Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Blaðsíða 1
) Unnið að uppsetningu myndverka á sýningunni Maður og haf. DV-mynd GVA Iistahátíð í Reykjavík: San Francisco ballettinn Einhver mesti atburðurinn á yfirstandandi listahátíð er heim- sókn San Francisco ballettsins til landsins. Eins og öllum er kunnugt um er stjómandi hans Helgi Tóm- asson sem tók viö baUettinum þeg- ar hann lauk glæsilegum dansferh í New York. Hefur hann náð frá- bæmm árangri með baUettinn sem heimsblöðin hafa lokið lofi á. Helgi er ekki einasta Ustdans- stjóri heldur hefur hann líka getið sér orð fyrir að vera einn fremsti danshöfundur í Bandaríkjunum. Helgi hefur áður sótt okkur heim á listahátíð. Það var 1976. Þegar Helgi Tómasson kom til San Francisco þótti andinn ekkert sérstakur og sýningar hans ekki ýkja merkfiegar. Helgi þurfti að kljást við aUs konar vandamái í byrjun. En ef marka má grein í The New York Times hefur oröið ríku- leg uppskera af fimm ára starfi Helga í San Francisco. Helgi kemur á Listahátíð með úrval dansara frá San Francisco ballettinum. Þetta er býsna misUt- ur hópur. Flestir dansaranna em Bandaríkjamenn en þama eru einnig dansarar frá Spáni, Sovét- ríkjunum, Finnlandi, Skotlandi, Marokkó og Kanada. Þekktustu dansaramir em ballerínumar Elizabeth Loscavio, Sabina AUe- mann og LjudmUa Lopukhova, fyrrum Sovétborgari, sem hlaut uppeldi sitt í hinum fræga Kirov dansflokki. Af karldönsuram má nefna Andre Reyes, Christopher Boatwright, Ashley Weather og Finnann Mikko Nissinen. Þessir allir hafa titilinn aðaldansari hjá San Francisco ballettinum. BaUett- inn mun sýna í Borgarleikhúsinu á laugardag og sunnudag kl. 20.30. Einnig verður sýning á sunnudag- inn kl. 15.00. Þá verða þrjár sýning- ar í næstu viku. Helgi Tómasson er hér ásamt tveimur ballerínum, Subina Alleman og Wendy van Dyke, við komuna til Reykjavíkur í gær. Á útvarpsdjassdögum fyrir stuttu varð til hljómsveit reyndra djassista og kölluðu þeir sig Sveiflusextettinn. Sextettinn fékk það góðar undirtektir áhorfenda að ástæða þótti til að halda samstarfinu áfram. Mun Sveiflusext- ettinn, sem hér er á myndinni, leika á sunnudagskvöld í Heita pottinum i Duus húsi. Þeir sem skipa sextettinn eru talið frá vinstri: Kristján Hjartar- son trompet, Guðjón Einarsson básúnu, Guðmundur Steinsson trommur, Bragi Einarsson, saxófónn og klarínetta, Friðrik Theódórsson bassi og Hrafn Pálsson píanó. I Salonisti a listahatið Svissneski tónlistarhópurinn I Sal- onisti heldur þrenna tónleika í Reykjavík 11. og 12. júní og kemur einnig fram á tónleikum á ísafirði laugardaginn 9. júm kl. 17 í Frímúr- arasalnum. I Salonisti em íslenskum útvarps- hlustendum að góðu kunnur fyrir vandaðan og fjörlegan flutning á létt- klassískri tónlist. Á tónleikunum á íslandi flytja þeir efnisskrá sem nefn- ist Austurlandahraðlestin. Eins og nafnið gefur til kynna verður leikin tónhst frá þeirri leið er lestin fræga I Salonisti leikur í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar. fór með konunga og annað hefðar- fólk frá París til Istanbul með við- komu í Mílanó, Vín, Búdapest og Búkarest. Á þessari ferð sinni leika þeir verk eftir Massenet, Debussy, Schrammel, Kreisler, Enescu, Ross- ini og Nino Rota. Það em fimm hljóðfæraleikarar sem skipa I Salonisti. Þeir koma til landsins fyrir milhgöngu Lástasafns Siguijóns Ólafssonar og verða tón- leikamir í Reykjavík haldnir í Sigur- jónssafni 11. júní kl. 17.00 og kl. 21.00 12. júní. Maður Og haf Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins 1990 Sýningin Maður og haf, sem haldin er að tilhlutan Listahátíðar 1 Reykja- vík og sjómannadagsráðs, verður opnuð í Þjóöminjasafni íslands laug- ardaginn 9. júní. Kosið hefur verið að hafa fjögur leiðarstef í umfjöllun listamanna um hafið og sjómennsku sem er í þremur sölum. Stillt er upp jafnt þekktum hstaverkum sem og htt þekktum, gömlum og nýjum í þeim tilgangi að fá verkin til að slá neista hvert af öðra, draga fram inntak og form- ræna eiginleika hvers annars áhorf- andanum til ánægju og umhugsunar. Á sýningunni em um áttatíu mál- verk og skúlptúrar, jafnt eftir frum- heija í íslenskri myndhst og yngri nýgræðinga. Af listamönnunum, sem eiga verk á sýningunni, má nefna Jón Stefánsson, Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason, Snorra Arinbjarnar, Nínu Tryggvadóttur og Tolla. Verkin eru með fjölbreytilegu yfirbragði, frásagnarlegu, táknrænu og huglægu. Umsjón með sýningunni hafa haft Sigurður Örlygsson hstmálari og Aðalsteinn Ingólfsson hstfræðingur. Sýningin stendur til 1. júlí. Hehsuhlaup Krabbameinsfélags- ins undir kjörorðinu betri heilsa verður laugardaginn 9. júní og hefst kl. 12.00. Heilsuhlaupið er nú haldið í Reykjavík í þriðja sinn og í fyrsta sinn á Akureyri. Þátttakan í Reykja- vík síðustu tvö ár hefur verið ein- staklega góð. 1988 hlupu 400 manns og um 500 manns í fyrra. Um er að ræða hefðbundið götu- hlaup og er veðurspá fyrir laugar- daginn góð bæði fyrir Akureyri og Reykjavík. Vegalengdir em 4 km og 10 km og fer skráning fram að Skógarhhð 8! Heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason, mun ræsa hlaupið. Á Akureyri verður vegalengdin 5 km og fer skráning fram á skrifstofu KAON, Hafnarstræti 95. Hlaupið hefst í göngugötunni og lýkur þar. í lok hlaupsins verður dregið í happdrætti og em allir hlauparar þátttakendur í happdrættinu. Vinn- ingar eru íþróttavörur frá þekktum Mynd þessi var tekin í heilsuhlaupinu i fyrra. Og eins og sjá má hindrar hjólastóllinn ekki þessa tvo þátttakendur sem eru í bakgrunni frá að taka þátt í hlaupinu. framleiðendum. Guðmundur Bjarnason mun ræsa hlaupið bæði á Akureryri og Reykjavík með aðstoð Rásar 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.