Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992. Menning_______________________________ Rósir í mjöll: Heildarsaf n Ijóða Vilhjálms frá Skáholti komið út „Vilhjálmur frá Skáholti gróður- setti blóm í köldum reit. Oft næddi líka um manninn og skáldið. Þess vegna fannst mér eiga vel við að láta bókina heita Rósir í mjöll. Nafnið er tekið úr minningarljóði Kristjáns frá Djúpalæk sem hann kvað um skáld- bróður sinn. Það er táknrænt og skáldlegt heiti og réttnefni um Vil- hjálm,“ segir Helgi Sæmundsson rit- stjóri. Hann hefur búið til prentunar heildarsafn ljóða Vilhjálms sem nú er komið út en ljóðabækur Vilhjálms hafa verið ófáanlegar um árabil. „Vilhjálmur var eitt af fyrstu verkalýðsskáldunum en hafði sér- stöðu að því leyti að hann leit ekki á baráttuna tilsýndar heldur skipaði sér við hhð hinna vinnandi og gerð- ist andlegur forystumaður þeirra. Hann orti líka mikið um Reykjavík við hliðina á Tómasi og Steini en hafði sérstöðu því hann var fæddur Reykvíkingur en hinir voru aðkomu- menn. Hann orti innan frá og ekkert skáld hefur ort betur um skuggahlið- ar borgarinnar." í inngangi að ljóðasafninu skrifar Helgi að Vilhjálmur hafi gerst eins konar konungur í skuggaríki fá- tækra og drykkfelldra utangarðs- manna. Hann hafi hins vegar aldrei dregið fjöður yfir ólán sitt og lýsi því af einlægni og hreinskilni í mörgu kvæði. Samvinna tónskálds og Ijóðskálds Sigfús Halldórsson tónskáld mynd- skreytir ljóðasafnið. Sigfús var einkavinur Vilhjálms og unnu þeir mikið saman. „Hann gerði til dæmis texta við lög eftir mig, íslenskt ástar- ljóð og Við tvö og blómiö, og svo gerði ég lög við texta eftir hann. En það voru fleiri en ég sem gerðu lög við ljóð Villa,“ segir Sigfús og nefnir sér- staklega Skúla Halldórsson. „Skúli sagði mér einu sinni að svo Guðjón og Sigfús Halldórssynir, vinir Vilhjálms, Jón og Bergur, synir Vilhjálms, Helgi Sæmundsson ritstjóri og Bragi Þóróarson útgefandi komu saman i tilefni útgáfu heildarsafns Ijóða Vilhjálms frá Skáholti. DV-mynd Brynjar Gauti magnaður væri Villi að þegar hann hélt sér þurrum stundaði hann þann- ig björgunarstarf í Hafnarstræti að tugir manna, sem þar héldu sig í reiðuleysi, fóru að dæmi hans. Þeir hættu að drekka ef hann hætti,“ seg- ir Sigfús og vitnar aftur í Skúla: „Hann vantaði eitt sinn mannskap til að steypa grunn undir sumarbú- staö við Hafravatn og hitti þá Villa á fómum vegi og sagði honum farir sínar ekki sléttar. Villi, sem kunni múrverk, bauðst til að taka verkið að sér. Morguninn eftir fór hann með tíu menn úr Hafnarstræti og lauk verkinu á einu'm degi. Þessi saga lýs- ir Villa vel. Haim gekk heilshugar og af ótrúlegri atorku að öllu sem hann tók sér fyrir hendur." Með þreifara í annan heim Sigfús segir Vilhjálm hafa verið ákaflega næman mann og eins og með þreifara í þennan heim og ann- an, eins og hann orðar það. „Eitt sinn kom hann illa á sig kominn niður í Útvegsbanka og spurði eftir mér. Honum var mikið niðri fyrir. Erindið var að biðja mig að fara með erfiljóð eftir unga stúlku út á Morgunblað. Það þoldi enga bið. Hann varð að koma ljóðinu frá sér áður en hann færi heim að sofa. Eins og þú sérð, sagði hann, er ég ekki þannig á mig kominn að ég geti farið sjálfur. Villi þekkti stúlkuna ekki að öðru leyti en því að hún afgreiddi í bakaríi sem hann kom oft í. Hann sagði að hún hefði oft gefið honum vínarbrauðs- enda þegar hann var svangur. Hann sagði að hún hefði veikst og dáið þessa nótt og ég spurði hvemig hann vissi það. Ég veit það því hún kom til mín, svaraði hann. Við eftir- grennslan fékk ég staðfestingu á þvi að stúlkan hafði látist um nóttina," segir Sigfús. „Vilh sagði mér eitt sinn eftir stutta heimsókn hjá fjölskyldu minni á að- fangadagskvöld að hann heíði lengi þráð að eignast heimili. Hann vildi hins vegar engri konu svo illt að deila kjörum með honum. Villa varð að þeirri ósk sinni að deyja allsgáður. Hann féll frá langt fyrir aldur fram, 55 ára, og var fjölda manns harm- dauði.“ -IBS íslenskur málari vek- ur athygli í Danmörku Hjálmar Þorsteinsson heitir maður, fæddur á Siglufirði 1932. Hann fluttist 1946 til Akraness þar sem hann var kennari fram til 1980. 