Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Blaðsíða 21
U V . iVUL/V lIVUL/AUUn 10. ivirvi 1300. ^ v • miivviivuL/nuua 10. m/\i 1300. íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir íþrótt íþróttir fþrótt íþróttii íþróttir „Höfum ekki áhuga á Rummenigge” — segir varaformaður Barcelona um þá frétt að Karl-Heinz Rummenigge sé á förum til Barcelona — Viö höfum engan áhuga á aö fá Karl-Heinz Rummenigge, sagði einn af forráöamönnum Barcelona, þegar hann var spurður um þann orðróm sem skaut upp kollinum í V-Þýska- landi í gær, aö Rummenigge væri á leiðiuni til Barcelona. Fréttastofa í V-Þýskalandi sagöi frá því í gær aö Bayern Miinchen þyrfti aö neyðast til aö selja Rummenigge og væri líklegt aö hann færi til Barcelona á 6,5 milljónir marka en Miinchen fengi Bernd Schuster í kaupbæti frá Barcelona. — „Eg veit ekkert um þetta,” sagði Rummenigge þegar hann var spuröur um fréttina. Forráðamenn Bayern sögöu aö þaö væri ekki á prjónunum hjá þeim aö selja Rummenigge. Nicolas Casaus, varaformaöur Barcelona, sagöi aö þeir heföu ekki áhuga á Rummenigge. — Bemd. Schuster veröur áfram hjá okkur ann- aö ár, eins og samningur hans segir til um. Viö erum mjög ánægöir að hann veröi áfram hjá okkur, sagöi Casaus. -SOS Stóri-bikarinn til Selfyssinga Selfyssingar tryggðu sér sigur í Stóru-bikarkeppninni er þeir lögöu Aft- ureldingu frá Mosfellssveit að velli, 4— 2, á Selfossi. 186 áhorfendur sáu Sel- fyssinga fá óskabyrjun því að eftir að- eins 3 mín. var Sigurlás Þorleifsson bú- inn að senda knöttinn í netið hjá Aftur- eldingu og stuttu síðar skoraði Heímir Bergsson með þrumuskoti af 20 m færi — 2—0. Jón Birgir Kristjánsson og Sigurlás bættu síðan mörkum við en Lárus Jónsson skoraði bæði mörk Aftureldingar. Víðir í Garði gaf nýjan bikar til keppninnar og tóku Selfyss- ingar við honum eftir leikinn. Selfyss- ingar fengu fimm stig, Víðir úr Garði fjögur, Afturelding tvö og ÍK úr Kópa- vogieitt. -KB/-SOS Sigurvegarar Þórs í bikarkeppni Akureyrar. DV-mynd Guðm. Svansson. Þór bikarmeist- ari Akureyrar Þór varð bikarmeistari Akureyrar í knattspymu um helgina. Þrjú félög tóku þátt í keppninni. Auk Akureyrar- liðanna Þórs og KA voru Siglfirðingar með, KS. Völsungi frá Húsavík var einnig boðin þátttaka en leikmenn liðs- ins sáu sér ekki fært að mæta. Orslit í leikjunum uröu þessi. Þór — KS 3-0 KS-KA 0-0 Þ6r — KA 1-1 (Jrslitaleikurinn var á Sanavelii, hálfgerður „drullupollaleikur”. Aö- staöa erfið. Gunnar Gíslason náöi for- ustu fyrir KA í lok fyrri hálfleiks. í síð- ari hálfleik voru Þórsarar sprækari. Þeir jöfnuöu á 75. mín. Árni Stefánsson var felldur innan vítateigs og dæmd vítaspyrna, sem Guöjón Guðmundsson skoraði úr. Jafntefliö nægöi Þór til sig- urs. Fyrsti leikur Islandsmótsins, 1. deild, verður á Þórsvelli á fimmtudag. Þá leikur Þór við Akranes. GSV, Akureyri. Burnley f éll Crystal Palace sendi Burnley niður í 3. deild á Selhurst Park í London í gær- kvöldi, þar sem Palace vann 1—0. 