Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 1
Niðurstöður Kjaradóms liggja fyrir: MfDA LKA UPHÆKKUN NALÆGT14 PRÓSENT sem er fjarri upphaflegum kröfum félaga Meöalkauphækkun í Bandalagi há- skólamanna hjá ríkinu verður um 14 prósent samkvæmt niðurstöðum Kjaradóms.Kauphækkanir eru mjög breytilegar eftir félögum. Sum félög fá yfir 20 prósent og önnur ekki nema 8 prósent. Þessar niöurstöður eru nokkuð fjarri upphaflegum kröfum aðildarfélaganna. Kröfur þeirra voru á bilinu 60 til 80 prósent. I gærkveldi var lokið viö að kveða upp dóma í Kjaradómi. I dag verða niðurstöður afhentar félögunum. Benedikt Blöndal, formaður dóms- ins, neitaði að gefa upplýsingar um niðurstöður fyrr en því starfi yrði lokið. Formlegar niðurstööur liggja því ekki fyrir fyrr en seinna í dag. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um DV verður meöaltalshækkun um 14 prósent. Kauphækkun kennara mun ekki liggja langt frá meðaltals- hækkuninni. Dýralæknar og hjúkrun- arfræðingar fá mestu hækkunina, arkitektar eru með lægstu hækkun- ina. Búist er við mikilli óánægju aðild- arfélaga BHMR með þessar niður- stöður. Samkvæmt upplýsingum DV var ekki farið inn á þá braut að. hækka dagvinnutekjur eins og krafa félaganna var. Bréf Steingríms um að dagvinnutekjur ættu að vera þær sömu hjá BHMR og öðrum viröist ekki hafa haft þau áhrif sem forráða- menn BHMR ætluðu. Formenn samninganefnda ríkisins og BHMR voru ekki tilbúnir í morg- un til að tjá sig um niðurstöður Kjaradóms. Enda höfðu þeir ekki fengið niðurstöðumar í hendur. APH MIÐSTJORN FRAMSOKNAR ER ANÆGD Verðum að fá verkfalls- rétt „Ekki ein einasta rödd um st jórnarslit nú,” segir Steingnmur „Fundurinn var tiltölulega ánægður þfi einkum með það sem nú er á rödd um stjórnarslit nú,” sagði með það sem ríkisstjómin hefur gert. döfinni. Það heyrðist ekki ein einasta Steingrimur Hermannsson forsætis- Áhyggjufullir forystumonn Framsóknarflokksins, ef marka má myndina. Steingrimur formaflur og Halldór varaformaflur i þungum þönkum. DV-mynd: KAE. ráðherra eftir miðstjórnarfund Framsóknarflokksins um helgina. Hann var endurkjörinn f ormaður. „Þaö var lögð þung áhersla á að nú yrðu hendur látnar standa fram úr ermum varðandi ýmis aðkallandi verkefni. I landbúnaðarmálum, hús- næðismálum, varðandi endurskoðun menntakerfisins og utanríkis- þjónustunnar, svo ég nefni dæmi. Við viljum til dæmis að utanrikisviöskipti verði færð undir utanríkisþjónustuna. Þá voru menn sammála um að enn væru ekki aðstæður til þess aö hafa vexti svo frjálsa, sem annars er stefnt aö. Mestar umræður urðu svo um framtíðina, kjarasamninga i haust, færar leiðir til þess aö lyfta launum þeirra sem lægstir eru, með hag- rasðingu og fleiri aðgerðum, og um nýsköpun i atvinnulífinu, meðal annars frumkvæði þróunarfélagsins, sem nú er í deiglunni.” Steingrímur sagði að engra breytinga væri aö vænta af hálfu síns flokks varðandi skipan ríkis- stjórnarinnar. „Eg lýsti þeirri skoðun minni, að tækist ekki samræða á vinnu- maricaðnum og ef stefndi I nýja koll- steypu hlyti rfkisstjórnin að grípa til sinna ráöa og endurskoöa stöðu sína. Það voru að vísu ekki allir á því að svona yfirlýsingar ætti að gefa nú.” -HERB. — segir Kristján Thorlacius „Þessar niðurstöður opin- bera þaö, að Kjaradómur er gagnslaust verkfæri. Nú er ljóst að kennarar verða að fara að leita nýrra leiða til að fá kjara- bætur. Ég sé ekki annað en.við verðum að fá verkfallsrétt,” sagði Kristján Thorlacius, for- maður HlK, í morgun um niður- stöður Kjaradóms ef rétt væri aö kauphækkanir til kennara væru ekki nema 14 prósent. „Þetta er auðvitað langt undir þvi sem kennarar hafa gert sér vonir um og einnig langt frá því sem sanngjarnt er,” sagöi Kristján. -APH. Rolftilbúinn með sjónvarps- stöð — sjá baksíðu Bóman bjargaði bílstjóranum — sjá bls. 2 HURÐ RÁNAR OPNUÐ AF MANNAVOLDUM „Það er spuming, sem er ósvaraö, hvort við þurfum að breyta niður- stöðunum. Um það er ekkert hægt að segja á þessu stigi,” sagöi Sveinn Björnsson, varaformaður flugslysa- nefndar, í morgun. Búist er við aö rannsókn á hurð þyrlunnar TF-RÁN taki nokkra mánuði. Hurðin verður að öllum líkindum send til Bandaríkjanna í mjög nákvæma rannsókn. Hurðin hefur veriö talin mikilvæg- asta gagniö í að upplýsa tildrög þess að þyrlan fórst með f jórum mönnum í Jökulfjörðum þann 8. nóvember 1983. Tilgáta flugslysanefndar var sú að líklegasta orsök slyssins væri sú aðhurðin hefði skyndilega opnast og sveiflast upp í þyrilblöðin. Rækjubátur fékk huröina í vörpuna síðastliðinn föstudag og var húnflutt tUReykjavfkurumkvöldið. Um helgina hefur tíminn verið notaður til að verja hurðina gegn tæringu. Töluverð rifa er á hurðinni. Að öðru leyti er hún mjög hellleg. Sveinn Björnsson sagði ekki hægt að skýra rifuna á þessu stigi. Það hefur einnig vakið athygli að hurðin var í opinni og ólæstri stöðu. „Hurðin hefur verið opnuð af manna- völdum,” sagði Sveinn Bjömsson. -KMU. Hurflln af TF-RÁN. Handföngin aýna afl búlfl var afl taka hurfllna úr lós og opna hana. Rlfan ar fyrlr ofan handföngin. DV-mynd: Páll, Isafirðl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.