Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1996, Blaðsíða 24
32 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 Sviðsljós DV Divine tekin fyrir vændi Hollywoodhóran Divine Brown, sem varð fræg á svip- stundu fyrir að gæla við mann- dóminn á Hugh Grant í bíl hans forðum daga, var handtekin í Las Vegas á sunnudag og ákærð fyrir vændi. Divine var nöppuð á MGM stórhótelinu í agnað- gerðum lögreglunnar. Hún var einnig ákærð fyrir að streitast á móti þegar lögreglan bjóst til að jáma hana. Morissette jafnar sölumet Kanádíska söngkonan Alanis Morissette hefur náð mikilvæg- um áfanga á lífsleiðinni. Fram- leiðendur fyrstu plötu hennar hafa sent tólf milljónir eintaka í verslanir og þar með hefur söng- fuglinn jafnað met Whitney Houston. Þetta þýðir þó ekki að tólf milljónir eintaka hafl selst. Pulp enn verðlaunuð fyrir Different Class Jarvis Cocker, söngvari og aöalsprauta hljómsveitarinar Pulp, hampar hér Mercury-tónlistarverölaununum. Símamyndir Reuter Hljómsveitin Pulp, sem kom til ís- lands í sumar og hélt hér tónleika, hlaut bresku Mercury-tónlistarverð- launin fyrir lag sitt Different Class. Verðlaunin vom afhent í London á þriðjudagskvöld við hátíðlega athöfn. Pulp-menn skutu hljómsveitinni Oasis ref fyrir rass. Gallagherbræð- ur og þeirra menn höfðu vonast eft- ir að hreppa verðlaunin en þeir hömpuðu þrennum verðlaunum á Brit-tónlistarhátíðinni í febrúar. En það var Jarvis Cocker, aðalsöngvari Pulp, sem stóð með pálmann í hönd- unum í lokin. En Jarvis er alltaf sjálfum sér lík- ur. Hann var ekkert að þakka fyrir sig með hefðbundinni ræðu heldur fór hann í vangaveltur um verð- launin sem slík. „Það er þetta með verðlaun. Þó við séum mjög ánægðir að hljóta þau þá vorum við í raun búnir að fá þau þar sem svo margir hafa keypt plötuna okkar,“ sagði aðalsprauta Pulp, Jarvis. Verðlaunaféð hefði margur þakk- að fyrir að fá en Jarvis hafði engan áhuga á að stinga ávísun upp á 2,5 milljónir króna í eigin vasa. Gaf hann hana beint til samtakanna WarChild sem starfa í þágu stríðs- hrjáðra barna. Sagði Jarvis að hann hefði stofn- að til nýrra verðlauna, Pulp-verð- launanna, þar sem fyrmefnd sam- tök og Help platan, sem gefin var út vegna stríðsins í Bosníu, hrepptu hnossið. Fór einn aðalhvatamaður að gerð þeirrar plötu, Brian Eno, því heim með verðlaunagripinn. Reuter Pulp gaf verölaunin átakinu Listamenn til hjálpar stríöshrjáöum börnum. Fór talsmaöur þess átaks, tónlistarmaöurinn Brian Eno, sem reyndar var til- nefndur á hátíöinni, því ekki tómhentur heim. Aukabla5 um T0LVUR Miðvikudaginn 25. september mun aukablað um tölvur og tölvubúnað fylgja DV. Blaðið verður fjölbreytt og eínismikið en í því verður fjallað um flest það er viðkemur tölvum og tölvunotkun. í blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og vélbúnað, þróun og markaðsmál ásamt smáfréttunum vinsælu. Þeim sem vildu koma á fr amfæri nýjungum og efni í blaðið er bent á að hafa samband við Jón Heiðar Þorsteinsson í síma 550-5847 sem fyrst. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við Selmu Rut, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 550-5720. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727. Leikararnir Cameron Diaz, t.v., Vincent D’Onofio, í miðið, og Keanu Reeves faömast hér við komuna til frumsýningar myndarinnar Feeling Minnesota í Hollywood ■ fyrrakvöld en þau leika í myndinni. Fjallar myndin um bræöur sem elda grátt silfur saman. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.