Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988. Jarðarfarir Jónas Gunnarsson lést 8. mai sl. Hann var fæddur á Helluvaði í Rang- árvallasýslu 24. desember 1924, son- ur hjónanna Gunnars Erlendssonar og Kristínar Kristjánsdóttur. Jónas lauk burtfararprófi frá Verslunar- skóla íslands árið 1946. Hann starfaði bjá Síld og fiski í um það bil 9 ár. Jónas stofnaði eigin verslun, Kjöt- borg, árið 1956. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigríður Rakel Þórarins- dóttir. Útför Jónasar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 15. Valborg E. Þórarinsdóttir lést 6. maí sl. Hún fæddist á Rauðstöðum við Arnarfjörð 22. maí 1919. Foreldrar hennar voru Guðmundína Sigurrós Guðmimdsdóttir og Þórarinn Krist- ján Ólafsson. Valborg var tvígift. Fyrri maður hennar var Ólafur Kr. Jóhannesson en hann drukknaði áriö 1950. Þau eignuðust saman einn son. Seinni maður hennar er Indriði ' Einarsson. Þau eignuðust saman fjögur böm. Útfor Valborgar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Ólöf Bessadóttir lést 10. maí sl. Hún var fædd 4. ágúst 1900, dóttir hjón- anna Bessa Þorleifssonar og Ingi- bjargar Stefánsdóttur. Ólöf var tví- gift. Fyrri maður hennar var Júlíus Jóhannsson en hann drukknaði árið 1923. Þau eignuöust saman eina dótt- ur. Seinni,maður Ólafar var Símon Mámsson en hann lést árið 1985. Þau eignuðust saman tvær dætur. Útfór Ólafar verður gerð frá Hafnarfjarð- arkirkju í dag kl. 15. Pétur Ágúst Árnason lést 7. maí sl. Hann var fæddur í Reykjavík 17. ágúst 1901. Foreldrar hans voru Árni Hannesson og Sigríður Pétursdóttir. Framan af ævi stundaði Pétur sjó- mennsku, aðallega á togurum. Eftir að hann hætti sjómennsku starfaði hann í landi, lengst af hjá Eimskipa- félagi íslands við uppskipun. Eftirlif- andi eiginkona hans er Helga Jóns- dóttir. Þau hjónin eignuðust tvær dætur. Útfór Péturs verður gerð frá Laugameskirkju i dag kl. 13.30. Binna Berndsen Mann lést 16. þ.m. á heimili sínu í Needham, Mass., Bandaríkjunum. Útforin verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík mið- vikudaginn 25. maí kl. 13.30. Nauðungaruppboð Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík , Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Vöku hf., skiptaréttar Reykjavíkur, ýmissa lögmanna, banka og stofnana, fer fram opinbert uppboð á bifreiðum, vinnuvélum o.fl. að Smiðshöfða 1 (Vöku hf.) fimmtudaginn 19. maí 1988 og hefst það kl. 18.00. Seldar verða væntanlega eftirtaldar bifreiðar R-10118, R-20336, R-20697, R-20995, R-24287, R-24853, R-27132, R-28930, R-29661, R-30803, R-31158, R-31926, R-37796, R-39737, R-41505, R-41774, R-42678, R-42691, R-48720, R-51758, R-51885, R-54175, R-55424, R-57204, R-59103, R-67033, R-69113, A-8955, G-15491, G-18441, G-22414, I-597, S-2976, X-5169, Y-11, Y-3314, Y-16277, Y-17129, Z-1623, auk væntan- lega margra fleiri bifreiða og vinnuvéla. Einnig verður seld Victor VPC II tölva og Citizen MSP-10 prentari. Ávísanir ekki teknar gildar nema með 1 samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. Upp boðshaldarinn i Reykjavík. fFélagsmálastofnun Reykjavíkurborgar FULLTRÚI í HÚSNÆÐISDEILD Staða fulltrúa í Húsnæðisdeild er laustil umsóknar. Starfið reynir á hæfni í almennum skrifstofustörfum og mannlegum samskiptum, jafnframt þekkingu og reynslu í sambandi við viðhald húsnæðis. Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9. Umsóknarfrestur er til 24. maí nk. Nánari upplýsingar gefur Birgir Ottósson húsnæðis- fulltrúi í síma 25500. Fréttir Enn koma bakreikningar frá Flugstöðinni: Steingrímur brýtur gegn eigin samþykkt Jón Baldvin neHar að borga 120 mil|jónir Þrátt fyrir ákvæði í fjárlögum um að engar nýjar framkvæmdir við Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur Steingrímur Hermannsson utanrík- isráðherra samþykkt nýja verk- samninga upp á 172 milljónir króna. Hann stóð þó að þessari ákvörðun eins og aðrir ráðherrar. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra hef- ur nú neitað að borga 120 milljón króna reikning frá utanríkisráðu- neytinu umfram þær 820 milljónir sem samþykkt var að verja til Flug- stöðvarinnar á fjárlögum. Þessi deila hefur nú bæst við aðrar þrætur ráð- herranna á meðan þeir reyna að koma saman efnahagsaögerðum. Samkvæmt úttekt, sem fram fór við fjárlagagerðina, þurfti um 754 millj- ónir til þess að borga upp skamm- tímalán vegna 860 milljón króna framkvæmda á árinu 1987, auk vaxta, yfirdráttar og lántökugjalda. Eftir stóðu um 66 milljónir til að mæta óvæntum útgjöldum og hugs- anlegum skaðabótum til verktaka vegna riftunar samninga. Þessi áætl- un stóðst fullkomlega samkvæmt at- hugun fjárlaga- og hagsýslustofnun- ar. Óvænt útgjöld urðu um 50 millj- ónir svo eftir stóðu 16 milljónir til að mæta skaðabótum. Engum verksamningum var hins vegar rift heldur stofnað til nýrra. Utanríkisráðuneytið hefur sent 120 milljón króna reikning og ijóst er að fleiri eru á leiðinni. Hagsýslustjóri segir í greinargerö sinni að taka þurfi ákvörðun um hvort framkvæmd verksins skuli áfram fara eftir nótum byggingamefndar eða hvort beita skuli eðlilegri fjármálastjóm. „Það fólst í ákvörðun við gerð fjár- laga að engar nýjar framkvæmdir yrðu á árinu 1988 við Flugstöðina. Utanríkisráðherra var gerð grein fyrir því,“ sagði jón Baldvin Hanni- balsson fjármálaráðherra. Jón Bald- vin sagðist ekki hafa heimild til að greiða þennan reikning þar sem heimild skorti í fjárlögum. Hann yröi því ekki greiddur. -gse Anna Einarsdóttir lést í Hrafnistu, Hafnarfirði, 1. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólafur Guðmundsson frá Litluhlíð verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 10.30 árdegis. Jcirðarför Ástu Hannesdóttur, áður til heimiiis á Freyjugötu 5, Reykja- vík, fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 20. maí kl. 10.30. Margrét Einarsdóttir, Skólavörðu- stíg 35, verður jarðsungin frá Hall- grímskirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 13.30. Eirikur Björgvin Lárusson, Hvassa- leiti 6, verður jarðsungmn frá Bú- staðakirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 16.30. Andlát Anna Jónsdóttir frá Borgarfirði eystra, andaðist á hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð í Kópavogi mánudag- inn 16. mai. Vilhjálmur Guðmundsson frá Stóra- Nýjabæ, Krísuvík er látinn. Guðríður Sigurjónsdóttir, Hvassa- leiti 51, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 16. maí. Tilkynrdngar- Knattspyrnuskóli Leiknis hefst mánudaginn 24. mai nk. Leiðbein- andi veröur sem fyrr Sigurbjartur Á. Guðmundsson knattspymuþjálfari ásamt gestaleiðbeinendum sem verða margir af frægustu knattsymumönnum íslands. Allir þátttakendur fá viðurkenn- ingu og veitt verða ýms verðlaun. 