Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987. Fréttir__________________________________________ Söttuðu Subaruamir verða ekki skráðir álit að þessir bílar geti verið hættu- legir og við trúum því að það sé á valdi ykkar að koma í veg fyrir að bílarnir séu á vegum íslands." Þeir bílar sem Hekla h/f er að flytja til landsins munu verða skoðaðir á sama hátt og allir aðrir nýir bílar. Finnist ekkert athugavert við bílana þá verða þeir skráðir á venjulegan hátt. -sme Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur ákveðið að þeir Subaru-bílar, sem lentu í sjóflóðinu í Drammen í Nor- egi, verði ekki skráðir hér á landi. Hekla h/f óskaði þess að í skráning- arvottorð þeirra Mitsuhishi-bíla sem lentu í sjóflóðinu og verða fluttir til 'andsins, verði skráð í hverju bílarn- r hafa lent. Þessum óskum Heklu h/f var synjað. Var það gert végna þess að það tíðkast ekki að í skrán- ingarvottorð séu skráð þau óhöpp sem bílar verða fyrir. Framleiðendur Subaru sendu Bif- reiðaeftirlitinu vottorð um þá Subaru-bíla sem skemmdust í Drammen. í vottorðinu segir meðal annars: „Áðurgreindir bílar eru allir ónýtir, þá er ekki hægt að gera við, og þá á aldrei undir nokkrum kring- umstæðum að selja eða nota sem ökutæki. Þeir geta ekki uppfyllt þær háu kröfur sem við áskiljum á öllum okkar bílum. Við höfum frétt að þeir sem bílana keyptu af tryggingafélaginu hafl í hyggju aö selja umrædda bíla til ís- lenskra neytenda andstætt okkar fyrirmælum. Eru þetta mjög slæmar fréttir. Okkur flnnst þetta vera gróf móðgun við íslendinga og við erum þeirrar skoðunar að þessa bíla ætti aldrei að skrá á íslandi. Það er okkar Tollabreytingin: Glasgow-ferðir leggjast af - segir Jón Baldvin Haukur starfar sem gangbrautarvörður á Langholtsveginum en sagðist vera ákveðinn í því aö sækja námskeið hjá lögreglunni. DV-mynd BG Öllum stöðumæla- og gangbrautarvörðum sagt upp: Á að gera þá að lögregluþjonum? „Innkaupaferðir til Glasgow munu leggjast af,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra er ríkisstjórnin kynnti væntanlegar breytingar á tollum og vörugjöldum. Um tollabreytinguna segir í yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar: „Með lækkun hæstu tolla úr 80% í 30% og afnámi fjölmargra gjalda er stefnt að því að vöruverð á íslandi standist betur samjöfnuð við vöru- verð í útlöndum. Ureltar skilgrein- ingar tollalaga, þar sem daglegar neysluvörur eru hátollavörur, eru felldar niður. Af 6 þúsund tollnúmerum bera 5 þúsund engan toll. Fjörtíu mismunandi tollstig, frá 0 til 80%, falla niður. í staðinn koma sjö jöfn þrep, frá 0 til 30%. Tollar á matvörum eru nær undantekningar- laust felldir niður. Fjölmargar vörutegundir, sem bor- iö hafa háa tolla og vörugjöld, lækka stórlega í verði. Brenglun vöruverðs, sem tollar og vörugjöld hafa valdið, „Frá áramótum kemur til fram- kvæmda veigamesta kerfisbreyting á sköttum um áratuga skeið,“ segir í yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf út í gær undir fyrirsögninni: Einföldun skattkerfis - lækkun verðbólgu. „Breytingar þessar fela í sér: Lækkun tolla og afnám sex ann- arra gjalda. Fækkun undanþága og sam- ræmdan söluskatt. Öruggari tekjuöflun ríkissjóðs. Stórbætt skattskil. Lækkun verðbólgu. verður leiðrétt. Mörg dæmi eru um verðlækkun á bilinu 20-40%. Versl- un flyst inn í landið." Um breytingu á vörugjöldum segir: „Sex mismunandi gjöld verða felld niður; fjögur mismunandi