Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 Fréttir /■ DV Fæðmgarheimilið vandræðabam í heilbrigðiskerfinu: Tvisvar lokað þrátt fyrir tugmilljóna endurbætur Styrr hefur staöið um rekstur Fæðingarheimilis Reykjavíkur við Þorfinnsgötu undanfarin ár og hefur starfseminni verið hætt um lengri eða skemmri tíma samtímis og end- urbætur hafa verið unnar á hús- næðinu fyrir tugi milijóna króna. Segja má að Fæðingarheimilið hafi verið vandræðabam í heilbrigðis- kerfinu því að heimilið hefur ýmist veriö opnað eða því lokað eftir hent- ugleikum. Fæðingarheimilinu var síðast lokað í sumar eftir að hafa verið opið frá áramótum en nú er til umræðu innan Ríkisspítala að leggja það niður í spamaðarskyni. Fæðingarheimih Reykjavíkur var stofnað á afmælisdegi Reykjavíkur- borgar í ágúst árið 1960. Friður ríkti um starfsemina fyrstu áratugina og áttu sér þar stað um 1000 fæðingar á ári. Á níunda áratugnum var opnuð skurðdeild á fyrstu og annarri hæð hússins við Þorfinnsgötu en vorið 1989 var skurödeildinni lokað og í árslok sama ár var húsnæðið leigt til lækna. Á 30 ára afmæli borgarinn- ar og Fæðingarheimilisins fékk heimilið að gjöf styttu af móður og barni frá borginni ásamt munnleg- um yfirlýsingum stjómvalda um að rekstur heimilisins væri nú kominn til að vera. Nú skyldi ríkja friður um Fæðingarheimilið. í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1992 var lagt til að Fæðingarheimilið yrði lagt niður en þau áform komust ekki til framkvæmda. Starfsmönnum heimilisins var þó sagt upp störfum í ársbyxjun 1992. Landspítalinn yfir- tók Fæöingarheimilið árið 1992 og var rekstrarfé þá skert verulega. Hætt var að taka á móti bömum á heimilinu, meðal annars vegna þess aö ekki fékkst fjárveiting fyriflaun- um læknis. Konur mótmæltu þessu á útifundi við Fæðingarheimilið í desember 1992. Endurbætur aftur 1993 Sumarið 1993 var Fæðingarheimil- ið rekið sem hluti af Kvennadeild Landspítalans og var tíu rúma sæng- urlegudeild við Þorfinnsgötuna. Um svipað leyti tókst samkomulag milh borgaryfirvalda og stjómarnefndar Ríkisspítala um leigu á húsnæðinu til Landspítalans án endurgjalds gegn því aö fæðingaraðstaða yrði rekin á heimilinu meðan samningur- inn væri í gildi eða fram til ársins 2003. Dráttur varð á því til ársloka 1993 að Fæðingarheimilið yrði opnaö á nýjan leik og'var sú skýring gefin að gera þyrfti endurbætur á hús- næðinu tll að hægt væri að hefja þar starfsemi. Endurbætur vora unnar árið 1993 fyrir að minnsta kosti 14 milljónir króna. Um áramótin 1994 til 1995 opnaði Fæðingarheimihð með pompi og pragt en var lokað aft- ur í sumar og er nú fullkomlega óljóst hvort tekið verður á móti böm- um aftur í húsnæði Fæðingarheimh- isins. -GHS Daitíel Ólafason, DV, Akraneai: Slátrun hófst 18. september í Slát- urhúsi Sláturfélags Suðurlands við Laxárbrú, skammt frá Akranesi. Að sögn Hallfreðs Vhhjálmssonar sláturhússtjóra verður slátraö þar um 15.000 íjár sem er svipaö og var í fyrra. Þá var slátrað 15.500 íjár. Um 40 manns starfa við slátur- húsið og stendur vertíðin yfir í 6 vikiir. Hallfreður sagðist ekki sjá nein merki þess að slátrun yrði hættínáinni framtíð við Laxárbrú. - vandræöabam í heilbrigöiskerfinu - 1960 Fæðingarheimilið stofnað. Apríl 1989 Skurðdeild lokað í átta mánuði. Desember 1989 1. og 2. hæð leigð til lækna. Fæðingaraðstaða á 3. og 4. hæð. 1991 Fæðingarheimilinu breytt fyrir 10 milljónir. Október 1991 í fjárlagafrumvarpi lagt til að heimilið verði lagt niður. Janúar 1992 Starfsmönnum sagt upp. Apríl 1992 Rekstrarfé skert verulega og Landspítali yfirtekur Fæðingarheimilið. Enginn læknir og hætt að taka á móti börnum. Heimilið rekið sem sængurkvennadeild. Konur mótmæla með svörtum borða. Mars 1993 Tíu rúma sængurlegudeild opin yfir sumarið. Samkomulag milli borgaryfirvalda og stjórnarnefndar Ríkisspítala um leigu á húsnæðinu til Landspítalans án endurgjalds gegn því að fæðingaraðstaða verði rekin á