Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1994, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1994 19 íþróttir --------— Arnór Guðjohnsen leikur hér á markvörð Malmö og skömmu siðar lá knötturinn í netinu. Arnór átti stórleik eins og félagi hans Hlynur Stefánsson og Örebro vann stórsigur, 4-1. Simamynd Stig Sænska knattspyman: Arnór og Hlynur fóruákostum - Amór skoraði tvö og Örebro á toppnum Eyjólfur Haröarson, DV, Örebro: íslensku landsliðsmennirnir Amór Guðjohnsen og Hlynur Stefánsson fóru hreinlega á kostum með liði Örebro í gær þegar liðið vann 4-1 sigur á Malmö í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í Örebro að viðstöddum 9.000 þúsund áhorfendum. Arnór útnefndur besti leikmaður vallarins Amór, sem lék í framlínunni, skor- aði tvö mörk í leiknum og var út- nefndur besti maður vallarins í leiks- lok og Hlynur var maðurinn á bak við flestar sóknir Örebro í leiknum. Örebro hafði 3-0 yfir í hálfleik og skoraði Arnór 2. og 3. mark liösins. Það fyrra eftir fyrirgjöf sænska U-21 árs landsliðsmannsins Matthiasar Jonssonar og það síðara eftir langt útspark markvarðar Örebro þar sem Arnór lék skemmtilega á varnar- menn Malmö og síðan markvörðinn. Mæta Gautaborg um næstu helgi Á blaðamannafundi eftir leikinn sagði Arnór að ef Örebro næði stigi eða tækist að leggja Gautaborg að velli um næstu helgi væri hægt að tala um góða möguleika á meistara- titlinum. Hann sagði ennfremur að þetta hefði verið hans besti leikur með Örebro frá upphafi. Sven Dalq- vist, þjálfari Örebro, sagði að eins og liðið léki núna væri það eins og gull- lið og ef þaö héldi áfram á sömu braut yrði það meistari. Gautaborg tapaði á heimavelli fyrir Frölunda, 1-2, og Norrköping vann 3-2 sigur á AIK. Örebro er í efsta sæti deildarinnar meö 41 stig, Gauta- borg hefur 39 stig en á leik til góða og sömuleiðis Malmö sem hefur 38 stig. Norrköping er síðan með 36 stig. Evrópukeppnin í körfuknattleik: Tæpt hjá Grindavík - sigraöi Borás í Sviþjóð, 97-105, en tapaði samanlagt með 4 stigum EyjóKur Harðarson, DV, Svíþjóð: Grindvíkingar féllu út úr Evrópu- keppninni í körfuknattleik með sóma á laugardaginn þegar þeir unnu M7 Basket, 97-105, í síðari viðureign lið- anna sem fram fór í Borás. Svíamir unnu fyrri leikinn í Grindavík, 108-96, og sigruðu því með fjórum stigum samanlagt. Grindvíkingar, sem voru yfir alían seinni hálfleik eftir 55-55 í hléi, áttu undir lokin möguleika á að komast áfram. Þeir voru yfir, 95-105, þegar 6 sekúndur voru eftir og fengu inn- kast. Þeir urðu að gera 3ja stiga körfu, og hana átti Guðjón Skúlason að gera, en hann rann tÚ, missti bolt- ann, og Svíamir brunuðu upp og skomðu síðustu körfu leiksins. „Ég er ánægður með að vinna á útivelli, en við áttum að vinna heimaleikinn og gátum líka sigrað hér með meiri mun. Nýtingin á 3ja stiga skotunum var ekki nógu góð,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir leikinn. Guð- mundur Bragason sagði að úrslitin sýndu að íslenskur körfubolti væri á uppleið. Þjálfari M7, Eyvind Möstl, afsakaði ósigurinn með ýmsu móti. „Margir minna manna kvefuðust á íslandi og aðrir voru meiddir," sagði hann. Joe Wright og Guðmundur Braga- son voru bestir Grindvíkinga og Guðjón gerði fimm 3ja stiga körfur. Bandaríkjamennirnir Jim McCoy og Heimsbikarinn í frjálsum: Afríka og Evrópa stóðusigbest