Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1988, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1988. Fréttir Samanburður á fréttum 87 87 87 87 88 88 88 Bjöm Bjömsson á Löngumýri sakaður um ólöglega sauðfjárflutninga: Veit ekki fýrir hvað ég á að vera sekur - skýlaust lagabrot að mati sauðíjárveikivama og framleiðnisjóðs Þetta línurit sýnir að sífellt færri hlusta á fréttir rásar 1 og ríkissjónvarps- ins. Fréttir rásar 1 hafa hrapað úr um 50 prósent hlustun í um 30 prósent og fréttir rikissjónvarpsins úr tæpum 70 prósentum í um 40 prósent. Fréttir Stöðvar 2 vinna stöðugt á og hafa vinninginn meðal myndlyklaeigenda. Srfellt færri hlusta á fréttir ríkisfjölmiðla - Bylgjan hefur betur 1 baráttunni við Stjömuna „Það er rétt að ég er fyrstur til að kaupa hjörð sem flutt er yfir varnar- línuna - en það hafa áður verið keyptar kindur og fluttar á milli. Varnarlínan var lögð niður fyrir fimmtán árum. Ég veit ekki fyrir hvað ég á að vera sekur. Ég heyri orðróm um alla sveit að ég hafi fram- iö lögbrot. Það er ekki rétt,“ sagði Björn Björnsson, bóndi á Löngu- mýri. Hann hefur skipt á um 200 kindum við Sverri Haraldsson, bónda á Æsu- stöðum. Við flutning hjarðarinnar vestur yfir Blöndu segir Kjartan Blöndal hjá sauðfjárveikivörnum aö þeir Björn og Sverrir hafi brotið lög. Með öllu sé óheimilt að flytja fé vest- Félagsvísindastofnun Háskólans hefur kynnt könnun á notkun út- varps frá klukkan 7 til 20 miðviku- daginn 19. október og sjónvarps- stöðva frá og með mánudegi 17. okt- óber til miðvikudagsins 19. október. Athyghsverðast varðandi niöur- stöður úr sjónvarpshluta könnunar- innar er að saman hefur dregið með stöðvunum hvað snertir fiölda áhorf- enda fréttatímanna klukkan 19.30 og 20.00. Á svæði beggja stööva horfðu 42-47 prósent á fréttir ríkissjón- varpsins en 39-45 prósent á Stöð 2. Minnsti munur stöðvanna er 47 pró- sent á móti 45, ríkissjónvarpinu í vil. Á landinu öllu er minnsti munurinn 49 á móti 38 prósent. Þeir sem hafa myndlykil horfa í mun meiri mæh á fréttir Stöðvar 2 en ríkissjónvarps- ins. Það horfa aö jafnaði 60 til 80 pró- sent á sjónvarp þegar mest er sem bendir til að sjónvarpsáhorfendur virðast ekki horfa meira á sjónvarp í heild en þegar ein sjónvarpsstöð stóö til boða. Hvað útvarpshlustun varðar er at- hyghsvert að hrap hlustendafiölda á fréttir rásar 1 viröist varanlegt. í könnun 1985 hlustuðu um 50 prósent að jafnaði á útvarpsfréttir. 1987 fór hlustendafiöldinn niður í 42 og 31 prósent. Fyrr í ár náðu fréttir Ríkis- útvarpsins ekki nema um 24 prósent hlustun að jafnaöi en réttu aðeins úr kútnum í október með rúmlega 30 prósent hlustun. Á svæði 4 stöðva er mest hlustun á rás 2 fyrst á morgnana eða 10-12 prósent. Þá kemur rás 1 meö 6-8 pró- sent, Bylgjan með 6-8 prósent og Stjarnan með 5-6 prósent. Frá 9-12 fyrir hádegi er mest hlustað á Bylgj- una, 10-14 prósent. Frá 13-16 er mest hlustað á Bylgjuna og einnig frá 16-19. Hlustun á rás 2 eykst þegar líður á daginn og er meiri en á Stjörn- una á milli 17 og 18. Bylgjan hefur mun betur í bar- áttunni við Stjörnuna. Hlustun á Bylgjuna er meiri en í maí allan dag- inn, nema í hádeginu og um kvöld- matarleytið. Hlustun á Stjömuna er verulega minni ahan daginn en í maí. -hlh Verb'ð hjá öku- Lögreglan í ReyKjavik leitar nú fimm bfia og eins vélþjóls. í gær var bO stohð viö sund- laugina i Breiöholti. BOlinn er ljósgrænn Audi 100, árgerð 1984. Skráningarnúmerið er R-52500. Sá bfll, sem lengst hefur verið saknað, hvarf úr Keflavík 21. ágúsL Hann er rauður Subaru station, árgerð 1978. Númer bíls- ins er R-66371. Nftjánda október var gráum Daihatsu Charmant, árgerö 1979, stoliö. Númer bflsins er R-19854. Tveimur ökutækjum var stohð 23. október. FóiksbOl, sera er Skoda, árgerð 1984, hvitur að ht, hvarf úr Barmahlíð. Núm- er bflsins er K-3021. Sama dag var rauöu Honda NTX vélhjóh stohö í Hraunbæ. Skráningarnúmer vélhjólsins er K-145. Hvítura Dai- hatsu var stoliö 26. október f Hof- teigi í Reykjavík. Bíllinn er ár- gerð 1987. Númer bílsins er R- 64159. -sme Súluritið sýnir i prósentum hve margir nota viðkomandi fjölmiðil. Tölurnar yfir lestur dagblaða eru Irá þvi i mai og þvi ber aö taka þeim með ákveðnum fyrirvara um breytingar er gætu hafa orðið. Tilhneigingin, sem ræöst af súluritinu, er þó ótvíræð. Kannanlr á notkun flölmiðlanna: Yfirburðir