Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 28. MARS 1987. Fréttir DV Borgaraflokkurinn: Framboðslistar í öllum kjördæmum? Stuðningsmönnum S-listans ætlaði í gærkveldi að takast að koma saman framboðslistum í nær öllum, ef ekki öllum, kjördæmum landsins og þegar DV fór í prentun var óljóst hvort tæ- kist að koma saman lista í Vestijarða- kjördæmi. Þá voru listar tilhúnir í Reykjavík, á Reykjanesi, í Norðurlandskjördæmi vestra, á Austurlandi og á Suðurl- andi. Vinna við lista í Norðurlands- kjördæmi eystra var á lokastigi og einnig listi fyrir Vesturlandskjördæmi en enn var óvissa með listann í Vest- flarðakjördæmi. Tólf efstu sætin á framboðslista Borgaraflokksins í Reykjavík verða þannig skipuð: 1. Albert Guðmundsson. 2. Guðmundur Ágústsson. 3. Aðalheiður Bjamíreðsdóttir. 4. Benedikt Bogason. 5. Ásgeir Hannes Eiríksson. 6. Guttormui’ Einarsson. 7. Hulda Jensdóttir. 8. Sr. Gunnar Bjömsson. 9. Kristmann Magnússon. 10. Pétur Snæland. 11. Sverrir Þóroddsson. 12. Sveinn Bjömsson. f Reykjaneskjördæmi verða tíu efstu sætin skipuð þessum mönnum: 1. Júlíus Sólnes. 2. Hreggviður Jónsson. 3. Ragnheiður Ólafsdóttir. 4. Einar Þorsteinsson. 5. Amdís Tómasdóttir. 6. Theódóra Þórðardóttir. 7. Gunnlaugur Jónsson. 8. Kristinn Jónsson. 9. Ingi Gunnlaugsson. 10. Bjöm Haraldsson. Á Austurlandi verður framboðslisti Borgaraflokksins þannig skipaður: 1. Ingvar Níelsson. 2. Tryggvi Ámason. 3. Finnur Bjamason. 4. Garðar Svavarsson. 5. Sigurður Jónsson. 6. Bjöm Jónsson. 7. Úlfar Sigurðsson. 8. Lára Thorarensen. 9. Þórarinn Hávarðarson. 10. Valdimar Jóhannsson. Á Suðurlandi hefur Óli Þ. Guð- bjartsson, sem skipað hefur 5. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins, tekið 1. sætið á lista Borgaraflokks- ins. Aðrir frambjóðendur þar framar- lega í flokki em Amþór Bogason, Bjöm Gíslason og Ólafur Grántz. Þegar DV fór í prentun í gærkveldi var enn óljóst með skipan framboðs- lista á Vestfjörðum en leigð hafði verið þyrla til að fljúga með mannskap vest- ur til þess að leggja lokahönd á skipan framboðslista þar. -ój „Mikil tíðindi í íslenskum stjómmálum“ - segir Jón Baldvin Hannibalsson „Það hafa orðið mikil tíðindi í ís- lenskum stjómmálum að Sjálfetæðis- flokkurinn hefur klofhað og það segir sína sögu um ástandið að slíkt hefur gerst,“ sagði Jón Baldvin Hannihals- son, formaður Alþýðuflokksins, í samtali við DV er blaðið innti hann álitis á þeirri stöðu sem komin er upp með framboði Borgaraflokksins. „Fjandvinir augnabliksins, Þor- steinn og Albert, em báðir yfirmenn skattamála hér síðustu fjögur árin og ef menn vilja ræða um siðferði þekkir þjóðin það öll að siðlaust skattakerfi og skattaundansláttur hefur sam- kvæmt opinberum tölum kostað okkur 4-5000 milljónir á þessum tíma.“ Jón Baldvin sagði emnig að sumum þættu það litlar tölur sem Albert er sakaður um að hafa stungið undan í samanburði við það sem felst í framan- greindum tölum. Aðspurður um hvort Alþýðuflokkur- inn óttaðist framboð Borgaraflokksins sagði Jón Baldvin að ekki væri tíma- bært að ræða þá spumingu fyrr en séð væri hvaða mannaval stæði í kringum Albert. „I dag er þetta tilfinningamál meðal fólks. Þetta er sett upp eins og einstak- lingurinn gegn flokksforystunni og flokkseigendafélaginu. Þegar fram líða stundir ætti almenningi að verða það ljóst að hérlendis er þörf á nýju afli, afli sem ég tel að Alþýðuflokkur- inn hafi öll tök á og möguleika á að verða.