Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1997, Blaðsíða 48
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum alian
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FOSTUDAGUR 1. AGUST 1997
Matareitrunin:
Upptökin rakin
til Akureyrar?
DV, Akureyri:
Rannsókn á upptökum matareitr-
unar 40-50 erlendra feröamanna á
Norðurlandi eystra undanfarna
daga beinist nú fyrst og fremst aö
einum ákveðnum veitingastað á Ak-
ureyri. DV hefur fyrir þessu örugg-
ar heimildir og því að öll tilfellin
sem upp hafa komið megi að öllum
líkindum rekja til þessa ákveðna
veitingastaðar.
í þeim tilfellum þar sem matar-
eitrun kom upp í hópum erlendra
ferðamanna veiktist fólkið sem var
i hringferðum um landið þegar
komið v£ir austur á Egilsstaöi eða
suður með Austfjörðum og mun
sammerkt með öllum hópunum að
þeir hafi átt leið um Akureyri 2-3
V? dögum áður. -sjá nánar bls. 2. -gk
Ræði ekki við þig
„Ég held ég ræði ekki við þig.
Vertu blessaður og sæll,“ sagði Hall-
varður Einvarðsson ríkissaksókn-
ari og skellti á símanum þegar DV
hafði tal af honum í morgun í sum-
arhúsi hans við Elliðavatn.
Hallvarður Einvarðsson sagði í við-
tali við Stöð 2 í gærkvöldi að hann
væri þrátt fyrir fjárhagserfiðleika
sína hæfúr til að gegna embættinu
áfram og vitnaði í ónefnda viðmæl-
endur sína sem segðust hafa and-
styggð á fréttum af málefnum hans og
meintu vanhæfí. DV spurði Hallvarð í
morgun hvort hann teldi ekki nauð-
synlegt að dómarar og ríkissaksókn-
ari kynnu fótum sínum forráð í fjár-
málum og svaraði Hallvarður spurn-
ingunni á fyrrgreindan hátt. -SÁ
Sýndi kynfærin
Lögreglan á ísafirði leitar manns
á fertugsaldri sem hefur sýnt ung-
um börnum kynfæri sín í bænum
að undanfomu.
Tvær kærur liggja fyrir hjá lög-
reglu þess efnis. Málið er í rann-
sókn hjá lögreglu. -RR
DV kemur næst út eldsnemma að
morgni þriðjudagsins 5. ágúst.
Smáauglýsingadeild DV er opin
til kl. 18. í dag.
Lokað laugardag og sunnudag.
Opið verður á mánudag frá kl.
16-22.
Blaðaafgreiðsla DV er opin til kl.
20 í dag.
Lokað verður laugardag, sunnu-
dag og mánudag.
Siminn er 550 5000.
Góðaferö og akiö varlega!
Tveir menn leiddir fyrir dómara í Vegasmálinu í morgun:
Vegasmennirnir bera
sakir hvor á annan
Tveir menn, Sverrir Þór Einars-
son, 35 ára, og Sigurþór Arnarson,
25 ára, voru leiddir fyrir héraðs-
dómara í morgun þar sem þeim
var gert að gera grein fyrir afstöðu
sinni til ákæru á hendur þeim -
fyrir að hafa í félagi banað Sigurði
Sigmundssyni, 26 ára Eyrbekk-
ingi, á veitingahúsinu Vegas að-
faranótt 13. maí.
Ákæran er á þá leið að Sverri
Þór er gefíð að sök að hafa veitt
Sigurði þungt högg aftanvert á höf-
uð þannig að hann féll í gólfið. Sig-
urþór er hins vegar ákærður fyrir
að hafa sparkað í höfuð mannsins
þar sem hann lá í gólfínu.
Mennimir era látnir svara til
saka fyrir stórfellda líkamsárás
sem leiðir til dauða - hámarksrefs-
ing fyrir slíkt brot er 16 ára fang-
elsi. Árásin var um klukkan eitt
að nóttu. Sigurður var úrskurðað-
ur látinn um klukkan tíu um
morguninn að aflokinni árangurs-
lausri aðgerð vegna útbreiddrar
heilablæðingar.
