Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994 Flosi Ólafsson. Orðinn úr- kula vonar umað draumur- inn rætist „Ég hef raunar alla ævina átt mér þann draum heitastan að þurfa ekki að hafa neitt fyrir- stafni en satt best að segja er ég orðinn úrkula vonar um að sá draumur ætii nokkurn tímann aö rætast," segir Flosi Giafsson í DV. Útúrmenntaðir fræðingar skelfa fólk „Það hagfræðiundur sem hæst ber um þessar mundir er sjávar- útvegsstefna síðustu ára. Útúr- menntaðir fræðingar hafa riðið húsum allt frá Grímsey í norðri, vestur um og allt suður á Austur- land og skelft fólk og hrakið frá heimabyggðum sínum,“ segir Sigurður Guðmundsson, formað- ur Félags smábátaeiganda, í Morgunblaðinu. Ummæli Maður verður að vita hvað maður vill „Það getur verið niðurdrepandi að fara kannski í tugi viðtala og fá ekki neitt. Það eru ekki allir sem þola það. Þess vegna er grundvallaratriðið að vita hvað maður vill, áður en farið er út í fyrirsætustörf, því manni veitir ekkert af öllum þeim viljastyrk sem maður hefur yfir aö ráða,“ segir Thelma Guðmundsdóttir fyrirsæta í DV. öskraði sig hása „Það var í fyrsta skipti í vetur sem ég öskraði mig hása og lét athuga í mér hálsinn en þaö var bara smávegis flensa. Ég get al- veg öskarð úr mér líftóruna án þess að finna fyrir því,“ segir Sig- ríður Guðlaugsdóttir, stuðnings- kona Grindavikurliðsins í körfu- bolta, í DV. Hávær ást „í stigagangi einum í íslensku fjölbýlishúsi ríkir um þessar mimdir lævi blandið andrúms- loft. Orsökina má rekja til þess að par í einni íbúðinni er svo ástríðufullt að nágrönnunum þykir meira en nóg um. Að minnsta kosti þrisvar á dag at- hafnar umrætt par sig í íbúð sinni með svo háværum hljóðum að fólkið í kring hefur hið mesta ónæði af,“ skrifar Guðrún Guð- laugsdóttir í greinaflokknum Þjóðlífsþankar í Morgunblaðinu. Gæti verið gullnáma „Fólk hefur áhyggjur af sínum eignum enda mikill taprekstur á bankanum. En þetta er þungur róður því meðal eiganda eru öflugar blokkir. Væri bankinn hins vegar skynsamlega rekinn gæti hann verið gullnáma,“ segir Pétur Blöndal í DV. Smáskúrir sunnanlands Um landið vestanvert verður norð- austanstinningskaldi eða allhvasst og éljagangur norðan til en dálítil Veðriðídag slydduél eða smáskúrir sunnan til. Austan til verður norðaustankaldi eða stinningskaldi og víða slydda eða snjókoma fram eftir morgni. Síðan verður norðaustankaldi og skúrir eða slydduél norðaustanlands. Suð- austan til verður norðaustangola eða kaldi og úrkomulítið upp úr hádegi. Hiti verður svipaður áfram. Á höfuð- borgarsvæðinu verður norðaustan- kaldi eða stinningskaldi. Smáskúrir eða dálítil slydduél. Sólarlag í Reykjavík: 21.35. Sólarupprás á morgun: 5.14. Síðdegisflóð í Reykjavík 18.53. Árdegisflóð á morgun: 07.14. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri snjóél -2 Galtarviti snjókoma -3 Kefla vikurflugvöllur skýjað 1 Kirkjubæjarklaustur skýjað 3 Raufarhöfn snjókoma -1 Reykjavík snjókoma 1 Vestmannaeyjar úrkoma 2 Bergen skýjað 8 Helsinki alskýjað 9 Kaupmannahöfn þokumóða 8 Ósló skýjað 9 Stokkhólmur rigning 7 Þórshöfn alskýjað 6 Amsterdam rigning 10 Barcelona skýjað 14 Berlín þokumóða 11 Chicago skmggur 19 Feneyjar þokumóða 11 Frankfurt þokumóða 9 Glasgow hálfskýjað 8 Hamborg léttskýjað 8 London skýjað 12 LosAngeles léttskýjað 12 Lúxemborg skýjað 4 Madríd léttskýjað 6 Malaga léttskýjaö 11 MaUorca skýjað 8 Montreal skúr 7 New York skýjað 8 Nuuk snjókoma -2 Oriando heiðskírt 21 París rigning 11 Róm skýjað 14 Valencía léttskýjað 11 Vín skýjað 16 Washington heiðskirt 18 Winnipeg léttskýjað 0 Haukar-Víkingur Eftir leik Hauka og Víkings í handbolta, sem háður verður í kvöld, verður ljóst hvort þessara Hða leikur um íslandsmeistara- titilinn í ár en bæði hðin hafa unnið sinn leikinn hvort. Haukar unnu sinn á sínum heimavelli á Íþróttiríkvöld Strandgötunni í Hafnarfirði og Víkingm- sinn í Vikinni. Það hef- ur komið í Ijós að heimavöllurinn hefur mikið að segja i hinni hörðu úrslitakeppni og deildarmeistar- ar Hauka hafa þar vinningimi í kvöld. Skák PCA - samtök Kasparovs og Shorts - stóðu fyrir miklu atskákmóti í Moskvu sem lauk um helgina. Sigurvegari varð Indverjinn Viswanathan Anand sem vann Rússann Vladimir Kramnik í úr- slitaeinvígi. Teflt vai- í sjálfri Kreml. Viktor Kortsnoj tefldi