Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Page 19
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982. 19 íþróttir íþrótt íþróttir íþróttir Alan Young er Dýrlingur í Leicester — eftir að Leicester hafði lagt Southampton að velli 3:1 á Filbert Street — Manchester United og Nottingham Forest fengu skelli Skotinn Alan Young cr sá maður er allir i Leicester töluðu um á laugardag- inn. Hann var hetja Leicester, sem vann óvæntan sigur (3:1) yfir Dýrl- ingunum frá Southampton — átti stór- góðan leik og skoraði tvö mörk. Kevin Keegan, sem hefur skorað 18 mörk á keppnistímabilinu fyrir Southampton, varð að yfirgefa Filbert Street - meidd- ist á ökkla. Leikmenn Leicester mættu ákveðnir til leiks og eftir 19. min. mátti Júgóslav- inn Ivan Katalinic, markvörður Southampton, hirða knöttinn úr netinu hjá sér.Katalinic misreiknaði fyrirgjöf fyrir mark Southampton, þannig að Andy Peake náði að skalla knöttinn til Young, sem sendi knöttinn i netið — 1:0. Andy Peake var síðan aftur á ferð- inni á 26. mín. — þá átti hann góða krosssendingu fyrir mark Southampton þar sem Alan Young var á réttum stað og skallaði hann knöttinn i netið - 2:0. Kevin Keegan náði að minnka mun- inn rétt fyrir leikhlé með góðu marki, eftir fyrirgjöf frá Mike Channon. Þegar 10 mín. voru til leiksloka var- Alan Yong tekinn út af-var orðinn yfir sig þreyttur og inn kom annar Skoti— Jim Melrose, sem ekki var búinn að vera inn á nema þrjár mín., þegar hann lagði upp þriðja mark Leicester. Hann Enska bikar- keppnin... Úrslit urðu þessl i 3. umferð ensku bikarkeppninnar á laugardaginn: Barnet-Brighton 0—0 Birmingham-Ipswich 2—3 Bolton-Derby 3—1 Bournemouth-Oxford 0—2 Coventry-Sheff. Wed. 3—1 Doncaster-Cambridge 2—1 Enfield-C. Palace 2—3 Leicester-Southampton 3—1 Luton-Swindon 2—1 Man. City-Cardiff 3—1 Nott. For.Wrexham 1—3 Orient-Charlton 1—0 QPR-Middlesb. 1—1 Rotherham-Sunderland 1—1 Stoke-Norwich 0—1 Swansea-Liverpool 0—4 Tottenham-Arsenal 1—0 Watford-Man.Utd. 1—0 WBA-Blackburn 3—2 West Ham-Everton 2—1 Wolves-Leeds 1—3 Þremur leikjum var frestað vegna veðurs. Millwall-Grimsby, Notts C.- Aston Villa og Newcastle-Colchester. Aðrir leikir, sem eftir er að leika í 3. umferð eru: Carlisle eða Bishop Auck- land - Huddersfield, Blackpool-Barns- ley, Scunthorpe-Hereford, Petersbor- ough - Bristol City, Shrewsbury - Port Vale, Altrincham - Bury eða Burnley og Gillingham - Oldham. átti snjalla sendingu fram á Gary Lineker, sem náði að rífa sig lausan frá Alan Ball og skora 3:1 við mikinn fögn- uð áhorfenda. United fókk skell Það var einnig mikill fögnuður hjá áhorfendum Vicarage Road í London, þar sem „gulldrengirnir” hjá Watford náðu að leggja Manchester United að velli -1:0. Eftir að dómarinn var búinn að flauta leikinn af, dönsuðu leikmenn Watford og fjölmargir áhorfendur - stríðsdans á vellinum. Leikmenn Unit- ed gengu vonsviknir af velli — minnugir þess, að það var einmitt Wat- ford sem sló þá út út bikarkeppninni fyrir þremur árum. Leikmenn Watford lögðu allt í söl- urnar til að vinna sigur og þeir léku vel ogvörn þeirravar mjög öflug. Það var 22 ára Hollendingur — Jan Lowmann sem skoraði sigurmark Watford á 44. mín.