Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1998, Blaðsíða 2
20
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
21
íþróttir
íþróttir
Fær Martha nýja
Toyotu á Akureyri?
Á laugardaginn fer Akureyrar-
maraþonið fram. Keppt verður í 3
km skemmtikokki, 10 km og hálfu
maraþoni. Sú skemmtilega ný-
breytni verður að fyrir íslandsmet í
hálfu maraþoni fær sigurvegarinn
nýja Toyotu Corollu-bifreið í verð-
laun.
Martha Ernstdóttir er talin sú
eina sem gæti mögulega sett ís-
landsmet í þessari vegalengd á laug-
ardaginn. Ætlun Mörthu var að fara
í hálft maraþon í september en
ákvað fyrir um tveimur vikum að
slá til og reyna við metið og bílinn.
Tveir góðir hlauparar munu
einnig taka þátt í hálfu maraþoni
karla, Daniel Smári Guðmundsson
og Sigmar Gunnarsson. Ættu þeir
að vera á svipuðum tíma og Martha
og því gæti það hjálpað þeim öllum.
Martha þarf að hlaupa undir
1:11,39 klst. til að slá metið og þó lík-
umar séu ekki mjög miklar er met-
ið möguleiki, sérstaklega ef veður
verður hagstætt og fólk mæti til að
hvetja hana.
Skráning í hlaupin hefur verið
góð en hún fer fram í Sportveri á
Akureyri í s. 461-1445, á skrifstofu
Reykjavíkur maraþons i Laugardal,
s. 588-3399. Hlaupin heíjast klukkan
12 á íþróttavellinum.
-GH
Spænska landsliðið í knattspyrnu:
Clemente boðiö að
vera áfram með liðið
Spænska knattspymusambandið
hefur ákveðið að bjóða Javier Clem-
ente áframhaldandi starf sem lands-
liðsþjálfari fram yfir riðlakeppni Evr-
ópumótsins sem lýkur vorið 2000.
„Viö viljum að Clemente haldi
áfram með liðið að minnsta kosti
fram yfir EM. Hann hefur unnið
gott starf og við viljum halda hon-
um,“ sagði Angel Maria Villar, for-
seti spænska knattspyrnusam-
bandsins í gær.
Ekki er víst hvort Clemente tekur
þessu boði en hann er í sumarfríi og
er ekki að vænta svars frá honum
fyrr en í ágúst. Eftir HM viður-
kenndi hann þó að hann vildi áfram
vera með liðið.
Spánverjum tókst sem kunnugt er
ekki að komast upp úr sínum riðh í
Frakklandi og var það mikið áfall.
Eftir keppnina var jafnvel talið að
Clemente fengi ekki annað tækifæri
með liðið en annað hefur komið í ljós.
-JKS
Hjólreiðakeppnin Tour de France:
Ástrali í gula vestið
- Hollendingur vann Qórða legginn
Hohenski
hjólreiða-
maðurinn
Jeroen
Blijevens
sigraði á 4
sérleiðinni
í Tour de
France í
gær.
Hjólaðir
voru þá 252
km frá
bænum
Plouay og
fór
Blijevens
vegalengd-
ina á
Stuart O’Grady. 5:48,32
klukkustundum. Nicola Minali frá
Ítalíu varð annar og þriðji í röðinni
varð Jan Svorada frá Tékklandi.
15 ár síöan Ástrali hefur
klæöst gula vestinu
Að loknum fjórum sérleiðum hef-
ur Ástralinn Stuart O’Grady tekið
forystuna og mun hann því klæðast
gula vestinu á fimmtu sérleiðinni
sem verður hjóluð í dag. Þetta er í
fyrsta skipti í 15 ár sem Ástrali
klæðist gula vestinu en síðast
klæddist Phil Anderson vestinu eft-
irsótta.