vörugjöld, sem nú eru 7%, 17%, 24% og 30%, tollafgreiöslugjald, sem nú er 1%, og byggingariðnaðarsjóðsgjald, 0,5%. Lagt verður á eitt vörugjald, 14%, sem leggst á nokkra skýrt afmarkaða vöruflokka, sem nú bera margvísleg vörugjöld á bilinu 17-30%. Þessar vörur eru: Sæigæti og kex, öl, gosdrykkir og safar, ýmiss konar raftæki, hljóm- tæki, sjónvörp og myndbönd, blönd- unartæki og kranar, raflagnaefni, hreinlætistæki svo og steypustyrkt- aijárn. Innlendum gjaldendum fækkar til muna og eftirlit verður einfaldara. Einfóldun tolla- og vörugjalda auð- veldar framkvæmd og opnar nýja möguleika til betri innheimtu sölu- skatts." -KMU Þessar breytingar koma til fram- kvæmda um leið og tekið verður upp staðgreiðslukerfl skatta. Með þess- um aðgerðum og ákvörðun um 22% virðisaukaskatt, sem upp verður tek- inn’ í ársbytjun 1989, þegar gamla söluskattskerfiö verður afnumið er lokið umfangsmestu þáttunum í end- urskoðun skattakerfisins. Skattlagn- ing verður gerð einfaldari, réttlátari og skilvirkari,“ segir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. -KMU „Þarna er um það að ræða að heil stétt manna er þurrkuð út með einu pennastriki og mér finnst furðulegt að undirstinga ekki menn með þessu áður,“ sagði Haukur Sveinsson gang- brautarvörður en hann og 18 aðrir starfsmenn borgarinnar fengu upp- sagnarbréf 1. desember. Hér er um að ræða stöðumælaverði, gangbraut- arverði og menn tengda því. Eins og kemur fram í máh Hauks þá kemur þessi uppsögn illa við menn og hefur verið boðaöur fundur meðal starfsmanna á þriðjudaginn. Það var þungt hljóðið í þeim mönn- um sem við var rætt og var greinilegt að mönnum var brugðið. Það gekk reyndar erfiðlega að finna stöðu- mælaverði í gær vegna þess að þeir fóru snemma heim vegna skorts á sektarmiðum. Ástæða uppsagnarinnar er sú að nú færist hluti þeirrar löggæslu sem fram fer á götum sveitarfélaganna til þeirra sjálfra. Mun þetta vera sam- kvæmt skandinavískri fyrirmynd og tengist nýju umferðarlögunum sem taka gildi 1. mars. Þessi breyting færir borginni auknar tekjur. Það á með öðrum orðum að gera þessa menn að nokkurs konar lögreglu- þjónum. Þeim verður ætlað að fylgj- ast með hvort bílum er rétt lagt og umferðareglur virtar auk þess að gegna sínu stöðumælastarfi. Stöðu- verðir er hið nýja starfsheiti þeirra. Þá er ætlunin að senda þá menn, sem vilja ráða sig í hið nýja starf, á nám- skeið hjá lögreglunni. „Það er í sjálfu sér allt í lagi fyrir andlega hressa menn að seljast á skólabekk en það var ekki rétt að þessu staðið - þetta kemur sem reið- arslag," sagði Haukur sem hefur starfað í 52 ár hjá borginni. „Flestir þessara manna eru sjúklingar og það sló á þá er okkur var tilkynnt þetta á fundi með gatnamálstjóra án þess að nokkur vissi fyrirfram um hvað ætti að ræða.“ -SMJ Yfírlýsing ríkisstjórnarinnar: Veigamesta breytingin á sköttum í áratugi „Þaö er einróma samkomulag flýta greiðslukortamánaðamót- unum til 7, desember. Við munum ekkiframvísa kvittunum fyrr en eftir 18. desember og því þarf sá sem kaupir bók á mánu- daginn ekki aö borga hana fyrr en í febrúar," sagði Guömmrdur Sigmundsson, formaður Félags bókaverslana, í samtali við DV í gær. „Við gerum þetta til að létta álaginu af starfsfólkinu síöustu dagana fyrir jól og einnig til aö dreifa sölumn yfir mánuöinn. Þá gerir þessi ráðstöfun útgefendum kleift að láta endurprenta bækur fyrir jól ef útlit er fyrir aö þær seljist upp.