Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1990, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 1990.
Fréttir
Slysið á Selfossi:
Ætlaði að nota síðustu
kraftana til að bjarga Sigrúnu
- segir Vigdís Sísí Ólafsdóttir
„Þaö er mikil lífsreynsla að missa tvo vini sína í slysi og komast sjálfur
naumlega lífs af,“ segja þær Sisí og Sigrún. -DV-mynd BG
„Maður gerir sér ekki fulla grein
fyrir því hvað gerðist í raun. Líkam-
lega er maður í lagi þrátt fyrir mikl-
ar harðsperrur eftir glímuna við ána
en andlega erum við gjörsamlega
tómar. Það er mikil lífsreynsla að
missa tvo vini sína í slysi og komast
sjálfur naumlega lífs af. Við höfum
verið stjarfar í allan dag og sennilega
er versta áfallið eftir þegar maður
gerir sér fulla grein fyrir hversu litlu
mátti muna aö við létum lífið,“ sögðu
þær Sigrún Hildur Guðmundsdóttir
og Vigdís Sísí Ólafsdóttir, í samtali
viö DV í gær. Þær björguðust naum-
lega þegar bifreið, sem þær voru far-
þegar í, lenti í Ölfusá aðfaranótt laug-
ardags.
Stúlkurnar voru á rúntinum um
klukkan flmm á laugardagsnóttina
ásamt tveimur vinumsínum. Raunar
höfðu þau verið að rúnta saman sex
en skömmu áður en slysið átti sér
stað yfirgáfu tveir piltar bifreiðina
og hugðust taka sér göngutúr og hitta
svo hópinn aftur stuttu síðar.
Skömmu eftir að piltarnir yfirgáfu
bifreiðina lenti hún i ánni neðan við
Tryggvaskála. Eftir að bifreiðin hafði
skollið á botni árinnar tókst Sigrúnu
að sparka annarri afturrúðunni út
og á þann hátt komust stúlkumar
út úr bifreiðinni. Piltamir tveir, sem
voru spenntir í öryggisbelti, náðu
hins vegar ekki að losa sig og kom-
ast út. Stúlkumar náðu að komast
upp á yfirborð árinnar en bárust nið-
ur hana að stað sem kallaöur er Bás,
skammt frá Selfosskirkju. Þar tókst
Sísí að skríða á land en Sigrún náði
taki á klettavegg og gat haldið sér
þar uns hjálp barst.
„Það er ótrúlegt hvað við hugs-
uðum rökrétt. Ég reyndi að losa um
öryggisbeltin hjá strákunum en tókst
það ekki. Eftir að Sigrúnu hafði tek-
ist að sparka rúðunni út, soguðumst
viö báðar mjög hratt út úr bönum.
Við reyndum strax að komast upp á
yfirborðið tö að ná andanum en okk-
ur fannst eins og viö værum alveg
að kafna.
Okkur fannst það óralangur tími
sem við vomm að berjast í ánni, en
allan tímann syntum við eins og við
gátum. Ég sá Sigrúnu alltaf fyrir
framan mig meðan ég var í ánni og
það fannst mér gott. En eina hugs-
unin var: Ég ætla ekki að deyja, ég
ætla aö lifa af. Ég bað stöðugt tö
guös um hjálp og á sama tíma hugs-
aði maður um líf sitt. Það var eins
og það sem hðið er þyti í gegnum
hugann. Ég er sannfærð um að guð
var meö mér. Ef hann hefði ekki fylgt
mér væri ég ekki tö frásagnar í dag.
Um leið og ég sá kirkjuna fylltist ég
nýrri von og mér tókst að skríða á
land,“ segir Sísí.
„Ég hugsaði mjög sterkt tö ömmu
minnar, sem lést fyrir tveimur árum,
um leið og bíllinn fór út í ána. í hvert
skipti sem mér skaut upp úr ánni
hrópaði ég á hana. Ég er sannfærð
um að hún sá til þess að ég héldi hfi.
Það var óhugnanlegt að berjast um
í ánni en ég ætlaði mér að lifa, ég
ætlaði ekki að drukkna. Maður hugs-
aði um að ná andanum en þess á
möli hrópaði ég á ömmu og hugsaði
til fjölskyldunnar, vina og ættingja.
Ég náði á endanum taki á kletta-
snös við Bás og hrópaði á hjálp eins
hátt og ég gat því ég vissi að það var
fuöt af fólki enn á ferðinni í bænum.