23 þús. áhorfendur sáu Ian Edwards skora sigurmark Palace um miðjan seinni hálfleik. Eftir leikinn brutust út slagsmál á milii áhangenda félaganna. Tveir leikir voru leiknir í 4. deild: Darlington—Peterborough 4—3 Tranmere—Rochdale 0—0 Heimir meiddur Heimir Karlsson, markaskorarinn mikli úr Vikingi, mun aö öllum lík- indum ekki leika með Víkingum gegn Breiðabliki á Laugardalsvellinum á morgun. Heimir fékk högg á læri í leik Víkinga gegn Skagamönnum þannig að það blæddi inn á vöðva. Það er enn ekki ljóst hvort Heimir geti leikið með Víkingum gegn Skagamönnum á mánudaginn kemur uppi á Akranesi. -SOS Sigurður Sveinsson. Sigurður til Lemgo Átta leikmenn eru farnir frá Nettelstedt Frá Axel Axelssyni — fréttamanni DV íV-Þýskalandi: —Sigurður Sveinsson, landsliðs- maður í handknattleik sem hefur leikið með Nettelstedt, hefur gerst leik- maður með Lemgo sem vann sér sæti í „Bundesligunni” fyrir stuttu. Sigurður gekk til Uðs við félagið ásamt Michael Schuppel, sem einnig lék með Nettel- stedt, en aUs hafa átta leikmenn yfir- gefið félagið að undanförnu. Það er enn ekki ljóst hvort Bjarni Guðmundsson fer frá félaginu, en aUt bendirþótUþess. — Axel/—SOS ^ Getraunaleikur DV og Japis: Hverjir tryggja sér SONY-tækin? MikU þátttaka hefur verið i get- raunaleik DV og Japis um bvaða leikmaður verður fyrstur tU að skora mark í 1. deUdarkeppninni í knattspyrnu. Undanfarna daga hafa birst getraunaseðlar hér á síð- unni. Siðustu forvöð tU að skila seðlunum tU DV — Síðumúla 12—14 — er kl. 18 í dag. Þeir seðlar sem koma eftir það verða ekki teknir með i „pottinn” Eins og lesendur vita þá fær sá leikmaður sem er fyrstur tU að skora í fyrstu umferð 1. deUdar- keppninnar glæsUegt SONY út- varps- og kassettutæki í verðlaun og einnig sá lesandi sem spáir rétt um markaskorarann. SkUið inn getraunaseðlum fyrlr kl. 18 í dag. Fyrsti leikur 4. deUdar - Þróttur og KR fer fram í kvöld kl. 20.00. • Rl. A.U.W. Rætt við Eystein Þorvaldsson, formann Júdósambands Islands, sem er að láta af störfum Eysteinn Þorvaldsson mun láta ai formennsku Júdósambands íslands á næsta ársþingi JSl sem verður síðar í þessum mánuði. Eysteinn hefur verið formaöur Júdósambandsins frá stofn- un þess en það varð 10 ára fyrr á þessu ári. I tilefni þess, og þar sem Eysteinn er nú aö hætta formennsku eftir langt og gifturUct starf, lögðum viö nokkrar spurningar fyrir hann nú í vikunni. Hafði hann m.a. þetta að segja um stofnun Júdósambandsins: „Þegar Júdósambandið var stofnað fyrir 10 árum biðu mörg og brýn við- fangsefni úrlausnar. Júdó haföi þá ver- iö iðkaö hér í tveimur félögum um nokkurt árabil en samvinna þeirra' haföi verið lítt vinsamleg. Á vegum ISI haföi júdónefnd starfað undir forystu Sveins Björnssonar í nokkurn tíma áöur en JSI var stofnað og hafði hún unnið gott starf. JSI varö auðvitað strax samstarfs- vettvangur íþróttarinnar. Tekið var til við að skipuleggja mót og að reyna aö vinna aö útbreiöslu íþróttarinnar. Útbreiöslan hefur alltaf verið miklum erfiðleikum háð. I fýrsta lagi vegna skorts á þjálfurum og í ööru lagi vegna mikils stofnkostnaðar. Síöustu árin hafa veriö starfandi 8—9 félög, þau eru