Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1997, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1997
íþróttir
1. deild karla:
Þróttur áfram
á sigurgöngu
0-1 Einar Öm Birgisson (65.)
Þróttarar héldu sigurgöngu
sinni í 1. deildinni áfram á föstu-
dagskvöld þegar þeir unnu mik-
ilvægan sigur á Breiðabliki, 0-1,
í toppslag deildarinnar. Þróttar-
ar eru þvi með fullt hús stiga eft-
ir fjórar umferðir og eru líklegir
til afreka í deildinni en gengi
Blika hefur verið brösótt.
Leikurinn var ákaflega til-
þrifalítill og sterkur norðanvind-
urinn ásamt kuldanum sem
honum fylgdi var í aðalhlutverk-
inu. Þróttárar höfðu meiri vilja
til að sigra og börðust betur og
það réð úrslitunum. Einar Örn
Birgisson skoraði sigurmarkið
um miðjan síðari hálfleik og var
nokkur heppnisstimpill yfir því.
Boltinn fór af varnarmanni
Blikanna til Einars sem þakkaði
fyrir sig með því að leggja bolt-
ann snyrtilega í netið.
I jöfnu liði Þróttar voru varn-
arjaxlamir Lúðvík Jónasson og
Þorsteinn Halldórsson bestir.
Liðið er annars vel mannað og
það kæmi á óvart ef það yrði
ekki í einum af tveimur efstu
sætunum í deildinni í haust.
Blikarnir hafa ekki verið
sannfærandi í leikjum sínum og
þurfa mikið að hressa upp á leik
sinn eigi þeim að takast að kom-
ast í hóp bestu liða landsins á
ný. Sérstaklega hefur þeim
gengið illa að skora mörk og
markahrókurinn Mihaljo Biber-
cic er greinilega ekki á skotskón-
um þessa dagana.
Maður leiksins: Lúðvík Jón-
asson, Þrótti.
-GH
Coca Cola-bikarinn:
Mikið skorab
Fjölnir-Bolungarvík.........5-3
Völsungur-Hvöt............. 1-0
HK-Selfoss..................3-1
Nökkvi-Dalvík............... 0-1
KR 23-Haukar................3-0
Leiknir-Valur 23............5-2
Reynir-Ægir.................4-1
Stjaman 23-Víðir........... 1-2
ÍA 23-Grótta................6-0
Víkingur-KSÁÁ...............8-2
Sindri-Höttur...............2-1
KVA-Þróttur, N..............2-3
Magni-KS.................... 0-2
Breiðablik 23-Keflavík 23 ...0-3
UMFA-Framherjar.............3-0
Léttir-ÍR....................1-4
3.deildin
Framherjar-Ármann ...........4-3
Léttir-KFR..................0-0
Reynir, HN.-HVÍ .......... 10-0
Smástund-Ármann............ 1-2
Sagt eftir leikinn:
Mikilvægasta markiö
„í fyrri hálfleik gekk okkur
illa að skapa tækifæri því ís-
lenska vörnin var vel skipulögð.
í siðari hálfleik vorum við beitt-
ari og ég held að sigurinn hafi
verið sanngjarn. Þetta er eitt
mikilvægasta markið mitt á ferl-
inum,“ sagði Hristov, marka-
skorari Makedóníu, í leiknum.
„Þetta var minn fyrsti lands-
leikur og eftir þennan sigur eig-
um við möguleika. íslenska
sóknin var stórhættuleg síðustu
20 mínúturnar," sagði Sasa Ilic.
„Við verðskulduðum sigur.
Eftir að ég fékk rauða spjaldið
kom upp taugaveiklun í leik
okkar. Þetta var stórsigur fyrir
Makedóníu," sagði Toni Mii-
evski fyrirliði eftir leikinn.
-Vladimir Novak
Guðni leikjahæstur
Guðni Bergsson lék sinn 73.
landsleik gegn Makedóníu og er
orðinn leikjahæsti landsliðsmað-
urinn frá upphafi. Þeir
félagarnir Guðni og Ólafur Þórð-
arson, ÍA, voru með 72 leiki fyr-
ir leikinn í Skopje. -JKS
Arnór Guöjohnsen átti góöan leik gegn Makedóníumönnum í Skopje. Hann vann vel á miöjunni og sýndi að hann er
er í mjög góöu formi. Hér er hann umkringdur leikmönnum en hans var vel gætt í leiknum.
DV-mynd Tomas Mihajlovic í Skopje
Undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu:
Tap í Skopje
- íslendingar enn án sigurs í riölinum
DV, Skopje:
íslendingar er enn án sigurs í 8.
riðli undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspymu. ísland
mætti Makedóníu og varð að lúta í
lægra haldi, 1-0, á marki sem var
skorað snemma í síöari hálfleik.
