Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 8
Herbalife lofar því sem flesta dreymir um: góðri heilsu og glás af peningum. Fókus fór á harðlæstan fund og fékk að vita allt um málið: i] á jjuJJjj'Jjjjjj 3J1 JJJJJJ Líklega eru afgreiðsludöm- urnar í tískubúðunum þær einu á klakanum sem eru komnar í sumarskap. Enn er ýmist slabb, hret, snjór eða frost úti en samt eru þær bún- ar að draga upp heilu sending- arnar af sumarfotum. Lóan er ekki lengur fyrsti vorboðinn, dömumar í tískubúðunum eru teknar við því hlutverki. En hvað sem því líður má sjá í hvaða búðarglugga sem er að grátt ætlar vera litur sumars- ins. Allir tala um grátt og allir fara í grátt, það er eitthvað svo þægilega hlutlaust og óáber- andi, passar við alla aðra liti og er um leið klassískt og fer flestum vel. Samt er annar lit- ur að læðast aftan að þeim gráa - gulbrúnn. Ekki skær heldur svona sólbrúnkugul- brúnn. Líkt og sá grái er hann þægilega hlutlaus og óáber- andi, sumarlegur og klæðileg- ur. Aðaltískuhönnuðurnir eru að nota þennan lit á hina og þessa fylgihluti, svo sem tösk- ur, skó, varaliti, belti, kveikjara og fleira. Einhver föt eru líka höfö svona á litinn og þá sérstaklega jakkar og pils. Gott að vita af þessu, hvers- dagsleikinn verður þá kannski ekki eins grámyglulegur í sum- ar. Einu sinni lét ég teyma mig á fund hjá Samhygð, sem þá hafði nýlega hafið starfsemi. Þetta var hópur húmanista og mikill bar- áttuandi í loftinu, enda var fólk- ið sannfært um að tími þess væri rétt handan við hornið. Ég man að aðalgaurinn, Pétur Guðjónsson, hélt því blákalt fram að eftir hálft ár yrði Sam- hygð orðin stærsti stjórnmála- flokkur landsins. Ég nennti aldrei á annan fund og þegar fólkið var farið að bögga mig snemma á sunnudögum og biðja mig að koma með sér á baráttufund í Hafnarfirði bað ég kurteislega um að vera látinn í friði. Svipuð bjartsýni og baráttuandi mætir manni á Grand Hótel þar sem fundur hjá Herbalife er við það að skella á. Það er ekki fyrir hvern sem er að komast á fundina en ég er gestur eins sölumannsins og smýg inn. Hér eru um hundrað manns, flestir um þrítugt, margir með „I (hjarta) Herbalife" barm- merki og allir mjög hressir. Ég fæ mér kalt Herbalife-te sem gestum er boðið upp á og sest út i horn. Mikið klappað Á sviðinu er auð tafla. Til vinstri er blað sem búið er að skrifa á mikilvægar Herbalife- staðreyndir: 19 ár, 43 lönd, 2 billjóna dollara gróði. Hægra megin standa Herbalifevörumar í stöflum, næringarvörurnar, snyrtidótið, jafnvel svört Her- balife-dömutaska og gúmmíönd, sýnist mér. Nú kemur á sviðið ung kona og segir okkur frá bak- grunni Herbalife. Aðalgúrúinn heitir Mark Hughes. Hann hannaði efnið upp úr eldgöml- um kínverskum jurtafræðum og nýjustu geimferðavísindum. Fyrst seldi hann Herbalife af skottinu á bílnum sínum en sjá- ið bara hvar hann er í dag! segir konan og fólkið klappar. Það á eftir að klappa meira í kvöld. Allt annar maður Nú kemur leikarinn Hinrik Ólafsson á svið. Hann kynntist Herbalife fyrir allnokkrum mán- uðum en hélt fyrir þann tíma að ekkert amaði að sér. Annað kom á daginn þegar Herbalife-áhrifanna fór að gæta. „Þessi líkami, þetta hylki, er það eina sem maður á,“ segir Hin- Þorgrímur Þráinsson. Richard Clayderman. Rithöfundurinn og tóbaksvarnafrömuðurinn Þorgrímur Þráinsson og píanóleikarinn geöþekki, Richard Clayderman, eru glettilega likir menn. Þeir hafa báðir þetta ljósa aríska yfirbragð sem ber vott um hreysti og hreinleika. Há ennin eru gáfumerki, neftn bein, tennurnar hvítar og augun blá. Þetta er heiðarlegt og gott útlit - kannski svolítið væmið - en það hefur nú bara komiö þeim báðum til góða, allavega Clayderman sem nýtir sér það svo vel að hann lætur aldrei taka af sér myndir nema linsan á myndavélinni sé vandlega smurð upp úr vasilíni. rik einlæglega. „Maður verður að passa upp á líkamann og þessar vörvu- (bendir á staflann) eru eitt af því sem maður getur notað.