Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1993, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1993, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR17. APRÍL1993 íslandsmeistaratitillinn í bridge til Siglufjarðar: Ekki hægt að halda sér frá spilunum - nánast allir í fjölskyldunni með spilabakteríuna Bridgefjölskyldan á Siglufirði með Hólshyrnuna í baksýn. Frá vinstri eru Guðrún Sighvatsdóttir, Bogi Sigurbjörnsson, Ásgrímur Sigurbjörnsson, eiginmaður Guðrúnar, Björk Jónsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Birkir Jónsson, Anton Sigurbjörnsson, Ingvi Jónsson, Steinar Jónsson og Ólafur Jónsson með son sinn Jón Kort Ólafsson. Sex fjölskyldumeðlimir sem jafnan hafa verið saman i sveit, fjórir bræður i miðið, Jón, Anton, Bogi og Ás- grímur Sigurbjörnssynir og á endunum sitja synir Jóns, Steinar og Ólafur. Fyrir aftan sést f hluta af myndar- legu verðlaunasafni Jóns. DV-myndir örn Þórarinsson „Við erum sex systkinin og það er nú svo skrítið með systur mína að hún hefur engan áhuga á bridge og spilar bara alls ekki neitt. Við hin fimm höfum öll brennandi áhuga, ég og bræður mínir fjórir, Jón, Asgrímur, Bogi og Anton,“ sagði Stefanía Sigurbjömsdóttir í samtali við DV. Hún er af landsþekktri spilaíjöl- skyldu á Siglufirði, en íjórir með- limir úr þeirri fjölskyldu gerðu sér htið fyrir um síðustu helgi og sigr- uöu á íslandsmótinu í sveitakeppni í bridge. Það afrek hefur engin sveit utan höfuðborgarsvæðisins unnið frá því farið var að keppa á íslands- mótum árið 1949. „Bræður mínir byijuðu allir ung- ir að spila bridge en ég var heldur eldri þegar ég byijaði. Ég var tölu- vert notuð sem fjóröa manneskja við spilaborðið og þannig kviknaði áhuginn smám saman hjá mér. Nú síðustu tvö árin hef ég að mestu hvílt mig frá bridgeíþróttinni en get það ekki lengur. Ég er orðin við- þolslaus aftur og ætia að hella mér í spilamennsku á ný,“ sagöi Stef- anía. Stefanía á sjálf þijá syni sem allir spila keppnisbridge. Jón bróðir hennar á 4 syni sem allir eru haldn- ir bakteríunni. Tveir þeirra, Ólafur og Steinar voru í sveit Sparisjóðs Siglufjarðar sem vann íslands- meistaratitihnn og þeir hafa und- anfarin ár verið fastamenn í ungl- ingalandshðinu. Yngri bræður þeirra, Birkir (14 ára) og Ingvar (13 ára), hafa þrátt fyrir lágan aldur spilað í hartnær fimm ár og þykja sérlega efnilegir. Eiginkona Jóns, Björk Jónsdóttir, er ásamt Stefaniu Sigurbjömsdóttur með þekktari spilakonum landsins. Jón Sigurbjörnsson var spurður að þvi hvort sigurinn hefði ekki komið þeim félögunum á óvart. „Við höfum fimm sinnum komist í 8 sveita úrsht íslandsmóts í sveita- keppni og hafnað í sætunum frá 4 til 8 í þeim mótum. Viö vorum að gæla við það fyrir mótið í ár hvort við hefðum möguleika á einhverri annarri tölu nú, en okkur dreymdi aldrei um að ná fyrsta sætinu. íslandsmótið og fermingin rákust á Þegar við fómm í undankeppni íslandsmótsins, hálfum mánuði fyrir úrshtin, fórum við með því hugarfari að taka aðeins þátt í und- ankeppninni. Ástæðan var sú að ferma átti Birki, son minn, á skír- dag. Síðan vinnum við okkur rétt til að spila í úrshtum. Það voru margir þættir sem gerðu það að verkum að viö ákváðum síðan að taka þátt í þeim. Ein ástæðan var sú að það var ekki á hreinu hver hefði átt að taka sæti okkar ef viö hefðum gefið það eftir. En meginástæðan fyrir ákvörð- uninni var hvatning Birkis, sonar míns, og einbeitni