Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 Fréttir_________________________________________________________________________________________dv Kerfið bregst algerlega í málefnum fyrirburaforeldra: Orlofið að verða búið en barnið eins og nýfætt - erum í mikilli klemmu, segir Jóhanna Fleckenstein Fyrirburamæöurnar þrjár sem fóru á fund heilbrigðisráðherra í fyrradag: Unnur Matthíasdóttir með soninn Guðmund Þór Karlsson, fæddan 6. ágúst, við hliö Ingibjargar Pálmadóttur. Þá kemur Jóhanna meö Emil Frey og lengst til hægri er Lára Jensdóttir með Valdísi Einarsdóttur, fædda 6. ágúst. DV-mynd ÞÖK „Ég á mánuð eftir af fæðingaror- lofi og get heilsu bamsins vegna alls ekki látið það til dagmömmu eða leyft því að vera innan um önn- ur börn. Læknir hjá Trygginga- stofnun segir að ég verði að vera heima með það í ár en um leið að ekkert sé hægt að gera til að hjálpa mér fjárhagslega. Ef við þyrftum að setja okkar bam í pössun værum við að taka mikla áhættu. Á meðan börn fá almennt kvef fá fyrir- buramir lungnabólgu," segir Jó- hanna Fleckenstein en hún og tvær aðrar fyrirburamæður fóru í fyrra- dag á fund Ingibjargar Pálmadóttur heilbrigðisráðherra og gerðu henni grein fyrir vanda fyrirburafor- eldra. Fæddist 31/2 mörk Jóhanna segir að sonur sinn hafi fæðst 3V2 mörk þann 14. september sl„ hann sé nú, fimm mánaða gam- all, aðeins tuttugu merkur eða rúm fimm kíló. Það er sama þyngd og sum börn em við fæðingu. Hún segir að böm fyrirburamæðranna þriggja séu við misgóða heilsu en þau eigi það þó sameiginlegt að vera mjög viðkvæm, t.d. með sk. fyrirburalungu. „Eina ástæðan fyrir því að böm- in okkar era heilbrigð er sú að þau hafa verið í algerri einangrun. Fyrsta mánuðinn mátti fólk ekki einu sinni koma að heimsækja okk- ur og enn þann dag í dag fer ég ekki með strákinn minn í heim- sóknir. Ég skýst með hann á milli staða en of mikil smithætta er því fylgjandi að hafa hann innan um önnur börn.“ Jóhanna segist ekki sjá hvernig hún eigi að lifa eftir að fæðingaror- lofinu lýkur. Maðurinn hennar er í námi og því fylgi það mikil vinna að hann geti ekki séð um bamið á meðan hún vinni. „Mér er sagt að um 10-15 fyrir- burar, fæddir á 25. til 28. viku, fæð- ist á hverju ári og þess vegna er ekki eins og þetta vandamál eigi að koma kerfinu á óvart. Við erum í mikilli klemmu. Við þyrftum að láta strákinn í pössun en það væri algert glapræði. Ætli við verðum ekki að byrja á því að reyna að þrauka og sjá svo til. Ég er búin að leita allra leiða í kerfinu en hef alls staðar rekist á veggi,“ segir Jó- hanna Fleckenstein. Einfalda þarf kerfiö Sveinn Kjartansson er fyrirbura- læknir á Landspítala. Hann segir það sína skoðun að einfalda eigi reglur um fæðingarorlof þannig að mæðurnar geti nýtt sér orlofið eftir að börnin komi heim. „Fyrirburar þurfa að vera lengur en venjuleg börn á spítala og það er frumskilyrði að sá tími dragist ekki frá venjulegu fæðingarorlofi. í sumum tilvikum er málum þannig háttað að þegar mæðumar fá börn- in sin heim er fæðingarorlofið að verða búið. Það gengur vitaskuld ekki. Fyrirhurum er mjög hætt við sýkingum og því þarf að fara enn varlegar með þá en önnur nýfædd böm,“ segir Sveinn. -sv Lögin um fæðingarorlof í endurskoðun: Orlofið byrji þegar börnin eru fullburða - segir Ingibjörg Pálmadóttir Við erum að endurskoða lög um fæðingarorlof og þetta er eitt af þeim atriðum sem tekið er tillit til í þeirri endurskoðun. Við gerum okkur grein fyrir því að við verðum að breyta þessu og ég vonast til þess að við sjáum einhvem árangur fyrir vorið,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, aðspurð hvem- ig hægt sé að bregðast við vanda fyr- irburaforeldra. Ingibjörg segir að fyrirburarnir séu vissulega ekki fullburða fyrr en eftir þrjá mánuði og að i endurskoð- uninni sé