Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996 Áttavitalaus á rjúpu: Ekkert vit í Skotvís, fagriti um skotveið- ar og útivist, er nokkuð fjallað um öryggismál skotveiði- manna. Þar er meðal annars flallað um alheimsstaðsetning- arkerfi sem tók við af lóran C. Skyttan er með mót- takara og því er auðvelt að miða hana út ef eitthvað kemur upp á. Þótt menn séu með þetta svokall- aða GPS-tæki verða þeir að hafa áttavita og landa- kort. Segir í tímaritinu að það að fara á ijúpu án áttavita sé eins og að fara á gæs í appel- sinugulum Max galla. Það er hægt en það er ekkert vit í því. Blys en ekki gúmmístígvél Enginn ætti að fara á fjöll án þess að hafa með sér blys, og þá helst bæði skotblys og lítil handblys. Blysin eru létt og er engum vorkimn að bera slíkt á sér. Tími gúmmístíg- vélanna og þess hátt- ar fótabúnaðar er að sögn liðinn. í dag mæla menn með mjúkum til hálfstíf- um gönguskóm. Gott er að hafa góðar nylon legghlífar tU að veijast því að snjór og bleyta komist ofan í skóna. Bíða af sér veðrið VUlist menn eiga þeir að treysta á áttavitann, sem á að vera með í for. Ef hann er ekki með og menn rammviUtir eiga þeir að koma sér fyrir og bíða af sér veðrið. Menn tapa ótrú- legri orku á því að rölta ramm- viUtir í hringi. Talstöðvarrás Talstöð á rjúpu þarf að vera létt, áreiðanleg og langdræg. Talstöðvar sem uppfyUa þessar kröfur eru því miður bannaðar af fjarskiptaeftirlitinu. Auð- veldast er að fá leyfi fyrir CB- talstöðvum en þær draga stutt, sérstaklega yfir hraun og i fjall- lendi. VHF-stöðvar eru mun behá kostur en fyrir þær þarf lokaöa rás. Þaö hefúr oft komið til tals að Skotveiðifélag íslands fái úthlutað rás svo félagsmenn geti nýtt sér hana. Enn hefur ekki orðið af því. Staðföst trú hjálpar Ef þú lendir í snjóflóöi skaltu reyna að hrópa og reyna að láta veiðafélagana vita af því hvað er að gerast. Losaðu þig viö byssu, bráð og bakpoka og hvers konar veraldlegt prjál sem hætta er á að veröi til trafala. Gerðu aUt tU að halda þér á yf- irborðinu, veltu þér og kraflaðu þig út úr flóðinu. Sundtök hafa hjálpað. Grafinn í flóðið með eyrað í snjónum heyrir þú miklu betur en mennimir fyrir ofan þig. Ekki berjast um því þannig eyðir þú bara orku og dýrmætu súrefni. Staðfost trú á björgun eykur lífslíkur og við- brögð veiðifélaga geta skipt sköpum. -sv segir Palli í Veiðihúsinu og hvetur menn til að klæða sig á réttan hátt fyrir fjallaferðirnar „Stemningin er mjög fin hjá veiði- mönnum og þeir hlákka almennt mikið tU þess að geta byrjað að skjóta," segir PaUi í Veiðihúsinu, í samtali við DV, en í dag hefst rjúpnaveiðitíminn og þá má búast við að menn fari að fjölmenna tU fjaUa. PaUi segir að þótt heimUt hafi verið að veiða gæs í nokkum tíma þá sé upphafið á rjúpnaveiðitíman- um nokkurs konar jól í skotbrans- anum. Hann segir menn þurfa að vera í nokkuð góðu formi til þess að geta elst við fúglinn og eins þurfi þeir að vera vel skóaðir og gaUaðir. Það sé ekki sniðugt fyrir mann sem ekkert hreyfí sig aUt árið að ætla sér síðan að fara að arka á fjöll. En er einhver munur á því að skjóta rjúpu og gæs? Hanga eða ekki? „Það er eins og svart og hvítt. Rjúpan er dreifð úti um aUt og þú þarft kannski að ganga fjöúin þver og endUöng tU þess að finna hana. Veiðimaðurinn situr hins vegar fyr- ir gæsinni og bíður eftir að hún fljúgi yfir.