Daninn Bo Hamburger er í öðru
sæti, ellefu sekúndum á eftir
O’Grady, og í þriðja sæti er Banda-
rikjamaðurinn George Hincapie á
sama tíma og Daninn. -JKS
KR-konur fögnuðu vel og innilega sigrinum á Val á heimavelli sínum í vesturbænum í gær. Það var líka ástæða til að fagna því að Ragna Lóa Stefánsdóttir, sem hér
gengur af velli ásamt Olgu Færseth, lék aö nýju með liðinu eftir langvinn meiðsli. Á innfelldu myndinni eru þær Sigríöur Pálsdóttir markvöröur og Guölaug Jónsdóttir,
sem lék sinn fyrsta leik i þrjár vikur, að spá (væntanlega andstæðinga i undanúrslitunum.
DV-myndir ÞÖK
Bikarkeppni kvenna í knattspyrnu:
KR hefndi
- haföi betur gegn Val og er komið í undanúrslitin
1- 0 Olga Færseth (18.) fékk boltann
við vítateig Vals, lék inn i vítateig og
skoraði með fostu skoti.
2- 0 Helena Ólafsdóttir (41.) með góðu
skoti úr aðþrengdu færi i vitateig eftir
laglega sendingu frá Olgu Færseth.
3- 0 Olga Færseth (52.) renndi boltan-
um fram hjá markmanni Vals úr miðjum
vítateig eftir góða sendingu frá Ásthildi
Helgadóttur.
KR sigraði Val í átta liða úrslit-
um bikarkeppninnar í Frostaskjóli í
gærkvöld og er komið í undanúrslit
ásamt ÍA, ÍBV og Breiðabliki.
Leikurinn var bráðfjörugur á að
horfa og segja má að það hafi aht
verið yaðandi i færum í fyrri hálf-
leik. Á fyrstu 15 mínútum leiksins
fékk hvort lið um sig sín tvö færi
sem þeim tókst ekki að nýta. En
Olgu Færseth voru ekki mislagðir
fætur við mark Vals á 18. mínútu og
eftir markið náðu KR-ingar að slaka
á og ná fastari tökum á leiknum.
Valsarar voru þó ekki hættir og á
24. mínútu fékk Bergþóra Laxdal
sannkahað dauðafæri í markteig
KR en skot hennar var beint í fang-
ið á Sigríði Pálsdóttur, markverði
KR.
Þrátt fyrir að vera tveimur mörk-
um undir og aUur seinni hálfleikur
eftir var eins og vUjann tU að sigra
vantaði í lið Vals í síðari hálfleik.
KR-ingar áttu ekki í neinum vand-
ræðum með að innbyrða sigurinn
enda mikið betri aðUinn hvar sem
var á veUinum.
„Þetta var bara lélegur leikur,
ekkert annað. Við erum að gefa
mörk hérna í stórum stíl þannig að
þá fer það ekki nema á einn veg. Ef
við spUum ekki vel þá vinnum við
ekki leiki, það er alveg klárt,“ sagði
Ólafur Guðbjömsson, þjálfari Vals,
og var afls ekki sáttur.
Guölaug gerði gæfumuninn
„Það skiptir öUu máli að vera á
undan að skora í svona leikjum og
mér fannst þær detta niður eftir að
við skoruðum. En við komum mun
betur stemmdar í þennan leik held-
ur en gegn þeim í deUdinni. Þá átt-
um við menn í meiðslum og það
munaði okkur öllu að GuUa (Guð-
laug Jónsdóttir) kom inn i liðið í
þessum leik, ekki síst sálfræðilega.
Ég trúi ekki öðru en að þetta verði
áfram svona fyrst við erum að ná
öUum inn,“ sagði Helena Ólafsdótt-
ir, fyrirliði KR.
KR-ingar voru vel að þessum
sigri komnar og endurkoma Guð-
laugar Jónsdóttur virkaði sem
vítamínsprauta á liðið. SpUið gekk
mikið i kringum hana og náði hún
vel saman með Ásthildi Helgadóttur
inni á miðjunni, Olgu Einarsdóttur
úti á vinstri og Olgu Færseth
frammi, en þessar fjórar voru best-
ar í liði KR.
Valsarar voru að leika sinn
slakasta leik í sumar og þær geta
engum nema sjálfum sér um kennt.,
AUan baráttuanda vantaði i liðið og
það var oft ótrúlegt að sjá hversu
lengi liðið var að sækja fram vöU-
inn, sérstaklega eftir að vera
komnar tveimur mörkum undir.
