Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1999, Blaðsíða 12
p.lötudómur vikuna 16.12 - 23.12 1999 50. vika Ellefu ár í bransanum og enn á toppnum, a.m.k. þessa vikuna. Sálin hans Jón míns slær öllu nýjabruminu við og toppar listann með nýju lagi af tónleikaplötunni sinni. íslenska þjóðin er að fíla Stebíba og félaga, það er sko alveg á tæru. Topp 20 (01) Okkarnótt Sálin hans Jóns míns Vikur á lista /* (02) The Dolphins Cry Live 5 (03) The World is Not Enough Garbage /3 (04) The Bad Touch Bloodhound Gang 2 05 OtherSide Red Hot Chilli Peppers ' 1 (06) Sun Is Shining Bob Marley & Funkstar /13 (07) Under Pressure (Rah Mix) Queen & David Bowie ~ 1 08 : ILeamedFmm The Best Whitney Houston 3 (09) Satisfy You PuffDaddy /* (10) Ifl Could Turn Back.. R.Keiiy New Day wycief 3 (11) Örmagna Land og Synir 3 (12) Learn To Fly Foo Fighters 2 13 Just My Imagination The Cranberries /8 (74) NewDay WyClefJean & Bono 9 (15) Rise Gabrielle /3\ 16 IAm Selma 4 17) Kerfisbundin ást Maus 2 [18) Á þig (Órafmagnað á Mono) Á móti sól 2 (19) ModelCitizen Quarashi /3 (20) To Be Free Emiliana Torrini /13 Sætin 21 til 40 topplag vikunnar 21. Keep Oíl Moviíl Five 6 . 22. WhatlAm Emma Bunton & Tin Tin 4 æ nastökkvari __ « jm vikunnar 23. Svifum Skitamórall 3 24. Alltáútsölu Buttercup 5 X nýttálistanum 25 KingforaDay Jamiroquai 4 'j-q'' stendur l staí 26. Stick’Em Up Quarashi 7 a hækkar sig fri 21' Dear Lie TLC 2 1 s/ðjstu viku 28. WhatAGirlWants Chrístina Aquilera 2 i lækkar siq frá 29. Tungubrögð siiistu viku 30 Misssarajevo Ensími 3 George Michael 2 fall vikunnar 31. NoOneToLove Páll Óskar 2 * 32. BugABoo Destiny's Child 8 33. LiftMeUp Geri Halliwell 4 34. TheBestofMe BryanAdams L 1 35. (You Drive Me) Crazy Britney Spears 14 36. MariaMaria Santana “í í; 37. Flying Without Wings Westlife 5 38. Sexbomb (Remix) Tom Jones L1 : 39. Heartbreaker Mariah Carey 14 40. Sexual Healing Michael Bolton Ifókus Mínus - Hey, Johnny! ★ ★★ Uppbyggilegt og kraumandi Hver hefur ekki séð rautt og brjálast eitt augnablik og kannski gert eitthvað sem hann átti ekki að gera? Brjálsemin stendur ekki lengi yfir hjá meðalmanni, hann nær kannski að grýta einum postulíns- hundi í gólfið áður en reiðin rennur af honum og þá fer hann oft að grenja og vorkenna sjálfum sér. Þeir sem ráða ekki viö reiðina enda á hæli eða í fangelsi. Strákarnir í Mínusi beina ofsanum í heilbrigðan farveg: Þeir rokka úr sér reiðina og „Hey, Johnny!“, þeirra fyrsta plata, er sam- fellt æðiskast i 35 mínútur. Vitaskuld eru fimmmenningarnir ósturlaðir með öllu. Þeir hafa gott vald á ofsanum og pakka honum snyrtilega inn í ellefu lög. Þar steyp- ist brjálunin fram eins og straum- hörð jökulá og veldur jákvæðum skemmdum á eyrum hlustenda. Þeir vita hvað þeir eru að gera, strákarn- ir; trommur og bassi skrölta áfram eins og drullugir skriðdrekar, gítar- arnir æpa eins og djöfullegir vél- byssukjaftar eða rispa og skera eins og mannhæðarháir ostaskerar. Mitt í djöfullegum niðnum stendur svo Krummi og gargar og gólar eins og froðufellandi spámaður. Ágætt hefði verið að vita um