Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Blaðsíða 10
B vikuna 15.7-22.7. 1999 NR. 332 Efnabræöurnir Knoll og Tott eru efnilegir og á uppleið. Þeir leika lagiö „Hei stelpa, hei strákur" og fikra sig á toppinn, eru númer fimm þessa vikuna. Vikur á lista BEAUTIFUL STRANGER AMERICAN WOMEN . . . .........MADONNA ^' .....LENNY KRAVITZ ' WILD WILD WEST . . .WILL SMITH (WILD WILD WEST) 4- ' SCAR TISSUE..............RED HOT CHILLI PEPPERS J ' HEY BOY, HEY GIRL........THE CHEMICAL BROTHES • | LAST KISS ........................ . .PEARL JAM f | | W | p o FLJÚGUM ÁFRAM ............ BOOM BOOM BOOM BOOM . . ALL OUT OF LUCK ..........SELMA (EUROVISION) .SKÍTAMÓRALL | . .VENGABOYS 4- I <h SECRETLY .SKUNK ANANSIE | 11 ALEINN .BUTTERCUP t 12 STARLOVERS .GUSGUS J 13 IF YOU HAD MY LOVE .JENNIFER LOPEZ t 14 ÞÚ ERT EKKERT BETRI EN ÉG...........SSSÓL (Jj£ 15 MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON | 16 LENDING 407 .LANDOGSYNIR | 17 NARCOTIC .LIQUIDO | 18 TSUNAMI .MANIC STREET PREACHERS 19 FLUGUFRELSARINN .SIGURRÓS ! 20 LIVIN’LA VIDA LOCA .... RICKY MARTIN 4 mmi 4 UNPRETTY t I 4 MAMBO NO. 5 t III 4, OOH LA LA 4 mi 4» WHEN YOU SAY NOTHING. RONAN KEATING t ii 4 WORD UP MEL B (AUSTIN POWERS) t ii 4 RIGHT here right now FATBOY SLIM 4 mmi 4 KOMDU MEÐ (Remix) . . . $7 1 4 feel FOR ME t II 4 LOUD AND CLEAR t II 4 ANYONE 4 im 4 SWEET CHILD O’MINE . . t iii 4 i guit t iii 4 YOU LOOK SO FINE .... GARBAGE 4 m 4 SWEET LIKE CHOCOLATE . . .SHANKS & BIGFOOT 4 mi 4 ÞÚ VERÐUR TANNLÆKNIR .ÚR LITLU HRYLLINGSB. ^ i 4 buses AND TRAIN ®ii 4 ROOTS (FEEL TOO HIGH) .SUNSHINE STAE & DAZ 4 m 4 v.i.p. .JUNGLE BROTHERS «57 I WHAT YOU NEED .POWERHOUSE FEAT DUANE | 4 TWO IN THE MORNING .JENNIFER BROWN | íslenski listinn er samvinnuverkefni Mónó og DV. Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og tekið þátt í vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á Mono á fimmtudags- kvöldum kl. 20.00 og birtur á hverjum föstudegi í Fókus. Listinn er jafnframt enduríluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekiö af bandaríska tónlistarblaöinu Billboard. Nýtt á Hækkar sig frá Lækkar sig frá listanum siöustu viku síöustu viku Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 ókus Yfirumsjón meö skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón meö framleiðslu: lvar Guömundsson • Tæknistjóm og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll ólafsson • Kynnir I útvarpi: Ivar Guömundsson Tónlistin sem Limp Bizkit ryður út úr sér, hnausþykk blanda þungarokks, pönks og hipp hopps, hefur stundum verið kölluð „rapcore". Sveitin var stofnuð af söngvaranum og tattúlistamannin- um Fred Durst og vini hans Sam Rivers í Jacksonville í Flórída árið 1994. Fred syngur en Sam spilar á hassa og innan skamms bættist í hópinn trommarinn John Otto, sem er frændi Sams, og gítarleikar- inn Wes Borland. Síðar bættist Dj Lethal í bandið, en hann var áður í House of Pain. Snjóboltinn fór að rúlla þegar broddgeltimir í Kom áttu leið um bæinn. Kom-bassa- leikarinn og gítarleikarinn létu Fred húðflúra sig og góður vin- skapur kviknaði á húðflúrsstof- unni. Næst þegar Korn átti leið um hafði Limp Bizkit tekið upp spólu sem sló algjörlega í gegn í hljóm- sveitarrútu Kom. Sögur um ágæti LB bámst frá manni til manns. Bandið fékk að hita upp fyrir Hou- se of Pain og Deftones og tilboðum frá stórfyrirtækjum rigndi inn. Flip/Interscope hreppti hnossið og um mitt ár 1997, þegar fyrsta albú- mið (Three Dollar Bill Y’A11$) kom út, var bandið það umtalaðasta og stærsta í rapcore-deildinni. Extra bónus Fyrsta platan seldist vel, en þó ekkert í líkingu við aðra plötuna sem þaut beint á toppinn og er þar enn. Þessa velgengni má þakka óþrjótandi krafti bandsins sem hef- ur spilað linnulítið í þau tvö ár sem era á milli platnanna, m.a. á „Ozzfest" og „Family V£dues“ upp- plötudómur Limp Bizkit er á toppnum aðra vik- una í röð, ruddi Backstreet Boys úr vegi og hefur gef- ið rokkurum þá von að ruddarokk sé vinsælasta tónlistin í