Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1987, Blaðsíða 40
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. MÁNUDAGUR 9. MARS 1987. Jón Baldvin Hannibalsson: SjáHstæðis- flokkurinn er á réttri leið 'i_-„Þessi niðurstaða svnir að Sjálf- stæðisflokkurinn er á réttri leið. niðurleið. Á undanfómuni vikum hef- ur formaður flokksins farið um landið í sérstaka fundaherferð. Samkvæmt Morgunblaðsfrásögnum af þessum fundum hefur hann beint spjótum sín- um fyrst og frernst að Alþýðuflokknum en eftirtekjan virðist vera rýr. Ævin- lega áður hefur landsfundur Sjálfstæð- isflokksins og sú mikla fjölmiðlaat- hvgli sem hann fær. langt umfram aðra flokka. fært flokknum upplvft- ingu í f>dgi. NTú gerist það ekki. Þetta staðfestir að það er rétt til getið hjá Þorsteini Pálssyni að Alþýðuflokkur- inn er og verður höfuðkeppinautm- Sjálfstæðisflokksins í þessari kosn- ingabaráttu. Allt tal um óstöðugleika Alþýðuflokksins Grðist vera ósk- hvggja." sagði Jór. Baldvnn Hanni- balsson. formaður Alþýðuflokksins. um niðurstöður skoðanakönnunar- innar. -S.dór Kristín Halldórsdóttir: Hræðumst ekki úrslitin ..Það er ekkert sérstakt hægt að lesa út úr þessum niðurstöðum. að vísu er þama svolítil lækkun hjá okkur en það er heldur ekki hollt að fá allt of góða útkomu út úr skoðanakönnun- um.“ sagði Kristín Halldórsdóttir. þingmaður Kvennalista. í samtali við DV. „Kosningabaráttan er lítið farin af stað hjá okkur, við höfum verið önnum kafhar við að svara kalli utan af lands- byggðinni en við erum bjartsýnar á góða útkomu þegar við förum af stað. Eg veit að við bætum við okkur frá síðustu kosningum. Við höfum hins -*»egar ekki bolmagn til að reka langa ’! kosningabaráttu eins og gömlu flokk- amir sem virðast hafa fullar hendur fjár. Kosningabaráttan verður stutt og snörp af okkar hálfu og við hræð- umst ekki úrslitin," sagði Kristín Halldórsdóttir. -ój Friðrik Sophusson: Steik staða Þorsteinn Pálsson og Friðrik Sophusson voru endurkjörnir formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins í landsfundi sjálfstæðismanna er lauk með fagnaði í Laugardalshöll í nótt. Hlutu þeir báðir yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða flokkssystkina sinna. DV-mynd GVA Keflavík: 20 handtekin í kókaínveislu - upplýst um smygl á nokkrum tugum gramma af kókaíni Rannsóknarlögreglan í Keflavík lýst um smygl á nokkrum tugum an hafði lokað húsinu, komu tvær braust inn í hús eitt í bænum að- gramma af kókaíni til landsins. Er stúlkur að því ffá Reykjavík. Brut- faranótt laugardagsins en þar var lögreglan ruddist inn í húsið revndu ust þær inn í húsið og þar fann kókaínveisla í gangi og vom tuttugu þeir sem vom að neyta efiúsins að lögreglan þær seint um nóttina og manns handteknir í húsinu. henda því og náði lögreglan þannig vom þær þá að sprauta amfetamíni Að sögn Óskai-s Þórmundssonar um hálfu granuni af efhinu upp úr í æð. Náðust 10 grömm af amfeta- rannsóknarlögregluntanns leiddu rúmteppi. míni af stúlkunum en það mál er handtökumar til þess að nú er upp- Síðar um nóttina. eftir að lögregl- ekkitaliðtengjasthinu. -FRI „Eftir þann glæsilega landsfund okkar sem lauk í gær og þá sterku stöðu sem formaður flokksins hefur nú er ég sannfærður um að við munum auka fylgi flokksins á næstu vikum sem mun síðan leiða til