tekið tillit til þess. Hún segir að fyrst og fremst sé hugað að því að lengja fæðingarorlof þeirra mæðra sem eignast böm fyrir tím- ann og útfærslan sé i þá veru að or- lofið fari ekki að gilda fyrr en börn- in séu orðin fullburða. Það sé síðan sérfræðinga að skera úr um einstök tilvik. „Undanfarin þrjú, fjögur ár erum við að horfa á stórkostlega hluti að gerast í sambandi við fyrirburafæð- ingar. Þessi börn þurfa miklu um- önnun foreldra sinna og það þarf að gera foreldrunum kleift að sinna þeim,“ segir Ingibjörg. -sv Hrísey: Félag um endurbygg- ingu elsta hússins DV, Akureyri: Stofnað hefur verið í Hrísey fé- lag um endurbyggingu elsta húss eyjarinnar, „Gamla Syðstabæj- ar“, en það hús var byggt 1885-1886 af Jörundi Jónssyni sem nefndur hefur verið Hákarla- Jörandur. Ásgeir Halldórsson, sem á sæti í Menningarmálanefnd Hríseyjar, segir menn binda vonir við að hægt verði að hefja einhverjar framkvæmdir við endurbyggingu hússins í sumar en um sé að ræða stórt og mikið verkefni sem taka muni nokkur ár. Á stofnfundi félagsins, sem stofiiað hefur verið um endurbæt- ur á húsinu, skráöu sig 17 manns en alls eru skráðir stofnfélagar orðnir 32 og búa þeir víðs vegar á landinu. Árgjald félagsmanna verður 500 krónur en félagsmenn munu fá senda óútfyllta greiðslu- seðla og geta að sjálfsögðu greitt hærri upphæö kjósi þeir það. Nánari upplýsingar era veittar af Ásgeiri Halldórssyni eða á skrif- stofu Hríseyjarhrepps. -gk Internetsfyrirtækin Skíma og Miöheimar sameinast: Sterkari heild - segir Dagný Halldórsdóttir framkvæmdastjóri „Þessi tvö fyrirtæki hafa verið leið- andi hvort á sínu sviði. Miðheimar hafa lagt áherslu á einstaklingsþjón- ustu og vefsíðugerð en Skima hefur einbeitt sér að fyrirtækjum í sam- bandi við almenna Internetsþjónustu og sérhæfingu og stuðning við tölvu- póstssamskipti. Þarna sameinum við kraft beggja og fáum út sterkari heild með breiðari og betri nýtingu á allri uppbyggingu fyrirtækjanna," segir Dagný Halldórsdóttir sem hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýs fyrir- tækis sem til varð við sameiningu Int- emetsfyrirtækjaima Skímu og Mið- heima. Dagný segir markað hins nýja fyr- irtækis vera blómlegan og að hún sjái fram á mikinn vöxt fyrirtækisins og aukningu í viðskiptum. Nú muni starfsmenn taka höndum saman í markaðsátaki og kynningarstarfsemi. „Við munum halda átram á þeirri braut sem fyrirtækin hafa markað hvort í sínu lagi en saman nú á miklu breiðara sviði. Kappkostað verður að veita sem besta þjónustu á öllum svið- um og leggja áherslu á virðisauka í fyrirtækjaþjónustunni, t.d. að því er snýr að skeytasamskiptum, öryggis- málum og rafrænum viðskiptum." Dagný segir að markmiðið í ein- staklingsþjónustunni sé að aldrei verði á tdi þegar fólk vilji komast inn á netið, að hægt verði að bjóða afkast- amikinn aðgang. „Með breidd þess hóps sem að fyr- irtækinu stendur sjáum við geysim- ikla möguleika fram undan,“ segir Dagný en auk Skimu og Miðheima standa Frjáls fjölmiðlun, sem er útg- áfufélag DV, Opin kerfi og Þróunarfé- lag íslands að hinu nýju hlutafélagi. „Þetta er liður í þeirri stefnumörk- un sem við höfum fylgt undanfarin ár, um að styrkja félagið í mörgum mis- munandi greinum upplýsingamiðlun- ar. Við teljum auðséð að Internetið og rafræn miðlun muni spila stórt hlut- verk í fjölmiðlun framtíðarinnar," segir Eyjólfur Sveinsson, stjórnarfor- maður hins nýja félags, um ástæðuna fyrir aðkomu Frjálsrar fjölmiðlunar að þessu nýja félagi. -sv Eyjólfur Sveinsson, fulltrúi Frjálsrar fjölmiðlunar, Frosti Bergsson, fulltrúi Miöheima og Opinna kerfa, Dagný Halldórsdóttir, fulltrúi Skímu, og Hreinn Jakobsson, fulltrúi Þróunariélagsins, við undirritun sameiningarinnar f húsakynnum Þróunarfélags íslands. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.