Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Blaðsíða 11
Ofgarokksveitin Slayer: Trú á eigin hávaða Þungarokkið og ýmis afbrigði þess lifa enn góðu lífi. Fast á hæla þriggja stærstu metalbanda síðasta áratugar (Metallica, Anthrax og Megadeth) koma hinir djöfullegu Slayer-félagar sem nýlega gáfu út níðþunga og myrka plötu, „Diabolus in Musica". Eins og áður mála fjór- menningamir skrattann á vegginn; syngja um dauða, hrylling og helvíti og spila þétt og kraftmikið rokkið hátt og ákveðið, með villtum gítarsól- óum og örgu öskri. Auðvitað hefur bandið vakið deilur um dagana, ver- ið sakað um nasisma og satanisma, en það hefur bara bætt dulúð á að- dráttaraflið. Bandið var stofnað í Kalifomíu 1982 af gítarleikumnum Jeff Hanne- man og Kerry King og byrjaði á að taka Iron Maiden og Judas Priest-lög. Ári síðar gaf það út fyrstu plötuna, „Show No Mercy“, sem vakti athygli fyrir hreystilega spilamennsku og geysilega hröð lög svo nýtt afbrigði varð fljótlega til í þungarokkinu, „speed-metal“. í byrjun vom dimmir textarnir allteiknimyndalegir en á „Hell Awaits" frá 1985 vom þeir orðnir slípaðri og platan er eins kon- ar „cencept-plata“ þar sem einblínt er á pyntingar og almenna tortím- ingu. Platan sló í gegn í þungarokk- inu og dýrkun á Slayer óx hratt. Nú tók rokkgúrúinn Rick Rubin bandið undir sinn verndarvæng, setti það á samning hjá Def Jam og hljóðvann næstu plötu, „Reign in Blood", sem kom út 1986 og varð síð- ar eins konar höfuðverk dauðarokks- ins. Það vakti mikla athygli þegar CBS neitaði að dreifa plötunni vegna myndrænna textanna en þá kom Geffen til skjalanna og þungarokks- liðið féll unnvörpum fyrir þykku rokkinu. Sumir aðdáendur urðu fyrir von- brigðum með næstu plötu, „South of Heaven", enda losaði bandið aðeins um spennitreyjuna og gaf skít í að halda stöðu sinni sem heimsins hrað- asta og öfgafyllsta band. „Seasons in the Abyss" frá 1990 styrkti stöðuna til muna en hljótt varð um bandið þar til 1994 þegar „Divine Inter- vention" kom út. Þá vom meðlimir Slayer almennt taldir sporgöngu- menn dauðarokksins og platan seld- ist geysivel, komst hæst í 8. sæti bandaríska vinsældalistans. Á „Undisputed Attitude" frá 1996 djöflaðist bandið á pönk- og hardcor- e-slögurum en á hinni nýútkomnu „Diabolus in Musica" er bandið grimmt og ögrandi sem aldrei fyrr. Rick Rubin situr enn við stjómvöl- inn. „Platan er eins konar ný byrjun fyrir okkur," segir Kerry King. „Ég held að þetta sé platan sem okkar verður minnst fyrir en ég sagði það svo sem um allar hinar plöturnar líka. En þetta er allavega plata sem kemur okkur á rétt spor fyrir fram- tíðina.“ Kerry er stórorður: „Okkur er ná- kvæmlega sama um alla tónlist dags- ins í dag, smekkur fólks breytist en Slayer ekki.“ Rokkið dansar með tískubylgjunum en Slayer helst óbreytt og trú eigin hávaða, hávaðan- um sem breytti rokkinu. „Við trúum á sjálfa okkur. Við höfum enga þörf fyrir að breytast bara vegna þess að allt og allir aðrir breytast. Auðvitað nefni ég engin nöfn.“ -glh Veikindi í Verve Þegar hljómsveitin The Verve mætti ekki á Hróarskeldu og fleiri hátíóir í júní var veik- indum bassaleikarans Slmon Jones kennt um og hann sagður þjást af vondum vír- usi. Nú þegar hann er risinn úr rekkju og farinn að æfa með bandinu á ný koma þær fréttir að gítarleikarinn Nick Mc- Cabe ætli ekki að túra meö sveitinni f sumar vegna þreytu og þess stress sem fylgir tónleikaferðalögum. The Verve ætlar þvf að ferðast án hans í sumar og munu fyrstu tónleikar þessarar fjögurra manna útgáfu veröa í enda mánaðarins. Jerry Cantrell - Boggy Depot ★★★ Á heimavelli Á þessu ári líta dagsins ljós tvær sólóplötur með meðlimum frægustu „grunge" sveita Seattleborgar en það er annars vegar þessi plata með Jerry Cantrell, gítarleikara og lagasmiðs Alice in Chains og hins vegar sóló- plata Chris Comells úr Soundgarden sálugu. Cantrell, sem hefur samið