á Reykjavíkursvæðinu, á Suðumesj- um, Akureyri og Egilsstööum. I öllum félögunum er líflegt starf og víðast fjöldi bama og unglinga sem æfa íþróttina.” Framarlega miðað við hin Norðurlöndin „Stjórn JSI ákvaö strax í upphafi aö stefna aö sem mestri samvinnu við er- lend júdósamtök og að þátttöku í fjöl- þjóðlegum mótum íslenskra júdó- manna. Við höfum alla tíö lagt rækt við samstarf Norðurlandanna, ekki síst vegna þess að viö stöndum þeim á sporði og það samstarf tryggir okkur það aö Norðurlandamótin, karla, kvenna og júníora eru haldin hér á landi með reglulegu millibili. Við höfum aö sjálfsögöu tekið þátt i öllum Noröurlandamótum karla síðan JSI var stofnaö. Þrír úr okkar hópi hafa orðið Norðurlandameistarar, þar af einn tvisvar. Silfur- og bronsverð- laun hafa íslenskir júdómenn fengið á þessum mótum í tugatali. Þá hefur Is- land fjórum sinnum hlotiö silfurverð- launin í sveitakeppni Norðurianda- mótsins og það er órækasta sönnunin fyrir því að viö erum framariega í íþróttinni miöaö viö hin Norðurlönd- in.” Víða vakið á sér athygli „Islenskir júdómenn hafa veriö í ólympíuliöi Islands á þeim tveimur ólympiuleikum sem haldnir hafa verið síöan JSI var stofnaö og ég efa ekki aö þeir veröa líka meö á næsta ári. Þetta, ásamt öðru, sýnir styrkleika íþróttar- innar miöað við aðrar íþróttir hér á landi. En íslenskir júdómenn hafa víðar látið aö sér kveöa. Viö höfum tekið þátt i tveimur síöustu heimsmeistaramót- um og þar hafa islenskir júdómenn unnið samtals fjórar viöureignir. Af hinum stóru opnu mótum í Evrópu höf- um við einkum beint athyglinni að þremur slíkum, þ.e. því skandin- avíska, hollenska og breska. Islenskir júdómenn hafa þrívegis fengið gull- verðlaun á Opna skandinavíska mót- inu, en hin mótin tvö eru mun sterkari. Þess er skemmst aö minnast aö Bjami Friðriksson vann bronsverölaunin í léttþungavigt á Opna breska mótinu í síðasta mánuöi og það er frábær frammistaða á alþjóðlegan mæli- kvarða. Evrópumeistaramótiö er haröasta mótið sem haldiö er og tæplega nokk- urt mót í heiminum meö eins háan standard. Viö höfum átta sinnum sent menn á Evrópumótið, nú síðast i ár, og hafa þeir jafnan staðið sig vel. ” LAUGARDALSVÖLLUR 1, DEILD - FYRSTI LEIKUR Á GRASI ÞROTTUR / fyrsta leik ís/andsmótsins í KVÖLD KL. 20. KR Komið og sjáið spennandi ieik á grasinu í Laugardai. Hérgreiðslu- og rakarastofa. Langholtsvegi 128, simi 85775. HÓPFERÐAMIÐSTÖÐIN - SÍMI 82628 - 81345. Skyndibitastaður, Laugavegi 86. LEIGUFLUGOy Sverrír þóroddssort J ORKUBÓT GRENSÁSVEGUR 7 - SÍMI 39488 Hvers konar íþrótt er júdó? „ Júdó er íþrótt sem krefst ástundun- ar og elju af iökendum sinum, en hún launar það ríkulega ef fólk hefur þolin- mæði til aö læra hin vandasömu atriöi hennar og öölast kunnáttu og þjálfun. Júdó má iðka meö mismunandi mark- miö i huga. Ekki þurfa allir aö stefna aö keppni. Þetta er lika ákjósanleg trimm-íþrótt, alhliða þrekaukandi og styrkjandi. Það er sifellt hægt aö bæta við kunnáttuna og gráðunarkerfið er mjög hvetjandi í þvi efni. Júdóíþróttin stendur á ævafornum menningarleg- um