Afríka sigraði í karlaflokki og Evr- ópa í kvennaflokki í heimsbikar- keppninni í frjálsum íþróttum sem lauk á Crystal Palace leikvanginum í London í gærkvöldi. Sigur Afríku var sögulegur fyrir þær sakir að þar voru nú í fyrsta skipti keppendur frá Suður-Afríku innanborðs. Afríka fékk 116 stig, Bretland 111 og Ameríka 95 stig í karlaflokki. Það voru hlauparar á borð við Khalid Skah, Nourredine Morceli, Moses Kiptanui og Frankie Fredericks sem lögðu grunninn að sigrinum. Evrópa fékk 111 stig og vann kvennakeppnina í fyrsta skipti í 17 ár. Ameríka fékk 98 stig og Þýska- land 79. Rússnesku konumar með Irinu Privalovu fremsta í flokki voru atkvæðamestar hjá Evrópuliðinu. Bandaríkjamenn urðu neðstir í karlakeppninni. Þeir fengu talsverð- ar ákúrur fyrir að senda ekki sína sterkustu keppendur í sufmum grein- um og gætu misst þann sjálfkrafa þátttökurétt sem þeir hafa haft í keppninni til þessa. Agassi og Sanchez unnu Andre Agassi og Arantxa Sanchez sigruðu í karla- og kvennaflokki á opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem lauk í gær. Agassi vann sigur á Þjóðveríanum Michael Stich í úrslitaleik, 6-1,7-6 og 7-5, og Sanc- hez Vicario sigraði Steffi Graf frá Þýskalandi í kvennaflokki, 1-6, 7-6 og 6-4. Þetta vom fyrstu sigrar Ag- assi og Sanchez á bandaríska meist- aramótinu og Sanchez varð fyrsta tenniskonan frá Spáni til að vinna sigur í einliðaleik kvenna í 108 ára sögu mótsins. „Þetta er ánægjulegasti dagur í lífi mínu og um leið minn stærsti sigur til þessa. Þó svo að margir vilja meina að ég sé besti tennisleikarinn í kvennaflokki í dag er ég enn í öðm sæti á eftir Graf á heimsafrekalistan- um svo ég get ekki sagt um það hver er best,“ sagði Sanchez eftir sigurinn en fyrir sigurinn fékk Sanchez í sinn hlut um 38 milljónir. Drex Baldvin vom allt í öllu hjá M7 og gerðu 51 stig samtals. Stig Grindavíkur: Joe Wright 29, Guðmundur Bragason 25, Guðjón Skúlason 23, Helgi Guðfmnsson 8, Nökkvi Már Jónsson 8, Bergur Eð- valdsson 7, Marel Guðlaugsson 3 og Pétur Guðmundsson 2. GLIMUDEILD Æfingar byrja þann 13. septemb- er í íþróttasal Austurbæjarskóla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.00 til 20.30 og föstudaga kl. 18.00 til 19.50. Æf- ingagjöld kr. 3.000 fyrir imglinga og kr. 5.000 fyrir fullorðna. Ungir sem gamlir velkomnir til iðkunar á alíslenskri íþrótt. íþróttaskórnir frá DANGO Skólaskór úr leðri á góðu verði Tennis: St. 35 til 46 Verð frá 2.790 Flass: með ljósi Dango skólaskórnir sem lýsa í skammdeginu Flass: St. 25 til 39 Verð frá kr. 2.790 Dakar: St. 35 til 46 Verð frá 2.990 Útsölustaðir: Reykjavík: RR skór, Kringlunni 8-12, Á fætur, Kringlunni 8-12, Smáskór, Skóstofan Eiðis- torgi, Skómarkaðurinn, Glæsiskórinn, Bónusskór, Innrömmun og hannyrðir. Hafnarfjörður: Fjölsport, Skóhöllin, Grindavík: Málmey. Þorlákshöfn: Stoð. Borgarnes: Borgarsport. ísafjörð- ur: Skóhornið. Hvammstangi: Kf. V-Húnvetninga. Ólafsfjörður: KEA. Akureyri: Sportver, Skó- húsið. Raufarhöfn: Verslf. Raufarhafnar. Þórshöfn: Kf. Langnesinga. Vopnafj.: Kf. Vopnfirð- inga. Egilsstaðir: Kf. Héraðsbúa. Reyðarfjörður: Kf. Héraðsbúa. Neskaupstaður: Kf. Fram. Fáskrúðsfjörður: Kf. Fáskúðsfj. Stöðvarfjörður: Kf. Stöðfirðinga. Breiðdalsvík: Kf. Stöðfirð- inga. Djúpivogur: KASK. Höfn: KASK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.