1981 fluttist Hjálmar til Danmerkur og hefur búið þar síðan. Fyrir utan kennslu hefur hann stundað mál- aralist. Hann hélt sína fyrstu sýn- ingu á Akranesi. Síðan fylgdu fimm sýningar á íslandi, síðast í Nor- ræna húsinu 1984. í Danmörku hefur hann sýnt sjö sinnum og nú stendur sýning verka hans í Copen- hagen City Galleri, rétt við Ráðhús- torgið. Hjálmar er dæmigerður íslend- ingur, expressionisti. Gildir einu hvort hann málar danskan kvöld- himin eða deyjandi öm. Flest mál- verkanna á þessari sýningu em olíumálverk í rauðum og grænum litum, auk nokkurra akvarell- mynda. Ljóst er að Hjálmari hefur tekist að hasla sér vöU í Danmörku sem listamaður. Strax fyrsta dag- innseldustsjömyndir. -HJ Hjálmar Þorsteinsson og sambýliskona hans, Rita Mark. DV-mynd HJ Það er fyrir stór verk eins og þetta sem Sigurður Orlygsson er þekktastur. Hann sýnir nú litlar myndir í Galleri G-15 sem hann segir vera stórar mynd- ir minnkaðar niður. DV-mynd GVA « Sigurður sýnir í Galleri G-15 „Það má segja að sýningin sé fallið minnismerki, hvaða skilning sem menn nú leggja í það,“ segir Sigurður Örlygsson listmálari sem nú heldur sýningu í Gallerí G-15 á Skólavörðu- stíg. Myndirnar á sýningunni, sem flestar eru unnar úr pappír, eru litlar en Sigurður er þekktastur fyrir stór verk sín. „Þetta eru stórar myndir minnkað- ar niður, formin eru gömul," útskýr- ir hann og bætir við að hann sýni til skiptis litlar og stórar myndir. Um er að ræöa aðra sýningu Sigurðar á þessu ári og eru myndimar allar nýjar. Sýningin er opin virka daga klukk- an 10 til 18 en 11-14 á laugardögum. Henni lýkur 31. október. -IBS DV Viðtalvið Rósu Ingólfs- dóttur-Jónína Leósdóttir skráði Rósa Ingólfsdóttir, sem þekkt er fyrir að segja skoðanir sínar hispurslaust, heldur uppteknum hætti í viðtalsbók sem Jónína Leósdóttir hefur ritað og kemur út hjá Fróða fyrir jólin. í bókinni, sem heitir Rósumál, dregur Rósa ekkert undan er hún segir álit sitt á samferðamönnum. Rósa segir einnig frá ferlí sínum sem leikkona, söngkona, mynd- listarkona og sjónvarpskona. Og ást, harmur, erfið lífsbarátta, kynlíf og karlar eru meðal margra samtalsefha Rósu og Jón- ínu. Fullhugará fimbulslóðum í bók Sveins Sæmundssonar, fyrrum blaðafulltrúa Flugleiða, Fullhugar á fimbulslóðum, eru frásagnir af merkum þætti í ís- lenskrí flugsögu, Grænlandsflug- inu. Aöstæöur i þvi voru oft ótrú- lega erfiðar, ekki síst i sjúkraflugi þegar teflt var á tæpasta vað, og hékk líf flugmannanna oft á blá- þræði. Bókin er gefin út af Fróða. Spennusaga eftir Þórunni Valdimarsdóttur Júlía heitir nýstárleg skáldsaga eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Forlagið gefur bókina út og segir í útgáfulista sinum að Júlia sé mögnuö spennusaga um ástir og örlög sem líka megi lesa sem táknrænt framtíðarskáldverk. Æviminningar Svavars Gests Útvarpsmaðurinn Svavar Gests, sem um árabil var einn vinsælasti skemmtikraftur landsins, hefur skráð æríminn- ingar sínar undir heitinu Hugsað ugphátt. í bók sinni, sem gefin er út af Fróða, greinir Svavar frá erfiðum bernskuárum, tónlistarferlinum og kynnum af samferðamönnum og svo því hvemig það var aö fa þann úrskurð að hann væri hald- inn illkynja sjúkdómi. íslendingar ogáfengi íllOOár Óttar Guömundsson læknir skoöar dryklgusiöi íslendinga í 1100 ár í bók sinni, Tíminn og tárið, sem Forlagið gefur út. í útgáfulista yfir jólabækurþess segir að við skoðunina beiti Ottar augum sagnfræðings, spaugara, læknis, alkóhólista og aðstand- anda hans. Kóngviljum viðhafa Skjaldborg gefur út fyrir jólin bókina Kóng viljum við hafa eftir Öm Helgason um þann atburö er þrír Islendingar, Jón Leifs, Guðmundur Kamban og Kristján Albertsson, fóru á fund þýsks prins og óskuðu eftir því við hann að hann tæki við konungdórai á íslandi. Prinsinn starfaði í áróð- ursmálaráðuneytí Goebbels. í kynningartexta frá bókafor- laginu Skjaldborg segir að í þess- ari bók sé upplýst eitt af mestu feimnismálum islenskrar sögu á þessari öld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.