dag. Hvað er eiginlega í gangi? ákomunum. Á fyrri plötunni var það ógnvænleg útgáfa af George Michael-laginu „Faith“ sem sló í gegn en á þeirri nýju er það heild- in sem blífur, þó lög eins og „Nookie“ og „N 2 gether now“ ryðji brautina. „Ég held við höfum sett stand- ardinn fyrir þessa tegund af tón- list,“ segir Wes gítarleikari fullur bjartsýni. Og um nýju plötuna segir hann: „Þetta er platan sem við höfum viljað gera síðan við byrjuðum." En átti hann von á að platan færi á toppinn? „Ég pældi aldrei í því. Þegar við gerðum plötuna vonuðum við bara að aödáendunum myndi finnast hún góð. Ég hugsaði aldrei um fyrsta sæti Billboard-listans, held- ur bara: Guð, ég vona að Limp Bizkit-aðdáendurnir fili þessa plötu. Allt annað var extra bónus.“ Basement Jaxx — Remedy ★ ★ ★ ★ Sturtað úr ólíkum pokum Dómamir hafa verið á einn veg: Besta dansplata sumarsins, ef ekki ársins. Það má taka undir með þessu því fyrsta albúm Basement Jaxx er stinnur danspakki, svo hlaðinn af eyrnakonfekti að jafnvel eftir tíu hlustanir er platan enn að koma manni á óvart. Merkið tryggir gæðin og gæðin tryggja tveir dans-kumpánar, Felix Buxton og Simon Ratcliffe, sem eiga sameiginlega stuðsögu sem nær langt aftur á þessum áratugi. Drengirnir pumpuðu fjöri á skríl í ólöglegum dansholum í London, gáfu út ýmsar „white label“ til- raunir, áttu gleðismell eitt sumarið á Ibiza (“Samba Magic“), uppgötv- uðu „garage" dívuna Corinna Jos- eph og krukkuðu saman í rímixum fyrir aðra. Allt þetta fellur í skugg- ann af plötunni „Remedy" og nú er ekki ólíklegt að mæður strákanna þakki sínum sæla fyrir að þeir hlustuðu ekki á þær þegar þær suðuðu sem mest um að þeir legðu eitthvað gróðavænlegt fyrir sig. Stóri plúsinn við „Remedy" er fjölbreytnin og hvernig platan spriklar í græjunum eins og lífseig lúða á dekki. Strákamir sturta fjör- efnum úr ólíkum pokum: hús, ragga, soul, fönk og teknó er kannski uppistaðan en í bland er sturtað úr posum merktum með flamenkói, samba, tripp-hoppi og einhverju sem ég veit ekki einu sinni hvað heitir. Útkoman er greindarleg danstónlist, ekki bara eitthvað sem hrekur þig slefandi á Risakamar Hljómsveitin er með ímyndunar- aflið í lagi. Á Ozzfest skriðu með- limirnir upp úr risastóru og skítugu klósetti í upphafi tónleika og á Family Values-túmum fylltu þeir sviðið af breikdönsurum og geimdrasli í stíl við myndina Mars Attacks. Fred átti sjálfur hugmynd- ina að þessari sviðsumgjörð og hann er duglegur og kemur víða við. Hann er orðinn háttsettur í Interscope-firmanu og hljóðvann aðra plötu hljómsveitarinnar Cold, sem er skipuð gömlum félögum frá Jacksonville. Þá hefur hann leik- stýrt myndböndum Limp Bizkit og komið fram á plötum með Kom, Videodrone og Soulfly. Nú er hann að skrifa handrit að kvikmynd. „Sjáðu bara George Lucas,“ segir Fred og glottir. „Sá kappi tekur sér aldrei pásu. Ef maður gerir nógu mikið af góðu stöffi, þá verður maður goðsögn sem heil ný kyn- slóð vill vinna með.“ Limp Bizkit mun eflaust hamast jafnmikið nú og áður. Sveitin verð- ur aðalsveitin á næsta Family Values-túr í haust og hefur einnig ráðagerðir um að byrja að taka upp plötu númer þrjú seint á þessu ári. Er lina kexið komið til bjarga rokkinu? Eða munu einhverjir sæt- ir súkkulaðistrákar trjóna á toppn- um í næstu viku? Fylgist spennt með. Stóri plúsinn við „Remedy“ er fjölbreytnin og hvernig platan spriklar í græjunum eins og lífseig lúða á dekki. dansgólfið heldur eitthvað sem þú getur notið til botns í sófanum heima hjá þér. Eini veikleiki plötunnar eru nokkur lög í endann sem standast ekki þær háu kröfur sem fyrri parturinn setur. Til dæmis er end- urgerðin af gömlu ska-snilld Select- er (lagið „Same Old Show“) tíð- indalaus og tröllsleg og „Stop 4 Love“ er jafn spennandi og bak- grunnstónlist í fræðsluþætti um marglyttur. En ekki láta þessi smáatriði trufla þig því þú átt verulega gott í vændum ef þú gefur Basement Jaxx tækifæri. Gunnar Hjálmarsson 10 f Ó k U S 16. júlí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.