Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1995, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 23. MARS 1995 33 arson, landsliðsþjálfarar i handknattleik, munu hafa i nógu að snúast þessar >ins 1 handknattleik fyrir HM að hefjast: nn nýliði dshðshópi sem valinn var í gær verða leiknir tveir óopinberir leikir við Dani. Áður en haldið verður til Danmerkur verða tveir leikir við Japani hér á landi. Síðustu tveir leik- irnir verða við Austurríki hér heima í lok apríl. Birgir kominn aftur Birgir Sigurðsson, línumaðurinn snjalli hjá Víkingi, er kominn aftur í landsliðshópinn eftir aö hafa tekið sér frí en 21 manns hópurinn, sem Þorbergur valdi í gær, er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Markverð- ir eru Bjarni Frostason, Haukum, Guðmundur Hrafnkelsson, Val, Rondey Robinson, Njarðvík, ber höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í stigaskori í úrslita- keppninni í körfuboltanum. Hann er langstigahæstur, hefur skorað 165 stig, eða 27,5 að meðal- tali í leik, og er með besta meðal- skorið af þeim sem komust í und- anúrslitin. Þessir hafo skoraö mest í úrslitakeppninni: Rondey Robinson, Njarð.165/6 27,5 Alex Ermol, Skallag....107/5 21,4 TeiturÖrlygsson,Njarð..U6/6 19,3 LenearBums.Keflavík.. 88/5 17,6 Guðm.Bragason.Grind.. 84/5 16,8 TómasHolton/Skallagr.. 82/5 16,4 ' Guöjón Skúlason, Grind. 78/5 15,6 Albert Óskars, Keflavík.. 77/5 15,4 Þessir skoruðu mest af þeim sem féilu út í 8-liða úrslitum: Herbert Arnarson, ÍR... 62/2 31,0 MiltonBell/líR......... 68/3 22,7 ÖskarPéturs,Haukum... 42/2 21,0 KristinnFriöriks.Þór... 40/2 20,0 Pétur Ingvars, Haukum., 36/2 18,0 Bergsveinn Bergsveinsson, Aftureld- ingu, og Sigmar Þröstur Óskarsson, KA. Aðrir leikmenn eru Konráð Olavsson, Stjörnunni, Gunnar Bein- teinsson, FH, Júlíus Jónasson, Gum- mersbach, Héðinn Gilsson, Dusseld- orf, Patrekur Jóhannesson, KA, Ein- ar Gunnar Sigurðsson, Selfossi, Jón Kristjánsson, Val, Dagur Sigurðsson, Val, Sigurður Sveinsson, Víkingi, Ólafur Stefánsson, Val, Jason Ólafs- son, Aftureldingu, Valdimar Gríms- son, KA, Bjarki Sigurðsson, Víkingi, Geir Sveinsson, Val, Gústaf Bjama- son, Haukum, Róbert Sighvatsson, Aftureldingu, og Birgir Sigurðsson, Víkingi. Gróttaí 1. dejldina Grótta fylgir ÍBV upp i 1. deild karla í handknattleik eftir sigur á Þór, 23-16, í úrslitakeppni 2. deildar í gær. Jón Örvar Kristins- son og Einar Jónsson gerðu 5 mörk hvor fyrir Gróttu en Sævar Árnason skoraði 9 fyrir Þór. Fram tapaöi fyrir Fylki. 24-25. Gunnar .Kvaran skoraði 6 mörk fyrir Fram Magnús Baldvinsson 10 fyrir Fylki. í Kópavogi unnu Eyjamenn sig- ur á Blikum, 29-31. Guðjón Hauksson og Sigurbjörn Narfa- son gerðu 7 mörk hvor fyrir Blika en Erlingur Richardsson var með 7 mörk fyrir ÍBV og Sigurður Friðriksson 6. ÍBV...... 8 8 0 0 211-186 16 Grótta... 9 6 1 2 200-185 15 Fram..... 9 2 1 7 176-186 9 Breiðablik. 9 3 1 5 221-211 8 Fylkir... 8 3 2 3 178-191 8 ÞórAk.... 9 1 1 7 196-223 3 fþróttir Brian Clough, fyrrum stjóri Forest: Liggur undir grun Gísli Guðmundsson, DV, Englandi: Brian Clough, fyrrum fram- kvæmdastjóri enska knattspymufé- lagsins Nottingham Forest, er grun- aður um að hafa hagnast sjálfur um rúmar 16 milljónir króna á kaupum félagins á Þorvaldi Örlygssyni og Hollendingunum Franz Thijssen, Hans van Breukelen og Johnny Metgod. Reikninga fyrir þessum 16 milljón- um vantar í bókhald Forest, sam- kvæmt skýrslu sem félagið sendi enskum skattayfirvöldum. Til stóð að halda málinu leyndu en bresk dagblöð Ijóstruðu því upp um helgina og í framhaldi af því mun þriggja manna nefnd enska knattspymu- sambandsins rannsaka málið. Að auki þykja kaup Forest á Lee Chapman