í fyrsta skipti í Rússlandi síðan Sovétríkin liðu undir lok. Hann hafði aldrei fyrr komið til Kremlar. „Mér liður eins og ég sé aö stinga höfðinu í gin ljónsins,” sagði hann. Hér er staða frá mótinu. Anand hafði svart og átti leik gegn Ivantsjúk sem drap síðast biskup á c4 og vonast nú til þess að drottning, riddari og peð gefi honum mótvægi gegn drottningu og hrók svarts. Hvað leikur Anand? Ásmundur Pálsson, í; "i í bridge „Ég hef líkast til byijað keppni í bridge i kringum 1960, en var búinn að spila lengi áður, og hef meira og minna tekið þátt í keppnum síð- an“ segir Ásmundur Pálsson sem á nýafstöðnu íslandsbankamóti i tvi- menningi varð íslandsmeistari ásamt Karli Sigurhjartarsyni, en Ásmundur er einn sigursælasti bridgemaður Islendinga frá upp- hafi og er meistaratitill hans i tví- menningi sá áttundi í röðinni og Maðux dagsins hefur enginn annar orðið jafn oft íslandsmeistari í þessari grein. Auk þess hefur Ásmundur verið níu sinnum íslandsmeistari í sveitakeppni og margoft keppt fyrir íslandshönd á erlendum vettvangi. Ásmundur sagði að hann og Karl hefðu ekkert undirbúið sig sérstak- lega fyrir þetta mót: „Viö höfum ekki spilaö mikið saman að undan- Asmunaur eaisson. förnu en á árum áður spiluðum við mikið saman bæði í tvimenningi og í sveitakeppni. „Við bara lásum okkar kerfi og mættum síðan í mótiö.“ Ásmundur, sem hefur starfað í tæp þrjátíu ár hjá Skeljungi hf., sagði aöspurður að bridge hefði ávallt verið sitt aðaláhugamál og hefði hann haft lítinn tíma til að sinna öðrum áhugamálum. En hvaö finnst honum um getu Islend- inga í bridge í dag? „Framfarimar hafa orðið miklar síðan ég byrjaði keppni og áhugi unga fólksins hef- ur aukist til muna. Þá er einnig æft mun meira en áður, en bridge var og verður mjög tímafrekt áhugamál ef fólk ætlar sér að stunda keppni. Hjá mér tók það mun meiri tíma þegar ég var yngri. Þá var maður að reyna aö breyta og brydda upp á einhverju nýju, nú orðið fórna ég ekki miklum tima i spiliö." Um hvað nú tæki við sagði Ás- mundur að hann væri alveg hættur að vera með framtíöarplön, það yrði bara að koma í ljós hvert fram- haldið yrði. Eins og staöan er nú er engin keppni framundan: „En ég held áfram að spila meðan ég hef gaman af.“ -HK 8 7 6 5 4 3 2 1 28. - Da7! 29. Dxa7 Hxa7 Biskupinn á C4 hlýtur nú að falla og eftir drottninga- kaupin á svartur „tekmskt” unnið tafl. 30. Hel Hxc4 31. Rd6 Hc2 32. Rf5 Ha8 33. a3 Hc3 og hvítiu- gafst upp. Bridge I W/ 11 1 AWa A A 11 S ABCDEFGH Úrslitin í íslandsbankamótinu í tví- menning voru dramatísk í meira lagi. Ásmundur Pálsson og Karl Sigurhjartar- son voru búnir að vera í forystu allan síðari hluta mótsins og höfðu nokkra for- ystu fram yfir næstu pör áður en lokaum- ferðin hófst og því góðar líkur á að þeir næðu titlinum. En úthtið var ekki bjart eftir fyrsta spihð í síðustu lotunni hjá Ásmundi og Karli því mistök í spilinu kostuðu þá fjölmörg stig. Andstæðingar þeirra í síðustu umferð voru Bjöm Theó- dórsson og Kristján Blöndal. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og enginn á hættu: ♦ K32 V D63 ♦ 1074 + ÁK86 * G1065 V Á104 ♦ K853 + 52 ♦ Á4 V K9 ♦ ÁD92 + G10974 Norður Austur Suður Vestur Bjöm Ásmund- Kristján Karl ur 1+ Pass 3 G p/h Karl valdi að spila út hjartaflmmunni og Kristján setti htið úr blindum og drap tiu Ásmundar á kóng. Hann renndi síöan niður fimm laufaslögum og henti tígul- fjarkanum í blindum. Karl henti einu hjarta í laufm. Kristján ákvað síðan að staðsetja hjartaásinn hjá Karh og spilaði þjartaníunni. Karl setti htið spii, drottn- ing úr blindum og Ásmundur drap á ás- inn. Ásmundur spilaði eðlilega hjarta til baka og Karl tók af slysni vitlausan gosa af hendinni, þ.e.a.s. tígulgosann. Hann var spuröur að því hvort hann ætti ekki til hjarta og þá vom htarsvikin leiðrétt. Karl lét hjartagosann þess í stað, en varð, samkvæmt lögum sem gilda um refsispil, að spila tígulgosanum næst. Kristján henti tígultíunni úr blindum og átti slag- inn á tíguldrottningu. Hann tók síðan ÁK í spaða og svínaði síðan tíguiníunni til þess að fá ellefta slaginn sem gaf mjög góða skor. Mistökin komu ekki að sök þegar upp var staðið, Ásmundur og Karl enduðu með 184 stig og næsta par með 183 stig. ^ JJMtW V G8752 ♦ G6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.