Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987. 5 Jón Baldvin Hannibalsson: „Ekki flokksSeg ákvörðun" „Forsetaembættið hefur á undan- Hannibalsson, fjármálaráðherra og fómum ámm verið haflð yflr flokka- formaður Alþýðuflokksins, varðandi pólitík. Alþýðuflokkurinn mun ekki áskoranir á Vigdísi Finnbogadóttur taka afstöðu til forsetaframboðs, það um að gefa áfram kost á sér í forseta- er ekki nein flokksleg ákvörðun í því framboð. efni á dagskrá," segir Jón Baldvin -HERB Svavar Gestsson: Vigdís sHji áfram „Ég styð það að sjálfsögðu að Vigdís Finnbogadóttir gefi kost á sér áfram sem forseti landsins og hvað það varð- ar tek ég undir með Þorsteini Páls- syni,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, í sam- tali við DV í morgun. Svavar sagöist ekki hafa rætt þetta mál við Vigdísi enn sem komið væri en hann sagðist af og til ræða við for- seta og myndi hann bráölega ræða þetta mál við hana. -S.dór Halldór Ásgrímsson: „Styð Vigdísi eindregið“ „Það hefur ekki verið rætt í Fram- sóknarflokknum að skora á Vigdísi að gefa kost á sér í forsetaembættið áffam. En við höfum verið afskaplega ánægð með störf hennar sem forseta og ég tel einsýnt að við styðjum hana áfram á meðan hún gefur kost á því að gegna þessu embætti," segir Halíd- ór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og varaformaður Framsóknarflokks- ins. „Við hvöttum Vigdísi Finnbogadótt- ur mjög til þess síðast að taka áffam kjöri í forsetaembættiö og ég styð hana eindregið nú ekki síður en þá.“ -HERB Þórhildur Þorieífsdóttir: „Enginn stórglæpur“ „Það má sjálfsagt finna einhveija annmarka á því aö forsætisráðherra skipti sér með þessum hætti af forseta- ffamboði en þetta er enginn stórglæp- ur, ekki get ég séð það, og það eru fleiri að gera það sama,“ segir Þór- hildur Þorleifsdóttir, formaður þing- flokks Kvennalista, um áskorun Þorsteins Pálssonar á Vigdísi Finn- bogadóttur um að gefa kost á sér áffam til forsetastarfa. „Strangt til tekið geta afskipti af þessu tagi hugsanlega stangast á við einhveijar hlutleysisreglur, en þetta slær mig nú samt þannig að ekkert sé athugavert við það.“ -HERB Albert Guðmundsson: Ætla hvorki að hvetja né letja Vigdísi í framboðsmálum „Ég kem hvorki til með hvetja né letja Vigdísi Finnbogadóttur til að gefa kost á sér áfram sem forseti ís- lands. Mér þykir það koma úr hörðustu átt þegar forsætisráðherra landsins er farinn að skipta sér af svona málum. Mér þykir það ekki viðeigandi,“ sagði Albert Guð- mundsson, formaður Borgaraflokks- ins, í samtali við DV í morgun aðspurður hvort hann ætlaði að reyna að hafa áhrif á Vigdísi Finn- bogadóttur um að gefa kost á sér áfram næsta kjörtímabil. -S.dór Stjómmál Warentest í Berlín, sem er ráðgefandi stofnun í vörukönnun, hefur látið prófa allar helstu ritvélategundir á markaðinum. Niðurstaðan varð sú, að af þeim 8 teg- undum, sem prófaðar vom, var BROTHER CE 550 talin framúrskarandi og dæmd „besta ritvélin". Vegna hagstæðra samninga getum vió nú, meðan birgðir endast, selt bestu ritvélina á markaðinum á AÐEIIMS KR. 31.450.- BORGARFELL, Skólavöióustíg 23, sími 11372 KOSTAKJÖR 15% VERÐLÆKKUN ÞvaKKo^ tekur UlvU IWI FORYSTUIMA Fokksforingjar og forsetinn Þorsteinn Pálsson, formaöur jálfstæðisflokksins, staöfesti i DV laugardaginn aö hann heföi skýrt rigdísi Finnbogadóttur frá þeirri sk siiini að hún gæfl kost á sér til forsetaframboös í það minnsta eitt kjörtfmabil enn. Hvert er álit ann- arra flokksforingja? Svör þeirra birtast hér á síðunni Funda- ■__æ__m. nerrero ffwff iriiMBiiri oiais Ragnars Ólafur Ragnar Grímsson er greinilega kominn á fulla ferð í kosningabaráttu tfl formanns i Alþýöubandalaginu. Um síðustu helgi fór hann um Vesturlands- kjördæmi og hélt fundi á Akra- nesi, í Borgamesi, Ólafsvík og Grundarflröi. Samkvæmt heimiidum DV er þetta aðeins upphafið að funda- herferö hans um landið fyrir landsfundinn. Um næstu helgi ætlar hann aö halda fundi á Aust- urlandi og siöan í öörum kjör- dæmum. Enn sem komið er hafa ekki fleiri en hann og Sigríður Stef- ánsdóttir veriö neöid sem frambjóðendur tíl formanns Al- þýðubandalagsins á landsfundin- um sem hefst 5. nóvember næstkomandi. -S.dór Hárlos ? ÁSTA KAREN VAR ORÐIN ÞREYTT Á AÐ HAFA BURSTANN ALLTAF FULLAN AF HÁRUM. Hún gerði sér grein fyrir að þéttur og góður hár- vöxtur krefst réttra næringarefna, sem stundum skort- ir í fæðuna. Ress vegna reyndi hún HÁRKÚR töflurnar. Hálfum mánuði eftir að hún byrjaði að nota þær var hún laus við hárlosið og hefur það ekki angrað hana sfðan. HÁRKÚR töflurnar innihalda næringarefni sem eru nauðsynleg góðum hárvexti. FÆST í HEILSUBÚÐUM, APÓTEKUM, HÁRSNYRTI- STOFUM, HEILSUHILLUM MATVÖRUVERSLANA OG HJÁ HÁRSKERUM. Éh eilsuhúsið Skólavoröustíg 1 Sími 22966 • Kringlunni Sími 689266

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.