hans. Hann var harðákveðinn í því að við yröum með og sagðist vel geta látiö ferma sig án þess aö viö kæmum þar nokkuö nærri. Hann var alveg grimmur á þvi aö í úrshtum ís- landsmóts áttum viö að vera en ekki við fermingu hans. Þaö hjálp- aöi mikiö og við höfðum þaö á til- finningunni að við værum aö spila fyrir hann. Spilamennskan skiptimeiramáli Ég talaði við Birki nokkrum sinn- um í síma á meðan á mótinu stóð og aht umstangiö í kringum ferm- ingu hans stóð yfir. Það var greini- legt á honum að hann hafði miklu meiri áhuga á því sem við vorum aö gera en fermingunni sinni enda er hann iha haldinn af bridgebakt- eríunni þó að hann sé aðeins 14 ára gamah. Hann og bróðir hans, Ingv- ar, sem er 13 ára, eru búnir að spila bridge í 4-5 ár og því komnir með töluveröa reynslu," sagði Jón. - Það er mjög sjaldgæft aö fólk byiji aö spha bridge undir 17-18 ára aldri enda byija flestir ekki fyrr en þeir hafa náð tvítugu. Bridge er þannig íþrótt aö ekki dugir tæknin ein til, heldur þarf góður sphari að vera búinn að öðlast andlegan þroska og jafnframt þarf að beita vissri sálfræði th að ná árangri. Það eru þættir sem að jafnaði eru ekki á færi ungs fólks. Þess vegna er sjaldgæft að spilarar nái langt fyrr en þeir eru komnir vel yfir tvítugt. Siglfirska flölskyldan er hins vegar undantekningin. Vorum ekki taugatrekktir „Menn voru að tala um að það væri pressa á okkur Siglfirðingun- um í úrshtaleik síðustu umferðar við sveit Landsbréfa en ég er alveg klár á því að pressan var mun meiri á þeirra sveit enda var við því búist að þeir myndu klára dæmið en ekki við. Við höfðum stuðning annarra, það var greini- legt á andanum í salnum. Ég er alveg viss um það að þaö skiptir miklu meira máh að hafa sigurvhja, leikgleði og keppnis- hörku heldur en getu. Jafnframt er mikhvægt að virðingin fyrir sphafélaganum sé th staðar. Öh þessi atriöi voru í góðu lagi hjá okkur í mótinu.“ Sérstaða Siglufjarðar - Nú hafa löngum komið góðir spharar frá Siglufirði og þaðan komið margir af bestu sphurum landsbyggðarinnar. Hver er þín skýring á því? „Siglufjörður vaT upphaflega shdarbær og hér var unnið mikið á vissum tímum árs. Þess á mihi gafst gott næði th að sinna öðrum hugðarefnum eins og bridge. Við höfum núoröið nokkuð góðan kjama hér á Siglufirði af góðum spilurum. Það er óvenjulegt að hjá bridgefélagi Siglufjarðar em fiórir spharar undir fermingu sem keppa hjá Bridgefélagi Siglufiarðar. Þaö er mun yngra en gengur og gerist annars staðar og framtíðin er því björt hjá okkur. Ég og Ásgrímur höfum einnig lagt á okkur aö kenna undirstöðuatriðin í bridge í gagn- fraeðaskólanum hérna,“ sagði Jón. Ólafur Jónsson, einn spharanna í sveitinni á 21. ári, er sonur Jóns. „Það er ekki hægt að segja að við sphum mikið hér á Siglufirði. Við spilum á hveiju mánudagskvöldi á vetuma, sækjum helgarmót þegar tækifæri gefst th og sphum stund- um á fimmtudögum í Fljótum. Það er minna en gengur og gerist hjá þeim sem spha eitthvaö að ráði á höfuðborgarsvæðinu. Áhuginn er aftur á móti ahtaf fyrir hendi, sennhega mestmegnis vegna þess að árangur hefur náðst. Ég vona að sigur okkar á íslands- mótinu sé jákvæð skilaboð th ann- arra sveita á landsbyggöinni. Sigur okkar sannar það/að sveitir utan höfuðborgarinnar geta unnið sigur á íslandsmóti og ég vona að hann virki sem vítamínsprauta á aðrar lands- byggðarsveitir," sagði Ólafur. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.