Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 I>'V nn Ummæli Aldur er afstæður „Vegabréfiö segir eitt, speg- illinn annaö, kvik- myndin enn ann- að, að ekki sé tal- að um almenn- ingsálitið." Victoria Abril kvikmyndaleik- kona, spurð um aldur sinn, í Morgunblaðinu. Okurverðið á fisknum „Meinsemdin er sú að þú þarft að borga okurverð fyrir fiskinn einhverjum Pétri og Páli áður en þú tekur hann úr sjón- um og verður að vera með alls konar ruglvesen í kringum það.“ Sigfús Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Unnar á Þing- eyri, í Morgunblaðinu. Ómagar á þjóðinni? „Það sem er kannski grátleg- ast við þetta er að komast að því eftir að vera búinn að þræla fyrir sjálfan sig og samfélagið að fá það frá ráð- mönnum að viö séum búin að vera ómagar á þjóðinni alla okkar tíð. Þetta er útrým- ingarstefna stjórnvalda gagn- vart landsbyggðinni." Gunnhildur Elíasdóttir, trún- aðarmaður verkalýðsfélags- ins Brynju á Þingeyri, í DV. Forsöngvari atvinnurekenda „Það er frjálst val fram- kvæmdastjóra ASÍ að gerast for- söngvari í kór atvinnurekenda." Eiríkur Brynjólfsson, kjara- hópi uppsagnarkennara, í Morgunblaðinu. Stjómendur Landssímans „Nýir stjómendur Lands- símans eru vafa- laust hinir mæt- ustu menn en hitt er kristalklárt að mestu virðist hafa skipt að báðir koma þeir úr innsta kjama Sjálfstæðisflokksins.“ Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður, í DV. Nútíma Júdasar „Menn sem Guðmundur bauð velkomna til starfa hjá Landssímanum voru sumir fljótir að snúa baki við honum en gerðust aumkunarverðir já- menn Þórarins Viðars. Maöur spyr sig hvernig þessir nútíma Júdasar eru innréttaðir." Kristinn Sigurðsson, fyrrum starfsmaður Pósts & síma, i DV. Guðmundur Páll Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness: Þeir fiska sem róa DV, Akranesi: „Mér líst ágætlega á nýja embætt- ið. í meirihlutasamstarfi okkar, sem hófst í upphafi þessa kjörtímabils, var ákveðið að embætti formanns bæjarráðs og forseta bæjarstjómar skiptist á milli flokkanna. Næstu tvö árin mun ég gegna þessu embætti og á síðasta ári kjörtímabilsins mun fulltrúi Akraneslistans taka að nýju við þessu embætti," segir Guðmund- ur Páll Jónsson, Framsóknarflokki, starfsmannastjóri Haraldar Böðvars- sonar hf. og nýkjörinn forseti bæjar- stjórnar Akraness. Hann tekur við emb- ættinu af Sveini Krist- inssyni, Akraneslist- anum, sem gegnt hef- sveitarfélögum i landinu sem em að svipaðri stærð. Það sem vissulega er erfitt í rekstrinum er hversu hátt hlutfall af tekjum sveitarfélagsins fer beint í rekstur málaflokka. Það verð- ur til þess að hlutfall af tekjum til framkvæmda er miklu minna." Guðmundur segir að atvinnu- ástand á Akranesi hafi lagast til mik- illa muna á undanfómum áram: „En það er rétt að meirihluti þeirra sem nú era atvinnulausir eru konur. í dag eru 12 karlar og 27 konur á atvinnuleysisskrá. Bæjar- stjóm Akraness hefur Maður dagsins ur starfinu i eitt ár. Akraneslistinn og Framóknarflokkurinn mynda meirihluta í bæjarstjórn Akraness, Framsóknarflokkurinn er með tvo fulltrúa og Akraneslistinn fjóra full- trúa. „Ég var kjörinn til að taka sæti í bæjarstjórn Akraness i upphafi síð- asta kjörtímabils 1994. Það era fjöl- mörg verkefni sem unnið er að á þessu kjörtímabili og má þar nefna fráveitumál. En stærsta verkefni kjö- tímabilsins er einsetning grannskól- anna á Akranesi. Ætlunin er að þvi verkefni ljúki í júlí áriö 2001.“ Einsetning grunnskólanna er viðamikið verkefni fyrir Akranes- kaupstað og fjárhagsstaðan þröng. Ræður bærinn við þetta fjárhags- lega? „Fjárhagsstaða Akranes- kaupstaðar er hvorki betri né verri en almennt gerist hjá ?/?/Á ekki neinar sér- tækar aðgerðir á prjónunum varð- andi atvinnu fyrir konur aðrar en þær að búa þannig almennt að at- vinnulífmu að það eigi kost á að dafna og verða samkeppnis- fært i því umhverfi sem því er búið hér á Akranesi.“ Guðmundm- segir að íbúum á Akranesi hafi fjölgað að undanfórnu. Nú er mikið byggt af íbúðarhúsnæði hér á Akranesi og bjartsýni í fólki. Á Akranesi er öfl- ugt og fjölbreytt atvinnulíf og þaö hefur verið ánægjulegt að aðilar hafa lýst yfir áhuga á að koma með starf- semi af höfuðborgasvæðinu hingað til Akraness. Atvinnumálanefnd hef- ur unnið ötullega að þessum málum. Um niðurstöður þessara mála veröur framtíðin að svara. Þeir fiska sem róa í þessum efniun." Um áhugamál segir Guð- mundur: „Aðal- áhugamál mín eru fótbolti og sund.