“ Hann er hreinlega allt annar maður í dag, missti sjö kíló og hef- ur aldrei liðið betur; hægðirnir fínar (með hjálp trefjataflna og Flóra fiber), enginn bakverkur (þökk sé X-Cal), ónæmiskerfið í hoppandi stuði (Ros-Ox-töflurnar sjá fyrir þvi) og þannig áfram, m.a.s. segist Hinrik nota drykkinn Aloe Vera gegn timburmönnum. Hann segir að þegar hann fór til útlanda um daginn hafi Herba- lifedótið gleymst og þó hann missti bara þrjá daga úr hefðu gömlu menningarsjúkdómarnir farið að sækja á aftur og hann ekki geta beðið með að komast heim í skammtinn sinn. Hinrik vinnur leiksigur, gantast og er fyndinn og það er mikið hlegið og klappað fyrir lýsingum hans á áhrifamættinum. Nú er ég orðinn verulega þveginn og inn að trúa hverju orði. Er búinn með tvö glös af hinu bragðvonda tei sem Hin- rik segir að allir finni Hr , mun á sér rbaljfe; við að drekka. Ég finn að vísu engan mun en það hlýtur bara eitthvað að vera að mér. Vitnað „Hefur einhver hér inni misst meira en tíu kíló?“ spyr Hinrik. Margar hendm: fara á loft. „Hefur einhver hér inni misst meira en tuttugu kíló?“ Nokkrar hendur fara á loft. Nú fara rúmlega tíu manns upp á svið og allir hafa sömu sögu að segja: Þeir sem voru lífsleiðar lummur eru orðnir lífsglaðir og hressir, þeir sem voru hlussur eru búnir að missa helling af spiki, þeir sem drógust með leiðinlega kvilla finna varla fyrir þeim leng- ur. Herbalife er bara allt annað líf. „Mér hefur aldrei liðið betur“ er viðkvæðið. Ýktasta dæmið mn jákvæðnina er ung, ljóshærð kona sem er hátt uppi. „Ég veit þetta er svolítið ýkt,“ segir hún, „en ég tek 45 töfl,- ur á dag og mér líður ÆÐIS- LEGA! Ég ætla ALDREI að hætta á Herbalife!" Þessum sannindum er tekið með miklu lófataki og hvatning- argóli þótt sumir gestanna gefi frá sér vantrúarfuss. „Ég nota snyrtivörurnar líka,“ heldur stúlkan áfram, „og þetta eru FRÁBÆRAR snyrtivörur." í lokin á sinni sinni góðu upp- ákomu tekur Hinrik það fram að Herbalife lækni enga kvilla heldur haldi þeim niðri. Þess vegna verði maður að vera á Herbalife þangað til gröfin tekur við manni þvi annars fara hinir hræðilegu menningarsjúkdómar Vesturlanda að hrella mann aft- ur. Mér finnst skrýtið að Eternal- skuli ekki komið á markaðinn - „öðlist eilíft líf með Herbalife" - en þessi Mark Hughes-snilling- ur hlýtur að vera með slíkt efni á teikniborðinu. Prósentur Það er eitthvað andlegt og trú- arlegt við þetta Herbalife. Rétt eins og áður hefur verið haldið fram með kristnina, kommún- ismann og LSD á Herbalife að létta öflum áhyggjum af mann- kyninu, gefa lifinu tilgang og gera það einfaldlega þess virði að lifa því. Áður hafa líkamlegu og and- legu kostimir verið tiundaðir en nú stekkur Jón Magnússon, hress og háttsettur Herbalife-for- ingi, upp á sviðið og segir að það sé engin lygi að hægt sé að verða vel efnaður af Herbalife-sölu, sjálf- ur sé hann skýrt dæmi um það. Nú fer hann að teikna upp ein- hverja kassa, þríhyrninga, strik, prósentur og tölur. Hann segist ekkert hafa skilið sjálfur í sölu- kerfi Herbalife fyrr en eftir þrjá mánuði svo ég skelli skollaeyrum við fræðunum og hætti að hlusta á spekina, þetta er al- g j ö r 1 e g a óskiljanlegt hvort sem er. Annað slagið koma lægra settir Herba- life-sölumenn á sviðið, tala já- kvæðir um sín störf og eru von- góðir um að kom- ast bráðum upp í næsta þrep á píramídanum. All- ir geta orðið sölu- menn, það er bara skilyrði að vera á Herbalife. Jón segir að mikifl gúrú sé á leiðinni tfl landsins frá Kaliforniu og verði með „training" þann 20. Margir í salnum fara þegar að hlakka til. Nú er þetta orðið ágætt, hugsa ég og stekk feginn út þegar klukkutíma langur fundurinn er loksins búinn. Fæ mér rækjusam- loku og ligg svo í pípandi menn- ingarsjúkdómi fram eftir nóttu, hugsandi: Ja, kannski ætti maður að skella sér á einn skammt? -glh f Ó k U S 12. mars 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.