Sakamálið var þingfest í morg-
un. Þegar DV fór í prentun lá ekki
fyrir hver afstaða sakbominganna
var til ákærunnar eða hvenær að-
alréttarhöldin hefjast. Frá því að
mennimir voru handteknir og
settir í gæsluvarðhald hafa þeir að
verulegu leyti borið sakir hvor á
annan. Vitni hafa hins vegar gefið
mynd af því hvað átti sér stað á
veitingahúsinu.
Þriðji maðurinn, Birkir Her-
bertsson, 34 ára, var í vor úr-
skurðaður í gæsluvarðhald ásamt
Sverri Þór og Sigurþóri vegna
árásarinnar. Þegar upp var staðið
var hann hins vegar ekki ákærð-
ur - ljóst þótti að hann var á
staðnum en tók þátt í öðram átök-
um en þeim sem leiddu Sigurð
heitinn til dauða.
Fengu mannránsdóm í maí
10 dögum eftir Vegasárásina
voru þremenningarnir hins vegar
allir dæmdir í 6 mánaða fangelsi
hver fyrir „mannránsmál" sem
átti sér stað í Grafarvogi í sept-
ember síðastliðinn. Réttarhöldum
í því máli var nýlokið þegar
Vegasatburðurinn varð. Þre-
menningarnir vora þá dæmdir
fyrir að hafa tekið 34 ára sjó-
mann, íbúa við Flétturima, nauð-
ugan út í farangursgeymslu
jeppabifreiðar sem þeir voru á og
ekið með hann að Hafravatni og
síðan að Vesturlandsvegi í sept-
ember síðastliðnum.
Mennirnir þrír vora ekki taldir
hafa sér neinar málsbætur - þeir
hafi sammælst um brotið og var
það virt þeim tO refsiþyngingar.
„Það að nema fólk með valdi
frá heimili sínu eða dvalarstað og
svipta þannig frelsi er alvarlegt
afbrot,“ sagði m.a í dómi héraðs-
dóms í Grafarvogsmálinu í maí.
-Ótt
Heiða Rún Steinsdóttir, 16 ára, vann Peugot-bifreiö í kókleiknum. Hún keypti hina dýrmætu kókflösku í Skalla í Árbæ.
DV-mynd Pjetur
Vann bíl í kókleik:
Frábær
tilfinning
- segir Heiða Rún, 16 ára
„Þetta er alveg frábær tilfinning.
Ég ætla nú reyndar að selja bílinn
þar sem ég þarf að bíða í ár eftir
bílprófi. Þá get ég líka látið draum-
inn rætast og farið í óperusöngnám
til ítaliu eftir nokkur ár,“ segir
Heiða Rún Steinsdóttir, 16 ára
stúlka úr Árbænum, sem vann Peu-
got-bifreið í kókleiknum. Vinning-
urinn er að verðmæti tæplega
einni og hálfri milljón króna.
Heiða Rún keypti 2 lítra kók-
flösku í Skalla í Árbæ sl. mánu-
dagsmorgun. Hún segist hafa séð
myndina af bílnum í tappanum
fyrr en um kvöldið. Þá var hún
búin að horfa á vídeó hjá vinkonu
sinni og fara á fótbolta- og söngæf-
ingu.
„Um kvöldið fékk ég mér sopa úr
flöskunni og þá sá ég bílinn í tapp-
anum. Ég öskraði af fögnuði og
bróðir minn sem var að borða hélt
að ég væri orðinn eitthvað skrýtin.
Það var auvitað mikil gleði í f]öl-
skyldunni eftir að fólkið áttaði sig
á að ég hafði unnið. Ég verð bara
að biða og kaupa mér bíl seinna,
þegar ég er kominn með próf,“ seg-
ir Heiða Rún. -RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Best fyrir
noröan og
austan
Á morgun verður suðvestan-
kaldi, skýjað, sums staðar dálít-
il súld og hiti 9 til 14 stig vest-
an til á landinu. Um landið
norðan- og austanvert verður
léttskýjað. Hiti verður á bilinu
15 til 20 stig.
Veðrið í dag er á bls. 55
Sjálfskipt
fUISSAN
Almera
*{& ?«»*• ’ *
©
Tilboð áárg. ‘97
^ — Ingvar
M M=M Helgason hf.
■— Sœvarhiifda 2
-=- Sim i 525 XOO<)