íslendingar hefðu með smáheppni
getað unnið þennan leik eða að
minnsta kosti krækt sér í eitt stig.
Tvö stórgóð marktækifæri í
síðari hálfleik fóru í súginn eftir
frábæran undirbúning frá Bjarka
Gunnlaugs-syni sem var besti
maður íslenska liðsins.
Makedónia lagði ofurkapp á að
vinna sigur til að fá aukna mögu-
leika á að komast áfram í keppn-
inni. Með sigrinum skaust liðið upp
í annað sætið. Lið Makedónu hefur
oft áður leikið mun betur en þetta
en það nægði engu að síður. Liðið
stillti upp sóknarliði í byrjun en
náði ekki að ógna íslenska markinu
að neinu ráði. íslenska liðið átti
heldur ekki verulega hættuleg
tækifæri í fyrri hálfleik. Samt sem
áður barðist liðið vel og sérstaklega
var miðjuspilið sterkt og vel útfært.
íslenska liðið varðist vel og
skyndiupphlaupum var beitt án
þess að ógna verulega en það átti
eftir að breytast í síðari hálfleik.
Fljótlega í honum voru Make-
dóniumenn heppnir að fá ekki á sig
mark þegar Viktor Trenevski, sem
kom inn á í byrjun síðari hálfleiks,
bjargaði á undraverðan hátt.
Eftir því sem á leikinn leið lögðu
íslendingar meiri þunga í sóknina.
Bjarki Gunmlaugsson og Þórður
Guðjónsson gerðu oft usla í vöm
heimamanna og nutu þar góðrar
aðstoðar þeirra Eyjólfs Sverrissonar
og Amórs Guðjohnsens.
Svo virðist sem skiptingar hjá
íslendingum hafi komið of seint,
þær frískuðu upp á sóknina en
hefðu að ósekju mátt koma fym. Það
er aldrei að vita hvað gerst hefði ef
íslendingar hefðu jafhað metin.
Það verður að segjast eins og er
að ef kjarkurinn hefði verið til
staðar frá byrjun hefðu úrslitin
getað orðið önnur. Kjarkurinn kom
bara of seint.
-Vladimir Novak
, Jækifærin forgörðum"
- sagði Logi Ólafsson, þjálfari íslenska liðsins
DV, Skopje:
„Ég er á margan hátt ánægður
með leikinn hjá minum
leikmönnum en á sama tíma er ég
bitur af því að við töpuöum
leiknum. Við fengum nokkur góð
tækifæri til að skora í leiknum en
því miður fóru þau öll
forgörðum," sagði Logi Ólafsson,
landsliðsþjálfari íslendinga, eftir
leikinn á laugardagskvöldið.
Fréttamaður sjónvarpsins í
Makedóníu spurði Loga Ólafsson
hvort rétt væri að ef íslenska liðiö
myndi tapa leiknum yrði honum
sagt upp störfum. Logi svaröi
spurningunni á eftirfarandi hátt:
„Ég veit ekkert um það. Þú verður
að spyrja einhverja aðra en mig
um það.“
-Vladimir Novak
íslendingar hættulegir
- sagði landsliðsþjálfari Makedóníu
DV, Skopje:
„Við gerðum okkur fulla grein fyr-
ir þvi að þetta yrði erfiður leikur
eins og kom reyndar á daginn. ís-
lendingar léku vel og þá alveg sér-
staklega eftir að við náðu foryst-
unni í leiknum. Ég var búinn að
aðvara mína menn um það að ís-
lenska liðið væri ekki auðveld
bráð. Þeir komust líka að raun um
það að sá ótti var á rökum reistur.
Þá sáu allir hvað íslenska liðið get-
ur reynst hættulegt.
Það kom berlega í ljós þegar við
opnum svæði fullmikið og það
gerðist nokkrum sinnum í síðari
hálfleik. íslendingar fengu fyrir
vikið nokkur geysilega góð tæki-
færi til að skora en sem betur fer
gerðist það ekki,“ sagði Djoko
Hadjijevski, landsliðsþjáífari
Makedóníu, á blaðamannafundi
eftir leik þjóðanna í Skopje á laug-
ardagskvöldið.