Ungu stelpumar sem komu inn á
frískuðu upp á liðið í seinni hálfleik
en það dugði skammt gegn sterkum
KR-ingum. -ih
Bland í noka
Everton gekk í gær frá kaupum á
ítalska vamarmanninum Marco Ma-
terazzi frá Perugia fyrir 300 miiljónir
króna.
Materazzi er 24 ára gamall og þykir
mjög sterkur varnarmaður. Walter
Smith, nýráðinn stjóri hjá Everton,
hafði betur i kapphlaupi við Lazio
sem einnig vildi kaupa hann.
Alex Ferguson,
stjóri Manchester
United, er að reyna
að krækja i sænska
landsliösmanninn
Jesper Blomqvist
sem leikur með
Parma á Ítalíu.
Ferguson reyndi að fá þenan 24 ára
gamla miðju- og sóknarmann fyrir
síðasta tímabil en varð ekki ágengt í
þeim efnum.
Japönsk blöö skýra frá þvi að
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sé
efstur á óskalista japanska knatt-
spyrnusambandsins um aö taka við
þjálfun landsliðsins en sem kunnugt
er verður næsta HM-keppni haldin í
Japan og S-Kóreu árið 2002.
Wenger segir í viðtali við japanska
Úölmiðla að hann hafi ekki fengið
formlegt tilboð en sé það rétt að Jap-
anir vilji fá hann sé það mikill heið-
ur. Wenger á eitt ár eftir af samningi
sinum við Arsenal.
Wenger þjálfaði lið Nagoya Grampus
áður en hann tók við liði Arsenal og
hann segist eiga mjög góðar minning-
ar frá Japan. Wenger segist þurfa að
hugsa sig vel um ef boð berst en það
sé ekkert ómögulegt þegar knatt-
spyrnan er annars vegar.
Ronnie Moran er að hætta störfum
hjá Liverpool eftir 50 ára starf hjá fé-
laginu. Hann kom til liðsins árið 1949
og lék 379 leiki með liðinu áður en
hann sneri sér aö þjálfun hjá liðinu.
Moran hefur verið hægri hönd
margra framkvæmdastjóra á Anfield
Road og 1 tvígang hefur hann stýrt
liðinu, bæði skiptin eftir aö fram-
kvæmdastjóramir hættu á samnings-
tbnanum en þeir voru Kenny Dalgl-
ish og Graeme Souness.
Pólverjar báru sigurorð af Úkrainu-
mönnum, 1-2, í vináttulandsleik í knatt-
spymu sem fram fór i Kænugaröi í gaer-
kvöld. Úkraínumenn eru í riðli með ís-
lendingum í undankeppni Evrópumóts
landsliða sem hefst í haust.
-GH
í kvöld
1. deild karla í knattspymu:
Þór-KVA...................20.00
Skallagrímur-KA...........20.00
2. deild karla i knattspymu:
Viðir-Reynir S ...........20.00
3. deild karla í knattspyrnu:
Ármann-GG ................20.00
Styrkleikalisti Alþjóða knattspyrnusambandsins:
Heimsmeistararnir
hækkuðu um 15 sæti
- Brassar í efsta sæti og íslendingar í 69. sæti
Alþjóða knattspymusambandið sætinu þar sem þeir hafa dvalið Efstu þjóðir á listanum er þessi:
gaf í gær út nýjan styrkleikalista nokkuð lengi. 1. Brasilía................ 73,84 (-0)
og biðu margir eftir honum í kjöl- Af þátttökuþjóðunum á HM í 2. Frakkland................70,18 (+15)
far heimsmeistaramótsins í Frakk- Frakklandi falla Japanir niður um 3. Þýskaland......... 68,65 (-1)
landi. Hollendingar tóku stærsta flest sæti eða alls 12. Þeir voru í 12. 4. Króatía................. 66,62 (+15)
