Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989. Fréttir Hönnunar- og umsjónarkostnaður við Þjóðleikhúsið: Stefnir nú í 90 milljónir króna Hönnunar- og umsjónarkostnaöur viö viögeröir þær sem á aö ráöast í á Þjóðleikhúsinu er um 90 milljónir króna. Mikið af þessari upphæö er nú þegar fallið á verkiö þó aö við- gerðin sjálf sé ekki hafin. Samkvæmt samþykktum þeim sem nú liggja fyrir er ætlunin aö viögerö- in á húsinu kosti 540 milljónir króna þannig aö hönnunar- og umsjónar- kostnaöur er nú um 17% af heildar- kostnaöi viö verkið. Þaö er vel yfir meðallag því aö yfir- leitt er miöað við aö hönnunarkostn- aður sé í hæsta lagi á milli 7 og 10% af heildarkostnaði, algengt er þó að hann sé lægri. Rétt er þó að taka fram að hér er um viðgerö á eldra húsi að ræöa og nokkuð sérhæföu. Bá búast viö eitthvað hærri kostnaði vegna þess. Eigi aö síður telja viðmælendur blaösins úr verktakastétt aö þessi kostnaðartala sé allt of há. Þaö er embætti Húsameistara rík- isins sem sér um hönnun og umsjón meö fyrirhuguöum viðgerðum á Þjóöleikhúsinu. Samkvæmt heimild- um DV eru menn hjá fjárveitinga- valdinu orðnir langþreyttir á háum kostnaðartölum embættisins. Þá er rétt aö geta þess að engan vegin eru öll kurl komin til grafar varðandi umfang þess verks sem í verður ráðist. Sem kunnugt er er ágreiningur á milli menntamálaráð- herra og fjárveitinganefndar. Nefnd- in hefur aðeins viljað samþykkja við- gerð fyrir 540 milljónir en aðrir hafa rætt um viðgerð upp á 1,5 til 2 millj- arða króna. Á næsta ári er ætlunin að gera við húsið fyrir 275 milljónir. -SMJ Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráöherra. Rétt að hafa eðlileg samskipti við ísrael - segir Jón Baldvin „Það er langt síðan þetta heimboð barst. Ég hef einfaldlega þegið boð starfsbróður míns í ísrael um að koma í opinbera heimsókn. Sam- skipti ísraels og íslands hafa frá stofnun ísraels verið náin. Við höfum stjórnmálasamband við Ísraelsríki og það er engin sérstök ástæða af minni hálfu að slíta því stjórnmála- sambandi eða hafa ekki eðlileg sam- skipti við ísrael,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sem hefur þegið boð um opinbera heimsókn til ísrael dagana 3. og 10. janúar. Meö honum fer kona hans Bryndís Schram. Þess má geta að félagið ísland- Pcdestína hefur sent frá sér yfirlýs- ingu um að ríkisstjórnin komi í veg fyrir heimsókn utanríkisráðherra. „Sú staðreynd að viö þiggjum boð um opinbera heimsókn er engin yfir- lýsing um stuðning eða samþykki við stefnu ríkisstjórnar í viðkomandi landi frekar en þegar forverar mínir hafa farið í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna á tímum Brezhnevs, svo að ég nefni dæmi. Þessi heimsókn er rækilega undir- búin og mér er heitið því að ég fái tækifæri til þess að ferðast óhindrað- ur um herteknu svæðin, ná sam- bandi og viðræðum við Palestínu- araba. Ég óskaði sérstaklega eftir því að ná fundum með rithöfundum og blaðamönnum sem vitað er að eru mjög gagnrýnir á stefnu stjórnvalda. Ég mun að sjálfsögðu koma á fram- færi stefnu íslensku ríkisstjórnar- innar eins og hún hefur verið mótuð með ályktun Alþingis. Ég ht svo á að við eigum að taka undir með þeim röddum sem leita eftir pólitískum lausnum á þessum langvarandi og erfiðu deilumálum," sagði utanríkis- ráðherra. -SMJ Aflabáturinn Þórunn Sveinsdóttir í nótt: Flaut af strandstað án þess að skrúfa væri sett í gang - menn fengu sér meira að segja kríu, sagði skipstjórinn „Menn voru rólegir og fengu sér meira að segja kríu í nótt. Þetta gekk allt mjög vel. Þegar fór að flæða und- an bátnum í gærkvöldi hallaði hann um tuttugu gráður. Báturinn sat þá alveg kyrr og við vorum eiginlega í skjóli - það pusaði ekki einu sinni yfir okkur. Þegar fór að flæða að með morgninum réttist hann við aftur og fór þá að hreyfast. Síðan flaut bátur- inn út án þess aö ég setti skrúfu í gang,“ sagði Siguijón