“ -FRI Nýr framboöslisti Sjálfstæðisflokksins á Suðuriandi: Guðmundur Sigurðsson kom í stað Ola Þ. Nýr framboðslisti Sjálfstæðisflokks- ins í Suðurlandskjördæmi var skipað- ur síðdegis í gær eftir að Óli Þ. Guðbjartsson skólastjóri, sem verið hefur í fimmta sæti listans í kjördæm- inu, féll frá framboði sínu. Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri á Sel- fossi, hefur verið skipaður í 5. sætið en Óli Þ. Guðbjartsson tók fyrsta sæti á lista Borgaraflokksins í Suðurlands- kjördæmi. Á fundi miðstjómar Sjálfstæðis- flokksins var framboðslistinn í Reykjavík staðfestur og samþykkt ályktun þar sem segir að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi brugðist rétt við og í fyllsta samræmi við skyldur sínar á öllum stigum þess máls sem leiddi til afsagnar Alberts Guðmunds- sonar úr embætti iðnaðarráðherra og hefur nú leitt til þess að hann hefur dregið sig út af framboðslistanum í Reykjavík að eigin fríunkvæði. 1 ályktuninni segir einnig að skorað sé á sjálfstæðismenn um land allt að standa þétt saman um framboðslista flokksins í öllum kjördæmum i kom- andi kosningum. Sterkur Sjálfstæðis- flokkur sé eina vöm þjóðarinnar gegn óstjóm og upplausnarstefnu vinstri flokkanna og ekki megi spilla þeim góða árangri sem náðst hafi á síðustu árum með stjómarþátttöku flokksins. -ój Þorsteinn Pálsson við upphaf mið- stjórnarfundar Sjálfstæðisflokksins í gær. S-listinn í Norðuriandskjördæmi vestra: ngi Björn Albertsson og Helena Albertsdóttir „á fullu“ í kosningaskrifstofu Borgaraflokksins í gær þegar verið að ganga frá framboðslistum víða um land. r.w-----. r var Yfiriæknir í efsta sæti Andrés Magnússon, yfirlæknir á Siglufirði, skipar efsta sæti S-listans í Norðurlandskjördæmi vestra. Listinn er þannig skipaður: 1. Ándrés Magnússon yfirlæknir, Si- glufirði. 2. Hrafhhildur Valgeirsdóttir hár- greiðslumeistari, Blönduósi. 3. Runólfur Birgisson skrifstofustjóri, Siglufirði. 4. Róbert Jack prófastur, Tjöm. 5. Guðmundur Pálsson framkvæmda- stjóri, Varmahlíð. 6. Marta Rósa Rögnvaldsdóttir hús- móðir, Siglufirði. 7. Sigurður Hallur Sigurðsson iðn- nemi, Hvammstanga. 8. Kristín B. Einarsdóttir húsfrú, Efra-Vatnshomi, V-Hún. 9. Þórhallur Erlingsson nemi, Kringlumýri, Skagafirði. 10. Þórður S. Jónsson verslunarmað- ur, Laugabakka, V-Hún. „Mér líst vel á þetta, ég finn að list- inn hefur hljómgrunn," sagði Hrafh- hildur Valgeirsdóttir, hárgreiðslu- meistari á Blönduósi, en hún skipar annað sætið á S-listanum í Norður- landskjördæmi vestra. „Það em margir á Blönduósi og jafhframt úti í sveitunum hér í kring sem styðja Al- bert. Fólki finnst að farið hafi verið illa með hann.“ Hrafnhildur sagðist jafhframt ekkert vilja hafa með Vilhjálm Egilsson, sem skipar annað sæti D-listans í kjördæm- inu, að gera. „Ég vil ekki þennan unga mann og svo er um fleiri. Við þurfum ekki Reykvíkinga í þetta kjördæmi." Róbert Jack, prófastur á Tjöm, sagði við DV í gær að hann væri bjartsýnn. „Mér líst sérstaklega vel á að Andrés yfirlæknir sé í fyrsta sætinu. Við álít- um öll að það sé mikið réttlætismál að listinn fái fylgi.“ Ágúst ísfjörð, kosningastjóri Al- berstsmanna i Norðurlandskjördæmi vestra, sagðist vera fullviss um að list- inn hefði meðbyr. „Menn em hrifnir. Þetta er ef til vill ekki pólitískt mál en þetta er mikið réttlætismál," sagði Ágúst ísfjörð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.