Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1986, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1986. Iþrótiir Húsvík" ingar á toppinn Anna Garöaradóttir, DV, Húsavík; Völsungar náðu forystunni í 2. deild með sigri sínum á Þrótti á föstudagskvöldið. Þetfa var slakur leikur hjá Húsvíkingum en sigurinn var eigi að síður sætur. Mikil stemmning var á leiknum en um 400 manns mættu á völlinn og hvöttu sína menn vel. Það var Kristján Olgeirsson sem skoraði sigurmarkið. Völs- ungur fékk þá homspymu sem Grétar Jónsson tók. Hann gaf á Kristján sem skoraði með þrumuskoti utan úr teig. Fallegt mark. Eftir markið sóttu Þrótt- arar meira enda drógu Völsung- ar sig til baka. Hjá Völsungum voru þeir Kristján, Sigurgeir Stefansson og Birgir Skúlason bestir en Sverrir Brynjólfeson var bestur Þróttara. -SMJ Sigtfirð- ingar feildu toppliðið Siglíírðingar unnu sanngjam- an sigur á toppliði 2. deildar á Sigiufirði á föstudagskvöldið. Það er greinilegt að lið sækja ekki gull í greipar þeim Siglfírð- ingum og em þeir erfiðir heim að sækja. Leiknum lauk 2-0 eftir að heimamenn höfðu náð tveggja marka forysta Siglfirðingar skomðu sitt fýrsta mark á 28. mínútu og var þar Óli Agnarsson að verki. Og fimm mínútum síðar bætti Haf- þór Kolbeinsson við öðm marki. I seinni hálfleik komust Selfyss- ingar meira inn i leikinn og náði þá gamla kempan Tómas Pálsson að minnka muninn. Sigur Sigl- firðinga var sanngjam en þeir Hafþór, óli og þjálfarínn, Gústaf Bjömsson, vom bestir heima- manna. -SMJ Markaregn í Laugardal Það vau- mikið markaregn í Laugardalnum í leik Víkings og Njarðvíkinga í 2. deildinni. Mörkin urðu 10 áður en yfir lauk. Vamir liðanna og mark- menn vom ekki í sínu besta formi og fengu ýmisleg fúrðuleg mörk að sjá dagsins Ijós. Ekkert mark var sérkennilegra en ann- að mark Njarðvíkinga. Það skoraði Ragnar Hermannsson með skoti af rúmlega 40 metra færi. Boltinn hafriaði efst í homi Víkingsmarksins. Markvörður- inn misreiknaði boltann allvem- lega og taldi að hann færi yfir markið. Mörk Víkings í leiknum vom skomð af þrem mönnum. Elías Guðmundsson skoraði þrjú mörk, þar af tvö úr vítum. Andri Marteinsson og Jón Bjami Guð- mundsson skomðu tvö mörk hvor. Unnar Stefansson og Jón P. Jónsson skomðu hin mörk Njarðvíkinga. Eh'as og Andri vom bestir hjá Víkingum en yfir- leitt gekk leikmönnum illa að fóta sig á hálu gervigrasinu en mikið rigndi á meðan á leik stóð. -SMJ • Björn Rafnsson skoraði sigurmark KR-inga úr vítaspyrnu. DV-mynd Brynjar Gauti Heimir hetja KR-inga - í sigurieik í Kópavogi KR-ingurinn ungi, Heimir Guðjóns- son, var heldur betur í sviðsljósinu þegar KR-ingar lögðu Breiðablik að velli, 2-1, í Kópavogi. Heimir, sem átti skot í þverslána á marki Breiðabliks í upphafi leiksins, jafhaði, 1-1, fyrir KR og síðan fiskaði hann vítaspymu rétt fyrir leikslok. Það var Bjöm Rafhsson sem skoraði sigurmark KR úr vítaspymunni. Leikurinn, sem fór fram við bestu aðstæður, var frekar slakur. Lítið sást af samleik heldur einkenndist leikur- inn af langspörkum og hlaupum. Guðmundur V. Guðmundsson skoraði mark Breiðabliks í upphafi seinni hálf- leiksins með góðu skoti - knötturinn fór út við stöng án þess að Stefán Jóhannesson, markvörður KR, ætti möguleika að verja. Maður leiksins var Heimir Guðjóns- son. Púað á Souness og leikmenn Rangers - á Ibrox þar sem Dundee Utd vann sinn fyrsta sigur í sex ár Robert Rcbertsgan, DV, Skoðandi; Lærisveinar Graeme Souness hjá Glasgow Rangers máttu sætta sig við tap, 2-3, fyrir Dundee United á Ibrox Park á laugardaginn. Þetta var fyrsti sigur Dundee-liðsins á Ibrox í sex ár. Lengi framan af leiknum leit út fyrir öruggan sigur Rangers þar sem Álly McCoist skoraði tvö mörk fyrir liðið. Leikmenn Rangers