Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 1
íbúi í Breiöholf inu ætlar að ná yf ir tíu sjónvarpstöðvum: MEÐ GERVIHNATTAR- MÓTTÖKU A SVÖLUNUM A svölum 2. hæöar á Krummahólum 8 voru þeir Ari Þór Jóhannesson og Marinó Kristinsson að stilla mót- tökuskerminn í frostinu i gær. DV-mynd PK. Ráðstef na um lífríki Mývatns: TUGIMILUÓNA ÞARF TIL RANNSÓKNA Einn frummælenda, Jón Kristjánsson.flytur erindi sitt á ráðstefnunnl, um vöxt og viðgang urriða. DV-mynd PK. A ráðstefnu Náttúruverndarráðs, sem haldin var um helgina um lífrikl Mývatns og Laxár, kom fram að tugi milljóna þarf til svo rannsaka megi á árangursríkan hátt áhrif kísilgúr- náms á þetta svæði. Niðurstaða ráðstefnunnar var sú að Mývatnssvæðið væri það merki- legt og flókið svæði að ekki dygði minna en yfirgripsmiklar og ítar- legar rannsóknir, og án þeirra væri ekki hægt að meta raunveruleg áhrif kísilgúrnáms á svæðið. I fjárlögum næsta 'árs er hins vegar ákveðið að verja aðeins 1,8 milljónum til Mý- vatnssvæðisins og þar af 1 milljón til rannsókna. Kísiliöjan hefur ákveöið að verja um 2 milljónum til slíkra rannsókna. Ljóst er að mikiö vantar til f jármögnunar á þessari rannsókn- aráætlun, en ráðstefnugestir vonuð- ust til þess að stjórnvöld hefðu skiln- ing á nauðsyn rannsóknanna. Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra sagði í setningarræðu sinni að Kísiliðjan fengi ekki að starfa áfram, ef á Jíana sannaðist að hún hefði skaðvænleg áhrif á lífríki þessa vistkerfis. KB * i i i ILLFÆRIR VEGIR Vetur konungur sýndi á sér andlitiö í fyrsta sinn á þessum vetri nú um helg- ina. Veður var slæmt um allt land og víða mikið rok, snjókoma með skaf- renningi og mikil hálka á vegum. Fjallvegir voru víða illfærir og margir lokuðust alveg vegna snjóa. Hellisheiði og Kambar voru t.d. alveg ófær í fyrrinótt. Voru á milli 20 og 30 bílar yfirgefnir þar aðfaranótt sunnu- dagsins. Var unniö að því í gærmorgun að moka heiðina og losa bílana, sem margir voru illa búnir undir akstur að vetri til. I gær var allt ófært í kringum Vík í Mýrdal og sömu sögu var að segja af fleiri stööum á landinu. -klp- Ibúar viö Krummahóla í Breiðholti hafa eflaust verið að velta því fyrir sér hvað einn nágranninn á númer átta hefur verið að bauka undanfarna daga. Á svölunum á annarri hæð er ná- granninn nefnilega búinn að koma fyr- ir loftnetsdiski til að taka við sending- um frá gervihnöttum. „Eg á að ná yfir tíu sjónvarpsstöðv- um,” sagði Ari Þór Jóhannesson, sem keypti loftnetsdiskinn erlendis fyrr á árinu. Hingað kominn kostar diskurinn með öllu um 150 þúsund krónur. „Við verðum nokkra daga að stilla hann. Það kemur í ljós í miðri viku hvort þessi diskur nægir. Hann er 1,8 metrar í þvermál. Hugsanlega þarf stærri. Þaö er meira hobbí heldur en sjón- varpsgláp sem vakir fyrir mér. Ahuga- mál mitt er að ná radíómerkjum,” sagði Ari Þór Jóhannesson. Hann er rafeindavirki að mennt og starfar hjá Pósti og síma. Ari Þór er að stilla diskinn til að taka við sendingum gervihnattarins ECS— 1. Hvenær og hvort honum leyfist að horfa á erlendu sjónvarpsstöðvarnar er hins vegar óljóst. Þó hefur hann þegar aflað leyfis frá einni stöð. Samkvæmt nýju útvarpslögunum, sem gildi taka um næstu áramót, má Ari Þór tengja allt að 36 íbúðir ná- grannanna við móttökuskerm sinn. -KMU. i i i\ i\ i LOÐNUKVOTINN VERDUR AUKINN Ekki hefur enn veriö ákveðið hversu mikiö verður bætt við loðnukvótann. Fiskifræðingar fjölluðu um þetta mál á vinnunefndarfundi Alþjóða hafrann- sóknaráðsins um síld og loðnu í Kaup- mannahöfn í síðustu viku. Endanleg ákvörðun verður tekin á miðvikudag- inn í fiskveiðinefnd ráðsins. „Ég held að það sé óhætt að segja að það verði aukið við kvótann en það liggur ekki fyrir hversu mikið það verður,” sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra við DV í morg- un. Hann sagði að fundað yrði með fiskifræðingum í dag þar sem litið yrði yfir þau gögn sem fram komu í Kaup- mannahöfn. APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.