heimilinu næstu tíu árin. 1993 Endurbætur á heimilinu fyrir 14 milljónir. Desember 1994 Fæðingarheimilið opnað. Sumarið 1995 Fæðingarheimilinu lokað, hugsanlega til frambúðar. Borgaryfirvöld mótmæla. í dag mælir Dagfari______________________ Álfarnir ráða ferðinni Vegagerðin hefur verið að leggja nýjan veg vestur í Dölum. Það er í sjálfu sér ekki frásagnar vert, nema vegna þess að nú eru verkfræðing- amir hjá Vegageröinni hættir að ákveða vegastæðið og í staðinn hafa álfar tekið að sér það verk. Raunar vora verkfræðingamir búnir að ákveða lagningu vegarins og búnir að leggja veginn vestur við Ljárskóga, þar sem svokallaðir Klofasteinar standa. En þá kom að því að tengivagn valt, bhl bræddi úr sér og mölunarvél bhaði. Fór mönnum nú ekki að standa á sama um öll þessi óhöpp og þá bárast um það skilaboð að handan aö álfamir í steinunum hefðu tekið þessari vegalagningu iha og væra að hefna sín. Var þá haft samband við Reg- ínu nokkra Hahgrímsdóttur frá Ljárskógmn og hún beðin um að ræða við álfana um hvað gera skyldi. Regína tók að sér sátta- semjarastarfið og átti viöræður við álfana í Klofasteinum, sem hún segist ekki lengur sjá en heyri ákaf- lega vel í þeim. Regína tekur það meira að segja fram að álfamir tali afskaplega góða íslensku, „þar era engar rassbögur," segir Regína. Það er annað heldur en íslenskan sem íslendingar tala og hleypir þetta auðvitað sterkari stoðum undir þá kenningu að álfar og huldufólk eru hinir raunverulega íbúar þessa lands. Þeir tala betra mál,,þeir vita hvað okkur er fyrir bestu og þeir ráða vegalagningu og mannvirkjagerð ef þeir vhja svo vera láta. Nema hvað, að álfamir senda þau skhaboð í gegnum Regínu að þeim standi svo sem á sama þótt stein- arnir séu færðir th af varfæmi en það megi ekki sprengja þá og það verði að færa veginn th. Annað sé ekki th umræðu. Vegagerðarmenn segjast ekki trúa á álfa en þeir ætla samt að taka mark á skilaboðunum og ætla að færa álfasteinana og veginn og era þar með búnir að afsala sér frekari stjóm á vegagerð í Dölunum. í sjálfu sér er það fagn- aðarefni ef verkfræðingar og lærð- ir vegagerðarmenn láta loksins af þeirri bábilju sinni að þeir einir eigi að leggja veg. í þessu landi bjuggu álfar löngu áður en menn lærðu verkfræði, hvað þá áður en vegir vora lagðir þvers og krass um landið. Álfamir búa í hólum og klettum og steinum og láta ekki neina landvinninga mannshandar- innar yfir sig ganga. Fyrr skihu ahar mölunarvélar og bifreiöar ganga ur ser og bræöa úr sér og vei þeirri vegagerð sem ætlar að hundsa búsetu álfa og huldufólks. í þessu felst mikhl spamaöur. í stað þess að senda menn út um all- ar koppagrundir th að mæla út vegastæöin verður framvegis kah- að í Regínu Hahgrímsdóttur sem sérstakan mhligöngumann álfa og Vegagerðar. Regína verður höfð á þönum um landið th sáttaumleit- ana og með því einu að Regína eigi viðræðufundi meö álfum í hinum ýmsu landshlutum sparast óhemjumikil vinna og dýr verk- fræðistörf. Álfarnir leggja línurnar og leggja vegina og vegagerðin verður óhult með tæki sín og tól og Regína stendur yfir vegagerðar- mönnnum og bendir hvar megi leggja veginn. Allt er þetta í fullu samkomulagi við stjómvöld og æðri máttarvöld og skhboðaskjóð- una hennar Regínu sem er á beinri hnu við álfheima. Regína veröur hins vegar ekki eilíf og mun senni- lega ekki lifa það lengi að mann- virkjagerð og vegalagningu verði lokiö um hennar daga og þess vegna verður Vegagerðin að vinda bráðan bug að því að koma sér upp fleiri skhaboðaskjóðum yfir í álf- heima. Réttast væri sennilega fyrir Vegagerð ríkisins að auglýsa eftir fleiri talsmönnum álfa í manna- byggð og koma sér þannig upp túlk- um og tenghiðum sem geta annað þeirri þjónustu sem álfarnir þurfa á að halda eftir að þeir hafa tekið að sér að stjórna vegalagningu um landið. Annars verða fleiri vegir ekki lagðir. Og þá er álfunum að mæta. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.