“ Guömundur sagöi aö hvaö kostnaðarauka áhrærði varðandi þetta mál þá hefðu útgefendur ákveðið að koma til móts við bókaverslanir með því að gefa lengri greiðslufrest á hluta bóka- kaupa verslananna. -ATA Fangi slapp Fangi, sem verið var flytja frá Litla-Hrauni í Sakadóm Reykjavík- ur, slapp frá gæslumönnum. Það var um klukkan hálfellefu í gærmorgun sem komið var með fangann til Reykjavíkur. í Sakadómi átti fanginn að mæta hjá dómara. Honum tókst að hlaupa á brott áður en til þess kom. Fanginn er tæplega þrítugur að aldri, hár, grannur, með dökkt skol- htað hár og með alskegg. Það er að segja þegar hann strauk. Hann getur bæði verið búinn að hta hár sitt og skera skegg. Hann var 1 brúnu leður- vesti, dökkum buxum og hermanna- klossum. Þegar DV fór í prentun var fanginn ófundinn. -sme Húsnæðismál: Samkomulag í sjónmáli Félagsmálanefnd neðri deildar Al- þingis hefur verið á stífum fundum undanfarna daga um húsnæðisfrum- varp Jóhönnu Sigurðardóttur. Stjórnarhðar í nefndinni komu sam- an klukkan 21 í gærkvöldi. Fyrir fundinn voru taldar líkur á að sam- komulag gæti tekist. Bilið var mest á milli Alexanders Stefánssonar, fuhtrúa Framsóknar- flokks, og Jóns Sæmundar Sigur- jónssonar, fulltrúa Alþýðuflokks. Geir Haarde, fulltrúi Sjálfstæðis- flokks, hafði lagt fram tihögur sem Alþýðuflokkurinn virtist geta sætt sig við sem málamiðlun. Óvíst var um svar Alexanders. -KMU Verulegar breytingar á vöruverði Vöruverð í landinu mun taka veigamiklum breytingum um næstu áramót þegar ný lög um söluskatt, tolla og vörugjald taka ghdi. Jafnframt verða gerðar ýms- ar ráðstafanir til að draga úr áhrifum breytinganna. Vörur ýmist hækka í veröi, lækka eða standa í staö. Ríkis- stjórnin fuhyrðir að hehdaráhrifin verði þau að framfærsluvísitala breytist ekki, byggingarvísitala lækki um 2,3% og lánskjaravísitala lækki um tæpt 0,8%. Kindakjöt, mjólk, skyr og smiör hækkar ekki í verði. Gosdrykkir standa einnig í stað. Ekki liggur fyrir hvemig verð á alifugla- og svínakjöti breytist en stefnt er að því að það hækki ekki yfir 5-6%. Óvissa ríkir einnig um breyting- ar á verði nautakjöts, brauðs, osta og eggja. Þessar vörutegundir munu þó yfirleitt hækka í verði. Vörur sem hækka í verði Fiskur hækkar um 25%. Nýtt grænmeti hækkar um 15-25%. Kaffi hækkar um 2-3%. Sykur hækkar um 13%. Nýir ávextir hækka um 15-25%. Heimilistæki ýmist lækka eða hækka í verði. Þessi hækka: Þvottavélar hækka um 15%. Saumavélar hækka um 16%. Kæliskápar hækka um 16%. Vörur sem lækka í verði Niðursuðuvörur lækka um 15%. Þurrkaðir ávextir lækka um 35%. Krydd lækkar um 35%. Hreinlætisvörur lækka verulega: Sjampó um 25%. Tannburstar um 45%. Tannkrem um 25%. Sápur og þvottaefni standa hins vegar í stað. Snyrtivörur lækka í verði: Ilmvötn um 45%. Rakspírar um 45%. Varalitir um 47%. Búsáhöld lækka: Borðbúnaður um 40%. Hnífapör um 50%. Heimilistæki sem lækka í verði eru: Þurrkarar lækka um 5%. Sjónvörp og myndbandstæki lækka um 11%. Hljómflutningstæki lækka um 15%. Frystikistur lækka um 5%. íþrótta- og tómstundavörur lækka. Bifreiðavarahlutir lækka um 20%. Hjólbarðar lækka um 20%. Byggingarvörur lækka margar mikið í verði: Hreinlætistæki lækka um 40%. Blöndunartæki lækka um 30%. Raflagnavörur lækka um 30%. Gólfteppi og dúkar lækka um 20%. Steypustyrktaij árn lækkar um 5%. Loks má nefna að rekstrarvörur og ýmis hráefni atvinnuveganna lækka í verði. -KMU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.