Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1986, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1986, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986. Frjálst, óháö dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 500 kr. Verð i lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Leiðtogar í Reykjavík Það eru mikil og ánægjuleg tíðindi, að leiðtogar risa- veldanna, Reagan og Gorbatsjov, ætli að halda fund í Reykjavík helgina 11.-12. þessa mánaðar. Þetta ætti að þýða, að betri horfur séu um framvindu heimsstjórn- mála. Lengi í ár syrti í álinn. Leiðtogar risaveldanna sendu kaldar kveðjur yfir haíið. Ágreiningsmálin voru víða, og hvergi virtist glæta. Fundurinn í Reykjavík á að vera undirbúningsfundur undir stórfund leiðtoganna í Bandaríkjunum, væntan- lega fyrir áramót. Þegar slíkir fundir eru haldnir, liggur að baki mikil undirbúningsvinna. Margt hefur gerzt, sem stefnir til bættrar sambúðar. Nú síðast funduðu utanríkisráðherrar þessara ríkja, og Reykjavíkurfund- urinn er niðurstaðan. Menn gera sér því fyrirfram töluverðar vonir um árangur, bæði fundarins í Reykja- vík og síðan fundarins í Bandaríkjunum. Menn eru bjartsýnir í dag, hvað sem verður. Vonir standa til, að eitthvert mikilvægt samkomulag náist. Þetta gerist, eftir að menn voru lengi uggandi. Á fundi leiðtoga þessara ríkja í Genf í fyrra lá fyrir, að halda ætti annan fund þeirra í Bandaríkjunum í ár og síðan fund í Sovétríkjunum á næsta ári. En síðan upp- hófust miklar deilur. Sovétmenn settu það sem skilyrði fyrir fækkun kjarnorkuvopna sinna, að Bandaríkja- menn bökkuðu með geimvarnaáætlun sína. Hártoganir voru iðkaðar beggja vegna, þegar fjallað var um tak- mörkun langdrægra kjarnorkueldflauga í Evrópu. Deilt var um tilraunir með kjarnorkuvopn, sem Bandaríkja- menn héldu áfram, þótt Sovétmenn stöðvuðu þær um sinn. Nýlega blossuðu enn upp deilumál um einstaklinga. Bandaríski blaðamaðurinn Daniloff var handtekinn í Moskvu, sakaður um njósnir. Bandaríkjamenn hand- tóku Sovétmanninn Sakharov og sökuðu um njósnir. Þessi mál voru efst á baugi í heimsfréttum og eitruðu samskipti leiðtoga risaveldanna. Nú hefur svo farið, að þessir menn mega fara frjálsir ferða sinna. Auk þess fær þekktur sovézkur andófsmað- ur, Orlov, að fara úr landi í Sovétríkjunum. Þetta samkomulag er vonandi þáttur í stærra samkomulagi ’um bætt samskipti ríkjanna. Heyrzt hefur, að samkomulag kunni að' nást um tak- mörkun á fjölda meðaldrægra kjarnorkueldflauga í Evrópu. Þáð væri mikilvægt. Það segir kannski enn sögu um batnandi vonir, að Stokkhólmsráðstefnan end- aði með samkomulagi fyrir skömmu, þótt í tiltölulega litlu væri. Þar sömdu austur og vestur um gagnkvæmt eftirlit, þegar meiri háttar heræfingar fara fram. Menn skyldu þó fara með gát í bjartsýni. Mikil deilu- mál eru uppi og verða áfram þrátt fyrir fundi leiðtoga, hvort sem fundirnir eru í Reykjavík, Washington eða Moskvu. Þessi deilumál munu áfram stofna heimsfriðn- um í hættu. íslendingum er gerður sérstakur heiður, með því að fundurinn er haldinn hér. Leiðtogarnir telja ísland mjög öruggan stað, nú á tímum tíðra hermdarverka. Þeir vita, að allir Islendingar munu sjá sóma sinn í að búa í haginn fyrir fundinn, þótt hann komi til með litlum fyrirvara. Okkur var sómi að fundi Nixons Bandaríkja- forseta og Pompidous Frakklandsforseta fyrir 13 árum. Þessi fundur nú er að sjálfsögðu margfalt merkari. Hann verður vonandi upphaf að bættu ástandi. Haukur Helgason. Með því að taka i útrétta sáttahönd okkar hafa þeir bandalagsmenn sýnt í verki að þeir meta meira framgang sameiginlegra baráttumála en persónulega stundarhagsmuni.