“ Guð- j mundur er f giftur Sigur- línu Guðrúnu Júlíusdóttur tækniteiknara. Þau eiga tvö böm saman, Steinunni 8 ára og Sigurjón 7 ára. Fóstursonur Guðmundar er Valgeir Sigurðsson, 21 árs, nemi í Iðn- skólanum í Reykja- vík. -DVÓ Kaffileikhúsið: Jagúar og Big band Brútal Tónleikar verða í Kaffi- leikhúsinu í kvöld. Tvær hljómsveitir, Jagúar og Big band Brútal, koma fram. Eðaionkgrúppan Jagúar er búin að liggja sveitt í æf- ingahúsnæði sínu undan- fama mánuði við að berja saman frumsamið efni. Strákamir eru að fara í hljóðver í byrjun ágúst til að -taka upp plötu sem kemur út með haustinu. Hljómsveitin hefur fengið einróma lof áheyrenda fyrir spilamennsku sína. Margir segja að strákamir hafi tek- ið upp þráðinn þar sem Mezzoforte og Júpiters skildu við hann og að stefn- an lofi góðu. I Jagúar er góð blanda af ferskum og reynd- um tónlistarmönnum sem tilbúnir eru að leggja mikið á sig til að skemmta áheyr- endum sínum. Mottó hljóm- sveitarinnar er fyrst og fremst stuð og sviti. Það þarf ekki nema eina setningu til að lýsa hljóm- sveitinni Big band Brútal: „Samfelldur, óstöðvandi múr af mjaðmaskekjandi riþmum úr undarlegum og óþekktum hljóðum að hand- an.“ Skemmtanir Bjarni Haukur Þórsson leikur hell- isbúann sem er eina hlutverkið i leikritinu. Hellisbúinn Hellisbúinn er kannski það leikrit sem hefur fengið mesta að- sókn á einu ári og ekkert lát virð- ist vera á henni. Búið er að sýna verkið í íslensku óperunni frá því í fyrrasumar og nánast alltaf fyrir fullu húsi Aðeins einn leikari er i sýningunni, Bjarni Haukur Þórs- son. Hugmyndina að verkinu, sem fjallar á skemmtilegan hátt um samskipti kynjanna, má rekja til leikritsins Defending the Caveman eftir Rob Becker en það hefúr ver- ið á fjölunum vestur i Bandaríkjun- um í sex ár. Hallgrímur Helgason rithöfundur skrifaði Hellisbúann og byggir hann verkið á hugmynd Beckers. Sigurður Sigurjónsson er leikstjóri. Leikhús Hellisbúinn er verk sem karlar og konur eiga að sjá saman. Verk- ið á að geta gefið lexíu um hitt kynið og gæti ef til vill hjálpað fólki að skilja ýmislegt í fari makans sem hingað til hefur ver- ið torskilið. Þess má geta að það er ódýrara fyrir konur á leikritið. Hallgrímur Helgason rithöfundur skrifaði Hellisbúann og byggir hann verkið á hugmynd Beckers. Sigurður Sigurjónsson er leik- stjóri. Næsta sýning á Hellisbúan- um er í kvöld. Bridge Því hefur verið haldið fram, sennilega með réttu, að framfarinar í bridge á síðustu áratugum felist að- allega i betri sagnkerfum. Bridgemeistarar þátíðarinnar vora ekkert síðri í úrspilinu en meistarar nútímans og voru sennilegu litlu síðri í vöm. Sagnkerfi nútímans . byggja á vandvirkni þar sem menn skiptast- á upplýsingum eins og kost- ur er, áður en lokasamningurinn er valinn. Sagnir fyrri tíma einkennd- ust oft af djöfulgangi þar sem vaðið var í lokasamning án nokkurrar eft- irgrennslunar að ráði um samlegu spilanna. Hins vegar vilja menn oft gleyma því að groddalegar sagnir era oft áhrifaríkastar til árangurs. Skoðum hér eitt dæmi frá fjórðu um- ferð Evrópumótins á Möltu. Langel- gangasti samningurinn á flestum * 976 •* Á9432 ♦ 9764 * 4 * K1085 •* KDG8 ♦ ÁG8 4 95 ♦ Á4 •* 10 ♦ 10532 * KD10863 borðanna var 4 spaðar, spilaðir ým- ist á vestur- eða austurhendumar: Hver einasti sagnhafi fór niður í fjóram spöðum eftir stungu í hjarta- litnum og spilið féll því á flestum borðum. En Belgar græddu þó 12 impa á þessu spili í leik sínum við Hollendinga. Þar sem Belgarnir Zvi Engel og Guy van Middelem sátu í AV, gafst gamla sagnaðferðin best. Austur opnaði á einu laufi, suður kom inn á eðlilegum 2 laufum og Engel stökk einfaldlega beint í 3 grönd. Þar með týndist spaðalitur- inn í meðforam Belganna, en það kom síður en svo að sök. Engel átti ekki í vandræðum með að taka 10 slagi í þessum samningi. Þess má geta að Engel og Middelem voru meðal efstu para í Butlerútreikningi mótsins í lokin, enduðu í 9.-10. sæti af 216 spilurum með 0,69 skoraða impa að meðaltali í spili. ísak Öm Sigurðsson 4 DG32 •* 765 ♦ KD 4 ÁG72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.