léku mjög vel í fyrri hálfleiknum og vom áhorfendur mjög ánægðir. í seinni hálfleik sóttu leikmenn Dundee Utd í sig veðrið og þeir skor- uðu þrjú mörk á síðustu 20 mín. leiksins. Öll mörkin komu eftir mistök vamarmanna Rangers. Kevin Gallacher skoraði tvö og Ian Redford, fyrrum miðherji Rangers, skoraði sig- urmarkið með skalla rétt fyrir leiks- lok. 44 þús. áhorfendur fóm óhressir heim. Þeir hrópuðu og púuðu á leik- menn Rangers. Það er greinilegt að stuðningsmenn Rangers em ekki á- nægðir með gengi liðsins sem er dýrasta hð Skotlands. Aftur á móti vom stuðningsmenn Celtic ánægðir eftir 1-0 sigur Celtic yfir Clydebank. Mo Johnston skoraði markið. Aberdeen vann sigur, 2-0, yfir Ham- ilton. Billy Stark skoraði bæði mörkin. Jim Leighton, markvörður Aberdeen, varð að fara af leikvelli í seinni hálf- leik. Hann fékk sár á höfuðið eftir að hafa lent í samstuði við Willie Jamie- son. -SOS • Graeme Souness. Rctoert Róbertsscar, DV, Scotiandi: { gœr ],au5 gverton 750 þús. pund pund fyrir kappann. Everton var Tottenham og Everton keppast í hann. ekki tilbúið að greiða þá upphæð, nú um að fa til sín skoska lands- Mikil meiðsli em hjá leikmönn- þannig að ekkert varð úr því að liðsraanninn Richard Gough frá um Everton og em fjórir vamar- Watson færi til Everton Dundee United. Tottenham bauð menn á sjúkralista. Everton bauð -SOS 700 þús. pund í Gough, sem er tal- Norwich 700 þús. pund fyrir Dave Góðir sigrar Bayem Miinchen og Hamburger - og Bayer Uerdingen á toppnum í V-Þýskalandi • Brehme skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bayern. Afli Kbmaisgan, DV, Þýskalandi Bayer Uerdingen heftir nú forysú una í Bundesligunni eftir að tvær umferðir em búnar. Þess ber þó að geta að Uerdingen hefur leikið gegn báðum þeim liðum sem komu upp úr 2. deild. Nú um helgin unnu þeir Blau- Weiss Berlín, 2-1. Þetta var fyrsti leikur Uerdingen á nýuppgerðum heimavelli þeirra og var leikur þeirra ekki sannfærandi. Mikið treyst á markaskorararan Stefan Kuntz í framhnunni. Með hoiium þar lék yngsti leikmaður Bundesligunnar, Witecek, en hann er aðeins 17 ára. Hann stóð sig illa í leiknum. Það var Funkel sem skoraði bæði mörk Uerd- ingen. Ath stóð sig sæmilega en var skipt út af í seinni hálfleik. Hann fékk 3 og 4 í einkunn hjá þýsku blöðunum. Bayem Múnchen vann Fortuna Dússeldorf, 3-0, en meistaramir náðu þó ekki að skora fyrr en á 68. mínútu. Þeir vom varkárir í leik sínum enda töpuðu þeir báðum leikjum sínum gegn Dússeldorf í fyrra. Það er greini- legt að miðjuspil Bayem Múnchen er ekki eins öflugt og í fyrra enda Sören Lerby horfinn á braut. Reinhold Mathy skoraði tvö mörk og Andreas Brehme eitt. Lið Werder Bremen lélegt Óvæntustu úrslit helgarinnar vom sigur Hamburger SV á Werder Brem- en. Yfirburðir Hamborgarliðsins vom miklir og lauk leiknum 3-0. Fyrir tímabilið var Hamborgarliðinu ekki spáð mikilli velgengni og er greinilegt að lið Werder Bremen er ekki eins sterkt og undanfarin ár. Þá söknuðu þeir greinilega vamarmannsins sterka, Bmno Pezzey, í þessum leik. Gmendel skoraði tvö mörk og Man- fred Kaltz skoraði eitt fyrir Hamborg. Eftir leikinn sagði þjálfari Bremen að þetta hefði verið lélegasti leikur Brem- en- liðsins undir hans stjóm. önnur úrslit urðu þau að Kaisers- lautem og Borussia Mönchenglad- bach gerðu 1-1 jafiitefli. Númberg og Bochum gerðu 3-3 jafhtefh en Schalke vann Waldorf Mannheim, 3-1. Á föstudagskvöldið urðú tvö 0-0 jafri- tefli. Hjá Borussiá Dortmund og Bayer Leverkusen og einnig hjá Köln og Eintracht Frankfurt. Þykir mörgum nóg um lélegt gengi Kölnarmanna nú í upphafi en liðið keypti mikið af leik- mönnum til sín fyrir tímabilið. Morten Olsen var bestur Kölnara. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.