Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997
23
*Qprðir
fbúar Borgarfjaröar eru mjög hrifnir af álfum enda heitir hátíöin þeirra Álfaborgarsjens.
Borgarfjörður eystri nýtur sífellt
meiri vinsælda sem ferðamanna-
staður enda landslag fagurt og
margar góðar gönguleiðir í ná-
grenninu. Nú búa um 170 manns í
Borgarfirði. Á sumrin er orðið al-
gengt að gestir á staðnum séu fleiri
en heimamenn.
Undanfarin ár hafa Borgfirðingar
gert sér og gestum sínum glaðan
dag um verslunarmannahelgina.
Hátíðin Álfaborgarsjens verður í ár
haldin í fjórða sinn en það er Ferða-
málahópur Borgarfjarðar sem
skipuleggur hátíðarhaldið.
Byijað verður aö hita upp fyrir
helgina strax fimmtudaginn 31. júlí
þegar gengin verður fjöruganga.
Föstudaginn 1. ágúst verður ósvikin
kráarstemning í Fjarðarborg og
mun þar meðal annars fara fram
hagyrðingamót.
Laugardaginn 2. ágúst verður
mikið um að vera. Hafnardagur
verður í Hafnarhólma, knattspymu-
leikur á Geitlandsvelli, Álfaborg-
arsjens hjá Álfaborg og hið vinsæla
kvenfélagsball i Fjarðarborg.
Magnús Scheving verður í Fjarð-
arborg sunnudaginn 3. ágúst. Þar
verður flutt leikritið Áfram Lati-
bær. Sama dag verður guðsþjónusta
í Bakkagerðiskirkju og lagt í ævin-
týraferð frá Fjarðarborg. Svo verður
grillað og skemmt sér að hætti
heimamanna.
Margar gönguleiðir
Fyrir þá sem vilja hressa sig á
góðri gönguferð eru merktar göngu-
leiöir frá Borgarfirði til Loðmund-
arfjarðar umhverfis Dyrfjöll með
viðkomu í Stórurð. Þá er einnig
merkt gönguleið um Gönguskörð,
hina fomu leið milli Njarðvíkur og
Héraðs.
Tilvalið er fyrir þá sem vilja fara
í styttri gönguferðir að skoða
Hvannagil í Njarðvík, Bakkaárgil,
Lobbuhraun eða Kiðubjörg.
Frá útsýnispalli sem settur var
upp í Hafnarhólma í vor er frábært
útsýni yfir Borgarfjörð og fjöllin í
kring, en þau era meðal þeirra elstu
á íslandi, um það bil 10 til 15 millj-
ón ára gömul.
Mikið er um fagra steina í Borg-
arfirði en öll steinatínsla er bönnuð
nema með leyfi landeiganda. Hins
vegar er hægt að heimsækja versl-
un Álfasteins en þar er að finna
mikið úrval af steinum og ýmsa
gripi unna úr steinum og bergi frá
svæðinu.
Auðvitað er líka margt að skoða í
þéttbýliskjamanum Bakkagerði
sem er í fjarðarbotninum. í kirkj-
unni er til dæmis fræg altaristafla
sem meistari Kjarval málaði árið
1914.
Heppilegur áningastadur
við þjóðveginn
Bjóðum upp á aðstöðu til stærri eða smærri
mannfagnaða
Veitíngar - Fjölbreyttír gistímöguleikar
Bensínajgreiðsla - Seðla - og kortasjálfisali
Hraðbanki - Upplýsingamiðstöð
Tjaldstœði - Ferðamannaverslun
Veriö ávallt velkomln
/PtMVMl
Hrútafirði - Sími 451 1150
f . ...... \
Hvernig líður
þínum bíl?
Svona?
Inntaksventill bílvélar sem gekk
12.000 km á venjulegu bensíni.
Eða svona?
Inntaksventill bílvélar sem gekk
12.000 km á HreintSystem3 benslni.
Olís og ÓB selja eingöngu HreintSystem3 bensín.
Tæknivæddasta og léttbyggð-
asta V6 vél sem framleidd er
í dag. ABS, loftpúðar fyrir
ökumann og farþega.
Fjöllíðafjöðrun, þjófavörn. Bíll
með frábæra aksturseigin-
leika, á verði sem enginn
annar getur boðið.
ingvar
" Helgason hf.
Sawtitiijifóa 2
NI5SAN
\ / 1
\ /
\ / h \ \ / /
v\—/ 1—