árangri. Kynning þessi var í þeim til- gangi að auka áhuga danskra kjötiðarmanna á íslensku Iainbakjöti. -sbs.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.