“ Að snúa vörn í sókn Alþýðuflokkurinn heldur fjöl- mennasta flokksþing í 70 ára sögu sinni að Hótel Ork í Hvera- gerði um næstu helgi. Á þessu þingi höldum við jafnaðarmenn hátíðlegt 70 ára afmæli Alþýðu- ílokksins og Alþýðusambands- ins. Af því tilefni mun forseti Alþýðusambandsins, Ásmundur Steíansson, flytja þessum systur- samtökum Alþýðusambandsins ámaðaróskir. Sögulegt flokksþing Þetta þing verður ekki aðeins fréttnæmt, heldur beinlínis sögulegt af tveimur ástæðum: 1. Við þingsetninguna mun þeir báðir flytja ávarp, Hannibal Valdimarsson og Gylfi Þ. Gíslason, tveir fyrrverandi for- menn Alþýðuflokksins. Gylfi og Hannibal hófu stjómmálaferil sinn sem pólitískir fóstbræður. Pólitísk vinslit þeirra urðu um langt skeið vatn á myllu andstæð- inga okkar. Það verður því stór stund í sögu Alþýðuflokksins þeg- ar þingfulltrúar rísa úr sætum og hylla þessa mikilhæfu leiðtoga. Handtak þeirra er staðfesting þess að það hafa tekist sögulegar sættir í Alþýðuflokknum. 2. 1 yfirlýsingu undirritaðs fyrir formannskjör á seinasta flokks- þingi 1984 sagði að „undir minni forystu muni Alþýðuflokkurinn leita samstarfs um að mynda for- ystuafl jafnaðarmanna og fijálslyndra afla vinstra megin við miðju í íslenskum stjóm- málum.“ í tvö ár hef ég staðfest- lega leitað eftir sáttum og samstarfi við Bandalag jafiiaðar- manna. Þetta hefur nú tekist. Með því að taka í útrétta sáttahönd okkar hafa þeir bandalagsmenn sýnt í verki að þeir meta meira framgang sameiginlegra baráttumála en per- sónulega stundarhagsmuni. Og em menn að meiri. Vörn í sókn Hvað hefur breyst í íslenskum stjómmálum á þeim tveimur árum sem liðin em frá seinasta flokks- þingi? Fyrst og fremst það að Alþýðuflokk- urinn hefur, skv. úrslitum sveitar- stjómarkosninga og nýlegum skoðanakönnunum, þrefaldað fylgi sitt á þessum tveimur árum. Auk þess hefúr flokkurinn styrkt mjög málefiialega stöðu sína. Við höfúm náð málefnalegu frumkvæði í stjóm- málaumræðunni. Umræður and- stæðinganna snúast nú fyrst og fremst um það hvort þeir vilji sam- starf við okkur eða með hverjum Alþýðuflokkurinn sé reiðubúinn að starfa við stjóm landsins. Lítum stuttlega á fylgisþróun Al- þýðuflokksins frá árinu 1978. * 1978: 22% - 14 þm. * 1979: 17,5% - 10 þm. * 1983: 11,7% - 6 þm. Skv. skoðanakönnun í nóv. 1984, fáum vikum fyrir flokksþing var Alþýðuflokknum spáð 6,2% fylgi og 3 þm. Þar af hefði Alþýðuflokk- urinn orðið minnsti flokkurinn af 6 á þingi. Líf flokksins virtist vera að fjara út. Það var við þess- ar aðstæður sem ég ákvað að gefa kost á mér til þess að taka við forystu flokksins. Ég mátti ekki til þess hugsa að 70 ára starf jafnaðarmannahreyfingarinnar í islenskum stjómmálum yrði að engu gert - vegna síendurtekinna mistaka. Kjallarinn Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins Stefnufesta Fyrir formannskjörið birti ég stefnu- yfirlýsingu sem tók af öll tvímæli um hvert skyldi haldið. Það er fróð- legt að rifja hana upp nú. Þar segir m.a.: 1. Alþýðuflokkurinn á að hasla sér völl afdráttarlaust vinstra meg- in við miðju í hinu íslenska flokkakerfi. 