stökkið en lið þeirra hækkaði um sæti á listanum fyrir HM en slæmt 5. Argentína..........65,14 (+1)
heil 17 sæti á listanum. Heims- gengi þar kom þeim i 22. sæti. 6. Tékkland.......... 64,90 (-3)
meistarar Frakka tóku einnig risa- íslendingar eru í 69. sæti og 7. Júgóslavía.........64,17 (+1)
stökk eins og vænta mátti og hækka um þrjú sæti frá síðustu 8. Holland........... 64,07 (+17)
hækkuðu um 15 sæti. Það gerðu birtingu. Ástæðu þess má rekja til 9. Ítalía............ 64,07 (+6)
Króatar einnig en þeir hrepptu leikjanna við S-Afríku og Sádi-Ar- 10. England.......... 62,66 (-5)
bronsið í nýafstaðinni heimsmeist- abíu fyrir HM sem lyktaði báðum n. Noregur........... 62,26 (-4)
arakeppni. með jafntefli. 12. Mexíkó............ 62,04 (-8)
Brasilía er sem fyrr í efsta sæt- Danir hækka um níu sæti og 13. Rúmenía ...........60,31 (+9)
inu en Frakkar koma í humátt þar eru núna í 18. sæti. Norðmenn 14. Spánn.............60,21 (+1)
á eftir. Þjóðverjar detta niður um hrapa hins vegar niður um fjögur 15. Chile .......... 59,30 (-6)
eitt sæti en halda sem fyrr þriðja sæti, úr 7. sæti í það 11. -jks
Þaö er engu líkara en að Gísli Jóhannsson dómari sé í þann mund að fella Ómar Bendtsen, sóknarmann Fylkis, í leik Fylkis og Breiðablik í
8-liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu í Árbænum í gærkvöld. DV-mynd E.ÓL
Blikar í undanúrslitin
0-1 Jón Þórir Jónsson (17.) Sigurður Grétarsson tók
aukaspymu frá hægri og eftir skallaeinvígi datt bolt-
inn inn á markteig þar sem Jón var fyrstur að átta sig
og potaði boltanum inn.
0-2 Atli Kristjánsson (62.) af stuttu færi eftir að
Bjarki Pétiusson haföi lagt boltann út til hans.
1-2 Guðjón Guðjónsson (68.) með skoti rétt utan teigs
eftir að Blikar náðu að skaUa frá eftir aukaspyrnu.
1-3 Sævar Pétursson (87.) Bjarki Pétursson vann bolt-
ann af vamarmanni Fylkis rétt utan teigs og Sævar lék
að markteignum og renndi boltanum í Qærhomið.
Breiðablik er komið i undanúrslit bikar-
keppninnar eftir sanngjaman sigur á Fylki, 1-3,
í Árbænum í gærkvöldi. Það var helst síðustu 20
mínútur leiksins sem Fylkismenn virtust líkleg-
ir til afreka og þeir hefðu með smáheppni getað
knúið fram framlengingu.
Leikurinn byrjaði mjög dauílega og fyrstu 17 mín-
útumar gerðist ekkert markvert. Sennilega hefði
leikurinn verið ein stór ládeyða hefði Jón Þórir
ekki náð að koma Bhkum yfir á 17. mínútu. Eftir
það hresstust bæði liðin aðeins þó að deyfðin
væri áfram ríkjandi. Liðin fengu hvort sitt færið
áður en Atli Kristjánsson skoraði á 39. mínútu en
markið var dæmt af þar sem Gísh Hlynur
Jóhannsson dómari, sem var mjög slakur í leikn-
um, taldi Atla hafa brotið af sér.
Umdeht og að margra mati undarlegt atvik
átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Fylkismenn
skoruðu eftir aukaspymu en þegar boltinn var
á leið í markið flautaði dómarinn th leikhlés og
því var markið ekki gilt. Áhangendur Fylkis
vom mjög ósáttir við þessa dómgæslu og getur
undirritaður tekið undir með þeim þar.