grunni. I upphafslandi hennar er megináhersla lögö á það að hún sé ekki síður þroskandi fyrir sálina en lík- amann. Þaö er taóísk heimspeki sem býr að baki þessari íþrótt, og þess vegna valdi Jigoro Kano henni nafnið judo, þ.e. „hin milda aöferð” fyrir rúmum hundrað árum.” Hvers vegna hœttirðu nú í stjórn? „Þaö er ekki endalaust hægt að ætl- ast til þess að sömu menn fómi starfs- kröftum sínum fyrir nein samtök. öll- um samtökum er líka hollt að endur- nýja stjóm sína öðm hverju. Þvi er ekki að neita aö ég hef alloft ætlað aö hætta í stjórninni vegna þess að ég hef oft átt erfitt meö aö sjá af þeim tíma sem fer í félagsstörfin. Eg hef jafnan látið til leiðast aö halda áfram, en tel mig nú geta hætt með góöri samvisku. Það hefur lengi veriö mjög traustur stofn í stjórninni og mannaskipti fátið. Nú tel ég tryggt aö farsæl og samhent stjórn verði við stjómvölinn áfram, menn sem ég hef unnið lengi með og treysti til fullnustu að vinna íþróttinni og samtökum henn- arallthiðbesta. Samstarfið i stjóm JSI hefur jafnan verið mjög gott og sömuleiðis við ISI og önnur iþróttasamtök. Sama er að segja um starfið við þjálfara og íþróttafólkið sjálft sem með mörgum góðum afrekum hefur aukið forystunni kraft og áræði. En síðast og ekki síst er ég þakklátur fyrir að hafa lagt stund á júdóíþróttina, sem er heilsubætandi í víöasta skilningi.” -klp- Erlendir leikmenn bannaðir — eingöngu íslendingar leika í úrvals- deildinni fkörfuknattleik næsta vetur Miklar umræður urðu á 23. ársþbigi KKÍ sem haldið var um helgina um þá tillögu að banna erlenda lcikmenn hér á landi á næsta keppnistímabili. Voru menn ekki á eitt sáttir um gæði tillögunnar en svo fór þó að lokum að tillagan var samþykkt með miklum mun eða 25:13 og einn sat h já. Þaö er því ljóst, hvort sem mönnum líkar þaö betur eöa verr, að engir erlendir leikmenn leika hér á landi næsta vetur. Tillagan var nokkuð eitruð, ef svo má segja, því hún gengur mjög langt,- lengra kannski en hún hefði þurft að ganga. Með samþykkt hennar er það ljóst að enginn leikmað- ur sem ekki hefur íslenskan ríkisborgararétt, er löglegur hér næsta vetur. Og það þýðir meðal annars að leikmenn eins og Dakarsta Webster og Stewart Johnson mega ekki leika með félögum sinum i úrvalsdeildinni næsta vetur. En þrátt fyrir að leikmennirnir hafi verið bannaðir er að mörgu leyti hægt að gleðjast yfir samþykki tillögunnar. Þeir erlendu leikmenn sem hafa leikið hér á landi hafa kostað félögin mikla peninga og reyndar er svo komið að mörg félög eru í svöðusárum peningalega séð vegna veru þessara manna hér á landi. -SK. Undanúrslit EM unglinga Englendingar mæta Tékkum og ítalir leika gegn Frökkum í undanúrslitum Evrópukeppni unglingalandsliða sem fer nú fram í Englandi. Undanúrslitaleikirnir verða á föstudaginn. Þessar þjóðir urðu sigurvegarar í sínum riðlum. Tékkar og V-Þjóðverjar urðu jafnir í sínum riðli en Tékkar komust áfram á betri markatölu. Stærstu mistök Csernai voru að láta Ásgeir fara Pal Csernai er áttundi þjálfarinn sem hef ur verið rekinn f rá Frá Axel