glæsilegra kosningaúrslita fyrir okkur. Ég minni á að í desemberkönnun DV var fylgi okkar 34,7% en erum nú með 38,2% sem staðfestir að við erum á réttri leið og þurfum engu að kvíða,“ sagði Frið- rik Sophusson, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, í samtali við DV í morgun, spurður álits á niðurstöðum skoðanakönnunarinnar. -S.dór LOKI Þeir eru ekki með þetta hefðbundna kalda borð á Suðurnesjum! Veðrið á morgun: Hlýtt í veðri Á þriðjudaginn verður suðaustan- átt á landinu og hlýtt í veðri. Dálítil súld eða rigning vestast á landinu en bjart veður austanlands. Hiti verður á bilinu 3-7 stig. Miðstjómarslagurinn: Davíð vann en Pétur féll út Það var Davíð Oddsson borgarstjóri sem sigraði í kosningu 11 manna í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins. Pétur Sigurðsson sjómaður og þingmaður féll hins vegar en hann hefur verið einn af miðstjóm- armönnum, kosnum af þingflokknum. Þau Björg Einarsdóttir, Geir Hall- grímsson og Jónas Haralz gáfu ekki kost á endurkjöri. 20 voru samt um 11 sætin. Davíð fékk 853 atkvæði, Bjöm Þórhallsson 842, Einar K. Guð- finnsson 833, Davíð Scheving Thor- steinsson 713, Gunnar Ragnars 678, Theodór Blöndal 671, Sigríður A. Þórðardóttir 638, Katrín Fjeldsted 637, Erlendur Eysteinsson 635, Sigurður M. Magnússon 617 og Sigurður Ein- arsson 577. Pétur sjómaður fékk 518 atkvæði, María E. Ingvadóttir 483 og þau Bjöm Arason, Guðmundur Hansson, Hall- dór H. Jónsson, Hildigunnur Högna- dóttir, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Jónas Bjamason og Margrét Kristins- dóttir mun færri atkvæði. -HERB. Svavar Gestsson: Kemur mér alls ekki á évart „Niðurstaðan vísar í rétta átt, hér er um að ræða þriðjungs hækkun í hlutfalli frá síðustu skoðanakönnun DV hjá Alþýðubandalaginu sem var mjög lág og ég taldi ótrúlega. Þessi niðurstaða er í samræmi við það sem við höfum fundið á vinnustaðafundum okkar undanfamar vikur. Hljóm- gmnnur þar hefur verið góður fyrir okkar málflutning og maður finnur að Alþýðubandalagið er í sókn um allt land. Þá er niðurstaða könnunar- innar sérstök kveðja til formanns Sjálfstæðisflokksins, sem hefur haldið því fram að flokkurinn ætti engan andstæðing. Ég hef sagt i fjölmiðlum um helgina að hann ætti eftir að kom- ast að því að í landinu er sterkur andstæðingur íhaldsins, sem er Al- þýðubandalagið. Þessi uppsveifla okkar nú er án vafa svar fólksins í landinu við þeim hrokafullu ummæl- um formanns Sjálfstæðisflokksins að flokkurinn eigi sér ekki andstæðing," sagði Svavar Gestsson, fomiaður Al- þýðubandalagsins, um niðurstöður skoðanakönnunarinnar. -S.dór Steingrimur Heimannsson: Ríkir bjartsýni hjá okkur „Kosningastarfið hjá okkur er rétt að byrja, kosningabaráttan verður stutt en snörp og við vinnum af krafti. Það sem af er höfum við fengið góðar móttökur," sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins, í samtali við DV. „Ég er sannfærður um það að við fáum svipað fylgi út úr kosningunum og við höfðum síðast. Það gæti þó verið að klofningsframboð eins og Stefáns Valgeirssonar og eins framboð Þjóðarflokksins raski eitthvað heild- arfylgi okkar, en það sem af er höfum við fengið góðar mótttökur. Það ríkir mikil bjartsýni hjá okkur,“ sagði Steingrímur Hermannsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.