Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Blaðsíða 1
Ustahátíðarauki í Laugardalshöll: Leonard Cohen I kvöld býöur Listahátíð 1988 til sérstaks listahátíðarauka sem eru tónieikar kanadíska tónlistar- mannsins og rithöfundarins Leon- ards Cohen í Laugardalshöll. Meö honum á tónleikunum verður átta manna hljómsveit. Ljóðskáld og rithöfundur Leonard Cohen innleiddi sígildan skáldskap inn í rokkheiminn með fyrstu plötunni sinni, Songs of Leonard Cohen, sem kom út árið 1967. Hann var þá þegar viðurkennt skáld og talinn ein bjartasta vonin í kanadískum bókmenntum. Hann lauk bókmenntanámi við McGill háskólann í Montreal árið 1955 og var rétt tvítugur þegar fyrstu ljóðabækurnar, Let Us Compare Mythologies, The Spice- Box og Earth, komu út. Þær vonir, sem bundnar voru við hann, rætt- ust svo meö útkomu skáldsagn- anna The Favorite Game árið 1963 og Beautiful Losers árið 1966. Hjólin taka að snúast Þaö var þó ekki fyrr en hann fór að semja lög við ljóðin sín að hjóhn tóku að snúast og lög eins og Suz- anne og So Long Marianne færðu honum heimsfrægðina. Sjálfur seg- ir hann að tónlistin hafi alltaf búið að baki orðanna enda mikill áhuga- maður um tónlist frá unga aldri. Með tíu manns til aðstoðar Leonard Cohen er nú nýbúinn aö senda frá sér sína tíundu hljóm- plötu, I’m Your Man, og í sumar fylgir hann henni eftir með 50 tón- leikum í Evrópu. Hljómsveitina, sem spilar og syngur með honum, skipa: Bob Furgo hljómborös- og fiðluleikari, Bob Metzger gítarleik- ari, Steve Meador trommuleikari, Stephen Zirkel, sem leikur á bassa. hljómborð og trompet, John Bilez- ikjian, sem leikur á oud og mandól- ín, Tom McMorran hljómborðs- leikari og að lokum söngkonurnar Perla Batalla og Julie Christensen. En allt þetta tónhstarfólk er frá Bandaríkjunum. Stæði seld við inngang Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 21.00. Uppselt er fyrir löngu í öll sæti en ákveðið hefur verið að selja 500 miða í stæði. Verða þessir mið- ar eingöngu seldir við innganginn og hefst salan tveim tímum fyrir tónleikana eða kl. 19.00. Enn er möguleiki að komast á iónleika Leonards Cohen í Laugardalshöll. Grilluð sjó- bleikju- flök - sjá bls. 18 Norður- landa- mót í bridge - sjá bls. 19 íþróttir helgar- innar - sjá bls. 31 Bat- Yosef 1 F.Í.M. - sjá bls. 20 s' B Göngudagurinn er orðinn sannkallaður útivistardagur fjölskyldunnar. Göngudagur fjölskyldunnar - um allt land Um helgina, á laugardag og sunnu- dag, munu Ungmennafélag íslands og Bandalag íslenskra skáta gangast fyrir göngudegi íjölskyldunnar. Vegna forsetakjörs á laugardag verða nokkur félög með gönguna á sunnudag 26. júní. Slíkt verður aug- lýst sérstaklega á viðkomandi stöð- um. Þessi dagur hefur verið árviss við- burður hjá ungmennafélögunum frá árinu 1979. Á síðasta ári tók Banda- lag íslenskra skáta þátt í framkvæmd dagsins í fyrsta sinn og tókst það vel. Svo verður einnig nú. Fram- kvæmdin er í höndum ungmennafé- laga og skátafélaga á hverjum stað en landssamtökin sjá um sameigin- legan undirbúning og kynningu og viðurkenningu fyrir þátttöku í göngunni. Mikil þátttaka Á síðasthðnu ári tóku á milli fimm og sex þúsund manns þátt í göngu- degi fjölskyldunnar. Þátttakan hefur fariö sívaxandi frá ári til árs og hefur margur maðurinn hafiö fastar gönguferðir í framhaldi af göngudeg- inum. Almennt taka gönguferðirnar tvo til sjö tíma. Kappkostað er að vanda valið á leiösögumönnum sem þekkja vel staðhætti. Þannig veröur reynt að gera gönguna sem forvitnilegasta þar sem lýst verður örnefnum, helstu kennileitum og merkilegum atburð- um er tengjast hinum ýmsu svæðum. Mörg félög hafa verið með ýmiss konar uppákomur á göngudeginum. Þar má nefna grihveislur, fjölskyldu- leiki og er göngudagurinn því víða orðinn sannkallaður útivistardagur fjölskyldunnar. Ný kvik- mynd um Chuck Berry - sjá kvikmyndir bls. 30 Heillaður af fima- stórum fjöllum ! - sjá bls. 20 Blöðrum sleppt í loftið - sjá bls. 19 Horft til kristni- töku- afmælis - sjá bls. 19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.