Síðari hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri
og nokkur dauðafæri litu dagsins ljós. Blikar
áttu tvö góð skot með minútu mhlibhi og virt-
ust mun líklegri til að bæta við mörkum. Sú
varð líka raunin þegar Atli Kristjánsson skor-
aði á 62. mínútu. Um leið og hann skoraði braut
Fylkismaður mjög iha á honum og varð hann að
fara af leikvehi. Fylkismenn voru Ijónheppnir
að missa ekki mann út af en dómarinn veitti
ekki einu sinni thtal.
Þjálfararnir brenndu af vítaspyrnum
Eftir þetta tóku Fylkismenn við sér og sex
mínútum eftfr markið náðu þeir að minnka
muninn. Þeir héldu áfram að sækja eftir það og
voru nálægt því að jafna. Einu sinni þurftu
Blikar að bjarga á línu og Atli Knútsson mark-
vörður varði aukaspyrnu Gunnars Þórs Péturs-
sonar á glæshegan hátt. Kjartan Sturluson,
markvörður Fylkis, lék síðan sama leik hinum
megin. En þegar venjulegum leiktíma var ný-
lokið greiddi Sævar Pétursson Blikunum náðar-
höggið. Eftir það var kæruleysi komið í liðin
sem sást best á því að liðin fengu hvort sína
vítaspyrnuna en hvorug þeirra nýttist þótt
reyndir menn sæju um að taka þær. Fyrst skaut
Ólafur Þórðarson í stöng og síðan varði Kjartan
Sturluson frá Sigurði Grétarssyni.
„Sigurinn sanngjarn"
„Ég held að þessi sigur hafi verið sanngjarn
þó að við höfum legið undir töluverðri pressu
undir það síðasta. Við fengum á móti hættuleg-
ar skyndisóknir. Þetta var erflður leikur en við
erum mjög ánægðir með að vera komnir í und-
anúrslit," sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari
Blika, eftir leikinn. Bjarki og Atli náðu nokkuð
vel saman í framlínunni hjá Blikum og þá átti
Hreiðar Bjamason einnig mjög góðan leik.
„Fyrir neðan allar hellur“
Ólafur Þórðarson var ósáttur við dómarann í
lok fyrri hálfleiks.
„Maðurinn flautaði þegar boltinn var á leiðinni
í netið. Þetta er fyrir neðan ahar hehur. En það
sem kom Blikunum fyrst og fremst áfram var
okkar eigin aulaskapur. Einbeitingin var ekki í
lagi og við færðum þeim tvö mörk á silfurfati,"
sagði hann.
-HI
Ólympíuleikar
árið 2008:
Frakkar
íhuga
umsókn
íþróttamálaráð-
herra Frakklands,
Marie-George Buffet,
lýsti því yflr í gær að
hún myndi styðja um-
sókn Frakka fyrir að
fá að halda ólympíu-
leikana árið 2008.
Umsókn um að
halda keppnina þá
hefur ekki enn borist
ólympíunefndinni en
liklegt er að hún ber-
ist innan skamms.
Næstu ólympíu-
leikar verða haldnir í
Sydney í Ástralíu
árið 2000 og Grikkir
hrepptu leikana 2004
en leikamir fara fram
í Aþenu.
-JKS
Kanchelskis til Rangers
Andrei Kanchelskis var í gær seldur frá ítalska liðinu Fiorentina th
skoska úrvalsdehdarliðsins Glasgow Rangers fyrir 600 milljónir króna.
Kanchelskis er 29 ára gamall Úkraínumaður sem hefur tvö undanfarin
ár leikið með Fiorentina en þar áöur lék hann með Everton og
Manchester United.
Forráöamenn Rangers hafa verið kaupglaðir aö undanfórnu.
Hohendingurinn Dick Advocaat sem tekinn er við liðinu af Walter Smith
hefur keypt landa sína, Arthur Numan og Giovanni van Bronchorst, og
þá er hann að ganga frá kaupum á franska markverðinum Lionel
Charbonnier.
„Ég er mjög ánægður með aö fá Kanchelskis. Hann er fljótur, teknískur
og hefur næmt auga fýrir sphi. Við væntum mikils af honum," sagði Dick
Advocaat, framkvæmdastjóri Rangers. -GH
Allir á Stjörnuvöllinn!