Ég sá að Sísí komst á land og heyrði
að hún stundi: Ég ætla að koma að
hjálpa þér. En ég hrópaði: Nei. Ég
vildi ekki að hún kæmi aftur út í
ána,“ segir Sigrún.
„Ég ætlaði að nota síðustu kraftana
tö að bjarga Sigrúnu. En svo sá ég
hvar Svanur Kristinsson lögreglu-
þjónn óð út í ána og náði að bjarga
henni - þá var mér ahri lokið. Eg gat
ekki meira,“ segir Sísí.
Stúlkumar muna ekki mikið frá
fyrsta klukkutímann eftir björgun-
ina. Líkamshitinn var kominn niður
í 33 gráður og mátti engu muna að
Sigrún dæi í höndunum á læknum
og hjúkrunarfólki á spítalanum á
Selfossi. En eftir baráttuna í ánni
fannst þeim ekki hægt að gefast upp
við svo búið og lífsviljinn varð öhu
yfirsterkari.
„Við hresstumst frekar fljótt og
fengum að fara heim af sjúkrahúsinu
um klukkan 18 á laugardaginn. Viö
fórum niður að á um kvöldið og þá
fannst okkur það hreint ótrúlegt að
við skyldum bjargast úr þessari
glórulausu iðu.
í gær og dag hafa margir haft sam-
band við okkur og sýnt okkur stuðn-
ing og samúð. Eftir aö hafa lent í
svona hræðilegri lífsreynslu er það
ómetanlegt aö finna allan þennan
hlýhug," segir Sigrún.
„í framtiðinni ætla ég að beijast
fyrir því að þaö verði sett grindverk
á árbakkann þar sem bíllinn lenti í
ánni. Þetta er stórhættulegur staður,
sérstaklega í myrkri. En það er eins
og það þurfi alltaf eitthvað hræðilegt
að gerast tö að yfirvöld taki við sér
og geri eitthvað í málunum," segir
Sísí.
-J.Mar
Munum halda
leit áfram
næstu daga
- segir Gunnar Einarsson
Haldið var áfram að leita aö bifreiðinni, sem lenti í Ölfusá, aðfaranótt
sunnudgas, í gær. Leitin beindist einkum að staðnum við Bás en þar töldu
björgunarsveitarmenn hugsanlegt að bílinn væri að finna. -DV-mynd BG
„Það er einn staður í ánni sem
hefur gefið svörun við rafsegulleitar-
tæki og við höldum að þ^r geti bílinn
verið að fmna, án þess þó að geta
nokkuð fullyrt um það,“ segir Gunn-
ar Einarsson, formaður Björgunar-
sveitarinnar á Selfossi.
Staður þessi er í hringiðu í ánni
yið Bás skammt neðan viö brúna á
Ölfusá.
Leit að bílnum, sem skah í Ölfusá
um klukkan fimm aðfaranótt laug-
ardas, stóð yfir frá klukkan 11 í gær-
morgun og fram á kvöld en án árang-
urs. í gær leituðu sex bátar með um
20 mönnum á ánni og var svæðið
allt frá brúnni á Ölfusá og niöur að
ósum hennar leitað. Þyrla Land-
helgisgæslunnar sveimaði yfir ánni
og tveir gúmmíbátar voru notaðir tö
leitar í nágrenni við brúna og voru
á möh 10 og 15 manns við leit þar.
Fengið var að láni málmleitartæki
hjá Landhelgisgæslunni en það var
bilað en það tókst að koma því í lag
rétt um klukkan 17 í gær. Þangaö tö
var rafsegultækið notaö við leitina
og gaf það svönm í hringiðunni í
ánni við Bás.
í dag er hugmyndin að slóðadraga
botn Ölfusár, neðan við brúna, með
akkerum og öðrum búnaöi.
Skilyrði tö leitar í ánni eru mjög
erfið, áin er straumþung neðan við
brúna og mikið vatn er í henni vegna
vorleysinga.
-J.Mar
Selfoss:
Tveggja pilta
saknað
Aðfaranótt laugardags var bíl ekið
í Ölfusá neðan við Tryggvaskála.
Ökumaður bifreiðarinnar missti
stjórn á henni þegar hann hugöist
beygja á árbakkanum.
Tveir pötar voru í bifreiðinni og
tvær stúlkur. Piltarnir náöu ekki að
losa sig úr bílnum en stúlkumar
björguðust.