2. Undir minni forystu mun Al- þýðuflokkurinn taka af tvímæli um að við erum ekki gamaldags vinstri manna, þó ekki væri nema - vegna hörmulegrar reynslu þjóðarinnar af ríkisstjómarþátt- töku þess flokks árum saman. í viðtali við Alþýðublaðið daginn sem flokksþingið kom saman 1984 segir: „Alþýðubandalagið er næst- lengst til vinstri (í flokkakerfinu), þ.e. hægra megin við Kvennalistann. Það á hins vegar eftir að gliðna í sundur á næstu árum: Róttækl- ingahópar eiga eftir að hrökklast út um vinstri dymar en verka- lýðssinnar og raunsæismenn munu um síðir koma til okkar.“ Nú tveimur árum síðar mega allir sjá að þetta voru orð að sönnu. Hvenær kemur að þvi að raunveru- legum sósíaldemókrötum og verka- lýðssinnum verður ekki lengur vært í Alþýðubandalaginu? Vinstra megin við miðju Seinna í sama Alþýðublaðsviðtali við undirritaðan segir: „Vinstra megin við miðju: Það er sóknarformúla jafnaðarmanna og þýðir að lokum að Alþýðuflokkur- inn, Bandalag jafnaðarmanna og sósíaldemókratísk öfl úr Alþýðu- bandalagi og Sjálfstæðisflokki munu mynda eina fylkingu sem verður ráðandi afl í ríkisstjórn íslands á næstu áratugum." Fyrstu skrefin á þessari leið hafa þegar verið stigin. Alþýðuflokk- urinn hefur þrefaldað fylgi sitt á 2 árum. Með breyttum stefnuá- herslum - frá hefðbundinni rikisforsjá og miðstýringu til valddreifingar og virkara lýðræð- is - höfum við skapað forsendur fyrir sameiningu við Bandalag jafnaðarmanna. Málefnalegar forsendur fyrir samstarfi við krataarm Alþýðu- bandalagsins hafa ekki í annan tíma verið traustari. Alþýðu- flokkurinn er því vaxtarbroddur íslenskra stjómmála í dag. Mikill „Umræður andstæðinganna snúast nú fyrst og fremst um það, hvort þeir vilji samstarf við okkur eða með hverjum Al- þýðuflokkurinn sé reiðubúinn að starfa við stjóm landsins.“ kerfisflokkur heldur róttækur umbótaflokkur sem vill breyta þjóðfélaginu í átt til valddreifing- ar og virkara lýðræðis gegn miðstjómarvaldi og ríkisfor- sjá. 3. Við eigum að vera íhaldssamir á farsæla og ábyrga stefiiu í örygg- is- og vamarmálum - stefnu sem forystumenn flokksins frá fyrri tíð áttu drjúgan hlut í að móta og nýtur stuðnings yfir- gnæfandi meirihluta þjóðarinnar.. 4. Undir minni forystu mun Al- þýðuflokkurinn vísa á bug öllum kenningum um Alþýðubandalag- ið sem sameiningar- eða forystuafl fjöldi mannvænlegs ungs fólks gekk til liðs við flokkinn og til starfa fyrir hann i sveitarstjóm- arkosningunum. Á næstunni munu nýir frambjóð- endur, sem vekja munu þjóðarat- hygli, kveðja sér hljóðs undir merkjum jafnaðarstefnunnar. Vonir vinnandi fólks um róttæk- ar og löngu timabærar breyting- ar á þessu þjóðfélagi em því tengdar að Alþýðuflokkurinn endurheimti pólitiskan fmm- burðarrétt sinn sem sameining- ar- og forystuafl - vinstra megin við miðju íslenskra stjómmála. Jón Baldvin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.