hvað allur æsingur- inn snýst, textablaö hefði semsagt verið ákjósanlegt, en það má geta í eyðurnar og nöfn laganna. Hvernig virkar svo kraumandi hrúgan? Jú, hún virkar fint. Blóð- þrýstingurinn vex og aðalmálið er að spila plötuna eins hátt og nágrann- arnir þola. Þá fær maður blóðnasir af heilbrigðri rokkreiðinni og kýlir kodda kalda. Tilbúin reiði Mínus er uppbyggileg. Ég myndi segja að ein yfhferð yfir plötuna væri álíka góð fyrir andann og líðanina eins og spinningtími er fyrir líkamann. En er reiði skemmtileg? Það er svo annað mál og verður ekki svarað hér. Hver og einn verður að gera það upp við sig um leið og hann másar að- framkominn á milli laga en þar hafa Mínus-menn sett búta úr gömlum Film Noir myndum, sem er skemmti- legt uppbrot. í endann kemur svo minu s Hey, Johnny! er fyrir þá sem vilja útrás. Af svitataumum þeirra skuluð þér þekkja þá. Siggi Pönk með brjálað ljóð sem hann flytur í óreiðukenndu umhverfi. Hvað sem hægt er að segja um skemmtigildi þessarar plötu er alveg víst að hún er reiðasta plata sem komið hefur út á Islandi. Þungt og brjálað rokk hefur ekki verið gert eins vel á íslandi fyrr og hér kemur Jón Skuggi sterkur inn og kreistir sannfærandi sánd úr ólmum strákun- um. Þeir sem vilja melódíur eða „gúddí filing" skulu leita annað. Hey, Johnny! er fyrir þá sem vilja útrás. Af svitataumum þeirra skuluð þér þekkja þá. Dr. Gunni plötudómur Heartheat - Sunday Session in Reykjavík ★★★★ Brjóstið vrð að bresta Hjartsláttarkvöldin góöu sem haldin voru á Kaffi Thomsen voru svalt framlag í tónlistarflóruna hérna hjá okkur Skerverjum. Þama fengu Hjartsláttargengið (GusGus, Björk og Hr. Örlygur) marga af heit- ustu jaðartónlistarmönnum samtím- ans til að kíkja yfir og spila fyrir tónþyrsta gesti á sveimandi sunnu- dagskvöldum. Þar myndaðist oft ógleymanleg stemning og á maður eflaust eftir að hugsa til baka til kvöldanna ef eitthvað af þessum tónum dettur í farveg meiksins og verður daglegt poppbrauð. En alla- vega, sem betur fer, var farið til Thule sem sér um aö gefa út þennan geisladisk þessum kvöldum til heið- urs. Þetta er vægast sagt frábær diskur með endalausum rjóma. Hann fer mjög sterkt af stað með lagi J-Walk, This is Soul Vibration, og er það nokkuð góð vísbending um hvað koma skal, rólegt gripandi grúf sem fær mann til að íhuga um- heiminn um leið og maður grípur byssuna, kyssir gelluna og kinkar kollinum í takt. Næst koma hip hop- trúðamir í Fúnf Steme Deluxe með fint lag, Sprachkurs deluxe/ Hip Hop Clowns & Party Rapper. Það viröist einmitt loða við þessa plötu að lögin em með voðalega flóknum nöfnum (allt er þetta dub, exclusive eða einhverjar mega remix endur- vinnslur). Að vísu er næsta lag með DMX Crew án flókins nafns og fídusalaust, Come to me, en það vill svo skemmtilega til að þetta er eitt besta lagið á plötunni, germanskt stálvinnslutrans, algjör snilld. Næst ríður GusGus-flokkurinn á vaðið með exclusive af Ladyshave, Lady- punk. Það er frekar leiðinlegt lag. Fyrst svo er er einkar jákvætt að fá exclusive video mix af Bjarkarball- öðunni All is full of