-Vladimir Novak
f Í UHOAMKEÞPHI HflR
-------------------
1-riðUl
Danmörk 5 4 1 0 11-2 13
Grikkland 6 3 1 2 8-4 10
Króatía 5 2 3 0 10-6 9
Bosnía 5 1 0 4 3-11 3
Slóvenía 5 0 1 4 4-13 1
2. riðill
Georgía-Moldova 2-0
ítalia 6 5 1 0 11-1 16
England 6 5 0 1 11-2 15
Pólland 5 1 1 3 3-8 4
Georgia 1 1 0 2 2-5 3
Moldova 5 0 0 5 2-13 0
3. riðill
Finnland-Azerbaijan 3-0
Ungverjaland-Noregur 1-1
Noregur 5 3 2 0 11-2 11
Finnland 5 2 1 2 8-6 7
Ungverjal. 5 2 1 2 5-5 7
Sviss 4 2 0 2 4-4 6
Azerbaijan 5 1 0 4 2-13 3
4-riðill
Eistland-Svíþjóð . 2-3
Lettland-Austurríki 1-3
Hv.-Rússland-Skotland . 0-1
Skotland 7 5 2 1 9-2 17
Austurriki 6 4 1 1 8-4 13
Svíþjóð 6 4 0 2 12-7 12
Lettland 7 2 1 4 9-11 7
Hv.-Rússland 6 1 1 4 3-10 4
Eistland 7 1 1 5 4-11 4
5-riðill
Búlgaria-Lúxemborg 4-0
Rússland-fsrael . 2-0
Rússland 6 4 2 0 10-2 14
ísrael 7 4 1 2 9-6 13
Búlgaria 5 4 0 1 14-5 12
Kýpur 6 1 1 4 5-14 4
Lúxemborg 6 0 0 6 1-17 0
6-riðill
Spánn-Tékkland . 1-0
Færeyjar-Malta . 2-1
Júgóslavla-Slóvakía . 2-0
Spánn 8 6 2 0 21-4 20
Júgóslavía 8 6 1 1 23-6 19
Slóvakía 6 4 0 2 14-7 12
Færeyjar 7 2 0 5 9-24 6
Tékkland 5 1 1 3 7-4 4
Malta 8 0 0 8 2-2731 0
7-riðiIl
Belgía-San Marínó . 6-0
Holland 6 5 0 1 23-3 15
Belgía 6 5 0 1 16-6 15
Tyrkland 5 2 1 2 10-5 7
Wales 6 2 1 3 14-12 7
San Marínó 7 0 0 7 0-37 0
8-riðill
Makedónía-Ísland . 1-0
Rúmenía 6 6 0 0 20-0 18
Makedónia 7 4 1 2 19-10 13
írland 6 3 1 2 15-4 10
Litháen 5 3 0 2 6-5 9
ísland 5 0 2 3 1-8 2
Liechtenst. 7 0 0 7 2-36 0
9-riðill
Portúgal-Albanía 2-0
Úkralna-Þýskland 0-0
Úkraina 8 4 2 2 7-6 14
Þýskaland 6 3 3 0 11-4 12
Portúgal 7 3 3 1 7-2 12
N-lrland 7 1 4 2 5-5 7
Armenía 6 0 5 1 4-8 5
Albanía 5 0 1 4 3-12 1
Makedónía (0) 1
ísland (0) 0
1-0 Gjorgi Hristov (53.). Boltinn
barst fyrir íslenska markið, vöminni
mistókst að hreinsa frá og Hristov
skoraði viðstöðulaust.
Lið Makedóníu: Sasa Hic - Goce Sed-
loski, Igor Sasa Nikolovski, Ljupco
Markovksi, Boban Babunski -Srdjan
Zaharievski, Vlatko Gosev (Ljubo-
drag Milosevic 83.), Artim Sakiri
(Viktor Trenevski 45.), Gjorgi Gjorgi
Hristov - Dejvi Glavevski (Dzevded
Sainovski 71.), Toni Micevski.
Lið íslands: Kristján Finnbogason
- Arnar Grétarsson, Guðni Bergsson,
Siguröur Jónsson, Láms Orri Sig-
urðsson - Brynjar Gunnarsson (Am-
ar Gunnlaugsson 72.), Sigursteinn
Gíslason (Ríkharður Daðason 83.),
Amór Guðjohnsen (Helgi Sigurðsson
80.), Eyjólfur Sverrisson - Þórður
Guðjónsson, Bjarki Gunnlaugsson.
Gul spjöld: Babunski (M),
Micevski (M), Sigurst. (í), Bjarki (i).
Rauð spjöld: Micevski (M) á 80.
mínútu fyrir tvö gul spjöld.
Dómari: Vadim Zhuk frá Hvíta
Rússlandi.
Aðstoðardómarar: Yuri Dupanov
og Oleg Chikun frá Hvita Rússlandi.
Áhorfendur: 13.000