frá Frakklandi á svipuðum tíma grunsamleg og ennfremur er veriö að kanna hvort greiðslur fé- lagsins til unglinga og foreldra þeirra hafi veriö ólöglegar, sem og fyrir- greiðslur fyrir Stuart Pearce og Viv Anderson vegna húsakaupa. KA fékk rúmar 15milljónir Samkvæmt skýrslunni kostaði Þor- valdur 17,5 milljónir króna en í pappírum með atvinnuleyfi hans var sagt að KA hefði fengið 15,1 milljón. Þar með vantar 2,4 milljónir og lík- legast er talið að þær hafi runnið í vasa Cloughs. DV haíði samband við Nottingham Forest í gær en fékk þau svör að varaforseti félagsins væri sá eini sem gæti sagt eitthvað um málið og hann yrði ekki við í þessari viku. Hjá enska knattspyrnusambandinu vörðust menn einnig allra frétta og sögðu aðeins að máhð væri í rannsókn. Ekki var við neitt athugavert Stefán Gunnlaugsson, þáverandi formaður knattspymudeildar KA, sagði við DV í gær að samningar fé- lagsins við Forest hefðu verið ein- faldir og gengið vel fyrir sig og eng- inn umboðsmaöur hefði komið þar nærri. „Clough kom hvergi nærri samn- ingunum. Ronnie Fenton, aðstoðar- maður hans, sá alfarið um þá og kom að lokum hingað til Akureyrar til að ganga frá þeim. Ég yarð hvergi var við neitt athugavert hjá þeim og hvað okkur varðar voru öll mál á hreinu," sagði Stefán. Snertir mig ekki „Þaö er verið að skoða allt bókhaldið hjá Forest og alla flutninga á leik- mönnum sem Clough kom nálægt og þá aðallega þá erlendu leikmenn sem komu til félagsins. Þetta snertir mig ekki neitt og kemur mér raunar ekk- ert við. Það hefur ekkert verið rætt við mig um þetta einstaka mál og verður ekki,“ sagði Þorvaldur Ör- lygsson í samtah við DV. Starríbjörgun Grinistinn Freddie Starr, sem margir þekkja úr þáttum hans á Stöð 2, ætlar að leggja fram fé til að forða enska knattpspymufé- laginu Gillingham frá gjaldþroti. Deportivoáfram Ðeportivo Coruna er kotnið í undanúrslit spænsku bikar- keppninnar i knattspyrnu eftir 0-0 jafiitefli við Bilbao í fyrra- kvöld. Deportivo vann íyrri leik- inn, 3-0. Celticíþriðjasæti Celtic komst í þriðja sæti skosku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í fyrrakvöld með 0-1 sigri á Kilmarnock. Dundee Un- ited og Hearts skildu jöfn, l-i. Vinimíaukakeppni Danska handknattleiksliðiö Virum, sem Auöur Hermanns- dóttir og Hulda Bjamadóttir leika með, þarf að fara í aukakeppni um áframhaldandi sæti í 1. deild eftir að hafa endaö í 10. sæti af 12 liöum. ÞórirkyrríEyjum boreteinn Gurtnarsson, DV, Eyjum: Þórir Ólafsson leikur áfram með ÍBV i knattspymunni í sum- ar og fer ekki aftur til sænska liösins Wástervik sem vildi fá hann til sín á ný. Kristinn þjálfar dómara Knattspymudómarar æfa stíft fyrir sumarið þessa dagana, þrisvar í víku undir, stjórn Krist- ins Björnssonar, þjálfara kvenna- landsliðsins. Réttaðídag Knattspyrnumennimir Eric Cantona og Paul Ince mæta fyrir rétti í dag vegna atviksins í vetur þegar Cantona sparkaði í áhorf- anda og Ince er sagður hafa beitt hnefum. Þeir gætu átt yfir höfði sér allt aö sex mánaða fangelsi. Simmonslíka? Mattíievv Simmons. áhorfand- inn sem varð fyrir árás Cantona, gæti fengið sama dóm vegna framkomu sinnar. HaHdóraetnilegust Halldóra Þorgeirsdóttir úr Ægi var vahn efnilegust kvenna á inn- anhússmeistaramótinu í sundi um síðustu helgi. Það voru þjálf- arar iíðanna á mótinu sem stóðu að valinu. Örnþjáköriunum Örn Arnarson frá Sundfélagi Hafnarfjaröar þótti efnilegastur í karlaflokki en hans aðalsund- grein er baksund. AfrekshópurSSÍ Arekshóp sundsambandsins skipa þau Eydís Konráðsdóttir, Elín Sigurðardótth', Arnar Freyr Ólafsson, Magnús Már Ólafsson, Magnús Konráðsson og Logi Jes Kristjánsson. Eftir mótið í Eyjum