Love til að vega upp á móti. Svo himneskt er það eymakonfekt að maður fer að gráta. Þá er líka Mike Paradinas-lagið þar á eftir frábært. Annar rappslagari skýtur upp kollinum um miðbik plötunnar, Precious Methods, en þar segir Skitz: „Action verse graphics/ flow from out of traffic/ heard over by the hits/ sprung out like plastic on Technics/ virtually interactive/ It’s only Die, Rhetna and Skitz/ now were doing the tracks/ leaving digi- tal fingerprints in the audio format." Ágætt en ekkert brill. En svona án þess að taka hvert einasta lag fyrir er ágætt að stelast aðeins meira og minnast á lag State of Bengal, Flight IC 408 sem flýgur með mann í drum ‘n bass sítartransi ein- hvers staðar yfir Indlandi. Til fróð- leiks má geta þess að flug IC 408 er Þó svo að lögin séu kannski ekki öll upp á tíu er það helst breidd disksins sem skorar mest. flugið á milli Varanasi og Delhi með Indian Airlines. Þó svo að lögin séu kannski ekki öll upp á tíu er það helst breidd disksins sem skorar mest. Ekkert þeirra jaðrar við að vera líkt hinum sem gerir það að verkum að löng hlustun er góð. Ekki er þá verra að hafa ofursmellina í bland sem mað- ur stelst alltaf til að hlusta aftur á en verður að passa sig á að nauðga ekki. En án frekari málalenginga þá er þetta frábær eign fyrir þá sem vilja vita vots hott en vots nott og alla hina sem þykjast hafa vit á svona hlutum. Hjartslátturinn er svo sterkur að brjóstið er við það að bresta. Halldór V. Sveinsson plötudómur ✓ x Osk Oskars- Draumur hjarðsveinsins ★ Ósk Óskars hefur verið dugleg að framleiða tónlist undanfarin ár. „Draumur hjarðsveinsins" er þriðja platan sem hún sendir frá sér og allt er þetta gefið út af henni sjálfri. Á nýju plötunni semur Ósk alla tónlist sjálf, ein eða í samvinnu við aðra, en textamir eru flestir eft- ir Jakobínu Johnson. Tónlistin er eins konar visnagutl með þjóðlegum blæ. Það sem ein- kennir hana umfram annað er söngstíllinn. Ósk syngur í rammís- lenskum skessustU. Svona söngur er ágætur sem stutt innskot í torf- bæjardrama í Stundinni okkar eða, af því að það eru að koma jól, sem hljóðtúlkun á Grýlu en að hlusta á þetta út heUa plötu er helv. pirr- andi. Platan er brotin upp með lögum sem Anna Lucy, dóttir Óskar, syng- ur. Miðað við mömmuna hljómar hún eins og engUl. Hún syngur líka besta lag plötunnar að mínu mati, „Hvaðan kemur þú?“, sem er sér- staklega einfalt og smekklegt stykki. Eitt lagið á plötunni sker sig nokkuð úr en það er rokklagið „Jú ég hef áður unnað“ sem Ósk gerir í samvinnu við Mike Pollock og Gunnþór Sigurðsson. Þetta er ein- hvers konar valíumpönk (karlarnir eru jú famir að eldast) og er vel- komin tUbreyting. Þessi plata er á heUdina litið fjöl- breyttari en fyrri plötur Óskar. Þetta er heldur að skána. Útsetn- ingar eru t.d. stundum nokkuð vel Þessi plata er á heildina fjöl- breyttari en fyrri plötur Osk- ar. Þetta er heldur að skána. gerðar. Enn þá er þetta samt útgáfa sem ætti kannski helst að gleðja vini og aðstandendur. Trausti Júlíusson 12 f Ó k U S 17. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.