'Róbert Agnarsson, 14 ára drengur,
varð sjónarvottur að slysinu. Hann
lét foreldra sína þegar í stað vita og
þau höfðu samstundis samband -viö
lögregluna, sem kallaði út björgun-
arsveitina á Selfossi. Það var Svanur
Kristinsson lögregluþjónn sem var
fyrstur á vettang og tókst honum að
bjarga annarri stúlkunni úr ánni en
hinni tókst að komst í land af sjálfs-
dáðum.
Piltanna tveggja, 20 og 26 ára, er
enn saknað.
-J.Mar
Islandsmótiö í tvímermingi í bridge:
Naumur sigur Vals og Sigurðar
Valur Sigurðsson og Sigurður Vil-
hjálmsson náðu þeim merka áfanga
að vinna íslandsmótið í tvímenningi,
en mótið var haldið um helgina á
Hótel Loftleiðum. Þar með hafa þeir
Valur og Sigurður unnið í flestum
stærstu bridgemótum ársins sem
hlýtur aö teljast mikið afrek. Sigur-
inn í íslandsmótinu í tvímenningi gat
þó varla veriö naumari því aöeins
sködu 2 stig að þá og Hrólf Hjalta-
son-Ásgeir Ásbjörnsson. Hrólfur og
Ásgeir voru næstum því búnir að
endurtaka leödnn frá því árið 1988
þegar þeir unnu í þessari keppni með
miklum endaspretti.
Fyrir síðustu umferðina á íslands-
mótinu nú, var staðan þannig að Sig-
urður og Valur höfðu forystu með
208 stig, en næstir á eftir komu Hrólf-
ur og Asgeir með 196 stig. Sigurður
og Valur áttu góða setu í lokaum-
ferðinni, en Hrólfur og Ásgeir áttu
enn betri setu, og var því spennan
mikö þegar menn biðu eftir útreikn-
ingnum. Sigurður og Valur fengu 29
stig í plús í lokasetunni, en Hrólfur
og Ásgeir.náðu 39 stigum í plús, sem
dugöu þó ekki tö að brúa böið. Loka-
staða efstu para varð sem hér segir.
1. Valur Sigurðsson-Sigurður Vö-
hjálmsson 237
2. Hrólfur Hjaltason-Ásgeir Ás-
björnsson 235
3. Guðmundur Sv. Hermannsson-
Bjöm Eysteinsson 193
4. Guðmundur Páö Arnarson-Þor-
lákur Jónsson 156
5. Sigurður B. Þorsteinsson-Gylfi
Baldursson 150
6. Magnús Ólafsson-Jón Þorvarðar-
son 145
7. Ásmundur Pálsson-Guömundur
Pétursson 133
8. Þröstur Ingimarsson-Ragnar
Jónsson 97
Guðmundur Sveinn Hermannsson
og Björn Eysteinsson byijuöu mótiö
mjög vel og virtust á tímaböi ætla
að stinga aöra keppendur af. Þegar
fyrri keppnisdegi af tveimur var lok-
ið og 21 umferð af 31, voru Guðmund-
ur og Bjöm meö 199 stig, og Valur
og Sigurður í öðm sæti með 144. Sig-
uröur og Valur byrjuðu strax, síðari
keppnisdaginn að saxa á forskotið
og náðu forystunni í 23. umferð. Þeir
leiddu síðan flestar umferðir eftir
það, og tryggðu sigur sinn með goð-
um árangri í lokasetunni.
Sigur þeirra er sérstaklega athygl-
isveröur fyrir þær sakir að þeir eru
nýbakaðir íslandsmeistarar í sveita-
keppni, auk þess sem þeir eru núver-
andi Reykjavíkurmeistarar í tví-
menningi. Til viðbótar þessu vom
þeir í þriðja sæti á Bridgehátíð Flug-
leiða í febrúarmánuði síöastliðnum.
Fáir spilarar hafa náð jafngóöum
árangri á einu spöaári en þeir félagar
byijuðu einmitt að spila saman nú í
vetur. Þetta er í þriðja sinn sem Val-
ur Sigurðsson verður íslandsmeist-
ari í tvímenningi, en Sigurður Vil-
hjálmsson vann þarna í fyrsta sinn
tö þessa eftirsótta titils. Mótið þótti
fara vel fram undir öruggri stjórn
keppnisstjórans, Jakobs Kristins-
Þeir voru að vonum ánægðir með
sigur sinn á íslandsmótinu í tvi-
menningi, Valur Sigurðsson og Sig-
urður Vilhjálmsson, sem hér hampa
verðlaunagripum sínum.
DV-mynd JAK
sonar og reiknimeistarans, Kristjáns
Haukssonar. ts