úr þvögu eftir hornspyrnu. Þetta var fjóiði leikur hans með Watford. Palace í erfiðleikum Leikmenn Crystal Palace áttu í miklum erfiðleikum með utandeildar- liðið Enfield. Palace byrjaði vel— David Price og Vince Hilaire voru bún- ir að skora (2:0) eftir 23 mín. Þá náði Nikky Ironton að minnka muninn en Vince Hilaire skoraði síðan 3:1 fyrir Palace á 72. mín. Aðeins 60 sek. síðar var Steve Oliver búinn að skora fyrir Enfield og eftir það sóttu líkmenn utandeildarliðsins stíft að marki Palace. Leikmenn Palace urðu mjög glaðir, þegar þeir heyrðu dómarann flauta leikinn af. Brighton átti einnig í miklum erfið- leikum með utandeildarliðið Barnet frá N-London. 4 þús. áhorfendur mesti áhorfendafjöldinn hjá Barnet í 15 ár, sáu leikmenn Barnet halda jöfnu (0:0) gegn Brighton. Garry Philip, markvörður Barnet, átti mjög góðan leik. Óskabyrjun dugði Forest ekki Það voru ekki upplitsdjarfir leik- menn Nottingham Forest sem yfirgáfu leikvöll sinn, City Ground, eftir að þeir höfðu tapað þar 1:3 fyrir Wrexham. Forest fékk óskabyrjun - þegar Mark Proctor skoraði eftir að- eins 67 sek. Þetta mark dugði ekki— leikmenn Wrexham gerðu út um leik- inn á 11 mín. kafla í s. hálfieik, er þeir skoruðu þrjú mörk. Það var Steve Fox sem var hetja Wrexham — hann átti snilldarleik og lagði upp jöfnunar- markið, þegar Steve Downan skallaði knöttinn i netið 1:1. Mick Vinter skor- aði síðan glæsilegt mark, eftir auka- spyrnu af 25 m færi og síðan gull- tryggði Dixie McNeill sigurinn, eftir sendingu frá Fox. úruggt hjó Coventry Leikmenn Coventry unnu góðan sig- ur (3:1)1 yfir Sheffield Wednesday. Eft- ir að Andy McCulloch hafði skorað fyrir Wednesday, tóku leikmenn Coventry leikinn í sínar hendur og Steve Hunt skoraði 2 mörk fyrir leikhlé og Mark Hateley gulltryggði síðan sig- urinn Ross Jack tryggði Norwich sigur (1:0) yfirStoke, meðmarkiá ll.mín. Keit Cassell og táningurinn Andy Thomas skoruðu sigurmörk Oxford (2:0) gegn Bournemouth. lan Moores fyrrum leikmaður Tottenham, skoraði sigurmark Orient (1:0)gegn Charlton. WBA vann góðan sigur yf- ir Blackburn — 3:2. Þeir Steve Mac- Kenzie, Andy King og Clive Whitehead skoruðu fyrst (3:0) fyrir Albion en Siinon Garner tókst að minnka mun- inn, með tveimur mörkum. L í i l lL V .... I I 0 Alan Young leikmaðurinn snjalli hjá Leicester. „Boro" óhappið Það var ekki langt frá að Middles- brough næði að tryggja sér sigur yfir QPR á Loftus Road i fyrsta skipti. [ Bobby Thompson skoraði gott mark fyrir Boro á 9. mín., skallaði knöttinn þá fram hjá hinum unga markverði QPR, Peter Huker. David Hearer átti síðan þrumuskot, sem skall i stönginni á marki Lundúnaliðsins. Það var | Simon Stainrod sem tryggði QPR jafn- tefli 1:1. Þegar 19 mín. voru til leiks-1 loka Tony Towner skoraði mark Rother- ham, en Gary Rowell jafnaði (1:1) fyrir Sunderland á 80. mín. Alan Gowling Foster og Chris I Thompson skoruðu mörk Bolton (3:1) gegn Derby, en Steve Powell skoraði | fyrir Derby. Leikmenn Cambridge urðu fyrir þvi I óhappi að byrja að skora sjálfsmark | gegn Doncaster, en Alan Tylor, fyrr- um leikmaður West Ham - náði siðan I að jafna metin - 1:1. Það var Alan Warboys, sem skoraði síðan sigurmark Doncaster -2:1. -SOS [ Anderlecht f ékk skell Belgíumeistarar Anderlecht fengu I heldur betur skell i 16-liða úrslitum belgísku bikarkeppninnar, þegar þeir töpuðu 1:3 fyrir Waterschei á útivelii. Pétur Pétursson kom inn á sem vara- maður hjá Anderlecht — undir lok | leiksins. Arnór Guðjohnsen og félagar hans I hjá Lokeren unnu öruggan sigur 3:0 yfir Molenbeek á útivelli og er það mjög gott. Arnór tókst ekki að skora í leiknum. Pólverjinn Lato skoraði 2 mörk