bættust í þennan hóp þeir Sigttr- geir Hreggviðsson og Óskar Örn Guöbrandsson. Cooperídái David Cooper, fyrrum leikmað- ur Rangers og skoska landshðs- ins í knattspyrnu, hggur í dái á sjúkrahúsi í Glasgow og er tví- sýnt um líf hans. Cooper, sem er 39 ára, dátt niður i gær á æfingu hjá Clydebank, þar sem hann er þjálfari, og í jjós kom að um heilablæðingu var að ræða. NB A-deildin í nótt: Jordan betri „Þetta var aht í lagi, ég var dáhtið afslappaðri í þessum leik,“ sagði Michael Jordan eftir aö hafa sphað vel og skorað 27 stig í góðum útisigri Chicago í Boston í nótt, 107-124. Þetta var annar leikur hans eftir endurkomuna. Skotnýting hans var mun betri en gegn Indiana, 53 prósent utan af vehi og 100 prósent af vítalín- unni. Úrshtin í nótt: Atlanta - Miami......... 84-98 - Willis 24/18. Boston - Chicago.......107-124 Douglas 23, Wilkins 20 - Jordan 27, Pippen 18. Cleveland - Sacramento ...101-89 Price 23 - Indiana - LA Clippers...107-103 Miller 36, Smits 19/11 - Richardson 24, Vaught 2Z/10. New Jersey - San Antonio. 85-102 Gilliam 21/14 - Robinson 22, Del Negro 19. Philadelphia - G. State.119-102 J. Malone 28 - Minnesota - Dallas..... 96-99 Laettner 26 - Mashbum 25, Tarp- ley 20. Utah - Denver..........103-91 Malone 23, Homacek 18, Stockton 16 - Abdul-Rauf 22. LA Lakers - Portland....121-114 Campbell 32, Divac 21/10, Van Exel 18 - Robinson 27, Thorpe 27/14. Indiana náði Charlotte á toppi miðriðilsins með naumum sigri á botnliði Chppers. Reggie Miher skoraði 13 stig fyrir Indiana í síð- asta leikhluta. Utah náði Phoenix á toppi vest- urdeildarinnar og tryggði sér sig- ur á Denver með því að skora síðustu 10 stigin í leiknum. Jeff Malone lék á ný með Philadelphia eftir að hafa misst úr 41 leik vegna meiösla og var í aðalhlutverki gegn Golden State. Miami vann sinn fyrsta deilda- leik í Atlanta og Kevin Wilhs, fyrrum leikmaður með heimahð- inu, átti stóran þátt í því. Sögusagnir eru um að Booker hafi kjaftað frá: „Tóm vitieysa" Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjunu Eftir stórsigur Keflvíkinga í þriðja undanúrshtaleiknum í körfuboltan- um sem fram fór í Grindavík í fyrra- kvöld komst sá kvittur á kreik að Franc Booker, sem rekinn var frá Grindavík eftir fyrsta leik úrshta- keppninnar, hefði látið Jón Kr. Gísla- son, þjálfara Keflavíkur, hafa öh leikkerfi Grindavíkurliðsins. „Það þarf engan Booker tíl aö hjálpa mér að finna leikkerfi þeirra. Það hefur enginn haft samband við mig og ef það kemur á óvart að við séum að spha mjög góöan varnarleik, vh ég benda á það að við eigum 8 leiki með Grindavíkurhðinu á mynd- böndum, sem ég hef skoðað ítar- lega,“ sagði Jón Kr. Gíslason. „Ég hef heyrt þetta, en ég efa ekki að Jón kunni öU okkar leikkerfi. Booker gæti hins vegar hafa bent honum á einhverja punkta sem Jóni hefur yfirsést. Ef þetta er rétt er þetta mjög leiðinlegt mál. Booker er búinn að segja að hann beri engan kala th Grindavíkurhðsins. Þá er sá oröróm- ur uppi aö hann hafi sagt liðsstjóra Keflavíkur allt um okkar erlenda leikmann,“ sagði Friðrik Ingi Rún- arsson, þjálfari Grindvíkinga. „Ég vísa svona sögum algjörlega á bug og þetta er tóm vitleysa. Ég er atvinnumaður í greininni og myndi aldrei gera svona lagað. Ég á marga góða félaga í Grindavíkurhðinu og Jón Kr. þarf ekki á mér að halda enda á hann myndbönd af leik hðs- ins. Það er mjög leiðinlegt að svona kjaftasaga hafi farið á kreik,“ sagði Franc Booker. Fjórði leikur hðanna fer fram í Keflavík í kvöld. Heimamenn eru 2-1 yfir og geta tryggt sér sigur í einvíg- inu og réttinn tíl að spUa til úrshta við Njarðvík um meistaratitilinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.