Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 10
vikuna 16.9-23.9. 1999 NR. 341 Mariah Carey er rosalega sæt og sexí. Sérstaklega þegar hún syngur Heartbreaker sem er lag sem fær hvaða rokkara sem er til að éta æluna úr sér. Hún verður ábyggilega í fyrsta sæti í næstu viku. Þjóðin er í þunglyndi þetta skammdegið og verður í því fram að jólum. Vikur á lista MAMBO NO. 5 .LOU BEGA T COFFEE& TV t III BURNING DOWN .TOM JONES & CARDIGANS. lll LAST KISS 4 mmn HANGIN AROUND THE CARDIGANS #m AROUND THE WORLD . . . .RED HOT CHILLI PEPPERS t ii LATELY 4 m UNPRETTY t mmm BLUE (DA BA DEE) . . . EIFFEL 65 t iiii KING OF MY CASTLE . WAMDUE PROJECT i mim 11 WHEN YOU SAY NOTHING RONAN KEATING | mmi 12 IF YOU HAD MY LOVE . t mmm 13 SO PURE t mn 14 EVERYTHING IS EVERYTHING LAURYN HILL # mim 15 BILLS, BILLS, BILLS . . . 4 mm 16 HEYÞÚ 4 m 17 THERE SHE GOES . . .SIXPENCE NONE THE RICHER t ii 18 2 TIMES 4 iiii 19 BAILAMOS 4 mn 20 HEY LEONARDO .BLASSED UNION OF SOULS t iii 4* JIVIN' ABOUT 4 rniii 4* IF I LET YOU GO t iii 4 HEARTBREAKER fei GEIMSKIPIÐ SÓL 4 mi 4 TELL ME IT’S REAL . . . f iiii 4/ Ml CHICO LATINO t iiii JIVIN’ ABOUT 4 mim 4 SAGA tn 4 RENDEZ-VU 4 mi 4 SOMEDAY WE’LL KNOW 4 iii 4 LARGER THAN LIFE . . t ii 4 SITTING DOWN HERE . . i 4 FELL GOOD I DJ JURGEN & ALICE DEEJAY t ii MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON 4 mmm SING IT BACK MOLOKO i im 4SMOOTH .SANATANA & ROB THOMAS t iii 4 (YOU DRIVE ME) CRAZY BRITNEY SPEARS 4' STEAL MY SUNSHINE . . 4 iii 4 SUMMER OF OUR LIVES f ii 4 HIGHER THAN HEAVEN i íslenski listinn er samvinnuverkefni Mónó og DV. Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og tekiö þátt í vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á Mono á fimmtudags- kvöldum kl. 20.00 og birtur á hverjum föstudegi í Fókus. Listinn er jafnframt enduríluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart" sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaöinu Billboard. Hækkar sig frá Lækkar sig frá Stendur síöustu viku í staö Nýttá listanum . síöustu viku Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 v Yfirumsjón með skoðanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaösdeild DV • Tölvuvinnsla: Dódó Handrit, heimildaröllun og yflrumsjón með framleiðslu: ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiösla: Þorsteinn Ásgeírsson og Þráinn Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll ólafsson - Kynnir í útvarpi: ívar Guðmundsson Hljómsveitin Tindersticks var að senda frá sér stúdíóplötu númer fjögur, Simple Pleasures. Enn á ný fær sveitin brjálæðislega góða dóma, enda spilar hún djúpvitra gáfumannatónlist sem höfðar til gagnrýnenda. Fyrri plötur Jjfff ŒIki hafa allar endað á árslistum blaðamanna og það má fastlega búast við því að sú nýja geri það iíka. *. Sfci'i'S, j. í- - . Það er útbreiddur misskilning- ur að Tindersticks sé áströlsk hljómsveit. Tónlist hennar er reyndar mjög lík þeirri sem Ástr- alinn Nick Cave hefur flutt með hljómsveit sinni en Tindersticks kemur frá Nottingham á Englandi. Auk þess að minna á rifna jakkafatapoppið hans Nicks minnir tónlist Tindersticks á menn eins og Jacques Brel, Leo- nard Cohen og Scott Walker: yf- irvegað gæðapopp með ljóðræn- um textum um ástir og örlög og Tindersticks er kannski, ásamt hljómsveitinni Divine Comedy, eina hljómsveitin í dag sem gerir út á rómantík, dramatík og dep- urð. Ekki tónlist - sem sagt - fyr- ir stuðdýr eða harðjaxla, heldur fyrir ljóðrænu lopakerlinguna í sérhverri sál. Ekkert er einfalt eða auðvelt Tindersticks telur sex manns en aðalgúrúinn er söngvarinn, Stuart Stables. Áður en Tinder- sticks varð til árið 1992 hafði hann spilað með nokkrum af með- limum bandsins í indí-hljómsveit- inni Asphalt Ribbons en litlum sögum fer af afrekum þess bands. Með annarri smáskífu sinni, „Marbles", náði Tindersticks at- hygli popppressunnar. Þá, líkt og nú, þótti auðveldasta leiðin á topp poppsins sú að vera með læti. plötudómur Hæverskan og lítillætið í meðlim- um Tindersticks þótti þó ferskur leikur og það má líkja sveitarmeð- limum við Skotana í Belle & Sebastian að því leyti að þeir nenna einfaldlega ekki að eltast við skottið á gjammandi popp- hundinum. „Maður sér fullt af hljómsveit- um rísa og hníga: einn daginn eru þær hetjur og þann næsta út- brunnin skör. Við ákváðum snemma að ráða öllu sjálfir og höfum aldrei farið eftir fólki sem segir: Allir aðrir gera þetta svona og þess vegna ættuð þið að gera það líka.