og Ver Heyen bætti því þriðja | við. Þau lið sem eru eftir i bikarkeppn- inni og leika í 8-liða úrslitum, eru: I Lokeren, Waterschei, Tongtes, Patro Eisden, Lierse, Waregem, Antverpen | og Beveren. -SOS. Englendingar leika í Bilbao Búið að raða niður í sty rkleikaf lokka í HM-keppninni á Spáni Heimsmeistarakeppnin i knatt- spyrnu fer fram á Spáni i sumar og nú hefur verið dregið f styrkleika- flokka. Englendingar eru f fyrsta styrkleikaflokki og leika þeir sína leiki f Bilbao í undankeppninni. Aðrar þjóðir sem eru í fyrsta styrkleikafiokki eru: Spánii, sem leikur sína leiki í Valencia. Brasilia, sem leikur sina leiki í Sevilla. Argentina, sem leikur sína leiki í Alicante. Ítalía, sem leikur sfna leiki i Vigo. V-Þýzkaland, sem leikur leiki sína í Gijon og Oviedo á N-Spáni. Þessar þjóðir geta ekki dregizt saman, en þær lenda í riðli með þjóðum í öðrum, þriðja og fjórða styrkleikaflokki. Sovétríkin, Tékkóslóvakía, Ung- verjaland, Pólland, Júgóslavía og Austurríki eru í öðrum styrkleika- flokki. Frakkland, Belgía, Skotland, N- írland, Chile og Perú eru í þriðja styrkleikaflokki. Cameroon, E1 Salvador, Hondúras, Alsír, Kuwait og Kína eða N-Sjáland eru í fjórða styrkleika- flokki. Ástæðan fyrir því að Englending- ar voru settir í fyrsta styrkleikaflokk er sú að Englendingar urðu HM- meistarar 1%6, en í fyrsta styrkleika- flokki eru fimm fyrrverandi HM- meistarar ásamt gestgjöfunum — Spáni. -sos. Fiorentina vann Inter — og heldur forustunni á Ítalíu Efsta liðið í 1. deildinni ítölsku i knattspyrnunni, Fiorentína, byrjaði árið 1982 vel. Sigraði Inter Milanó 4—2 á heimavelli i gær. HM-leik- maðurinnDaniel Bertoni skoraði eina markið fyrir Fiorentina f fyrri hálf- leiknum. Aldo Serena jafnaði á 47. min. en á 51. min. skoraði Bertoni aftur. Nú úr vitaspyrnu. Francesco Graziani kom Fiorentfna i 3—1 og spenna var mikil. Serena skoraði aftur og minnkaði muninn i 3—2. Það nægði ekki Milano-liðinu. Eraldo Pecci skoraði fjórða mark Fiorentina á 64. min. Juventus komst í annað sætið með sigri á Udinese, 1 —0. 18 ára strákur, Giuseppe Galderisi, skoraði eina markið í leiknum. Hann kom inn sem varamaður fyrir Marco Tardelli. Úr- slit urðu annars þessi: Ascoli-Torino Bologna-Genúa Catanzaro-Cesena Como-Avellino Fiorentina-Inter Juventus-Udinese AC Milano-Cagliari Napoli-Roma Staða efstu liða: Fiorentina Juventus Roma Inter Napoli 13 8 13 8 12 6 13 5 13 4 0—0 1 — 1 3— 0 0—1 4— 2 1—0 1—0 1—0 18—10 19 17—6 18 17—10 16 16—12 16 13—8 15 -hsím. Steve Fleet til Eyjamanna Englendingurinn Steve Fleet, sem þjálfaði Skagamenn með góðum árangri sl. keppnistímabil, verður aftur hér i sviðsljósinu i sumar. Fleet verður þjálfari Vestmannaeyjaliðs- ins. Eyjamenn höfðu samband við Fleet fyrir stuttu og um áramótin var endaniega gengið frá þvi, að Fleet kæmi til þeirra — og kemur hann til landsins f byrjun marz. Nú hafa öll 1. deildarliðin i knatt- spyrnu nema Valur og Keflavík ráðið þjálfara fyrir næsta keppnistfmabil. Þess má geta að Keflvíkingar höfðu áhuga á að fá Fleet til sín. -FÓ/-SOS. Steve Fleet. H RESSING ARLEIKFIMI KVENNA OG KARLA Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 7. janúar 1982 í leikfimisal Laugarnesskóla. Fjölbreyttar æfingar — músík — slökun. Get bætt við örfáum nemendum. Upplýsingar í síma 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir íþróttakennari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.