Óskarsson, skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur, sem strandaði um áttaleytiö í gær- kvöldi við Löngusker í Skeijafirði. Þórunn Sveinsdóttir var á leið frá Stálvík í Garðabæ til Reykjavíkur. Um borð var sjö manna áhöfn og sakaði engan. Skiþstjórinn sigldi eft- ir baujum og studdist einnig við rat- sjá. Hann hafði séð eina, farið fram- hjá henni en var aö svipast um eftir tveimur öðrum þegar báturinn strandaði. „Baujumar loguðu ekki og settu allt úr skorðum. Reykjavíkurhöfn á að hafa umsjón meö þeim en menn segja að lítil umferð sé um þetta svæði. Mér finnst þá eins gott að baujunum verði komið í land í stað þess að sjómenn séu að sigla eftir baujum sem ekki er hægt að treysta á. Ég hefði betur siglt bara eftir rat- sjánni,“ sagði Siguijón í samtali við DV í morgun. „Við sáum stórgrýti viö skerið þeg- ar féll frá í gærkvöldi. Þess vegna lögðum við ekki í að kúpla inn skrúf- unni. Báturinn flaut síðan út fyrir skerin og við sigldum þá fyrir eigin vélarafli. Björgunarskipið Goðinn var skammt undan og var tilbúinn að láta okkur fá trossu á strandstaðn- um. Goðinn sigldi síðan með okkur áleiðis til Reykjayíkur. Það kom enginn leki að skipinu og öll tæki eru í lagi. Annars er gott Björgunarbáturinn Henrý A. Hálfdánarson siglir úr Reykjavíkurhöfn skömmu eftir að tilkynning kom um strand Þórunnar Sveinsdóttur. Ásgrímur Björnsson formaður stendur við stjórnvöiinn í efri brú. Báturinn Jón E. Berg- sveinsson, sem einnig er frá Slysavarnafélaginu, fór á strandstað ásamt Henrý og björgunarskipinu Goðanum. DV-mynd S hljóð í okkur. Maður er ánægður með að vera kominn aftur á þurrt og við lítum björtum augum til fram- tíðarinnar. Henry Hálfdánarson og Jón E. Bergsveinsson, bátar Slysavarnafé- lags íslands, voru í viðbragðsstöðu og voru komnir fljótlega á strandstað í gærkvöldi. Skipverjar á Jóni E. Bergsveinssyni höfðu mælt dýpið við Þórunni Sveinsdóttur og gefið upp- lýsingar til skipveija. Þegar Þórunn Sveinsdóttir var tek- in upp í slipp í morgun kom í ljós aö skemmdir eru nánast engar. „Þetta er eins og ungmeyjarrass," sagði ónefndur Vestmannaeyingur þegar verið var að taka bátinn á þurrt og botn skipsins kom í ljós. Aðeins sást í litla dæld aftarlega bakborðsmegin. -ÓTT Sovétmenn vilja kaupa meiri síld Sovéskir kaupendur saltsíldar tilkynntu íslendingum í gær aö þeir væru reiðubúnir aö sam- þykkja kaup á 50 þúsund tunnum af saltsíld til viðbótar þeim 150 þús- und tunnum af hausskorinni og slógdreginni síld sem áður hafði veriö samið um. í síldarsölusamningi þjóðanna, sem undirritaður var í lok nóvemb- er, var sérstakt ákvæði um að at- hugað yrði hvort möguleiki væri á þessum 50 þúsund tunna viðbótar- kaupum. Svar um þessi viðbótarkaup barst, að mati íslenskra seljenda, fullseint. Því er, með tilliti til þess að fituinnihald síldarinnar fer minnkandi á þessum árstíma, verið að ræöa við Sovétmenn um hvort til greina komi að láta salta þetta viðbótarmagn í byijun næstu ver- tíðar og afgreiða síldina fyrir árs- lok 1990. -J.Mar Þriðja álverið er einnig mögulegt Fulltrúar Grángers og Hoogovens álfyrirtækjanna koma hingað til lands til viðræðna 3. og 4. janúar 1990. Þar verður rætt um hvort farið veröur í byggingu nýs álvers í Straumsvík, 185.000 til 200.000 tonn að stærð. Þá koma fulltrúar Alumax 8. jan- úar, sömuleiðis til viðræðna um ál- ver í Straumsvík, en einnig munu þeir ræða um möguleika á byggingu þriðja álversins. Sá möguleiki hefur nú verið tekinn til umræðu en þá er rætt um álver af sömu stærð og fyrir- hugað er aö reisa í Straumsvík, það er aö segja 185.000 til 200.000 tonn. Það er þó ljóst að sá möguleiki á mun lengra í land því áður en slík ákvörð- un yrði tekin þyrfti að fara í hag- kvæmnisathugun fyrir það álver. Ef allt þetta gengi eftir myndi álfram- leiðsla hér á landi rösklega fimm- faldast. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.