“ Hér talar söngvarinn. Hann er að því er virðist nokkuð sæll fjöl- skyldumaður þó samkvæmt text- unum mætti halda að hann væri lífskvalinn ástarþræll. „Lífíð er ekkert einfalt eða auð- velt þó maður eigi fjölskyldu," segir hann og bætir við drama- tískt: „Ekkert er einfalt eða auð- velt.“ Sú náttúrlegasta Lag sem hljómsveitin tók upp með leikkonunni Isabellu Rossell- ini varð nokkuð vinsælt hér á landi og eflaust mun Simple Plea- sures kveikja í mörgum. Platan er styttri og hnitmiðaðri en fyrri plötur, gerir meira út á soul-áhrif- in og er hlustendavænni. Síðasta plata, „Curtains", reyndi mjög á þolrif meðlima og um tíma leit út fyrir að Tindersticks-sagan væri öfl. Stuart telur þó krísuna hafa bjargað bandinu: „Hljómsveitin komst á þann punkt að það var annað hvort að hætta eða koma sterkari og þróaðri upp.“ Hvernig þróaðist nýi Tinder- sticks-hljómurinn? „Við höfum alltaf verið að þró- ast í þessa átt en á Curtains lent- um við i hálfgerðri blindgötu og fundum enga leið út. Við vorum þjakaðir af því sem við töldum vera stöðnun en gátum sem betur fer talað okkur út úr vandamál- inu í staðinn fyrir að gefast upp. Fyrir vikið er nýja platan algjör- lega sú náttúrulegasta sem við höfum gert. Við fundum nægt sjálfstraust til að vera við sjálfir." Hva, voruói þá aö þykjast á hin- um plötunum? „Nei, ég segi það kannski ekki, en við höfðum málað okkur út í hom og vorum týndir í ákveðnum stíl. Öll lögin á nýju plötunni eru byggð á sterkum tilfinningum. Á síðustu árum höfum við gengið i gegnum margt, bæði sem hljóm- sveit og í einkalifinu. Ég held að það sé greinilegt þegar hlustað er á plötuna. Það er bæði fæðing og dauði í þessari plötu, og fullt af því sem er á milli." -glh r § Áki & Starkaður ★ ★★ Unffskðid í stn§i Þessi plata, sem er unnin af tví- menningunum Áka og Starkaði frá Keflavík, er dæmi um hvað getur gerst þegar ungir menn með ímyndunrafl komast í hljóðver. Á henni blanda þeir saman ólikum poppafbrigðum og fá til liðs við sig ólíka söngvara og músíkanta. Útkoman er misjöfn að gerð og kannski gæðum, en flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hljóð- færaleikarar á plötunni eru fjöl- margir (auk hefðbundinna popp- hljóðfæra er notast við tölvur, lúðrasveit og strengjakombó svo eitthvað sé nefnt) en söngvarar eru helstir þau Heiða úr Unun, Sigurður Ó. Pálmarsson úr Texas * Jesús, Stefán Karl Stefánsson leikari og trúbadorinn Magnús Sigurðsson. Tónlistin er mjög fjölbreytt og þegar best tekst til er þetta bara skrambi skemmtilegt efni. Opn- unarlagið „Bros yfir bugaðar var- ir“ er t.d. fínt djasspopp í anda Kombós EUenar. Heiða syngur það og gerir vel. Hún nýtur sín vel í svona tónlist. Lögin sem Sig- urður syngur minna bæði svolítið á Texas Jesús; „Algengir en sak- lausir draumar gamalla manna“ (flott nafn á lagi!) er 80’s skrípólag með helíum bakröddum og „1. maí“ er lúðrasveitarþrumari. Gott mál fyrir okkur sem söknum Texas Jesús. „Komdu með Kristi á kvumm og kvukk“ er grúví el- ektró smellur og „Sál tér sortna" (hitt lagið sem Heiða syngur) er ljúft strengjapopp. Önnur lög eru heldur síðri. „Al- exander 2000“ er meinlaust menntaskólapönk, „Nelja" hljóm- ar eins og Stuðmenn með Egil í karakter (slæmt!), Þyrnirós er kannski ágætt á Bylgjuna, en ... Textarnir eru líka margir Tónlistin er mjög fjölbreytt og þegar best tekst til er þetta bara skrambi skemmtilegt efni. skemmtilegir. Þeir fjalla um klassísk viðfangsefni eins og t.d. að vera ungur og ástfanginn (Bros yfir bugaðar varir) eða gamall og graður (Algengir en saklausir draumar gamalla manna) og eru vel yfir meðallaginu í poppheim- um. Er nýtt ungskáld í fæðingu? Á heildina litið er hér ágæt af- urð á ferðinni. Það hefur örugg- lega verið gaman að gera þessa plötu og stundum tekst strákun- um að smita mann af andagift- inni. Trausti Júlíusson 10 f ÓkllS 17. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.