að hluta til all- flest „hit“-lög Alice in Chains hefur svo sem litið að sanna fyrir umheiminum. Það verður hins vegar að viðurkennast að hér er hann á heimavelli og hefur fullkomna stjóm á útkomunni. Tólf lög plöttmnar eru eitthvað meira en bara Alice in Chains án söngvarans Layne Staley, jafnvel þótt aðrir meðlimir sveitarinnar leiki á stórum hluta plötunnar! Við fyrstu kynni virðist hér um að ræða týpíska AlC-lög en síðan við nánari hlustun er ljóst að hér er eitthvaö þroskaðra og lengra komið á þróunarbrautinni. Áhrif eru víða að, það má greina klassísk- ar sveitir eins og Skynyrd, Pink Floyd, Black Sabbath og jafnvel Kansas. Hér er líka minna um öfgakennda AlC-tónlist, ekkert ást-hatur- ást dæmi. Það sem kannski kemur líka á óvart er blíðleikinn í sumum lögum eins og Settling Down og Hurt a Long Time. Cantrell er enginn geggjaður söngvari en hann er heldur ekkert reyna það sem hann getur. Út- koman verður fáguð og stílhrein og sömu sögu er að segja um allan hljóðfæraleik. í heild plata sem kemur ánægjulega á óvart með hverri hlustun. Páll Svansson íslenski NR. 280 Vikuna 09.7.-16.7. 1998 Sæti Vikur Lag Flytjandi 26.6 03.7 í 4 UP UP AND AWAY PÁLL ÓSKAR & CASINO 1 1 2 5 alltsemPlílesterlygi ... MAUS 4 7 3 2 COMEWITHME .. .PUFF DADDY& JIMMYPAGE 5 - 4 7 AVAADORE SMASHING PUMPKINS 3 2 5 3 EL PRESIDENT .DRUGSTORE FEATTHOM YORKE 2 5 6 3 NÁKVAEMLEGA SKÍTAMÓRALL 14 15 7 3 VERA VÍNYLL 30 38 8 6 WHISHING 1 WAS THERE NATALIE IMBRUGLIA 8 8 9 5 SPACE QUEEN 10 SPEED 4 9 10 2 GO DEEP JANET JACKSON 10 - 11 6 GHETTO SUPERSTAR PRAZ MICHAEL & OL’DIRTY BASTARD 9 4 12 3 GAUR ENSÍMI 23 23 13 3 MEMORY CLOUD MÓA 17 17 14 4 HORNY’98 MOUSSETVS HOFN’JUICY 12 22 15 1 THIS BOY IS MIBE BRANDY & MONICA | N ý t t 16 10 TEARDROP ... .MASSIVE ATTACKHORNY ’98 6 3 17 1 NATURALLY MAGGA STÍNA N ý t t 18 5 ELSKAN...PÚ ERT NAMM GREIFARNIR 15 25 19 4 C’EST LA VIE B'WITCHED 20 32 20 5 SAVETONIGHT EAGLE EYE CHERRY 16 16 21 2 SÍÐAN HITTUMSTVHD AFTUR ... SSSÓL 22 - 22 2 SO ALONE BANG GANG 37 - 23 7 THECUPOFLIFE RICKY MARTIN 11 18 24 1 GETITON REAL FLAVAZ N ý t t 25 7 FEELITÉ AMPERER & MAYA 13 13 26 5 LADY MARMALADE ’98 ALL SAINTS 28 30 27 4 DIVA DANA 1NTERNATIONAL 24 28 28 1 PATAPATA COUMBO GAWLO N ý t t 29 4 STRANDED LUTRICIA MCNEAL 21 21 30 3 THEWAY FASTBALL 31 34 31 2 1 DONT WANTTO MISS ATHING AEROSMITH 35 2 32 4 GOTTHE FEELIN’ FIVE 26 7 33 1 REALGOODTIME ALDA ÓLAFSDÓTTIR N y t t 34 3 FAILURE SKINNY 29 19 35 2 TALENT SUBTERRANEAN 40 - 36 5 SEX&CANDY MARCY PLAYGROUND 19 11 37 1 SUMARÁST SÖNGLEIKURINN GREASE | N ý t t 38 4 HEGOTGAME PUBLIC ENEMY 18 12 39 6 AIRBAG RADIOHEAD 27 6 40 1 LIFEAINTEASY CLEOPATRA N ý t t íslenski listlnn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er f 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ira. af öHu landinu. Bnnig getur Fólk hríngt f sfma 550 0044 og tekifi þitt f vali llstans. íslenski llstinn er frumfluttur i Ammtudagskvöldum i Bylgjunnl kl. 20.00 og er birtur i hverjum föstudegi f DV. Listinn er jafnframt endurfluttur i Bylgjunni i hverjum laugardegi kl. 16.00. Ustinn er birtur, aö hluta, f textavarpi MTV sjdnvarpsstöðvarinnar. íslenski listlnn tekur þitt f vali „Wofld Chart" sem framleiddur er af Radio Express f Los Angeles. Bnnlg hefur hann ihrif i Evrdpulistann sem birtur er f ténllstarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandarfska tdnlistarblaðinu BiHboard. Yflruimjón me8 skoJUrwkönnun: HaTldóra Hauksddttir - Framkv»md kflnnunar: MarkaSsdrild DV - Tölvuvinnsla: 0íd6 - Handrrt. helmildaröflun og yfirumsjön meí framlílöslu: ívar Guímundsson - T«knistj6m og framleiösla: Rorsteinn Ásgelrsson og Þrálnn Stelnsson - Útsendingastjdm: Ásgeir Kolbeinsson og Jdhann Jdhannsson • Kynnir í útvarpi: ívar Qu&mundsson Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 l í S t i N Nj 10. júlí 1998 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.