Axelssyni — fréttamanni DV í V-Þýskalandi: —Mikið hefur verið skrifað hér í blöðum um Pal Csernai þjálfara sem nú hefur verið reklnn frá Bayern Miinchen. Stórblaðið BILD segir frá því að Cseraai sé snjall þjálfari en hann hafi gert mörg mistök. Stærstu mistökin sem hann hafi gert hafi verið að láta íslendinginn Ásgeir Sigurvins- son fara til Stuttgart, en hann væri sá eini sem hefði getað fyllt í það skarð sem Paul Breitner hefur skilið eftir sig hjá Bayem. —„En Sigurvinsson fékk ekki tæki- færi til að spreyta sig hjá Bayern undir stjórn Csernai. Aftur á móti hafi hann fengið tækifæri hjá Stuttgart og sýnt þá að hann væri einn besti miðvallar- spilari V-Þýskalands. Csernai færði Stuttgart Sigurvinsson á silfurfati og Ólaf ur með Skallagrím Ólafur Jóhannesson, knattspyrau- maður úr Haukum, sem hefur þjálfað Einherja frá Vopnafirðl með góðum árangri tvö sl. keppnistímabil, hefur gerst leikmaður og þjálfari Skalla- gríms frá Borgarnesi sem leikur i 3. deild. Þá mun Gunnar Orrason leika áfram með Skallagrími en hann var búinn að tilkynna félagaskipti og ætlaði að leika með Eyjamönnum í sumar. -SOS Bayern Miinchen forráðamenn félagsins hafa svo sannarlega metið eiginleika Ásgeirs Sigurvinssonar sem sést best á því að þeir framlengdu samning hans til 1987 eftir að hann haföi aðeins leikiö hálft keppnistímabil meö Stuttgart,” segir blaðiö. Þá er sagt frá öörum mistökum sem Csernai hafi gert, en þaö voru kaup hans á Norbert Nachtweih frá Frank- furt á 1,7 milljónir marka. Nachtweih hefur þurft aö verma varamannabekk- inn í vetur. Csernai er áttundi þjálfarinn sem hefur verið rekinn fró Bayern og hann er 118 þjálfarinn sem hefur verið rek- inn frá „Bundesliguliði” áður en samningur er útrunninn. Csernai er þó sá þjálfari sem hefur starfað lengst hjá Bayern, eöa í 54 mánuöi. Undir hans stjórn varð félagiö V-Þýskalands- meistari 1980 og 1981 og bikarmeistari 1982. Þessi skapstóri þjálfari hefur veriö gagnrýndur mjög fyrir framkomu sína gagnvart áhorfendum og áhangendum Bayern. Hann hefur litið stórt á sig og verið óvinsæll og hann hefur nú fengið aö blæöa fyrir þaö. —Axel/—SOS Miley þjalfar Keflvíkinga Keflvíkingar fyrstir til að ráða sér þjálfara fy rir næsta keppnistímabil í körf unni Keflvíkingar hafa ráðið Banda- rikjamanninn Brad Miley sem þjálfara fyrir næsta keppnistíma- bll i körfuknattleik. Brad Mfley lék með liðinu á siðasta keppnistíma- bili og voru Keflvíkingar mjöp ánægðir með störf hans bæði sem leikmanns en ekki siður þjálfara. Mikill hugur ku vera i þeim sunnanmönnum og mun liö IBK hefja æfingar nú siðla sumars og má vænta mikils af líðinu á vetri komanda. Af öðrum félögum er nánast ekk- ert að frétta hvað þjálfara varðar en þó hefur það kvisast út aö Kol- beinn Kristinsson muni þjálfa lið tR og væri iR-ingum mikill f engur í honumsemþjálfara. •SK ÆFINGA- OG JOGGING GALLAR FÓTB0LTAR HANDB0LTAR • ÍÞRÓTTA- SKÓR VINDGALLAR • GÖNGU FATNAÐUR é Póstsendum samdægurs. Sportval ! Hlemmtorgi — Símar 14390 og 26690

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.