1. nám- skeið verður frá 24/5-3/6, 2. frá 6/6-17/6, 3. frá 20/6-1/7, 4. frá 4/7-15/7, 5. frá 18/7 -29/7. Krakkar fæddir 1980 og síðar verða frá kl. 09-10.30. Krakkar fæddir 1978-1980 verða frá kl. 10.30-12. Þeir sem fæddir em 1977 og fyrr verða frá kl. 13-14.30. Nám- skeiðiö mun kosta kr. 1.500 á mann. Veitt- ur verður sérstakur systkinaafsláttur og einnig munu þeir sem hafa tekið þátt í íjórum fyrstu námskeiðunum fá frítt á það fimmta. Innritun fer fram í Leiknis- húsinu sama dag og námskeiðin hefjast. Hægt er að greiöa með greiðslukortum. Skrifstofa Geðhjálpar tilkynnir að frá 1. júni verður skrifstofan og félags- miðstöðin lokuð mánuðina júní, júlí og ágúst. Ferðalög Utlvist Miðvikudagur 18. maí kl. 20. Þjóðleiöin til Þingvalla 2. ferð. Reynisvatn - Miödalur. Létt og skemmtileg ganga. Verð 400 kr. frítt fyrir böm m. fullorðnum. Brottfór frá BSÍ, bensínsölu. Tapað fundið Peningar töpuðust í Hafnar- firði 11 ára drengur varö fyrir því óhappi að týna fimmþúsund króna seðli á leiðinni frá Músik og sport upp í BYKO í Hafnar- firði þríðjudaginn 17. maí. Finnandi vin- samlegast hringi í sima 51933. Þetta er alrangt - segir Halldór Jónatansson . „Þetta er alrangt. Fyrirtækiö hefur ekki keypt neinn gjaldeyri svo nokkru nemi í maí. Þessar aðdrótt- anir eiga því enga stoð í raunveru- leikanum. Ég vísa þessu því alger- lega á bug,“ sagði Halldór Jónatans- son, forstjóri Landsvirkjimar. Stöð 2 greindi frá því í gær að ástæða rann- sóknar á því hveijir heföu tekið út 2,5 milljarða í erlendum gjaldeyri fyrri hluta síðari viku væri orðómur um að Landsvirkjun ætti þar stóran Ný stjóm Talning í kosningum til stjómar Sambands íslenskra námsmanna er- lendis fór fram í gærkvöldi. Kosið var um sjö manna stjóm. Af 2500 félögum sendu 388 bréf með atkvæði sínu en 366 atkvæði vom gild. At- hygli vekur að af ellefu frambjóðend- um vom sex nemar í Bandaríkjunum og lentu þeir í sex neðstu sætunum. Mikil óánægja er meðal Bandaríkja- nema vegna þessa. Þeir sem komust í stjórnina em: Sigurður Jóhannesson, Danmörku, sem fékk 285 atkvæði, Sigríöur Guð- hlut að máli. Jóhannes Nordal er stjórnarformaður Landsvirkjunar og bankastjóri Seölabankans. Það var því hann sem lagði til lokun gjaldeyr- isdeilda bankanna á föstudaginn. Halldór sagði að Landsvirkjun hefði keypt gjaldeyri í síðustu viku fyrir 1,2 milljónir króna. Fyrirtækið mun greiða hátt í 3 milljarða í vexti og aíborganir af erlendum lánum á þessu ári. -gse hjá SÍNE brandsdóttir, Frakklandi, sem fékk 253 atkvæði, Hólmfríður Garðars- dóttir, Argentínu, sem fékk 250 at- kvæði, Páll Þórhallsson, Þýskalandi, sem fékk 246 atkvæði, Jón Ólafsson, Þýskalandi, sem fékk 214 atkvæði, Guðrún K. Guðfinnsdóttir, Banda- ríkjunum, sem fékk 165 atkvæði, og Jónas Egilsson, Bandaríkjunum, sem fékk 118 atkvæði. Einnig var kosið um tillögu stjórn- ar SÍNE um hækkun árgjalds og var hún felld. -JBj Tónleikar Fundir Tónleikar í Islensku óperunni Fimmtudaginn 19. maí nk. kl. 20.30 verða haldnir tónleikar í íslensku óperunni. Þar munu þau Helgi Maronsson tenór úr Njarðvík og Krystyna Cortes píanó- leikari flyfja gamlar íslenskar aríur, Ijóð eftir Beethoven, Schubert, Brahms og Hugo Wolf og óperuaríur eftir Doniqetti, Bellini, Puccini, Flotow og Verdi. Miðar seldir við innganginn. Kvenfélag Oháða safnaðarins heldur fund í safnaðarheimilinu Kirkjubæ fimmtudaginn 19. mai kl. 20.30. Aðalfundur Torfusamtakanna 1988 verður haldinn að Litlu-Brekku á Torf- unni (yfir Sveini bakara) fimmtudaginn 19. maí og hefst hann kl. 20.30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Leikfélag Siglufjarðar sýnir Galdrakarlinn í Oz Undanfariö hefur Leikfélag Siglufiarðar æft leikritiö Galdrakarlinn í Oz eftir L. Frank Baum, undir leikstjóm Carmen Bonitch. Þetta er stærsta og viðamesta sýning sem félagiö hefur ráðist í á und- anfómum árum. Alls em leikendur rúm- lega 30 en milli 50 og 60 manns standa að sýnlngunni. Frumsýnt verður fóstu- daginn 20. maí, sem er 70 ára afmælis- dagur Siglufiarðarkaupstaöar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.