DV og Moigunbiaðs DV og Morgunblaöið hafa algera yfirburði ef hlustun á útvarp og sjón- varp og lestur dagblaða er borin sam- an. Samkvæmt könnun á lestri dag- blaða frá því í maí 1987 lesa 75 pró- sent Morgunblaðiö og 67 prósent DV. í samanburðinum, sem gefur ákveðna vísbendingu, er eingöngu stuöst viö mestu hlustun sem hver stöð mældist hafa í könnuninni nú í október, þaö er að segja toppana hjá hverri stöð. Miðaö við könnunina í maí í ár hafa ríkissjónvarpið, rás 1 og Stjarnan misst hlustun meðan Bylgjan og Stöð 2 hafa bætt við sig. Fyrir utan toppana, sem orsakast af fréttatíma Ríkisútvarpsins, liggur hlustun útvarpsstöðvanna á bflinu 2-14 prósent þar sem Bylgjan hefur ótvíræðan vinning. Dagblööin Tímann og Þjóðvfljann lesa um 20 prósent sem þýðir aö út- ur yfir Blöndu. Sverrir á Æsustööum hefur leigt framleiðnisjóði fullvirðisrétt sinn. Jóhannes Torfason, formaöur sjóðs- ins, sagði að Sverrir hefði teflt samn- ingi við sjóðinn í tvísýnu með kaup- unum sem hann átti við. Björn á Löngumýri - þar sem fiárflutning- arnir hafi veriö ólöglegir. „Ég braut engin lög. Vegna Blöndu- virkjunar verður farvegi árinnar breytt. Þá lenda tvö fiárbú, sem nú eru vestan við, austan viö ána. Ef ég kaupi hjörð af þeim bæjum, sem get- ur aht eins oröið, þá verð ég eflaust líka kallaður lögbrjótur. Blanda er ekki fiárheld og hefur aldrei verið. Ég held að það sé verið að búa tíl úlfalda úr mýflugu,“ sagði Björn Björnsson. „Það má taka úr lögréttum. Þessir flutningar eru annars eðlis. Við höf- um ekki tekið endanlega ákvörðun um hvað við gerum. En við verðum aö taka eitthvert tillit til þessa vegna varnarhnunnar. Ég hef bara ekki komist til þess. Það er hvorki riða á Æsustöðum né á Löngumýri," sagði Kjartan Blöndal hjá sauðfiárveiki- vörnum. Jóhannes Torfason sagði að sér hafi borist viðvörun frá sauðfiár- veikivömum vegna kaupanna. Framleiðnisjóður á eftir að athuga hvernigbrugðistverðurvið. -sme Bryndís var á leiö í sjónvarpsupptöku á Stöð 2 I gær þegar Ólína kom að sýna henni nýja hugmynd i handritinu. DV-mynd Brynjar Ný jólabók: Ævi og ástir Biyndísar varpsstöðvarnar eiga töluvert langt í land með að ná þeim. Ef reiknaö er út hvað hver íslend- ingur „notar“ af fiölmiöli og sjónvarp og útvarp er reiknað á sama grund- velli og dagblöðin þá notar hann tæp 2 dagblöð, tæplega eitt sjónvarp og rúmlega hálft útvarp. -hlh „Núna, þegar þú ert farin frá mér einu sinni enn, finn ég sárt til þess, að við hefðum getað veriö hvort öðru svo miklu betri,“ skrifar Jón Baldvin Hannibalsson tfl Bryndísar Schram frá Edinborg 1962. Þetta og fleiri ást- arbréf birtast í nýrri jólabók um Bryndísi Schrtrm eftir Ólínu Þor- varðardóttur, fréttamann á ríkis- sjónvarpinu. Þær Bryndís og Ólína eru báðar þekktar af sjónvarpsskerminum en þær eru líka báðar -fiögurra barna mæður og lífið handan við skjáinn er ekki bara hopp og hí. Bryndís lýs- ir atburðaríkri ævi sinni af hrein- skflni, skoðar hin ýmsu tímabO og gerir upp gamla reikninga. Auk við- tala byggir Ólína frásögnina á ýms- um heimildum, til dæmis þeim mörgu bréfum sem fariö hafa milh Bryndísar og eiginmanns hennar, Jóns Baldvins, í meira en þrjátíu ár. Auk húsmóðurstarfs á stóru heim- ih hefur Bryndís víða komið við, m.a. verið leikari, skólastjóri, farar- stjóri og gert ótal sjónvarpsþætti. Einn mikOvægasti þáttur í lífi henn- ar er þó enn ótalinn: bókin er að miklum hluta ástarsaga. En ástin á sér hendur tvær og það hefur ekki alltaf verið sársaukalaust að elska Jón Baldvin fremur en aðra dauðlega menn. Þannig skrifar hún honum: „Eg hafði ekki hugmynd um og sé það ekki fyrr en nú þegar ég les þessi gömlu bréf hvað það skipti þig miklu máh að hafa mig hjá þér... Þú hrint- ir mér frá þér þegar þú þarfnaðist mín mest og ég trúði því að ég væri þér ekki svo ýkja mikOs virði.“ -jhh 3,5% hafa kosið um hundana Um 2400 manns hafa nú kosið í kosningunum um hundahald í Reykjavík en það er um 3,5% þeirra sem eru á kjörskrá. Að sögn Gunn- ars Eydal í kjörstjórn var aOtaf búist viö að flestir kæmu til aö kjósa nú um helgina en í dag og á morgun verður opið til kl. 20 á kjörstað ser er í anddyri Laugardalshallar. Bjós Gunnar ekki við aö talning hæfis fyrr en eftir að kosningu lyki en tölu ættu að geta legið fyrir seint á sunnu dagskvöldið. -SM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.