“ Aðspurður hvað taki við eftir að komið er heim með bráðina segir PaUi menn hafa ólíkar skoðanir á því hvort fuglinn þurfi að hanga eða ekki. „Eitt veit ég fyrir víst og það er að engin ástæða er til þess að láta fuglinn hanga fram að jólum eins og sumir gera. Það era kerlingabækur frá gamaUi tíð og skýrist af því að þá höfðu menn hvorki frysti né kæli. Megnið af þeim fugli sem veiðist nú 1 haust er ungur fúgl og kjötið er því meyrt og gott. Ég hef bragðað þetta aUt og frnnst best að borða hann ferskan og finnst engin ástæða tU þess að hengja hann upp. Palla í Veiöihúsinu finnst ekkert variö í aö boröa rjúpu en reynir aö veiöa sem mest af henni. Hann segist selja veiö- ina, rétt til þess aö hafa upp í hluta kostnaðarins við aö ná henni. DV-mynd Mér finnst rjúpan ekki góður matur og sel það sem ég veiði,“ segir PaUi en bætir við að algengast sé að menn láti fuglana hanga í tvær vik- ur eða þar um bU, vitaskuld á hausnum. Skjóta rjúpuna í bakið Blaðamaður spurði PaUa hvort veiðimenn legðu áherslu á eitthvað sérstakt í sambandi við veiðina, hvort beita þyrfti t.a.m. einhverri sérstakri tækni. PaUi kvað svo ekki vera, menn skytu á fuglinn jafnt á flugi sem sitjandi og bætti síðan við, án efa tU þess að gera at í blaða- manni, sem aldrei hefur á byssu haldið, að menn legðu áherslu á að skjóta rjúpuna í bakið. Það sagði hemn menn gera tU þess að veiða meira! Síðan hló hann hressUega, líklega með hugann við veiðimann- inn sem rembdist eins og rjúpan við staurinn við að reyna að komast aft- an að bráöinni, sem oftar en ekki er á flugi. -sv Uppskrift fyrir sælkera: Pönnusteikt rjúpa Flestir borða eflaust rjúpuna bara einu sinni á ári, og þá á jólum, en sumir hvenær sem er. Hvenær svo sem menn vUja nýta sér uppskrift- ina komst DV yfir eina gimUega, svona rétt í tUefni dagsins, sem eng- inn ætti að verða svikinn af. Upp- skriftin er miðuð við fjóra. 4 rjúpur grófmulinn pipar salt Rjúpurnar eru úrbeinaðar og beinin og fóarn notuö í soð. Rjúpan er brúnuð á pönnu í u.þ.b. 2 mín., tekin af pönnunni og sett í ofn- skúffu og klárað í ofni síðar. Baileysepli 2 epli 100 ml rjómi 150 ml BaUeys Eplin eru skræld, skorin í tvennt og kjamahreinsuð. Þau era síðan brúnuð á pönnu með smjöri. BaUeys og rjómi sett út í og suðan látin koma upp. Bauðrófumeðlæti 2 ferskar rauðrófur 50 g Uórsykur 100 ml hindbeija- edik Rauðrófumar eru skrældar og skomar í strimla. Steiktar á pönnu, Uórsykri er stráð yfir og hindberja- ediki bætt út í. Látið suðuna koma upp. Soðkartöflur 8 kartöHur KartöUumar era skrældar og settar í eldfast mót með botn- fyUi af kjötsoði. Bakaðar í ofni í 20 mínútur. Rjúpnasoð Rjúpnabein pipar y2 laukur fóarn 11 vatn Rjúpnabein eru brúnuð á pönnu með lauk og pipar. Fóam og vatn sett út í og soðið niður. Sósa 300 ml rjúpnasoð !4 1 rjómi gráðaostur púrtvín týtuberjasulta salt og pipar. Rjúpnasoð og rjómi er soðið og þykkt með sósujafnara. Gráðaosti, púrtvíni og týtuberjasultu bætt út í. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.